Morgunblaðið - 06.07.1993, Qupperneq 1
88 SIÐUR B/C
149. tbl. 81. árg. ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vaxandi ófriður
í Kákasuslöndum
Tbilisi, Agdam. Reuter.
EDUARD Shevardnadze, leiðtogi Georgíu, slapp naumlega lífs þegar
sprengikúla sprakk rétt við bíl hans í Abkhazíu á sunnudag. Miklir
bardagar geisa þar nú milli stjórnarhersins og uppreisnarmanna,
sem krefjast sjálfstæðis héraðsins. í Azerbajdzhan virðist sem borg-
in Agdam sé að falla í hendur Armenum.
Hundruð eða þúsundir manna
hafa fallið í átökunum í Abkhazíu,
sem staðið hafa í tæpt ár, og stjórn-
arherinn í Georgíu kvaðst í gær
hafa ^hrundið nýjustu gagnsókn
uppréisnarmanna. Sagði talsmaður
hans, að tvær þyrlur hefðu verið
skotnar niður en Georgíustjórn sak-
ar Rússa um að sjá uppreisnar-
mönnum fyrir vopnum. Andrei Koz-
yrev, utanríkisráðherra Rússlands,
sagði um helgina, að yrði ekki sam-
inn friður fljótlega myndi Moskva
grípa til harðra efnahagsþvingana.
Armenar í Nagorno-Karabakh
sækja nú að azersku borginni Agd-
am, sem er utan héraðsins, og ráða
öllum hæðum umhverfis hana.
Armenar ráða nú ekki aðeins Nag-
orno-Karabakh, heldur einnig veru-
legu landi utan þess og hefur az-
erski stjórnarherinn farið miklar
hrakfarir fyrir þeim.
Sjá „Þjóðernis ...“ á bls. 27.
Atvinnu-
leysið 10%
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara
Morgunblaðsins.
ATVINNULEYSIÓ í Svíþjóð er
nú í fyrsta skipti frá síðari heims-
styrjöld komið í tveggja stafa tölu.
445.000 Svíar voru atvinnulausir
í lok júní, eða 10% af vinnuaflinu. í
lok maí voru 337.000 Svíar án at-
vinnu, eða 7,9%. Yfirvöld segja helstu
skýringuna á þessari miklu aukningu
þá að mörg ungmenni ljúki námi í
júní og komi þá á vinnumarkaðinn.
Þriðjungur hinna atvinnulausu,
153.000 manns, er á aldrinum 18-24
ára. Þetta þýðir að um fímmtungur
ungmenna á þessum aldri er án at-
vinnu. 100.000 Svíar hafa verið at-
vinnulausir í hálft ár eða lengur.
Sjálfsbjargarviðleitni í Sómalíu
ADDAM, fjögurra ára gamall sómalskur drengur, hefur sína aðferð við að verða sér úti um mat og annað munn-
gæti frá gæsluliðum Sameinuðu þjóðanna í Mogadishu í Sómalíu. Hann á þjóðfána alira hermannanna og flagg-
ar þeim e'ftir því, sem við á. Hér hefur hann brugðið ítalska fánanum á loft enda er ítalskur herflokkur að fara hjá.
Mafían á Ítalíu
Peter Sutherland, nýr framkvæmdastj óri GATT-viðræðnanna
Eignir
„fátæka
bóndans“
upptækar
Palermo. Reuter.
ÞEGAR Salvatore „Toto“
Riina var handtekinn í jan-
úar, sakaður um að vera
einn illræmdasti mafíufor-
ingi á Italíu, sagðist hann
bara vera fátækur bóndi
sem vissi ekkert, um maf-
íuna. En eitthvað virðist
hann hafa auðgast á land-
búnaðinum því í gær gerði
ítalska lögreglan upptækar
eignir Riina, fjölskyldu hans
og meints aðstoðarmanns.
Nam verðmæti eignanna um
60 milljónum dollara eða
tæplega 4,3 milljörðum ís-
lenskra króna.
Aldo Gianni, lögreglustjóri í
Palermo, sagði að eignaupptak-
an væri árangur margra mán-
aða rannsóknar á íjármálum
Corleonesi-fjölskyldunnar sem
laut stjórn Riina. Eignirnar sem
gerðar voru upptækar voru
fasteignir, bankareikningar og
hlutabréf í 11 fyrirtækjum.
Gianni sagði að líklega væru
þessar eignir bara toppurinn á
ísjakanum, en líkur bentu til
að búið væri að flytja stærstan
hluta þeirra úr landi.
Riina var búinn að fara huldu
höfði í 23 ár þegar hann var
handtekinn. Hann er sakaður
um að hafa fyrirskipað hundruð
morða sem einn helsti yfirmað-
ur mafíunnar.
Varað við tilhneigingu
til meiri vemdarstefnu
Reuter
Flugeldasýning á þjóðhátíð
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGUR Bandaríkjanna var á sunnudag, 4. júlí, og var
þá efnt til flugeldasýningar við þinghúsið í Washington. Er áætlað, að
450.000 manns hafí komið saman til að njóta ljósa- og litadýrðarinnar.
Milljónir starfa geta tapast ef þróun
til frjálsrar heimsverslunar tefst
PETER Sutherland, nýr framkvæmdastjóri almennu við-
ræðnanna um tolla- og viðskiptamál (GATT), hvetur leið-
toga sjö helstu iðnríkja heims til að koma í veg fyrir að
svonefnd Uruguay-lota viðræðnanna um aukið frelsi í
heimsviðskiptum bíði skipbrot. „Ætli leiðtogarnir í alvöru
að ráðast gegn langtíma atvinnuleysi, hleypa krafti í hag-
vöxt og auka velmegun, er rétta leiðin sú að ljúka Urugu-
ay-lotunni með árangri," sagði Sutherland á blaðamanna-
fundi í Sviss í gær.
Sutherland sagði að þess væri
vænst að leiðtogarnir létu ekki
duga orðagjálfur og yfirlýsingu
um að „stefnt yrði að“ markmiðum
en tækju þess í stað ákvarðanir.
Þriggja daga leiðtogafundur
sjöveldanna, G-7, verður í Japan
í vikunni. Sérfræðingar GATT
hafa sent frá sér skýrslu þar sem
sýnt er fram á að milljónir starfa
í iðnríkjunum muni fara forgörð-
um fari svo að þróun í átt til
frjálsrar heimsverslunar verði snú-
ið við. Aukin heimsviðskipti eru
talin hafa verið undirstaða efna-
hagslegra framfara frá lokum
seinni heimsstyijaldar.
Verndarstefna í sókn
Stjórnmálaskýrendur telja að
Sutherland hyggist hefja gagn-
sókn vegna vaxandi áhrifa sem
talsmenn verndarstefnu í alþjóða-
viðskiptum njóta nú í Frakklandi
og Bandaríkjunum. Þar er fullyrt
að vernda beri störf í heimalandinu
með því að sporna við innflutningi
frá rikjum þriðja heimsins þar sem
laun eru lægri. Hefur Francois
Mitterrand Frakklandsforseti m.a.
tekið undir þessi sjónarmið.
Nlðurgreiðslukapphlaup gæti
grafið undan EB
Karel van Miert, sem situr í
framkvæmdastjórn Evrópubanda-
lagsins (EB), varaði við því í gær
að vegna slæms efnahagsástands
gætu aðildarríkin farið að berjast
innbyrðis með því að auka niður-
greiðslur og ríkisstyrki til atvinnu-
vega sem ættu í erfiðri samkeppni
á alþjóðamarkaði. Slíkt kapphlaup
myndi grafa undan sjálfum undir-
stöðum bandalagsins. Miert nefndi
sem dæmi ótæpilega notkun ríkis-
styrkja í stáliðnaði EB-þjóðanna;
framkvæmdastjórnina skorti völd
til að draga úr þeim.