Morgunblaðið - 06.07.1993, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993
7
Skipulagður dósastuldur
úr skátakúlum fer í vöxt
Lifnar yfir
Laxá í Asum
Nýjar kúlur verða líklega hannaðar
MIKIÐ hefur borið á því að undanförnu, að sögn Þorsteins Sig-
urðssonar framkvæmdastjóra Þjóðþrifa, að skipulega sé stolið
úr dósasöfnunarkúlum skátahreyfingarinnar. Þessi faraldur er
að mati Þorsteins ein ástæða þess að dósum, sem skilað er í
skátakúlurnar, hefur fækkað um helming. Þorsteinn segir að
lögregluyfirvöld geti lítið aðhafst og vill hvetja almenning til
að vera á varðbergi og tilkynna lögreglu um grunsamlegar
mannaferðir við kúlurnar. Hann segir að nýjar rammgerðari
kúlur verði mjög liklega hannaðar svo að söfnunarverkefnið
borgi sig.
Þorsteinn sagðist í samtali við „Eins og málin standa er erfitt að
Morgunblaðið hafa heyrt af því halda svo víðtækri söfnun sem
margar sögur að fólk hafi séð til þessari áfram.“ Hann segir það
flokka fullorðinna manna ganga í
kúlurnar og hreinlega hreinsa þær.
Hann viðurkennir að kúlurnar séu
veikbyggðar og að auðvelt sé að
veiða dósir upp úr þeim en segist
jafnframt þekkja þess dæmi að
lásar, sem settir hafa verið í ör-
yggisskyni, séu sprengdir upp.
Aðspurður sagði hann það hafa
verið rætt innan skátahreyfingar-
innar að hætta dósasöfnuninni.
Tekinn
með þýfi í
öskutunnu
LÖGREGLUNNI í Reykjavík
barst tilkynning um ferðir
grunsamlegs manns sem var að
burðast með öskutunnu í
Kirkjustræti á laugardags-
morgunn. Við eftirgrennslan
kom í þ'ós að um einn af „góð-
kunningjum" lögreglunnar var
að ræða og öskutunnan full af
þýfi úr tveimur innbrotum.
í öskutunnunni reyndist nokkurt
magn af áfengi, fatnaði, geislaplöt-
um og ýmsum verkfærum sem
maðurinn hafði stolið í innbrotum
í tvo veitingastaði í miðborginni.
Maðurinn hefur ítrekað komið við
sögu lögreglunnar.
Ómar Smári Ármannsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn segir að
líklegt megi teljast að þessi maður
haldi áfram fyrri iðju, það er þjófn-
aði. „Það vaknar því sú spurning
afhveiju yfirvöld geti ekki sinnt
einstaklingum sem þessum betur
en raun ber vitni þannig að al-
menningur þurfi ekki að verða
fórnarlamb þeirra aftur og aftur,“
segir Ómar.
-----» ♦ ♦----
2JL)
pVJ
J£J2J rv/d JisJ/JriiJ/
því vera í athugun að hanna nýjar
kúlur sem yrðu mun rammgerðari.
Þær yrðu hannaðar með sérstöku
loki sem torveldaði dósaveiðar.
Fólk verði á varðbergi
„Ég tel aftur á móti brýnt að
fólk gangi til liðs við okkur og sé
á varðbergi gagnvart dósaþjófum.
Skátahreyfingin hvetur það til að
tilkynna lögregluyfirvöldum verði
það vart við þjófa en það er trú
mín að tiltölulega þröngur hópur
manna standi að dósastuldinum.“
Þjófar láta kúlurnar ekki í friði
AÐ UNDANFÖRNU hefur borið á því að umtalsverðu magni dósa
hefur verið stolið úr dósasöfnunarkúlum skátahreyfingarinnar.
Oííli
//aJjJJJj-J
SÍÐUSTU 4 daga hafa veiðst á
tvær stangir í Laxá í Ásum sam-
tals 83 laxar.
Samkvæmt upplýsingum Jóns
ísbergs hefur lifnað mjög yfir veiði
í ánni, sem var treg fyrst framan
af. Veiðimaður, sem var í ánni
rétt um mánaðamótin fékk 13 laxa
á einum degi og þeir, sem voru í
ánni 1. til 3. júlí fengu alls 40 laxa.
Þeir, sem komu í ána 3. júlí hafa
og fengið 30 laxa, þannig að heild-
arveiðin á fjórum dögum er orðin
83 laxar.
btti
&
I .u-'
v#vJár á
ISIANDI
20 Ford Ranger á
ótrúlegu afmælistilboði
í tilefni þess að nú eru 80 ár
liðin frá því fyrsti Fordinn
kom til landsins bjóðum við
20 Ford Ranger á meiriháttar
afmælistilboði. Komdu í dag
því það eru aðeins 20 bílar
á afmælistilboðinu!
Það fylgir því sérstök frelsistilfinning að eiga Ford Ranger
- þú ferð þangað sem þú vilt, þegar þú vilt. Á þessum öfluga
ameríska pallbíl, sem hefur verið mest seldi pallbíllinn í Bandaríkjunum
í áratug, eru þér allar leiðir færar.
Ford Ranger er frábær fyrir íslenskar aðstæður og hann er þýður sem
fólksbíll. Þótt vélin sé mjög öflug er þetta ótrúlega sþarneytinn bíll.
Aksturseiginleikarnir hafa aldrei verið betri, hann er sterkbyggður og
þú getur valið um margskonar aukabúnað og útfærslu.
Ford Ranger - hvert sem er, hvenær sem er
Hefur þú ekiö Ford... nýlega?
G/ObUSP
- heitnur gœða!
Lágmúla 5, sími 91- 68 15 55