Morgunblaðið - 06.07.1993, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.07.1993, Blaðsíða 10
10 MORGUKBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993 MENNING/ LISTIR TONLIST Sumartón- leikar í Skál- holtskirkju Sumartónleikar Skálholtskirkju eru að hefjast í nítjánda sinn. Næstu fimm helgar, með einu hléi, verður boðið upp á tónlist fyrir gesti og gangandi. Boðið verður upp á bar- rokktónlist frá Italíu og perlur Jó- hanns Sebast- ians Bachs auk nýsmíða J“n Nordal eftir Jón Nor- dal og Hafliða Hailgrímsson. Tvennir tónleikar eru jafnan á laugardögum kl. 15 og 17. og aðr- ir þeirra endurteknir á sunnudög- um kl. 15. Messa er síðan kl. 17 með þáttum úr tónverkum helg- arinnar. Á undan laugardagstón- leikunum kl. 14 eru alltaf haldin erindi um tónlistarleg efni. 10. og 11. júlí leikur Helga Ing- ólfsdóttir á sembal svokölluð Gold- bergtilbrigði eftir Bach og kl. 17 verður flutt nýsamið tónverk eftir Jón Nordai, tileinkað Skálholts- kirkju. Tónsmíð Jóns verður endur- tekin á sunnudaginn kl. 15. Jón Þórarinsson tónskáld flytur erindi á laugardaginn kl. 14 og talar um tónlist í Skálholti fyrr og nú. 17. og 18. júlí. Margrét Bóas- dóttir sópran og Bjöm Steinar Sól- bergsson oranisti flytja trúarleg verk eftir íslensk tónskáld á þess- ari öld kl. 15 en kl. 17 leikur Manu- ela Wiesler á flautu verk eftir C.Ph.E. Bach og nútímaskáld og endurtekur þann leik daginn eftir kl. 17. 31. júlí og 1. ágúst. Þessa helgi eru einkum flutt tónverk Hafliða Hall- grímssonar sem kemur frá Edinborg með þrjár nýj- ar tónsmíðar í farteskinu og tekur þátt í flutningi þeirra auk sönghópsins Hljómeykis o.fl. 7. og 8. ágúst. Þessir dagar eru helgaðir ítalskri barokktónlist, kammerverkum eftir Corelli og Vivaldi. Bachsveitin í Skálholti leikur en hún hefur lagt sig eftir flutningi á barokkverkum sem eru trú upprunalegum anda og stfl. Sér til aðstoðar fær sveitin hollenskan fiðluleikara, Jaap Schröder. 14. og 15. ágúst leikur Bac- hsveitin í Skálholti barokkverk; kantötur og „Fúgulistina" eftir Bach og Buxtehude. Með sveitinni verður gömbuleikarinn Laurence Dreyfus sem áður hefur léð Sumar- tónleium Skálholtskirkju krafta sína. MYNDLIST Olíukrítar- og pastel- Myndir í Eden Kári Sigurðsson sýnir oiíukrítar- og pastelmyndir í Eden dagana 5.-18. júlí. Á sýningunni eru um 40 myndir unnar á sl. þremur árum. Þetta er 25. einkasýning Kára. Hafliði Hallgrimsson Norrænn dinneijass Jass Guðjón Guðmundsson TRÍÓ sænska baritón- og tenór- saxófónleikarans Peters Gullins hefur leikið undanfarna daga hér á landi, hélt m.a. tónleika á jasshá- tíðinni á Egilsstöðum og lék fyrir fullu húsi á veitingastaðnum Duggunni í Þorlákshöfn við góðar undirtektir. Hljóðfæraskipun tríósins er óvenjuleg, Gullin á saxófóna, Morten Kargaard á gítar og Ole Rasmussen á kontrabassa, og markast tónlist tríósins nokkuð af því. Segja má að þeir flytji dinnerj- ass af betra taginu, gamlir stand- ardar var uppistaðan í prógramm- inu og leið tónlistin áfram átaka- laust og sviplaust. Ekki margt nýtt sem þeir félagar höfðu fram að færa og fyrir utan feillausan leik og sérviskulegar útsetningar, Morgunblaðið/Einar Falur Tríó Peters Gullin Tríó Svíans Gullin, f.v. Peter Gullin, Ole Rasmussen og Morten Kargaard. (The Girl from Ipanema), var ekki margt til fanga hugann þessa kvöldstund. Tríóið flutti tvö frumsamin lög, Tenderness eftir Gullin af sam- nefndum verðlaunadiski sem kom út í Svíþjóð í fyrra, og Understand it eftir Rasmussen. Bæði lögin eru af meiði tregaljóða (ballaða) eins og hann gerist hvað norrænastur. Gamla bítlalagið Here, There and Everywhere var því sem næst óbreytt en baritónsólóið var fal- legt. Gullin hefur þó alla burði sem saxófónleikari til að gera frjórri og kraftmeiri hluti en þetta. í pistli um tónleika. Svend As- mussen á Rúrek í maí var því haldið fram að Benny Goodman hafði leikið með danska fiðlaran- um í Kaupmannahöfn á stríðsár- unum. Þetta er alrangt og hefði aldrei getað gerst því Goodman var gyðingur sem iðkaði sína trú og Kaupmannahöfn hersetin Þjóð- veijum. Hins vegar reyndi Good- man ítrekað að fá Asmussen til Bandaríkjanna til að svinga með sér, en það er önnur saga. Diasstónleikar í fyrsta skipti í Þorlákshöfn Þorlákshöfn. TRÍÓ sænska saxófónleikarans Peters Gullin, eitt besta djasstríó Norðurlanda, lék fyrir nær fullu húsi í Duggunni í Þorlákshöfn fyrir skömmu. Gullin-tríóið lék á Djasshátíðinni á Egilsstöðum og mun einnig leika í Vestmannaeyjum og á Plúsnum í Reykjavík. Norræni menningarsjóð- urinn veitti styrk til þessarar ís- landsferðar en án hans hefði þessi ferð ekki verið möguleg. Sænski baritónsaxófónleikarinn Peter Gullin hefur verið atvinnu- djassari síðan hann var sextán ára. Hann fæddist í Mílanó á ítaííu árið 1959 en þar lék faðir hans, Lars Gullin, um þær mundir. Lars Gullin er fremsti djassleikari í sænskri djasssögu og gagnrýnandi nokkur sagði: „Peter erfði ekki bara saxó- fóninn hans pabba síns, heldur einn- ig hæfileikana." Meðal þeirra djass- leikara sem Peter Gullin hefur Ieik- ið með í Svíþjóð eru Brent Rosen- gren og Pétur Öslund. Með Gullin leika Danirnir Morten Kargaard gítarleikari og Ole Ras- mussen bassaleikari. Morten hefur m.a. samið tónlist fyrir stórsveit Thad Jones og Ole lék um tíma með stórsveit Duke Ellington. Ole hefur oft áður leikið á íslandi, m.a. með Contempo-tríóinu á Djasshá- tíðinni á Egilsstöðum í fyrra. Það var Vernharður Linnet sem hafði veg og vanda af ferð þeirra félaga til Þorlákshafnar. Á efnisskránni, sem var mjög fjölbreytt, voru mest létt kammer- verk. Mörg verkanna voru eftir þá félaga sjálfa svo sem Tenderness af samnefndum geisladisk tríósins, sem valinn var djassdiskur ársins 1992 í Svíþjóð. Áheyrendur kunnu greinilega vel að meta þessa heim- sókn og var tríóið klappað upp og lék aukalög. - JHS Nýtt tímarit NÝTT tímarit, Níu nætur, tímarit um heiðinn sið, er komið út. Ritið er ársrit ásatrúarmanna. í því eru fræðilegar og almennar greinar, viðtöl, skáldskapur og myndlist. Fjallað er um trúmál, fjölkynngi, sjamanisma, heiðinn sið í nútíð og fortíð og fleira sem tengist hinum forna menningar- arfi. Meðal efnis er myndasaga eftir Hauk Halldórsson, skáldskapur eftir Sveinbjörn Beinteinsson, Ey- vind og Steinar Vilhjálm, viðtal við Hilmar Örn Hilmarsson, grein- ar eftir Dag Þorleifsson og Helga Þorláksson, vangaveltur Magnús- ar Þorkelssonar um skort á fom- leifarannsóknum á Þingvöllum og skrif Matthíasar Viðar Sæmunds- sonar. Auk fyrrgreindra skrifa einnig Ólafur Engilbertsson, Hans Plomp, Jaquline Da Costa og rit- stjórar. Ritstjórar eru Þorri Jóhanns- son og Jón Þorvaldur Ingjalds- son. Blaðið er 84 bls. Tímarit um heiðinn sið, Níu nætur, er komið út. Mona Sandström. Einleikstónleikar 1 Listasafni Islands SÆNSKI píanóleikarinn Mona Sandström heldur einleikstónleika í Listasafni íslands að Fríkirkjuvegi 7 í Reykjavík, fimmtudaginn 8. júlí og hefjast þeir kl. 20. Mona Sandström lauk einleikara- prófi frá Sibeliusar-akademíunni í Helsinki og stundaði síðan fram- haldsnám í Frakklandi, Sviss og á Ítalíu, hjá m.a. Claude Helfer, Mar- ia Tipo og Michelle Campanella. Hún er nú búsett í Stokkhólmi og kemur reglulega fram bæði sem einkleikari og í kammertónlist. Á efnisskrá tónleikanna verða verk eftir Brahms, Beethoven, Pro- koffiev og Rachmaninof. íslenska húsið í FÁKAFENI 9 í Reykjavík hefur Óskar Jónsson opnað listagallerí sem heitir íslenska húsið. í versluninni eru einungis íslenskar gjafavör- ur og listmunir til sýnis og sölu. Flestar listgreinar sjást þar, t.d. leir- list, glerlist og myndlist. Á boðstólum eru bæði smærri listmunir, skúlp- túrar og málverk og einnig inni- óg útiljós. 1 íslenska húsinu eru list- mundir eftir marga starfandi listamenn. Meðal þeirra eru Þóra Sigur- þórsdóttir, Inga Elín, Magnús Kjartansson, Tolli, Óli Már, Kolbrún Kjarval, Ragna Ingimundardóttir, Steinunn Marteinsdóttir, Eydís Lúð- víksdóttir, Margo Renner og Hjördís Frímann. íslenska húsið er opið alla virka daga og kl. 10-14 á laugardögum. Óskar Jónsson í verslun sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.