Morgunblaðið - 06.07.1993, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993
Hvers á Hæsti-
réttur að gjalda?
eftir Skúla H.
Norðdahl
Hinn 7. júlí er skiladagur tillagna
í samkeppni um hús fyrir Hæsta-
rétt íslands. Eru þá liðnir 27 dagar
frá því að samkeppnisgögn voru
afhent keppendum.
Við lestur keppnislýsingar varð
mér ljóst hve útboðs- og samkeppni-
slýsing var í senn ábótavant og hún
stangaðist á við grundvallaratriði
sem samkeppnisreglur Arkitektafé-
lags íslands byggjast á. Af þeim
sökum skrifaði ég dómnefndinni
bréf það, er ég bið um að verði hér
birt.
Bréf til dómnefndar um sam-
keppni um nýbyggingu Hæstaréttar
íslands.
Að gefnu tilefni vekur undirritað-
ur athygli virðulegrar dómnefndar
á alvarlegum hnökrum á útboði um
samkeppni um mótun húss fyrir
Hæstarétt íslands.
U_m er að ræða tvö meginatriði:
I. í inngangi að samkeppnisregl-
um AÍ eru nefndar ýmsar teg-
undir samkeppni.
Um þær gilda að sjálfsögðu
mismunandi afbrigði af sam-
keppnisreglum eftir tilgangi og
eðli hverrar samkeppni.
Skulu hér nefnd tvö dæmi.
1. AJmenn hugmyndakeppni.
Tilgangur hennar er að leita,
að mati dómnefndar, bestu
lausnar á viðfangsefninu bæði
m.t.t. góðrar byggingarlistar
og hagnýts fyrirkomulags hús-
rýmis.
Til að trufla ekki réttlátt mat
í þeim efnum gilda tvær megin-
reglur, þ.e. algjör nafnleynd
höfunda og ákvæði um að
kostnað megi ekki gera að
áhrifaatriði við dóm, vegna þess
að tillögur eru jafnan í þeim
mælikvarða og á því stigi á
ákvörðunarferlinum að ekki er
unnt að meta og bera saman
tillögur í því efni á réttlátan
hátt.
2. Framkvæmdakeppni.
Slík keppni getur í eðli sínu
verið með ýmsum hætti. Hún
getur verið almenn hugmynda-
keppni, sem æskilegast er.
Munurinn frá almennri hug-
myndakeppni er aðeins sá, að
útbjóðandi lýsir fyrir og skuld-
bindur Sig til að framkvæma
hugmyndir sigurvegara í
keppninni. Þó er það frávik til
að útbjóðandi kaupi sig frá
þeirri ákvörðun falli honum bet-
ur í geð önnur tillaga.
Um slíka samkeppni gilda
að sjálfsögðu reglur nafnleynd-
ar og reglan um kostnaðaráhrif.
Aðrar leiðir eru þær, sem
gilda á verktökumarkaðinum
og snúast fyrst og fremst um
kostnað, bæði hönnunarkostnað
og framkvæmdakostnað. í því
felst að byggingarlistræn gildi
vega með öðrum hætti en í
áðumefndu dæmi.
Einkenni slíkrar keppni er
að nafnleynd verður vart við
komið vegna eðlis þeirra upp-
lýsinga, sem gefa verður.
Af lestri útboðsins tel ég óhjá-
kvæmilegt að vekja athygli dóm-
nefndar á því sem hér er ritað.
II. Útboð samkeppni _um nýbygg-
ingu Hæstaréttar íslands. Hver
er tilgangur samkeppninnar?
1. „Leitað er að hugmynd að
sjálfstæðri og hagkvæmri bygg-
ingu, sem hæfir æðsta dómstól
landsins." (Inngangur.)
2. „Byggingin skal vera sjálf-
stæð í formi sínu og allri gerð,
auk þess að endurspegla þann
virðuleika sem starfsemi
Hæstaréttar hæfir.“ (Markmið.)
3. „Gera skal tillögu um hag-
kvæmt hús fyrir Hæstarétt Is-
lands sem fellur vel að skil-
greindri þörf réttarins." (Mark-
mið.)
Þó að byggingarlist sé ekki nefnd
í þessum óskum, er þar um að
ræða helstu einkenni góðrar bygg-
ingarlistar.
Samkeppni, sem byggist á þess-
um óskum er eðlilegt viðfangsefni
almennrar samkeppni með fullri
nafnleynd og mati á góðri bygging-
arlist, er sómir virðingu Hæstarétt-
ar íslands.
Önnur ákvæði og kröfur í útboð-
inu eru þessu að mestu óviðkom-
andi og skal komið að því.
í skilmálum lið 2.1., Þátttaka,
er skilgreint hverjir hafa þátttöku:
rétt og að samkeppnisreglur AÍ
gildi sem leikreglur keppenda og
dómara. í lið 2.6., Samkeppnistil-
lögur, segir í lið g um hverju skila
eigi af gögnum.
„Vinnu- og mannaflaáætlun
vegna arkitektahönnunar, sam-
anber eftirfarandi tímasetningar.
Byggingamefndarteikningar:
8 vikum eftir samning við arki-
tekt. Uppsteyputeikningar: 6 vik-
um eftir samning við arkitekt.
Innréttingateikningar: 30 vikum
eftir samning við arkitekt."
„Sá arkitekt sem samið verður
við um hönnun byggingarinnar,
skal hafa nauðsynlegan mann-
afla til að ljúka hönnunarvinnu
á tilsettum tíma.“
Hér er farið á skjön við sam-
keppnisreglur AÍ. Vegna þess að
þetta á ekkert skylt við samkeppni
um byggingarlist, en gefur hins
vegar upplýsingar um teiknistofur
og útilokar þar með nafnleyndina.
En hér hangir fleira á spýtunni.
Þetta ákvæði fælir frá þátttöku
og e.t.v. útilokar stærsta hóp ís-
lenskra arkitekta, sem ekki eru
komnir með mannmargar teikni-
stofur. Þetta útilokar hæfileTkaríkt
ungt fólk frá að fá tækifæri að
koma undir sig fótunum.
Þetta ákvæði hyglar hópi arki-
tekta, sem þegar hafa komið á fót
stórum teiknistofum.
í lið 2.4., Samkeppnisgögn, segir:
„Líkön verða í vörslu trúnaðar-
manns, þar sem þátttakendur
geta komið og stillt líkönum af
byggingum sínum inn á heildar-
líkan, t.d. vegna ljósmyndunar.
Panta skal tíma hjá trúnaðar-
manni áður.“
Með þessu móti er verið að stefna
nafnleynd úrlausnanna í tvísýnu og
jafnvel koma í veg fyrir að unnt
sé að halda eðlilegri nafnleynd.
Þau dæmi sem hér hafa verið
nefnd bijóta afgerandi í bága við
grundvallarhugmyndina að baki
samkeppnisreglum AÍ.
Kafli 7. Kostnaður nýbyggingar.
Þar segir: „Verktakakostnaður
fyrir nýbyggingu Hæstaréttar
skal vera lægri en 290 milljónir
króna. Með verktakakostnaði er
áft við heildarkostnað við mann-
virkið, þar með talin fullfrágeng-
in lóð, að frádregnum:
* Ráðgjafarkostnaði (hönnun,
útboðsgögn, umsjón, eftirlit og
þess háttar).
* Opinber gjöld (lóðagjöld og
tengigjöld stofnlagna, skipulags-
gjald o.s.frv.).
* Sérbúnaður (lyftur, öryggis-
kerfi, brunaviðvörun, tölvur
o.fl.).
* Kostnaður vegna undirbún-
ings, umsjónar og stjórnunar á
byggingartíma.
Samkeppnistillaga skal því
vera innan ofangreinds kostnað-
ar- og stærðarramma."
Þá er gefin upp gólfflatarstærð
1.900 m* 2 án kjallara og lögð áhersla
á stærðar- og gæðakröfur vistar-
vera og útlit. Það er jafnvel gengið
svo langt að fyrirskipa byggingar-
gerð hússins í 6. kafla, Byggingar-
leg gerð og gæði. Hvað felst í þess-
um kröfum?
Gera verður ráð fyrir ríflegri loft-
hæð í forstofum og dómsölum og
nokkurri fyrirferð byggingargerða.
Varlega má því áætla að brúttó
lofthæð verði á bilinu 360-400 cm,
þ.e. rúmmál byggingar án kjallara
7.000-8.000 m3 (þ.e.a.s. ekki allt
húsið) fyrir 290.000.000 eða 36.250
kr./m3 til 41.430 kr./m3 6 7 (vönduð
íbúðarhús kosta 30-50 þús.
kr./m8). Innan slíkra kostnaðar-
marka á að vanda til kostnaðars-
amra viðhaldsfrírra efna og við-
hafnarlegs frágangs innandyra.
Fleira mætti tilgreina.
Þá er komið að því sem valdið
hefur undirrituðum heilabrotum. í
samkeppnisreglum AÍ segir um
keppnislýsingu og hlutverk dóm-
nefndar: „ Útbjóðandi útvegar nauð-
synlegar upplýsingar og gögn til
þess að hægt sé að skilgreina verk-
efnið. Dómnefnd vinnur úr þessum
gögnum og fullgerir forsögn og
keppnislýsingu.“
Dómnefnd er skipuð fagmönn-
um, hæstaréttardómara með yfir-
sýn yfir þær reglur sem gilda um
dómsmeðferð og arkitektum, sem
eiga að hafa yfirsýn yfir eigin leik-
reglur og eðlileg ferli á sínu starfs-
sviði, sem er viðfangsefni keppninn-
ar.
Mér er spurn hvort þessum aðil-
um hafí brugðist árvekni við samn-
ingu samkeppnisútboðsins eða var
það samið á einhverri skrifstofu og
afhent dómnefnd til undirskriftar.
Ef þessi ósvífna tilgáta mín reyn-
ist rétt (hana má rökstyðja með
framangreindum athugasemdum)
má þessi samkeppni ekki fara fram
eins og til er stofnað.
Ástæðan er að heiðarlega sam-
keppni um byggingu fyrir Hæsta-
rétt sem Hæstarétti er verðug má
undir engum kringumstæðum snú-
ast upp í andhverfu sína.
Það er undir viðbrögðum dóm-
nefndar komið hvort þetta fer í
dagblöðin ásamt frekari athugun-
um á útboðinu.
Með vinsemdarkveðjum.
Reykjavík 6. júní 1993.
Skúli H. Norðdahl
Ark. FAÍ.
Bréfi þessu skilaði ég í hendur
trúnaðarmanns dómnefndar fyrir
þann tíma að keppendur máttu
leggja fryirspumir sínar fyrir dóm-
nefnd samkeppninnar.
Þegar dómnefnd hafði sent frá
sér svör sín við fyrirspumunum
fékk ég að vita hjá trúnaðarmanni
dómnefndar, að ég fengi ekki svar
dómnefndar við bréfi mínp.
Af þeim sökum varð ég mér úti
um svör dómnefndar við fyrirspurn-
um þátttakenda, þau gefa mér til-
efni til frekari skrifa um þetta mál
undir fyrirsögn þessari: „Hvers á
Hæstiréttur að gjalda."
Eins og fram kemur í bréfí mínu
bendi ég á og vara dómnefndina
við að halda áfram samkeppni þess-
ari samkvæmt útboðinu og keppnis-
lýsingu. Það var ekki að ástæðu-
lausu, eins og sést á því að áður
en nefndin svarar fyrirspurnum
beint gefur hún út sjö breytingar á
samkeppnisútboðinu. Slíkt hefur
aldrei áður gerst í almennri sam-
keppni arkitekta og á ekki að geta
gerst samkvæmt grundvallarregl-
um í samkeppnisreglum AÍ. Fyrir-
spurnartíminn er til að veita svör
við spurningum til frekari skýringa
á skilmálunum en ekki til að breyta
eðli samkeppninnar.
Þessar sjö breytingar eru í styttu
máli:
1. Felld er niður skylda.til að
Skúli H. Norðdahl
„Því spyr ég forystu
Arkitektafélags Islands,
dómnefndarfulltrúa
stéttarinnar og arki-
tekta, sem fallast á
framangreind vinnu-
brögð, hvar er virðing
ykkar fyrir starfssviði
stéttar okkar, að fallast
á þessi vinnubrögð?
Einnig spyr ég fulltrua
Hæstaréttar í dómnum
hver sé virðing hans fyr-
ir grundvelli, þ.e. regl-
um, undirbúningi og
vinnubrögðum, til að
geta dæmt heiðarlega
og af réttsýni í svona
máli?“
leggja fram vinnu- og mannafla-
áætlun um framgang vinnu að lok-
inni samkeppni.
2. Kröfur um geymslur og tækni-
rými eru auknar úr 540 m2 í 655
m2 og bætt við 350 m2 fyrir bíla-
geymslur.
3. Bætt er við og skilgreindar
kröfur um bílastæði.
4. Breitt er óskum um mæli-
kvarða á sniðmyndum og sérhluta-
teikningum úr mælikv. 1:20 í 1:50.
5. Viðmiðun um hámark bygg-
ingarkostnaðar er aukin úr 290
millj. kr. í 302 millj. kr. eða um
12 millj. kr. vegna þess að nú er
krafist bílageymslu að auki.
6. Fallið er frá kröfu um að
„heildarstærð nýbyggingar, ofan
kjallara, skal ekki vera meiri en
1.900 fermetrar" (heildarstærð
2.711 m2).
7. Vakin er athygli á að húsrým-
isáætlun í keppnislýsingu er „fyrst
og fremst viðmiðunartölur".
Hveijar geta verið ástæður fyrir
því að dómnefnd leiðist út í slíkar
breytingar?
Fyrst og fremst illa unnin for-
vinna að keppnislýsingunni.
Einnig geta legið að baki ábend-
ingar í bréfí mínu og að því er varð-
ar 1. lið breytinganna fyrirspurnir
nr. 1, 13, 52, 53 og 62 um vinnu-
og mannaflaáætlun.
Að því er varðar liði 2 og 3 geta
13 af 70 fyrirspurnum um bíla-
stæðakröfur hafa haft sín áhrif.
Varðandi 5. liðinn er í fyrirspurn-
um nr. 55 og 69 vakin athygli á
hve vafasöm sé sú -kostnaðaráætl-
un, sem dómnefnd tekur mið af.
Ennfremur bendi ég á það í bréfi
mínu.
Um liði 6 og 7 verður það að
segjast að efast má um heilindi
dómnefndar um húsrýmisáætlun-
ina. Af framsetningu þessa breyt-
ingarliðar gefur dómnefndin sér
fijálsar hendur um mat á því,
hvernig kröfunum um húsrýmið er
mætt, þegar bornar eru saman hin-
ar ýmsu tillögur. Eins og sam-
keppnisútboðið getur gefið tilefni
til frekari athugasemda ■ má það
sama segja um fyrirspurnirnar 70
og svör dómnefndar.
Hér skulu þó aðeins gerð að
umtalsefni þijú atriði: ,
I. Þátttökuheimildin.
Liður 2.1., Þátttaka (í útboðsskil-
málum):
„Rétt til þátttöku hafa félagar í
Arkitektafélagi íslands og aðrir
arkitektar, sem áunnið hafa sér
réttindi til að leggja aðalteikning-
ar fyrir byggingarnefndir. Allir
þeir, sem hafa tekið þátt í undir-
búningi samkeppninnar eru úti-
lokaðir frá þátttöku. Að öðru
leyti vísast til samkeppnisreglna
Arkitektafélags íslands."
í 3. gr. Samkeppnisreglna AÍ
segir í síðustu málsgrein:
„Auk dómara og ritara dóm-
nefndar, er þátttaka óheimil þeim
sem rekur teiknistofu með dóm-
ara, vinnur að verkefnum með
honum eða er honum nátengdur.
Vafatilfelli skal bera undir stjórn
AÍ.“
Hér þarf að bæta við að hið sama
gildir um ráðgjafa dómnefndar og
um dómarana.
Tvær fyrirspurnir snerta þetta
mál.
40. fyrirspurn: „Gerðar hafa ver-
ið tillögur að húsi fyrir Hæstarétt
af ákveðnum aðilum. Líklegt er að
þessi gögn hafi verið höfð til stuðn-
ings við gerð forsagnar samkeppn-
innar. Einhveijír af hugsanlegum
þátttakendum hafa haft aðgang að
umræddum gögnum. Til að gæta
fyllsta réttlætis gagnvart öllum
þátttakendum er óskað eftir því að
gögn þessi verði gerð opinber."
Svar: Umrædd vinnugögn verða
ekki gerð opinber, enda hefur bygg-
ingarnefnd hússins ákveðið að
byggja húsið ekki eftir þeim gögn-
um, heldur ákveðið að efna til sam-
keppni.
Ef þátttakandi er í vafa um rétt
sinn til þátttöku í keppninni ber
honum skv. grein 3 í samkeppnis-
reglum AÍ að bera það undir stjórn
Arkitektafélags íslands til úrskurð-
ar. Að öðru leyti er alfarið vísað til
samkeppnisreglna Arkitektafélags
íslands.
68. fyrirspurn: „Hvernig bera að
skilja grein 2.1., Þátttaka, þar sem
segir: „Allir þeir, sem hafa tekið
þátt í undirbúningi samkeppninnar
eru útilokaðir frá þátttöku." Er
arkitektum starfandi hjá Borgar-
skipulagi Reykjavíkur, embætti
Húsameistara ríkisins og Teikni-
stofu Ingimundar Sveinssonar
heimil þátttaka?"
Svar: Sjá svar 40.
I ljósi þeirra ótvíræðu ákvæða í
samkeppnisútboðinu og samkeppn-
isreglunum er þess að vænta að
dómnefndin gefi skýlaust svar en
ekki véfrétt.
Grundvallarhugsunin að baki
samkeppnisreglunum er: a) að allir
keppendur standi jafnt að vígi bæði
hvað snertir þann tíma sem þeir
geta haft vitneskju um keppnis-
gögnin og b) engin tengsl geti ver-
ið milli dómara og keppenda.
I þessu tilviki bar dómnefnd að
svara því skýrt og skorinort hveijir
yrðu útilokaðir.
II. Kostnaðarviðmiðunin.
55. fyrirspurn: „Telur dómnefnd
raunhæft að heildarkostnaður við
2.700 m2 byggingu, í þeim gæða-
flokki, sem um er beðið, geti verið
undir eða nálægt 290 milljónum,
þ.e.a.s. 104.700 kr. á fermetra og
rúmar 26 þúsund krónur á rúm-
metra ef miðað er við 11.000 rúm-
metra byggingu?"
Svar: Vakin er athygli á því, að
um er að ræða verktakakostnað,
þ.e.a.s. þann kostnað, sem verktök-
um er greiddur skv. verksamning-
um.
í þessu sambandi má nefna, að
ríkissjóður hefur nýlega gert al-
verksamning um byggingu stjórn-
sýslumannvirkis (byggingin tilbúin
til notkunar) og má í því sambandi
nefna eftirfarandi:
Gæði: Vandað en hefðbundið
skrifstofuhúsnæði, loft ýmist niður-
hengd eða máluð, lofthæð er 280
og 360 cm í rýmum. Innveggir í
skrifstofurýmum stálgrind, gips-
klædd með einangrun. Gólfefni
ýmist teppi eða linoleum. Almenn
lýsing í skrifstofum 500 til 600 lux.
Einungis miðrými og hreinlætisað-
staða eru með vélrænni loftræst-
ingu.
Stigagangur/sameign: Gólf: Flís-
ar, náttúrusteinn eða terrasso.