Morgunblaðið - 06.07.1993, Síða 17

Morgunblaðið - 06.07.1993, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6., JÚLÍ 1993 17 Varði doktorsritgerð við Gautaborgarháskóla GUÐMUNDUR Geirsson, lækn- ir, varði hinn 23. apríl sl. dokt- orsritgerð við Háskólann í Gautaborg. Ritgerðin nefnist á frummáli: „The Bladder Cool- ing test-Physiology, guidlines and clinical in urodynamics.“ Ritgerðin, sem byggir á klínisk- um rannsóknum gerðum á þvag- færaskurðlækningadeild Sa- hlgrenska sjúkrahússins, íjallar um notkun og gagnsemi á s.k. ísvatnsprófi við eðlilegar rann- sóknir hjá sjúklingum með blöðru- truflanir. Þetta er gamalt próf sem áður fyrr var notað til þess að greina á milli efri og neðri mæn- uskaða en hefur síðan verið að mestu gleymt. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að maðurinn hefur s.k. kulda- viðbragð („cooling reflex“) með upptök í sérstökum kuldaviðtökum („cold receptors“) í blöðruveggn- um sem líkjast kuldaviðtökum húðarinnar. Um er að ræða frum- stætt viðbragð, þ.e.a.s. viðbragð sem er hjá ungbörnum en hverfur síðan eftir því sem taugkerfi bamsins þroskast og er því ekki í heilbrigðum einstaklingum. ís- vatnsprófið verður þá neikvætt. Hulda Finnbogadóttir arra kvenna í sambærilegum störf- um, hvetur konur til að hefja nýja sókn. Þegar það sýnir sig aftur og aft- ur að „strákarnir" vinna eftir öðrum leikreglum. Leikreglum sem konur hafa ekki unnið eftir hingað til. Allt þetta kennir okkur að hefja nýja sókn með breyttum áherslum. Þetta kennir okkur að það þýðir ekki lengur að bíða eftir að vera metnar að verðleikum. Við erum metnar eftir kyni. — Við erum metnar annars flokks. Þetta kennir okkur að standa enn betur saman. Ekki spyija framar hver aðra, hvort við treystum okk- ur, heldur einfaldlega ieika sama leikinn og „strákarnir": Segjast ætla að verða ráðherrar... og verða það. Höfuadur er fyrrverandi bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í Kópavogi. Dr. Guðmundur Geirsson. Kuldaviðbragðið kemur fram við skaða á hinum sérstæðu tauga- brautum sem taka þátt í að stjórna þvagblöðrunni og verður ísvatns- prófið þá oft jákvætt. Rannsóknin sýnir að ísvatnsprófið er ekki ein- ungis jákvætt hjá sjúklingum með mænuskaða heldur einnig hjá fjölda sjúklinga með þvagleka vegna s.k. óhamminnar blöðru. Þessir sjúklingar skynja ekki eðli- ega þegar blaðran fyllist og geta ekki sjálfrátt haldið í sér þegar þeim verður mál. Þessi tegund þvagleka er mjög algengur hjá eldra fólki. ísvatnsprófið er því einföld rannsókn án nokkurra aukaverkana sem gefur mikilvæg- ar upplýsingar um taugstjórnun á neðri hluta þvagfæra hjá sjúkling- um með þvagleka og aðrar truflan- ir á starfsemi blöðrunnar. Leiðbeinendur Guðmundar í doktorsnáminu voru dr. Magnus Fall og prófesor Sivert Lindström. Andmælandi var sr. Paul Abrams frá Bristol Englandi. Guðmundur lauk stúdentsprófí frá menntaskólanum við Hamra- hlíð árið 1976. Hann lauk embætt- isprófi í læknisfræði við Háskóla íslands 1984. Hann stundaði framhaldsnám í þvagfæraskurð- lækningum í Bandaríkjunum og Svíþjóð 1986-1992. Frájúní 1992 starfað sem sérfræðingur við þvagfæraskurðdeild Borgarspítal- ans í Reykjavík. Guðmudur er fæddur á Raufar- höfn 22. mars 1957. Hann er son- ur hjónanna Geirs Ágústsson^r húsasmiðs og Ingigerðar Guð- mundsdóttur. Guðmundur er kvæntur Bryndísi Ottósdóttur og eiga þau 4 börn: Ingigerði, f.1978, Eddu, f. 1982, Ásu, f. 1988, og Magnús Ara, f. 1992. TÆLENSKUR MATUR TÆLENSKT UMHVERFI Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans! y ILMANDI Á 15 MÍN EKKI AÐEINS HEITT, HELDUR LÍKA NÝBAKAÐ HATTING brauðið er fryst áður en það er fullbakað . Þú setur frosið brauðið í bökunarpokanum í ofninn og lýkur bakstrinum á fimmtán mínútum. Afraksturinn er nýbakað, mjúkt og ilmandi hvítlauksbrauð. LOKAÐ I DAG ÞRIÐJUDAG ÍTSALAA hefsl á morgun Uáuntu fataverslun hf v/Nesveg, Seltjarnarnesi. 5 ÖRKIN 1012-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.