Morgunblaðið - 06.07.1993, Page 22

Morgunblaðið - 06.07.1993, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993 4 Þróunarsamvinnustofnun í Namibíu og Malaví Vel hefur tekist til við þróunarverkefni í ÍTARLEGRI úttekt, sem gerð hefur verið á verkefnum Þróun- arsamvinnustofnunar ísiands í Namibíu, kemur fram að í meg- inatriðum hafi tekist vel til. Rannsóknaskipið Benguela hafi mikið verið á sjó við rannsóknir til að bregðast við þörfum Hafrannsóknastofnunar Namibíu og ekki hafi orðið verulegar tafir vegna bilana þótt skipið sé komið til ára sinna. Vísinda- leg ráðgjöf íslensku fiskifræðinganna hafi komið að góðum notum þó nýta hefði mátt þekkingu þeirra enn betur. Ennfrem- ur hafi stjórn verkefnisins verið góð og árangursrík miðað við aðstæður. Hins vegar benda skýrsluhöf- undar, dr. Anna Marais líffræði- dósent og Valdimar Halldórsson mannfræðingur,' á að verkefnið hafi ekki verið nægilega undirbúið og það í raun hafist áður en skrif- að var undir samninga og verklýs- ingu milli ríkisstjórnanna. Menn hafi ætlað sér að gera of margt á of stuttum tíma. Þá hafi namibísk stjórnvöld vanrækt að kynna ís- lendingana og hlutverk þeirra fyr- ir starfsmönnum Hafrannsókna- stofnunar Namibíu og öðrum sam- starfsaðilum. Ráðning áhafnar á skipið hafi ekki verið vönduð nægi- lega með það fyrir augum að heimamenn úr áhöfn gætu hlotið þjálfun og menntun sem yfirmenn. Hófst 1990 Verkefnið í Namibíu hófst seint á árinu 1990, en tilmæli þar um höfðu borist frá forseta landsins haustið 1989. í stærstu dráttum voru markmiðin að safna upplýs- ingum fiskistofna í landhelgi Namibíu og gefa ráð um veiðiþol þeirra. Verkefnið skiptist í byrjun í tvo þætti: Aðstoð við fiskirann- sóknir og rekstur rannsóknaskips- ins Benguela. Þá hefur Valdimar jafnframt gert úttekt á svokölluðu SADC- verkefni í Malaví, en það á rætur að rekja til bréfs frá SADC-ríkja- bandalagi sunnanverðrar Afríku þar sem Norðurlöndin voru beðin að hjálpa fiskimálaskrifstofu SADC, sem staðsett var í Malaví, með því að leggja þeim til sérfræð- ing í fiskimálum og árlegt rekstr- arfé. Norðurlöndin fólu svo Þróun- arsamvinnustofnun íslands fram- kvæmdina. Eftir undirbúning fyrrihluta árs 1988 var ákveðið að ráða mann á skrifstofu fiski- mála fyrir SADC-ríkin í Malaví og tók hann til starfa í október 1988. Hlutverk hans skyldi vera þrenns konar: Aðstoða við dagleg- an rekstur skrifstofunnar, und- irbúa verkefni og styrkbeiðnir, koma á fundum og halda sam- bandi við SADC-ríkin og þróunar- stofnanir iðnríkjanna, vera sér- íslendingar í Namibíu UM TÍU íslendingar starfa í Namibíu á vegxim ÞSSÍ, en með eiginkonum og börnum eru yfir 30 íslendingar nú búsettir í landinu. Hér má sjá hluta hópsins á tröppum Hafrannsóknastofnunar Nam- ibíu sem staðsett er í Swakopmund. stakur fulltrúi Norðurlandanna gagnvart SADC með allt er við- kæmi fiskimálum, miðla upplýs- ingum, veita aðstoð við eftirlit með framkvæmd verkefna og hjálpa til við fjármögnun fiskimálaverkefna hjá Norðurlöndunum. Loks átti hann að annast tvíhliða þróunar- .. Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir A rannsóknarskipinu SKIPVERJAR á rannsóknaskipinu Benguela við vinnu sína á bryggjunni í Valvis Bay. Benguela í baksýn. 82,6% vilja að sveit- arfélög niðurgreiði strætisvagnaþj ónustu ALMENNINGSVAGNAR, byggðasamlag sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, lét Gallup kanna viðhorf íbúanna til rekst- urs fyrirtækisins. Niðurstöður voru um flest mjög jákvæðar fyrir fyrirtækið; tæplega 80% aðspurðra sögðu sitt viðhorf ják- vætt gagnvart Almenningsvögnum. 82,6% eru því fylgjandi að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu niðurgreiði strætisvagna- þjónustuna. Jafnvel þótt tæplega 62% aðspurðra ferðuðust aldr- ei með vögnunum. Almenningsvagnar, AV, er byggðasamlag sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um sameigin- lega og samræmda þjónustu stræt- isvagna. Stofnaðilar eru: Bessa- staðahreppur, Garðabær, Hafnar- Qörður, Kjalameshreppur, Kópa- vogur og Mosfellsbær. Fyrirtækið tók til starfa 15. ágúst í fyrra. Eft- ir að vagnarnir höfðu verið í rekstri í nokkur misseri töldu forráðamenn Almenningsvagna nauðsynlegt að kynna sér reynslu og viðhorf íbú- anna til reksturs fyrirtækisins. Einnig vildu þeir fá upplýst hversu margir nýttu sér þjónustu fyrirtæk- isins. Og ennfremur afstöðu fólks til þess að sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu greiddu niður stræt- isvagnaþjónustu. Gallup - íslenskar markaðsrannsóknir var fengið til að afla þessara upplýsinga. Könnun Gallup var símaviðtals- könnun og framkvæmd dagana 5-7. maí 1993. Úrtakið var valið tilvilj- unarkennt úr þjóðskrá. Það saman- stóð af 1.000 einstaklingum úr Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ og Bessastaðahreppi á aldrinum 15 til 75 ára. Viðmælend- ur voru beðnir að svara alls 19 spurningum. Nettósvörun varð 76,4%. Niðurstöðurnar gleðiefni Niðurstöður könnunarinnar voru Ingimundi Sigurpálssyni stjórnar- formanni Almenningsvagna og bæj- arstjóra í Garðabæ að flestu leyti gleðiefni. Viðhorf fólks í sveitarfé- lögunum til Almenningsvagna var almennt mjög jákvætt. Eða nánar tiltekið 62,4%, og frekar jákvæðir voru 27,2%; samanlagt 79,6%. Nei- kvæðir voru hins vegar einungis 3,3%. 83,1% töldu vagnanna vera mjög stundvísa eða frekar stund- vísa. Og 74,9% vom mjög ánægð eða frekar ánægð með viðmót vagn- stjóranna. Flestum þótti strætis- vagnaþjónustan hafa batnað eftir að Almenningsvagnar tóku við henni. Morgunblaðið/Kristinn Könnun kynnt SÍMAVIÐTALSKÖNNUN sýndi jákvætt viðhorf til Almennings- vagna. F.v. fulltrúi Gallup, Hafsteinn Már Einarsson; og talsmenn Almenningsvagna Örn Karlsson fráfarandi framkvæmdasljóri, Pétur U. Fenger framkvæmdastjóri og Ingimundur Sigurpálsson sljórnar- formaður. Gagnrýnisefni Talsmenn Almenningsvagna vildu þó ekki leyna því að í svörum við nokkrum spumingum hefði komið fram gagnrýnisefni eða óánægja. Þeir tilgreindu nokkur Notkun græna kortsins er hlutfalislega meiri meðal 29,4% fólks með háar fjölskyldutekjur en lágar 29,3% hlynnt(ur) 14,8% 11,1% 200- H Hærri en 299 þús. ■ 300 þús. FJOLSKYLDUTEKJUR Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að sveitarfélög á höfuð- borgarsvæððinu niðurgreiði strætisvagnaþjónustuna? Frekar hlynnt(ur) 5,7% Hvorki hlynnt(ur) né andvíg(ur) - 8,2% Frekar andvíg(ur) 3,4% Mjög andvíg(ur) Skoðanakönnun Gaiiup atriði. 25% aðspurðra í Kópavogi fannst þjónustan hafa versnað eftir að Almenningsvagnar tóku við en 42% fannst hún hafa batnað. í hin- um sveitarfélögunum var hlutfall þeirra sem töldu þjónustuna hafa batnað mun hærra; yfir 90%. Ingi- mundur Sigurpálsson stjórnarfor- maður Almenningsvagna benti á að áður en Almenningsvagnar tóku við hefði strætisvagnaþjónusta ver- ið mun betri í Kópavogi heldur en í hinum sveitarfélögunum, svo það væri í sjálfu sér ekki óeðlilegt að ánægja Kópavogsbúa með breyt- inguna væri minni. Græna kortið í könnuninni var spurt um notk- un á fjölnota afsláttarkorti, svo- nefndu grænu korti, sem kostar 2.900 kr. fyrir 30 daga. Tæplega 20% viðmælenda sögðu græna kort- ið notað á þeirra heimili. í tæplega 80% tilvika var aðeins einn aðili um kortið, en í 17% tilvika tveir, og -j

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.