Morgunblaðið - 06.07.1993, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993
Fjögur hundruð atvinnu-
lausir um mánaðamótin
íþróttahelgi á Akureyri
MEÐ SANNI má segja að síðasta helgi hafí verið íþróttahelgi á
Akureyri. Nærri lætur að hálft annað þúsund manna hafí tekið þátt
í þeim íþróttamótum sem stóðu í bænum. Alls munu um 700 leik-
menn hafa tekið þátt í ESSO-móti KA í 5. aldursflokki en leikmenn
í Pollamóti Þórs, sem voru miklu eldri, voru nálægt 500. Þá mun á
þriðja hundrað manna hafa tekið þátt í móti í götubolta, útikörfu-
bolta, sem fram fór við íþróttahöllina. Ótaldir eru þeir sem undu við
golf, hestamennsku, siglingar og margvíslega fleiri útiveru þótt ekki
væri að fagna sumarhita.
ATVINNULEYSI er enn nokkuð mikið á Akureyri. Tala at-
vinnulausra nú um mánaðamótin var 396 en var 401 við upp-
haf júnímánaðar. Atvinnulausir í júlíbyrjun á siðasta ári voru
247. Hálfur fimmti tugur manna starfar nú að svonefndum
átaksverkefnum.
Samkvæmt upplýsingum Vinnu-
miðlunarskrifstofunnar á Akureyri
voru atvinnulausir í júlíbyrjun 396,
aðeins 5 færri en mánuði fyrr. I
Óþurrkatíð í Eyjafjarðarsveit í sumar
Heyskapur gengur illa
Ytri-Tjörnum.
HEYSKAPUR hér í Eyjafjarðarsveit hefur farið afskaplega hægt
af stað vegna óþurrka. Sláttur er nú þremur vikum seinna á vegi en
á allmörgum undanförnum árum.
Þrátt fyrir rúllubindivélar og aðra
nýtískutækni við heyskapinn hefur
lítið náðst ennþá af heyi vegna þess
að þurrkar hafa verið afar stopulir
frá því sláttur hófst. Bændur hafa
frekar tekið þann kostinn að láta
grasið spretta áfram en það er ekki
heldur góður kostur vegna þess að
þá sprettur það úr sér og fóðurgildi
rýmar mjög.
Kjarnfóðurgjöf mun aukast
Á síðustu árum hafa kúabændur
dregið mjög úr kjarnfóðurgjöf. Það
hefur verið mögulegt vegna þess
hve taðan hefur verið snemmslegin
og kraftmikil. Á komandi vetri er
af því sem fyrr segir fyrirsjáanlegt
að auka verði kjarnfóðurgjöf á ný
ef takast á að koma í veg fyrir
súrdoða og aðra efnaskiptasjúk-
dóma sem vilja fylgja því að kúm
sé gefín hrakin og úr sér sprottin
taða.
Benjamín
þessum hópi eru 175 karlar og 221
kona. Tala atvinnulausra milli
mánaðamóta stendur nokkuð í stað
enda þótt um það bil 60 manns
hafí bæst á atvinnuleysisskrá
vegna gjaldþrots íslensks skinna-
iðnaðar um miðjan júní. Sam-
kvæmt upplýsingum Vinnumiðlun-
arskrifstofunnar mun eitthvað af
því fólki hafa fengið starf við
skinnaiðnaðinn eftir að ákveðið var
að halda rekstri fyrirtækisins
áfram en auk þess væri áberandi
að fólk réði sig til skammtímavinnu
væri hana að fá.
45 í átaksverkefnum
Fjörutíu og fimm manns hafa
nú störf við átaksverkefni á Akur-
eyri, flestir hjá Akureyrarbæ en
einnig allnokkrir hjá Foldu hf. Þar
er um að ræða að jafnaði störf til
þriggja mánaða.
Atvinnulausir á Akureyri eru
mun fleiri í ár en á sama tíma í
fyrra. Við upphaf júlímánaðar
1992 voru 247 atvinnulausir eða
sem næst 150 færri en nú.
Fyrsti skiptafundur í þrotabúi K. Jónssonar & Co.
Samheiji kaupir plast frá Ako
SAMHERJI hefur gert samning um kaup á plastpokum og plastörkum
til notkunar um borð í togurum sínum, en fyrirtækið mun kaupa plastvör-
ur af Ako-plasti á Akureyri. Myndin var tekin við undirntun samningsins
fyrir skömmu, frá vinstri eru Eyþór Jósepsson, Daníel Ámason, Kristján
Vilhelmsson, Þorsteinn Már Baldvinsson, Jóhann Oddgeirsson og Gísli
Geir Sveinsson. Þeir Kristján og Þorsteinn eru frá Samheija, en hinir frá
Ako-plasti.
verður haldið á Akureyri
dagana 22.-25. júlí nk.
Skráníngar sendist Ingólfi Sigurþórssyni, Norður-
götu 48, 600 Akureyri, eða sendist í fax 96-27813,
merkt íþróttadeild Léttis, c/o Ingólfur Sigþórsson.
Ath.: Skráning á að fara fram f gegnum félögin
eða deildirnar.
Skráníngargjald í fullorðinsflokki kr. 2.000, 1.
skráning 1.200 kr. eftir það, í barna*, unglinga-
og ungmennafiokkum 1.200 kr., 1. skráníng, 800
kr. eftir það. Lokaskráning 9. júlí. Skráningargjöld
þurfa að hafa borist á sparireikning í Landsbanka
Islands, útibúi nr. 162, á höfuðbók nr. 05118127.
Athugið, notíð þrírit.
Leigiisamiiiiigiir
Strýtu framlengdur
FYRSTI skiptafundur í þrotabúi K. Jónssonar & Co. hf. á Akur-
eyri var haldinn á föstudag. Ákveðið var að efna til veðhafafundar
þar sem fjallað verður um það hvað gert verður við eignir þrotabús-
ins. Samþykkt var að framlengja leigusamning við Strýtu hf. til
15. september næstkomandi. Þar er nú unnin rækja og síld til út-
flutnings og stefnt að vinnslu grásleppuhrogna seint í ágúst. Vakta-
vinnu lýkur og starfsfólki fækkar 15. júlí.
Á skiptafundinum á föstudag
var ákveðið að boða til veðhafa-
fundar til að taka ákvarðanir um
það hvað verður um eignir fyrir-
tækisins. Að sögn Ólafs Birgis
Árnasonar, skiptastjóra þrotabús-
ins, komu ekki fram neinar hug-
myndir um framtíð fyrirtækisins
utan þær að á veðhafafundi yrði
þess freistað að komast að sam-
komulagi um það hvort einhver
veðhafa leysi eignir fyrirtækisins
til sín eða þær verði boðnar upp.
Leiga framlengd um tvo
mánuði
Ólafur Birgir sagði að á fundinum
hefði verið gengið frá því að eign-
ir K. Jónssonar yrðu leigðar Strýtu
hf. áfram til 15. september næst-
komandi, en leigusamningurinn
átti að renna út 15. júlí. Kvað
hann leigu ekki verða frekar fram-
lengda.
Að sögn Aðalsteins Helgasonar
framkvæmdastjóra Strýtu hf.
stárfa á bilinu 80-90 manns við
verksmiðjuna, en þar er nú unnin
rækja og síld fyrir erlendan mark-
að. Aðalsteinn sagði að í jöní hefði
verið gerður samningur við starfs-
fólk um vaktavinnu í rækjuvinnsl-
unni fram til 15. júlí. Þær áætlan-
ir stæðust, vöktum lyki og starfs-
fólki fækkaði í 40-50 manns. Á
þessum tíma hefði verið gengið á
þær birgðir sem verið hefðu til af
frosinni rækju en eftir það yrði
aðallega unnin fersk rækja.
Framtíðin óljós
Aðalsteinn sagði með öllu óljóst
enn um framtíð verksmiðjunnar,
hún réðist meðal annars af niður-
stöðum veðhafafundar. Vonir
manna stæðu til að með einhveiju
móti yrði vinnslu haldið áfram og
þess vegna hefðu meðal annars
verið keypt grásleppuhrogn, sem
byijað yrði að vinna seint í ágúst.
Framleiðsla fyrirtækisins fer nær
öll á markað erlendis. Sala innan-
lands nemur að sögn Aðalsteins á
bilin 5 til 10 % af veltu.
Skapti Askelsson
skipasmiður látinn
SKAPTI Áskelsson skipasmiður
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri á laugardaginn, 85
ára að aldri.
Skapti fæddist að Austari-
Krókum í Hálshreppi í Suður-
Þingeyjarsýslu 20. júní 1908, og
var því nýorðinn 85 ára er hann
lést. Foreldrar hans voru Laufey
Jóhannsdóttir frá Skarði í Grýtu-
bakkahreppi og Áskell Hannesson,
frá Austari-Krókum.
Skapti kvæntist, 12. desember
1936, Guðfinnu Hallgrímsdóttur
frá Glúmsstöðum í Fljótsdal. Hún
lést árið 1979. Þau eignuðust tvo
syni, Hallgrím og Brynjar Inga,
sem báðir eru búsettir á Akureyri.
Skapti og Guðfínna hófu búskap
á Grenivík en fluttust til Akur-
eyrar um áramótin 1938-39.
Skapti lærði skipasmíðar á Akur-
eyri og starfaði fyrst um sinn hjá
Skipasmíðastöð KEA. Hann var
einn stofnenda Slippstöðvarinnar
hf. 1952 og framkvæmdastjóri
hennar frá stofnun þar til 1970.
Var hann löngum kenndur við fyr-
irtækið og kallaður Skapti í
Slippnum. Eftir að Skapti lét af
Skapti Áskelsson
starfí í Slippstöðinni stofnaði hann
byggingavöruverslun sem nefnd
var eftir honum og starfaði þar,
þangað til hann settist í helgan
stein.