Morgunblaðið - 06.07.1993, Page 25

Morgunblaðið - 06.07.1993, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993 25 Trillukarlar í Grímsey mótmæia fréttum „Stundum ekki smáfiskadráp“ Grímsey TRILLUKARLAR í Grímsey eru ósáttir við fréttaflutning af smá- fiskadrápi á trillubátum fyrir Norðurlandi. Þeir telja þessar fréttir stórlega villandi og með þeim sé freklega vegið að starfsheiðri þeirra, enda sé smábátafiskur af miðum fyrir norðan land síst smærri en fiskur sem veiddur er af stærri skipum. Þrír fulltrúar trillukarla í Gríms- ey, Guðmundur Geirdal Arnarson, Helgi Haraldsson og Sæmundur Olason, hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna fregna í Ríkisútvarpinu um aflasamsetningu smábáta fyrir Norðurlandi þar sem fram kom að allt að 80% af þorskafla smábáta væri undir 55 sm að stærð. Um það segja þeir m.a.: „Við trillukarlar í Grímsey viljum ekki sitja undir ámæli af því tagi að stór hluti afla okkar sé smáfisk- ur og alls ekki því að smábátar landi smærri físki en aðrir bátar. Þá telj- um við að handfæra- og línufiskur okkar sé síst smærri en fiskur úr öðrum veiðarfærum eins og t.d. trolli og dragnót. Það er vitað mál og óumdeilt að fyrir Norðurlandi er fiskurinn mun smærri en fyrir sunnan og það eru lítil tíðindi þeim sem þekkja því þannig hefur það alltaf verið. Þess má geta að hjá handfærabátum hér í Grímsey er meðalvigt á þorski að jafnaði 2 - 2,5 kg og í afla þeirra sem gera út á línu er undirmálsfisk- ur undir 10% af afla.“ Þokkalega vænn fiskur Trillusjómenn í Grímsey segjast í yfirlýsingu sinni ekki skilja tilgang með þeim ónákvæma og ranga fréttaflutningi sem átt hafí sér stað. Að þeirra mati sé fiskur sá sem á land kemur í Grímsey mjög þokka- Brúðkaups- myndatökur þarf að panta með góðum fyrirvara 3 ÓDÝRASTIR Ljósmyndastofurnar: Mynd sími 65-42-07 Barna og Fjölskylduljósm. sími 677-644 Ljósmyndastofa Kópavogs sími 4-30-20 lega vænn og ekki lakari en til dæmis togarafiskur, en þeir segjast hafa fyrir satt að meðalþyngd tog- araþorsks á undanförnum árum hafi verið 1,6 kg. Með þessum frétt- um sé hins vegar vegið freklega að starfsheiðri þeirra og slíkt telji þeir bæði óeðlilegt og óviðunandi. Hólmfríður Ný verslun KRISTALBÚÐIN var opnuð fýrir nokkru á neðri hæð gamla Zionshússins við_ Hólabraut, en þar fást gjafa- vörur í miklu úrvali. Á myndinni eru starfsfólk og eigendur verslunarinnar, frá vinstri: Svava Aðalbjörns- dóttir, Linda Björnsdóttir og Björn Pálsson. Endurbætur og stækkun VERSLUNIN Eyfjörð var opnuð nýlega eftir miklar endurbætur og stækkun og ættu veiðimenn að geta athafnað sig ágætlega í versluninni á meðan þeir huga að veiðivörunum sem þar fást. Á myndinni er Einar Long Bergsveinsson, lengst til vinstri, ásamt starfs- fólki sínu. Hið virta breska tímarit „WHAT VIDEO" prófaði nýlega TOSHIBA 29" sjónvarpstæki og veitti því einkunina „BESTU KAUPIN". í umsögn sagði m.a: „Frábær mynd- og hljómgæði, glæsilegt útlit, þægileg stjórnun og skipanir á skjá". Við bjóðum nú nýjasta 29" TOSHIBA tækið með Super Woofer, PSU-DO Surround hljómburði og Cinema Vision 16:9 kerfi. TOSHIBA sjónvarpstækin eru framleidd fyrir Evrópumarkað i verksmiðjum TOSHIBA í Bretlandi. Hagstætt gengi pundsins tryggir lágt verð, en að auki bjóðum við sérstakt kynningarverð í takmarkaðan tíma: Kr. 129*900 stgr. Ennfremur fæst 25" tæki með sama búnaði og eiginleikum á kr. 116.900 stgr. Athugið að við bjóðum aðeins takmarkað magn af þessum afburðartækjum á þessu verði! Umboðsmenn á landsbyggöinnl: /// Einar Farestveit&Co.hf. Borgartúni 28 Sími 622901 - 622900 Keflavík: Stapafell. Borgarnes: Kf. Borgfirðinga. ísafjörður: Straumur hf. Blönduós: Kf. Húnvetninga. Sauðárkrókur: Versl. Hegri. Siglufjörður: Torgið. Akureyri: Kf. Eyfirðinga. Húsavík: Kf. Þingeyinga. Egilsstaðir: Kf. Héraðsbúa. Seyðisfjörður: Kf. Héraðsbúa. Neskaupstaöur: Bakkabúð. Höfn: Kf. A-Skaftfellinga. Selfoss: Kf. Árnesinga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.