Morgunblaðið - 06.07.1993, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993
Blóðsúthellingar í Suður-Afríku
AÐ minnsta kosti 40 blökkumenn létu lífið í
blóðsúthellingum sem urðu víða í Suður-Afríku
um helgina. Mest mannfall varð í Natal-héraði
þar sem sló í brýnu milli fylgismanna Inkatha-
flokksins annars vegar og Afríska þjóðarráðs-
ins hinsvegar. Sökuðu hvorir aðra í gær um
að vilja beita vopnavaldi til þess að leysa vanda
landsins, en þar fara fram frjálsar kosningar
í fyrsta skipti þann 27. apríl á næsta ári. Þá
féllu margir í þorpum blökkumanna austan við
Jóhannesarborg, þar sem þessi brynvarði lög-
reglubíll nam staðar við lík blökkumanns sem
var banað þar sem hann var á leið til vinnu í
gær.
Innanríkisráðherra Þýskalands neyðist til að láta af embætti
Hylmt yfir með lögreglu-
mönnum sem drápu fanga
- segir vikuritið Der Spiegel
Bonn. Reuter, The Daily Telegraph.
HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, skipaði í gær Man-
fred Kanther, leiðtoga Kristilegra demókrata í Hesse-ríki,
sem innanríkisráðherra eftir að Rudolf Seiters hafði sagt
af sér embættinu. Seiters hafði sætt harðri gagnrýni vegna
ásakana um að embættismenn hans hefðu þagað yfir upp-
lýsingum um að lögreglumenn, sem kljást við hryðjuverka-
menn, hefðu skotið óvoþnaðan fanga til bana að ástæðu-
lausu.
Stjómmálamenn og dagblöð
kröfðust einnig afsagnar Alexand-
ers von Stahls ríkissaksóknara, sem
neyddist til ,að fyrirskipa aðra rann-
sókn á málinu. Niðurstaða frum-
rannsóknarinnar var að fanginn,
Wolfgang Grams, meintur félagi í
hryðjuverkasamtökunum Rauðu
herdeildinni, hefði dáið á sjúkrahúsi
þremur klukkustundum eftir að
hafa skotið sjálfan sig eða orðið
fyrir byssukúlu í skotbardaga við
lögreglu. Auk Grams beið lögreglu-
maður bana í skotbardaganum.
Algjörlega bjargariaus
komst að þeirri niðurstöðu að tals-
vert ósamræmi væri í frásögn emb-
ættismanna af málinu. Til að mynda
hefði komið í ljós að 50 lögreglu-
menn hefðu tekið þátt í handtök-
unni, ekki 20 eins og lögreglan hélt
fram í fyrstu.
Nýi innanríkisráðherrann, Man-
fred Kanther, er lítt þekktur 54 ára
lögfræðingur sem ólst upp í austur-
hluta Þýskalands.
Reuter
Ráðherraskipti
MANFRED Kanther, innanrikisráðherra Þýskalands (t.v.), og for-
veri hans í embættinu Rudolf Seiters (t.h.), sem sagði af sér vegna
tilraunar embættismanna til að hylma yfir með lögreglumönnum sem
skutu meintan hryðjuverkamann til bana.
Breska varnarmálaráðuneytið sparar
Kafbátum og orrustu-
þotum verður fækkað
Lundúnum. Reuter.
BRESKA varnarmálaráðuneytið tilkynnti í gær að dísilknúnum
kafbátum Breta yrði lagt og orrustuþotum af gerðinni Tomado
fækkað. Freigátum og tundurspillum breska sjóhersins verður
einnig fækkað úr 40 í 35 á næstu árum en lítill sem enginn
niðurskurður verður hjá landhernum, sem er með hermenn í
Bosníu og á Norður-írlandi.
Nýjar upplýsingar sem birtar
voru í vikuritinu Spiegel urðu til
þess að rannsaka varð málið að
nýju. Blaðið hafði eftir lögreglu-
manni sem tók þátt í handtöku
Grams og annars meints hryðju-
verkamanns að lögreglumennimir
hefðu snúið hann niður og skotið
hann í höfuðið af stuttu færi. Hann
hefði verið algjörlega bjargarlaus
og skammbyssa hans legið nokkrum
metrum I burtu.
Samkvæmt kmfningarskýrslu,
sem birt var á fimmtudag, lést
Grams ekki á sjúkrahúsi eins og
lögreglan hélt fram heldur sam-
stundis eftir að skotið var á hann á
innan við eins metra færi. Ennfrem-
ur hefur komið fram að lögreglu-
maðurinn sem beið bana kynni að
hafa orðið fyrir skoti frá félaga sín-
um.
Þingnefnd sem rannsakaði málið
Malcolm Rafkind, vamarmálaráð-
herra Bretlands, sagði að niðurskurð-
urinn endurspeglaði breytingar á
vamarþörfum landsins á undanföm-
um árum. Líkumar á því að Bretar
myndu há stríð í náinni framtíð hefðu
jafnvel minnkað frá árinu 1991.
107 milljarða sparnaður
í tilkynningu frá vamarmála-
ráðuneytinu sagði 'að fjórum dí-
silknúnum kafbátum yrði lagt og
tundurduflaslæðurum fækkað um
þriðjung. Orrustuþotum af gerðinni
Tomado F-3 verður fækkað um 13
og frestað hefur verið áformum um
kaup á nýjum eldflaugum.
Breska fjármálaráðuneytið hefur
lagt hart að Rafkind að spara um
milljarð punda, rúma 107 milljarða
króna til að minnka gífurlegan fjár-
lagahalla Bréta.
Rútskoj
óhress með
Sverdlovsk
ALEXANDER Rútskoj, varafor-
seti Rússlands, sakaði í gær
ráðamenn í iðnaðarhéraðinu
Sverdlovsk um að grafa undan
sameiningu landsins með því að
lýsa því einhliða yfir að héraðið
sé rússneskt sjálfstjórnarsvæði.
í öðru héraði austast í landinu
þykir koma til greina að fylgja
dæmi Sverdlovsk, vegna þess
sem sagt er vera skeytingarleysi
í Moskvu um efnahagslegar að-
stæður í héraðinu.
Góðar horfur í
Bretlandi
EFNAHAGSBATINN í Bret-
landi er hægur en stöðugur og
talinn munu verða hraðari á
næstu árum. í skýrslu frá óháð-
um efnahagssérfræðingum, sem
fjármálaráðuneytið réð til starfa,
er spáð 1,6% hagvexti á þessu
ári, en á því næsta er reiknað
með 2,6 prósenta vexti. Nýjustu
tölur um útlán og peningamagn
í umferð þykja benda í rétta
átt, en hvort tveggja eru vísbend-
ingar um ástand efnahagsins.
Mótmæli í
Nígeríu
ÞÚSUNDIR ungmenna lokuðu í
gær helstu umferðaræðum í
Lagos, höfuðborg Nígeríu, í
mótmælaskyni við að forseta-
kosningar sem fram fóru þar
nýlega hefðu verið ógiltar. Lög-
regla beitti táragasi til að dreifa
mannijöldanum. Sjónarvottar
sögðu að hleypt hefði verið af
byssum, en ekki var vitað hvort
einhveijir urðli fyrir skotum.
Þetta eru mestu mótmælaað-
gerðir sem farið hafa fram í
borginni gegn ógildingu kosn-
inganna.
Ekki öfunds-
vert embætti
MEIRIHLUTI Bandaríkjamanna
kýs heldur að vera á bak við lás
og slá í viku en setjast í stól
forsetans í Hvíta húsinu. Kemur
þetta fram í könnun, sem ABC-
sjónvarpsstöðin og dagblaðið
Washington Post stóðu fyrir.
Niðurstaðan var sú, að 52% vildu
heldur fara í fangelsi í viku en
vera í fjögur ár í húsinu númer
1.600 við Pennsylvaníu-breið-
stræti. 46% tóku forsetaembætt-
ið fram yfir fangelsið en 2% vissu
ekki hvað þau vildu. Þeir, sem
ekki vildu taka að sér að stjóma
landinu, nefndu langflestir sömu
ástæðuna: Að erfíðleikar þjóðar-
innar væru svo miklir, að forset-
inn gæti lítið gert til að ráða
fram úr þeim.
Tælendingar
banna
orðabók
TÆLENSK stjómvöld bönnuðu
í gær enska orðabók þar sem
höfuðborginni Bangkok er meðal
annars lýst sem borg þar sem
er mikið er um vændiskonur.
Utanríkisráðuneyti Tælands
krafðist þess að skilgreiningin
yrði íjarlægð úr bókinni. Tæ-
íenskur lögregluforingi sagði að
orðabókin, sem gefin er út af
Longman útgáfufyrirtækinu,
særði sterka siðgæðisvitund
Tælendinga og yrði því að íjar-
lægja hana úr bókaverslunum.
Della Summers.talsmaður út-
gáfufyrirtækisins sagði í viðtali
við breska útvarpið BBC um
helgina að skilgreining hvers
orðs leitaðist við að lýsa hlutun-
um eins og þeir væm en ekki
hvernig menn óskuðu að þeir
væm. Hún sagði að um menn-
ingarfordóma væri ekki að ræða
í þessu sambandi, til dæmis
væri Soho og King’s Cross hverf-
unum í Lundúnum lýst á svipað-
an hátt.