Morgunblaðið - 06.07.1993, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.07.1993, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993 27 Framsal múslimaleiðtoga frá Bandaríkjunum Verjendur Abdel- Rahmans segja framsal ólöglegt Kaíró. Reuter. LÖGFRÆÐINGAR Omars Abdel-Rahmans, öfgafulls múslimaleið- toga sem býr í Bandarikjunum, sögðu í gær að krafa Egypta um að fá manninn framseldan væri ólögleg. Egypskur dómari hefur fjallað um morðmál sem Abdel-Rahman er talinn tengjast og krafðist dómar- inn þess á sunnudag að múslimaleiðtoginn yrði handtekinn. í fram- haldi af því bað egypska sljórnin Bandaríkin að framselja hann. Lögfræðingar Abdel-Rahmans segja að áður hafi verið fram á að dómarinn viki á þeirri forsendu að hann væri kunnur að andúð á heittrú- armönnum múslima. Þess vegna hafi úrskurður hans verið marklaus. Einn af leiðtogum öfgasinnaðra múslima í Egyptalandi, Safwat Abd- el-Ghani, segir að framselji Banda- ríkjamenn Abdel-Rahman til Egypta- lands muni þeir uppskera andúð múslimahreyfinga um ailan heim. „Ég er ekki að hóta Bandaríkjunum, aðeins að vara við afleiðingunum," sagði Abdel-Ghani í samtali við fréttamann Reuters í gær. Abdel- Ghani situr í egypsku fangelsi, sak- aður um morð á rithöfundi er var andvígur öfgahreyfingum múslima. Bandarískir lögfræðingar Abdel- Rahmans taka í sama streng og Abdel-Ghani og segja að Bandaríkin kalli yfir sig hryðjuverk ef hann verði framseldur. Talsmenn sendiráðs Bandaríkjanna í Kaíró sögðu í gær að gripið hefði verið til „viðeigar.di ráðstafana" en ekki hefðu borist þangað beinar hótanir. Múslimaleiðtoginn, sem er blindur, komst með ólöglegum hætti til Bandaríkjanna en er jafnframt grun- aður um að hafa átt óbeina aðild að sprengjutilræðinu í World Trade Center-skýjakljúfunum i vetur. Nokkrir af stuðningsmönnum hans sitja nú í haldi vegna þess að þeir höfðu skipulagt enn víðtækari tilræði í New York. Uppljóstrari á vegum bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, kom upp um samsærið. Verði Abdel-Rahman, sem nú er í varðhaldi í Bandaríkjunum, visað úr landi munu yfirvöid byggja þá ákvörðun á broti hans á lögum um landvist. Stjómmálaskýrendur telja margir að ráðamenn Egypta vilji í reynd alls ekki að Abdel-Rahman verði framseldur, krafan sé eingöngu sett fram til að fullnægja lagalegri skyldu. Stjórnvöld í Kaíró séu þess fullviss að lögfræðingum múslima- leiðtogans takist að koma í veg fyrir framsal. Færi svo að Abdel-Rahman kæmi fyrir rétt í Egyptalandi og hlyti dóm yrði hann písiarvottur, yrði hann á hinn bóginn sýknaður myndu menn hans telja hann hetju. Reuter Stríðsminjar vitna um grimmd FYRSTA sýningin þar sem gerð eru opinber gögn sem varða leynilega japanska herdeild sem starfaði í heimsstyrjöldinni síðari verður opnuð í Tókyó í dag. Á sýningunni gefur að líta lyf, sprautur og tæki sem herdeildin notaði við tilraunir á um 3.000 kínverskum, mongólskum, kóreskum og rússneskum föngum. Tilraunirnar voru liður í þróun nýrra sýklavopna. í fangabúðunum í Harbin í Kína voru fangarnir smitaðir af ýmsum sjúkdómun auk þess sem hitastig var yfirleitt fyrir neðan frostmark. Énginn fanganna koms lifandi úr búðunum. Almenningur í Japan frétti fyrst af tilvist herdeildarinnar árið 1981 en stjórnvöld neita því enn að herdeildin hafi gert tilraunir á mönnum. Á myndinni sést aldraður Japani virða fyrir sér myndir sem til sýnis eru á sýningunni. * Atökin í Kákasuslýðveldunum eiga sér langa forsögu Þjóðemisdeilumar hófust áður en Sovétríkin hurfu Moskvu. Reuter. BLÓÐUG átök hafa staðið með hléum í Kákasuslýðveldunum undan- farin ár þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að miðla máturn milli deiluaðila. Harðast er nú barist í héraðinu Nagorno-Karabakh í Azerbajdzhan, þar sem Azerar og Armenar takast á um yfirráð. Einnig er barist í héraðinu Abkhazíu í Georgíu. Raunar hófust þessi átök á suðurhluta Kákasussvæðisins, sem var innlimað í Rúss- land á síðustu öld, þegar árið 1991, áður en Sovétríkin fyrrver- andi liðuðust í sundur. Armenar með yfirburði Átök brutust fyrst út í Nagorno- Karabakh árið 1991 þegar hinn armenski meirihluti íbúa lýsti yfir sjálfstæði héraðsins frá Az- erbajdzhan. Þó að Armenar hafi ekki opinberlega lýst yfir stuðningi við sjálfstæðiskröfur Armena í Karabakh hafa þeir stutt þá fjár- hagslega. Azerar og Armenar hafa eldað grátt silfur öldum saman og á síðasta ári þróuðust skærurnar út í ailsherjar styijöld þar sem báðir stríðsaðilar nýta sér vopna- búr Rauða hersins fyrrverandi. Jafnt Azerar sem Armenar hafa sakað hvorn annan um að njóta stuðnings Rússa bak við tjöldin. Armenum hefur vegnað betur í stríðinu og í fyrrasumar tókst þeim að hrekja flesta Azera burt frá Karabakh. Þá hafa þeir einnig náð hluta landsvæðisins, sem skilur Karabakh frá Armeníu, á sitt vald. Er nú barist um azersku borgina Agdam, skammt frá Karabakh. Stríðið hefur haft slæm áhrif á efnahag beggja ríkjanna og valdið pólitískri upplausn í Azerbajdzhán. Átök í Abkhazíu í nágrannaríkinu Georgíu var til skamms tíma hart barist i hér- aðinu Suður-Ossetíu. Þeim bardög- um linnti hins vegar í fyrra í kjöl- far þess að vopnahléi var komið á fyrir tilstilli Rússa. Upphafleg ástæða deilunnar var að Ossetar voru ósáttir við að þeir nutu ekki lengur sjáifstjórnar eftir að Georg- ía varð sjálfstætt lýðveldi, líkt og þeir gerðu er landið var hluti af Sovétríkjunum. Zvíad Gamsakhúr- día, forseti Georgíu, neitaði alfarið að taka kröfur Osseta til greina en stjórnvöld í Tbilisi slökuðu hins vegar verulega á klónni í garð þeirra eftir að hann var hrakinn frá völdum fyrir átján mánuðum síðan. Við völdum tók Edúard Sjev- ardnadze, fyrrum utanríkisráð- herra Sovétríkjanna. Hann beitti hins vegar aðskilnaðarsinna í hér- aðinu Abkhazíu við Svartahafið aukinni hörku eftir að þing héraðs- ins samþykkti að lýsa yfir sjálf- stjórn. Abkhazar eru sjálfstæð þjóð en vegna flutninga Rússa til héraðsins allt frá 18. öld er nú svo komið að einungis 17% íbúa Abkhazíu eru Abkhazar. Georgíustjórn sendi herlið til Abkhazíu í ágústmánuði í fyrra en er þeir rændu og rupluðu í hér- aðinu leiddi það til almennrar upp- reisnar. Sveitir Abkhaza, sem njóta stuðnings rússneskra sjálfboðaliða, hafa nú náð nánast öllu héraðinu á sitt vald. Einungis höfuðborgin Sukhumi og borgin Ochamire eru enn í höndum stjórnarhersins. Stjórn Georgíu sakar Rússa um að styðja uppreisnarmennina með vopnum og jafnvel hermönnum. Þessu neita Rússar. Barist í fjallahéruðum I norðurhluta fjallanna, sem skilja að Kákasuslýðveldin þrjú og Rússland, geisar einnig borga- rastyijöld. Þjóðflokkar á svæðinu, sem voru yfirbugaðir af Rússum á síðustu öld, beijast nú hatramm- lega hvor við annann. Engin ein skýring er á þeim átökum en með- al þess sem hefur stuðlað að þeim eru þær mörg hundruð breytingar, sem gerðar voru á landamærum á Sovéttímanum, auk fólksflutninga þeirra, sem Stalín stóð fyrir. Þannig hröktu Norður-Ossetar Ingúshía frá héraðinu Prigorodní í nóvember sl. eftir harða bardaga. Héraðið tilheyrði Ingúshíum allt þar til Stalín neyddi þá ásamt Tsjetjenum til að flytja til Kaz- akhstan, meðan á síðari heims- styijöldinni stóð. Ingúshíum var leyft að snúa aftur til Prigorodní árið 1953, eft- ir að Stalín lést. Þeim var hins vegar ekki afhent landið á ný held- ur einungis leyft að dvelja þar. Rúmlega 53 þúsund Ingúshíar flúðu átökin í fyrra og dveljast nú sem flóttamenn í Ingúshetíu. Nágrannahéraðið Tjetjnía lýsti einhliða yfir sjálfstæði frá Rúss- landi í lok ársins 1991 og kaus eigin forseta, Dzokhar Dudajev, fyrrum hershöfðingja í sovéska hérnum. Á síðustu mánuðum hafa borist fregnir af átökum milli sveita Dudajevs og andstæðinga hans. The European fjallar um Keflavíkurstöðina Sendiherra leiðréttir rang’færslnr VIKUBLAÐIÐ The Europen birti í síðasta mánuði frétt þar sem sagði að Bandaríkjamenn ráðgerðu að fækka í herliði sínu á íslandi um helming og her- flugvélar yrðu kallaðar heim. Einnig var fullyrt að Bandarík- in greiddu Islendingum rúm- lega tíu milljarða króna árlega í leigu fyrir aðstöðuna. í lesendabréfadálkum blaðsins fyrir skömmu leiðrétti Helgi Ág- ústsson, sendiherra íslands í Bret- landi, rangfærsiurnar. Hann benti á að samkvæmt tvíhliða varnar- samningi íslendinga og Bandaríkja- manna frá 1951 þægju íslendingar enga leigu fyrir land undir bæki- stöðvar Bandaríkjamanna. Enn- fremur hefði verið staðfest í viðræð- um fulltrúa ríkjanna á þessu ári að farið yrði að ákvæðum samningsins um fullt samráð aðila ef gerðar yrðu breytingar á umsvifum banda- ríska liðsins hér á landi. Bílamarkaburinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraim Kopavogi, sími B71800 MMC Pajero langur, diesel, turbo, m/lnt- erc., 92, 5 g., ek. 67 þ., sóllúga o.fl. V. 3.150 bús.. ek. á ód. Renault Express ’92, hvítur, 5 g., ek. 40 þ. V. 790 þ., vsk-bíll. MMC L-300 Minibus 4x4 '88, grásans, 5 g., ek. 82 þ. Gott eintak. V. 1.090 þ. 20 þ., rafm. í rúðum, álfelgur o.fl. V. 1.350 þ. Nissan Sunny SLX '92, sjálfsk., ek. 43 þ., rafm. í rúðum, hiti í sætum o.fl. 91, rauður, 5 g., ek. 26 þ., rafm. í rúðum o.fl. Talsvert breyttur. V. 1.390 þ. Skipti á Subaru Legacy ’91-’92. Subaru Legacy station ’90, brúnsans, 5 g., ek. aðeins 45 þ., rafmagn í rúðum o.fl. V. 1.250 þ. sk. ód. GMC húsbni 6.2 diesil '86, hvítur, sjálfsk., ek. 52 þ. km. Einn m/öllu. V. 1.190 þ. Lada Sport '89, rauður, 5 g., léttstýri, ek. aðeins 24 þ. V. 450 þ. Volvo 440 SE '92, brúnsans, sjálfsk., ek. 20 þ., rafm. í rúðum, álfelgur o.fl. V. 1.350 þ. Daihatsu Charade Sedan 1.6 SG '90, 5 g., ek. 32 þ. V. 690 þ. Mikið úrval bifreiða Verd og kjör viö allra hæfi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.