Morgunblaðið - 06.07.1993, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993
HHIIIN.II.LIIIJ
Trierborg vill auka samstarf
við íslensk útflutningsfyrirtæki
Með
morgunverði,
sem eftirréttur\ |
eðabara...bara. !
CL 600
AFBURÐA LASERPRENTARI
A3 og A4 pappír
600x600 punkta upplausn (dpi)
Intel 80960KB RISC örgjörvi
Intel 82961KD grafískur örgjörvi
Hárfínt duft (7 míkrón)
Margföld minnisnýting
Postscript, PCL5 og HP-GL/2
35 TrueType leturgerðir
13 HP-PCL5 leturgeröir
Appletalk-, rað- og hliðtengi
Getur unnið á öllum tengjum
samtímis
SCSI tengi fyrir fontadisk ,
Sjálfvirk skynjun á Postscript og
PCL5
Tekur viö prentgögnum á meöan
prentað er
Skaöar ekki Ozon lagið
<Ö>
CaíComp «.»«"
A lockheed Company
Attta/tkrtfi 4 undan
Morgunblaðið/Bjarni
Viðskiptamöguleikar — Kristinn Már Gunnarsson
markaðsstjóri og Norbert Neuhaus, borgarstjóri í Trier, sem nýlega
var staddur hér á landi til að kanna möguleika á samstarfi við íslensk
útflutningsfyrirtæki.
NORBERT Neuhaus, borgar-
stjóri í Trier í Þýskalandi, var
staddur hér á landi á dögunum
til að kanna möguleikana á við-
skiptasamstarfi milli fyrirtækja
á Islandi og í Trier. Vill hann
m.a. í samstarfi við Flugleiðir
auka komur bandarískra ferða-
manna til borgarinnar. Neuhaus
er einn fjögurra borgarstjóra
Trier og fer með þróunar- og
viðskiptamál borgarinnar.
„Trier er frekar þekkt borg
meðal íslendinga enda hafa marg-
ir ferðast þangað á undanförnum
árum,“ segir Neuhaus við Morgun-
blaðið. „Hins vegar hefur komið í
ljós að upp á síðkastið hefur kom-
um íslendinga til borgarinnar
fækkað. Við höfum hug á því að
kanna hvers vegna svo sé og hvort
ekki sé hægt að fjölga komum Is-
lendinga til Trier á ný.“
Neuhaus segir staðsetningu
borgarinnar, steinsnar frá Lúxem-
borg, mjög heppilega fyrir ferða-
menn og hafi hann undanfarið
verið í sambandi við Flugleiðir til
að koma á einhvers konar sam-
starfi. I því sambandi sé hugmynd-
in ekki einungis að reyna að fjölga
komum íslenskra ferðamanna
heldur einnig bandarískra, sem
myndu fljúga með Flugleiðum til
Lúxemborgar. Til að auka vægi
Lúxemborgar sem áfangastaðar
væri mikilvægt að geta boðið upp
á áhugaverða ferðamannastaði í
nágrenninu og þar væri Trier álit-
legur kostur.
Trier er elsta borg Þýskalands
og mjög merkileg í menningar-
sögulegu tilliti. „I augum íslend-
Fræðsla
í bókinni er lögð sérstök áhersla
á að gæðastjómun sé ekki takmark
í sjálfu sér heldur leið til að ná mark-
miðum í rekstri fyrirtækja, segir í
frétt frá Framtíðarsýn. Sérstaklega
er fjallað um muninn á gæðastjórnun
í þjónustufyrirtækjum og fram-
leiðslufyrirtækjum. Þá er að finna
sérstakan viðauka þar sem íjallað
er sérstaklega um skilyrði fyrir vott-
un samkvæmt ISO 9000 staðlinum
Helga Drummond er prófessor í
viðskiptafræði við Háskólann í Liver-
inga hefur Trier fyrst og fremst
verið hagstæð þorg til innkaupa
og margar verslanir í borginni
gera þegar ráð fyrir innkaupum
íslenskra ferðamanna í áætlunum
sínum. Þó að ekki sé hægt að
mæla það nákvæmlega, hversu
mikið Islendingar versla í borg-
inni, er hægt að sjá að um veruleg
viðskipti er að ræða þar sem stór
hluti þeirra er greiðslukortavið-
pool auk þess sem
hún starfar sem
rekstrarráðgjafi.
Hún hefur áður
gefið út bækumar
„Effective Decision
Making“, „Mana-
ging Diffícult
Staff“ og metsölu-
bókina „Power:
Creating it, Using it“. Þýðingu
annaðist Jón Skaptason, löggiltur
skjalaþýðandi.
skipti. Úr þeim hefur þó dregið."
Gallup á íslandi er nú að vinna
könnun fyrir borgaryfirvöld í Trier
um ferðavenjur Islendinga, hvert
þeir fara, hversu miklu þeir verja
til innkaupa í ferðum og hveiju
öðru en innkaupum þeir hafa
áhuga á. Verða niðurstöður könn-
unarinnar kynntar kaupmanna-
samtökum Trier í ágúst.
Neuhaus leggur áherslu á að
Trier vilji ekki að þetta verði ein-
hliða viðskipti, þannig að Islend-
ingar komi bara sem ferðamenn
til borgarinnar, heldur vilji borgar-
yfirvöld aðstoða íslensk útflutn-
ingsfyrirtæki, sem hafi hug á að
reyna fyrir sér á Þýskalandsmark-
aði eða víðar í Evrópu. „Trier
gæti verið mjög heppilegur stökk-
pallur fyrir íslensk fyrirtæki á öðr-
um sviðum en fiskútflutningi inn
á stærri markaði í Þýskalandi og
Evrópu. Viðskipti með fisk fara í
gegnum hefðbundnar viðskipta-
leiðir. íslendingar hafa hins vegar
upp á margvíslegan annan varning
að bjóða, sem gæti náð mikilli sölu
ef rétt er haldið á markaðsmálum.“
Hann segir Trier vera mjög
heppilega í þessu sambandi stærð-
arinnar vegna enda séu stór ís-
lensk fyrirtæki mjög lítil á evrópsk-
um mælikvarða. En þó borgin sé
ekki mjög stór búi um fjórar millj-
ónir neytenda á svæði sem er í
innan við klukkutíma aksturs fjar-
lægð frá henni.
Fyrir skömmu var sett á laggirn-
ar sérstakt þjónustufyrirtæki, Tri-
er Import Service (TIS), sem að-
stoðar lítil og meðalstór fyrirtæki
við að ná fótfestu. Boðið er upp á
Bók um gæða-
sijómun komin út
FRAMTÍÐARSÝN hf. hefur gefið út bókina „Gæðastjórnun, leið til
betri árangurs" eftir Helgu Drummond. Bókin fjallar um alla helstu
þætti gæðastjórnunar og er sú fyrsta sinnar tegundar sem gefin er út
á íslensku. I henni eru auk þess skrár yfir athyglisverðar bækur, blöð
og tímarit sem tengjast gæðastjórnun og listi yfir helstu félög, samtök
og stofnanir á þessu sviði.
Kynnið ykkur kjör og skilmála samkeppnis- og útflutningslána
IÐN LÁNASJÓÐUR
ÁRMÚLA 13 a *108 R E Y K J A V f K • S ( M.l 68 04 00
O
Þ-
o
almenna skrifstofuþjónustu og hjá
fyrirtækinu starfa reyndir mark-
aðsmenn, skattaráðgjafar og aug-
lýsingamenn, auk sérfræðinga á
öðrum sviðum, sem gjörþekkja
staðbundnar aðstæður. Reynt er
að halda kostnaði við þessa þjón-
ustu í lágmarki og þau fyrirtæki
sem nýta sér hana greiða einungis
fyrir þá þjónustu sem veitt er.
„TIS getur til dæmis veitt aðstoð
við að koma á viðskiptasambönd-
um og byggja upp starfsemina
smátt og smátt án þess að leggja
út í mikinn kostnað," segir Neu-
haus.
Hann telur að ýmsar íslenskar
afurðir ættu að eiga góða mögu-
leika, s.s. vatn, sælgæti, hug-
búnaður og vikur. Fornar eldstöðv-
ar eru skammt frá Trier og hefur
vikur verið mikið nýttur í iðnaði.
Nú sjá menn hins vegar fram á
það vandamál að vikurforðinn
verður á þrotum eftir 3-4 ár og
eru því farnir að leita fyrir sér
erlendis varðandi innflutning á
vikri. „ísland er eitt af þeim lönd-
um sem við lítum til í því sam-
bandi,“ segir Neuhaus.
Hann segist vera mjög ánægður
með heimsóknina. Hann hafi fýrst
reynt að ná sambandi við íslensk
fyrirtæki fyrir þremur árum en lít-
ið orðið ágengt. Til dæmis hafi
bréfum sem hann skrifaði ekki
verið svarað. Hann hafi síðan kom-
ist í samband við Kristinn Má
Gunnarsson, markaðsstjóra, og
fyrir tilstilli hans komist í sam-
bandi við rétta aðila. í framhaldi
af því hafi hann ákveðið að koma
til íslands. Átti hann fundi hér
m.a. með Útflutningsráði, Verslun-
arráði, utanríkisráðuneytinu, Flug-
leiðum og fulltrúum ýmissra fyrir-
tækja og sagðist hann vera von-
góður um að margt myndi skila
sér í framtíðar samstarfi og við-
skiptum.
Verðbréf
Lýsingarbréf
með innköll-
unarrétti
Eignaleigufyrirtækið Lýsing hf.
bauð nýverið út skuldabréf að
fjárhæð 100 milljónir króna með
8,6-8,8% ávöxtunarkröfu. Útboð-
ið felur í sér nokkra nýjung á
verðbréfamarkaði þar sem m.a.
er um að ræða skuldabréf með
svonefndum innköllunarrétti.
Lántakendur geta valið um bréf
með einum gjalddaga eftir fimm
ár eða afborgunarbréf til 12 ára.
Síðamefndu bréfín em afborgunar-
laus fyrstu fimm árin en síðan eru
átta árlegir gjaldagar. Lýsing hefur
hins vegar innköllunarrétt á hveij-
um gjaldaga og getur þá greitt upp
bréfín. Slík greiðslutilhögun er í
samræmi við fasteignasamninga
sem fyrirtækið hefur gert á þessu
ári. Bréfin eru með föstum 8,8%
vöxtum.
Þetta er í fyrsta sinn sem eigna-
leigufyrirtæki gefur út skuldabréf
með innköllunarrétti. Með þessum
bréfum eiga fjárfestar kost á fastri
ávöxtun í fimm ár og síðan mögu-
leika á sömu ávöxtun í allt að 12
ár. Þegar hafa selst bréf að fjárhæð
75 milljónir, samkvæmt upplýsing-
um Landsbréfa sem hafa umsjón
með sölu bréfanna. Útboðið er lokað
og eru bréfín eingöngu ætluð stofn-
anafjárfestum.