Morgunblaðið - 06.07.1993, Page 36

Morgunblaðið - 06.07.1993, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993 FJ ÓRÐUN GSMÓTIÐ Á VINDHEIMAMELUM Gæðingarnir kuld- anum yfirsterkari Systurnar frá Flugumýri, Ásta Björk og Eyrún Ýr, taka hér við verðlaunum fyrir hryssuna Kolskör frá Gunnarsholti sem stóð efst af hryssum 6 vetra og eldri. Eigandi Kolskarar er Eyrún Ýr, sú er heldur á bikarnum, en faðir þeirra, Páll Bjarki Pálsson, situr hryss- una. Ninna Margrét Þórarinsdóttir sigraði í barnaflokki á Prúði. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Þau höfðu ástæðu til að gleðjast mæðginin á Hofi þegar Flugsvinn, sem Sonja Sif gælir hér við, stóð efst hryssna sem kepptu til 1. verðlauna, faðir hennar situr stóðhestinn Hlekk að baki hennar og hampar sigurlaununum. _________Hestar_____________ Valdimar Kristinsson Þrátt fyrir að rigning og kuldi setti svip sinn á fjórðungs- mótið á Vindheimamelum sem lauk á sunnudag voru rúmlega þrjú þúsund mótsgestir mjög áhugasamir og þaulsetnir I brekkunni að fylgjast með þeim sýningum sem boðið var upp á. Hestakostur mótsins var býsna göður og má segja að þau gæðahross sem komu fram hafi sigrast á ótíðinni og náð at- hygli áhorfenda. Guðmundur Birkir Þorkelsson, einn af þulum mótsins, sagði í mótslok að hrossin og glæsisýn- ingarnar yrðu það sem sæti eftir í minningasarpi mótsgesta en ekki kuldinn og vosbúðin. Mótið verður fyrir margar sakir minnisstætt, ýmsar róttækar nýjungar voru reyndar. Framkvæmd dagskrár gekk að mörgu leyti mjög vel fyr- ir sig og góð hlé voru af og til alla dagana. í gæðingakeppninni réttu dómarar aðeins eina meðal- einkunn fyrir öll dómsatriðin sem flýtti mjög fyrir framgangi gæð- ingakeppninnar. í stað þess að rétta upp allar einkunnir var sund- urliðun dóma gefin út í fréttablaði mótsins sem voru þrjú talsins. Þá var prufukeyrð hugmynd eða til- laga að nýju formi á gæðinga- keppni og voru undirtektir góðar. Að þessu leyti var fjórðungsmótið tímamótasamkoma sem vafalítið mun hreyfa við þróun mótshalda sem verið hefur afar hæg á síð- ustu árum, svo ekki sé nú meira sagt. Þótt gæðingakeppnin hafi ekki verið ýkja spennandi bauð hún upp á góð tilþrif hrossanna sem þar voru sýnd. í A-flokki hafði Hrafn- tinna frá Dalvík, sem Baldvin Ari Guðlaugsson sat, óumdeilanlega yfirburði og aldrei spuming hvar sigurinn lenti. Mótið verður vafa- laust Baldvini Ara eftirminnilegt því hann virtist eiga mjög góða möguleika á að vinna sigur í báð- um flokkum gæðingakeppninnar en hann fór einum hring of mikið í forkeppni B-flokks og var dæmd- ur úr leik. Gullið tækifæri til að vinna fágætt afrek fór þar for- görðum, en svona er þetta nú í spennandi keppni, allt getur gerst þótt reyndir menn eigi hlut að máli. Einkunnir átta efstu hross- anna í A-flokki voru mjög jafnar að undaskilinni einkunn Hrafnt- innu. Þótt ekki væru þetta háar einkunnir ef miðað er við undan- farin ár voru þarna á ferðinni prýð- isgóð hross. Það er ekki um að villast að dómarar eru naumari á háu einkunnirnar nú. Nokkrar breytingar urðu á röðun hrossanna í úrslitunum. Hrafntinna og Fiðia, sem Elvar Einarsson sat, héldu efstu sætunum, Dama, sem Sigrún Brynjarsdóttir sat, hélt fimmta sætinu. Sigurbjörn Bárðarson kom Hjúpi í þriðja sætið en Prins og Jóhann Skúlason hröpuðu niður í sjötta sæti. Bráðefnileg 5 vetra hryssa, Vordís frá Aðalbóli, hrap- aði í áttunda sætið enda greinilega of ung fyrir erfiða keppni sem þessa. En Nökkvi Þorvars Þor- steinssonar vann sig upp í fjórða sætið og Kola og Egill Þórarinsson hækkuðu um eitt sæti. Heldur voru úrslitin jafnari i B-flokki þótt Þyrill, sem Vignir Siggeirsson sat, fengi fyrsta sætið á línuna. Penni og Egill héldu öðru sætinu. En Skrúður og Eyj- ólfur ísólfsson féllu í áttunda sæt- ið eftir að skeifa hafði hrokkið undan þegar síðasta atriðið, yfir- ferðin, var hálfnuð. Fór hann út af vellinum með hestinn enda ekki forsvaranlegt að vera að skælast á yfirferð á járnalausum hesti. Af þeim sökum féll hann í áttunda sæti og vafalaust hafa dómararnir farið þar eftir reglum, en fram að þessu óhappi hafði hann átt góða sýningu. Áð mati umsjónarmanns „Hesta“ eru þetta skrýtnar og ósanngjarnar reglur sem hvetja keppendur til að halda áfram þótt hrossin séu óhæf til keppni. Eyjólf- ur lét skynsemina ráða og fór út af og hlaut áttunda sætið að laun- um. Ófeigur og Gísli Haraldsson unnu sig upp í þriðja sætið, en Ófeigur er afar athyglisverður hestur fyrir myndarskap og gott tölt. Þóttust ýmsir sjá þar efnileg- an kandídat í töltkeppni á heims- meistaramóti í þessum hesti. Þytur og Höskuldur Jónsson unnu sig upp í fjórða sæti og Glampi og Jónas Siguijónsson í það fimmta, en Brynjar og Jóhann Magnússon héldu sjötta sætinu og Spenna féll í sjöunda sætið. I unglingákeppni var hart barist um fyrsta sætið og þurfti bráða- bana til að fá niðurstöðu um hverj- um bæri sigurinn. Ragnar Skúla- son á Punkti hafði það að lokum en Friðgeir Kemp á Ör varð að gera sér annað sætið að góðu eft- ir að hafa verið efstur í forkeppn- inni. I barnaflokki sigraði Ninna Margrét Þórarinsdóttir nokkuð örugglega en Þórir Rafn Hólm- geirsson á í’eidi vann sig úr sjötta sæti upp í annað. Hrossin voru yfirleitt góð bæði hjá krökkunum og þeim fullorðnu á mótinu en þó sáust einnig hross sem að skað- lausu hefðu mátt bíta gras í heima- högum meðan á mótinu stóð. Oft virðist vanta metnað hjá félögum í vali á keppendum á fjórðungs- og jafnvel landsmótum. Stundum er betra að senda ekki neitt en eitthvað sem rétt nær yfir sjö í einkunn þegar á hólminn er komið. Þétt dagskrá hefur einkennt hestamót stór og smá undanfarin ár þar sem vart hefur gefist tími til að innbyrða fæðu eða afsetja hana ætli menn að fylgjast með öllum dagskrárliðum. Þessu var nú öfugt farið nú því góð hlé voru gerð á dagskrá alla dagana. Reyndar höfðu margir á orði að betur hefði mátt nýta tímann og áttu þá meðal annars við tímasetn- ingu á sýningu ræktunarbúa sem frestað var vegna veðurs á föstu- dagskvöldið til klukkan 22 laugar- dagskvöld. Lauk þeim dagskrárlið ekki fyrr en eftir miðnætti. Var hreint ótrúlegt hversu margir sátu þann tíma í brekkunni og fylgdust með góðum sýningum. Var Geir- mundur þó byijaður að spila í tjaldi skammt frá en hinn harði kjarni hestamanna sem var þarna sam- ankominn lét það ekki trufla sig frá ræktunarsýningunum. Hefði vafalaust mátt koma þessum dag- skrárlið fyrir síðdegis á laugardag. En þarna kom berlega í ljós að vel má stytta þessi mót og færa nær kröfum mótsgesta. Kappreið- arnar voru nánast haldnar í kyrr- þey þar sem aðeins var keppt í skeiði, tímar allþokkalegir þar sem gamli garpurinn Börkur frá Hofs- stöðum, sem oftast hefur verið kenndur við Kvíabekk, sigraði í 150 metrunum. Skýringin á þess- um breytta fæðingarstað er sú að klárinn mun að sögn Andrésar í Kvíabekk vera sú að Börkur er fæddur á Hofsstöðum en kom að Kvíabekk tveggja mánaða gamall. Segist Andrés hafa keppt tvisvar á hestinum áður en hann seldi hann suður á sínum tíma og þá hafí hann verið skráður frá Hofs- stöðum. Eitill frá Akureyri sigraði í 250 metra skeiðinu á 22,75 sek. Úrslit urðu annars sem hér segir: Stóðhestar með afkvæmum: 1. Kjarval frá Sauðárkróki. F.: Her- var 963, skr. m.: Hrafnhetta 3791, skr. eigandi Guðmundur Sveinsson. Fyrir 49 dæmd afkvæmi fær Kjarval 138 stig í kynbótamati. Dómsorð: Afkvæmi Kjarvals eru stór og svipgóð en með gróft höfuð og tæpa eyrna- stöðu. Þau eru fremur reist með úr- vals herðar, beint bak og þokkalega lend. Bolurinn er fremur stuttur en lofthæðin óvenju mikil. Fætur eru snoðnir, oft kjúkulangir og ekki sterk- legir, réttleiki er sæmilega góður og hófar frábærir. Afkvæmin eru fjöl- hæf, töltið rúmt, brokk í meðallagi en vekurð prýðileg. Þau stökkva vel, eru flugviljug og þjál, bera sig mjög vel en fótaburður misjafn. Kjarval er gæðingafaðir og hlýtur 1. verðlaun fyrir afkvæmi og fyrsta sætið. 2. Otur frá Sauðárkróki. F.: Hervar f963, skr. m.: Hrafnkatla 3526, skr. eigandi Sveinn Guðmundsson. Fyrir 33 dæmd afkvæmi fær Otur 132 stig í kynbótamati. Dómsorð: Afkvæmi Oturs eru liðlega meðalstór, höfuðið myndarlegt og svipmikið en eyrun oft illa sett. Hálsinn reistur, þykkur, herð- ar háar, og bógar skásettir. Bakið er fremur beint, lendin frekar stutt og áslaga. Afkvæmin eru stuttvaxin og bolmikil en fremur lofthá. Fætur eru grannir, kjúkulangir og oft votir, rétt- leiki er í meðallagi en hófar frábærir. Afkvæmi Oturs hafa úrvals tölt, brokkið er verklegt og vekurðin rúm sé hún fyrir hendi. Þau eru kraftmikil á stökki, fjörhörð og fasmikil. Otur hlýtur 1. verðlaun fyrir af- kvæmi og annað sætið. 3. Snældu-Blesi 985 frá Árgerði. F.: Hrafn 802, Holtsmúla. M.: Snælda 4154, Árgerði, eigandi Magni Kjart- ansson. Fyrir 35 dæmd afkvæmi fær Snældu-Blesi 129 stig í kynbótamati. Dómsorð: Afkvæmi Snældu-Blesa eru vel stór, höfuðið er þykkt með merar- skál en augnsvipur hreinn. Þau eru meðalreist með frábæra yfirlínu, bolurinn sívalur og léttur. Fætur eru iðulega votir og sinastæði lítið. Rétt-, leikinn er tæpur og hófar efnisgóðir, en ekki djúpir. Afkvæmin hafa allan gang, töltið best, rúmt og mjúkt. Þau hafa þægilegan reiðvilja og milda lund og fara mjög fallega í reið. Snældu- Blesi hlýtur 1. verðlaun fyrir afkvæmi og þriðja sætið. , Stóðhestar 6 vetra og eldri: 1. Safír frá Viðvík. F.: Hrafn 802,r Holtsm. M.: Gloría 4233, Hjaltastöðr um, eigandi Jóhannes Ottósson. Bygg- ing: 8,08, hæfileikar: 8,40, aðalein- kunn 8,24. 2. Hlekkur frá Hofi. F.: Náttfari 776, Ytra-Dalsgerði. M.: Flugsvinn 5704, Dalvík, eigandi Jóhann Þór Friðgeirs- son. B.: 7,65, h.: 8,64, a.: 8,15. 3. Burkni frá Borgarhóli. F.: Kolfinnur 1020, Kjarnholtum. M.: Glóð 4670, Borgarhóli, eigandi Stefán Jónsson. B.: 7,90, h.: 8,27, a.: 8,09. Stóðhestar 5 vetra: 1. Gustur frá Grund. F.: Flosi 966, Brunnum. M.: Flugsvinn 4260, Bræðrat., eigendur Margrét H. Guð- mundsd. og Halldór P. Sigurðsson. B.: 7,90, h.: 8,59, a.: 8,24. 2. Gustur frá Hóli. F.: Gáski 920, Hofsstöðum. M.: Abba 5449, Gili, eig- andi Ragnar Ingólfsson. B.: 7,93, h.: 8,44, a.: 8,18. 3. Bokki frá Akureyri. F.: Snældu- Blesi 985, Árgerði. M.: Von 5500, Akureyri, eigandi Bjarni Jónsson, b.: 7,95, h.: 8,30, a.: 8,13.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.