Morgunblaðið - 06.07.1993, Side 46

Morgunblaðið - 06.07.1993, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6, JÚLÍ 1993 fclk í fréttum Morgunblaðið/Agnar Sigurvinsson Við skírnarathöfnina voru fjórir ættliðir í kvenlegg saman komnir og allar höfðu þær verið skírðar í sama kjólnum. F.v.: Rannveig Þorgeirsdóttir, Helga Walsh og Helga Þorgerður Agnarsdóttir sem heldur á dóttur sinni Söruh Osk Schlammes. SKIRN Ættar- hefðí heiðri höfð Það má með sanni segja að af- komendur þeirra Helgu Jónínu Þorsteinsdóttur og Þorgeirs Magn- ússonar frá Lambastöðum í Garði haldi gömlum hefðum gangandi. Árið 1911 var saumaður skímar- kjóll fyrir fyrsta bam þeirra, Helgu Steinunni. Var kjóllinn síðan notað- ur við skírn þeirra tólf barna sem Lambastaðahjónunum varð auðið. Auk þess hafa flestir afkomendur þeirra borið kjólinn við skím sína í þau 82 ár sem kjóllinn hefur verið í ættinni. Nú síðast var hann notað- ur 6. júní sl. við skírnarathöfn í Junglinster í Lúxemborg, en þá var Sarah Ósk, dóttir hjónanna Helgu Þorgerðar Agnarsdóttur og Fern- ands Jean Schlammes, skírð. Til gamans má geta þess, að Sarah Osk er þriðji ættliður íslendinga af Lambastaðaætt í Lúxemborg. Morgunblaðið/Alfons Þuríður Tryggvadóttir gaf sér tíma til að brosa tU ljósmyndarans en hélt síðan áfram að tína rusl í poka sem hún hafði meðferðis. Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon Börn Jóns Sigurjónssonar og Birnu Finnsdóttur gáfu Náttúru- gripasafninu í Olafsfirði fugla- og eggjasafn í minningu for- eldra sinna. Þau eru frá vinstri: Helga, Kristín og Siguijón. GJAFIR Gáfu fugla- og eggjasafn Náttúrugripasafn var opnað í Ólafsfirði á sjómannadag- inn, en á safninu eru um 200 gripir, að stærstum hluta upp- stoppaðir fuglar auk eggjasafns. Þá er þar einnig að fínna ýmis villt dýr. Það vora börn Jóns Sig- uijónssonar frá Móafelli í Fljót- um og Birnu Finnsdóttur frá Ytriá, þau Helga, Kristín og Sig- utjón, sem gáfu fugla- og eggja- safn sem Jón hafði k'omið upp, í minningu foreldra sinna. Nátt- úrugripasafnið í Ólafsfirði er til húsa á efstu hæð í húsi Spari- sjóðs Ólafsíjarðar. SNYRTIMENNSKA Snyrt á Snæfellsnesi Bæjarvinnan er í fullum gangi hjá starfsmönnum Hellis- sandsbæjar og leggjast allir á eitt um að hafa sem snyrtilegast í sinni heimabyggð. Hellissandur er vin- sæll áningastaður ferðamanna og era margar af náttúruperlum Snæ- fellsness í nágrenni bæjarins. Því er ekki úr vegi að taka til hend- inni eins og einn starfsmaður bæj- arins, Þuríður Tryggvadóttir, gerði fyrir skemmstu. Ný mqndbönd á næsfu miindbanda- leigu “7---- n Óskarsverðlaunahafinn JOE PESCI leikur Utgáfudagur| glæpaljósmyndara er leggur líf sitt að veði fyrir konu sem hann getur ekki fengið. Mynd um morð, hneyksli og glæpi. 13. júlí MYNDBOND Síðumúla 20, sími 679787 Bráðskemmtileg gamanmynd um græðgi, hégómagirnd, kynlíf, ósiðvendni, lífið... og dauðann. Frumlegar brellur og grátt gaman. Djöfullega uppfinningasöm mynd. Útgáfudagur í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.