Morgunblaðið - 06.07.1993, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 06.07.1993, Qupperneq 48
48 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) (HR Félagslífið er ekki upp á marga fiska í dag. Aðrir leita til þín með vandamál sín en veita þér enga upp- örvun. Naut (20. aprfl - 20. maí) <ri% Einhverjar tafír verða í vinnunni í dag og verkefni reynist torleyst. Þú færð góð ráð sem leia til árangurs með tímanum. Tvíburar (21. maí - 20. júnf) Þig skortir ef til vill þá sér- þekkingu sem þarf til að leysa vanda ættingja. Ein- hver seinkun getur orðið á greiðslu sem þú bíður eftir. Krabbi (21. júní - 22. júlí) H§8 Þú þarft ef til vill að beita brögðum til að koma hags- munamáli á framfæri. Vinur veitir þér góðan stuðning og gefur góð ráð. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þér gefst vart tími til að sinna eigin málum í dag. Aðrir eiga við vandamál að stríða og þarfnast aðstoðar þinnar. Meyja (23. ágúst - 22. septcmber) Annríki í vinnunni kemur i veg fyrir að þú getir þegið heimboð en hindrar þig ekki í að skemmta þér með sam- starfsfólkinu. Vog (23. sept. - 22. október) Láttu ekki heimilisvandamá! trufla þig í vinnunni í dag. Upplagt væri að bregða sér út með vinum og vanda- mönnum í kvöld. Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) ®Kj0 Þú verður að ljúka verkefni heima áður en þú getur brugðið þér í smá ferðalag. En tækifærið gefst fyrr en varir. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Þú þarft ekki lengur að hafa áhyggjur af fjármáiunum þegar þú færð gott tækifæri til tekjuaukningar síðdegis í dag. Steingeit (22. des. - 19. janúar) & Þú þarft að sýna góða dóm- greind í viðskiptum og hafa hagsýni að leiðarljósi. Vinur kemur þér á óvart í kvöld. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Þú leggur of hart að þér í vinnunni. Reyndu að slappa af og þú finnur réttu lausn- ina. Vinur leitar ráða hjá þér. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Ýmsum spumingum er ósvarað í ástamálum og svörin fást ekki í dag. Sýndu þolinmæði, því brátt verður ljóst hver staðan er. Stj'órnuspána á aó lesa sem dœgradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vtsindalegra staöreynda. DYRAGLENS GRETTIR TOMMI OG JENNI LJOSKA V/L-rO FAKA ÚT /H£P J - ’ fíastto Fynue. UArrtffoesAteuUN P/UAI tre TU-BÚ/MM, BtSFAH / 1//Í.TU &F&K4 SutD VCLa (//£> faka úrátuo easLtef 1 R.F STAtl RANT N iru rl'c. 1 :::: Z? 11 1 rcnuiiVMiMU 1 li ^■■11 i 1 SMAFOLK YOU KN0U) U)MAT I TMINK, CHUCK? I THINK YOU 6ET BETTEK 6RAPE5 IF YOU'RE CUTE.; I LL BET MY TEACMER UUOULD MAVE GIVEN ME ALL “A'5"IF I LOOKEP LIKE THI5.. Veistu hvað ég held, Kalli? Ég Ég skal veðja að kennarinn minn Mér fannst þú ágæt hinseg- Úff, hvað þetta meiðir held að maður fái betri einkunnir hefði gefið mér eintóm „A“ ef ég in ... Þakka þér fyrir, mann í augunum. ef maður er sætur. hefði litið svona út. Kalli. BRIDS Umsjón Guðm. Páll Arnarson í annarri umferð Evrópumóts- ins í Menton urðu flestir suður- spilaramir sagnhafar í 4 hjörtum í spilinu hér að neðan. Samning- urinn vannst yfírleitt, en enginn þurfti að hafa jafn mikið fyrir slögunum 10 og Skotinn Bamet Shenkin. Það var í leik Breta og ítala. Norður gefur; enginn á hættu. Vestur Norður ♦ DG73 V Á624 ♦ G ♦ KD106 Austur ♦ K102 ♦ 854 ¥G85 II ♦ D ♦ 1062 ♦ ÁK987 ♦ G987 Suður ♦ Á543 ♦ Á96 ▼ K10973 ♦ K543 + 2 Opinn salur. Vestur Norður Austur Suður Lauria Steel Versace Shenkin 1 lauf 1 tígull 1 hjarta Pass 2 hjörtu Pass 3 tíglar Pass 3 spaðar Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Lokaður salur Vestur Norður Austur Suður Armstr. Burgay Kirby DeFalce 1 hjarta Dobl 4 hjörtu Pass Pass Pass I lokaða salnum kom Kirby út með tígulkóng og skipti síðan yfir í spaðaáttu. Armstrong fékk slaginn í kónginn og spilaði litn- um áfram. Burgay tók ÁK í hjarta, spilaði spaða tvisvar og henti laufí. Trompsvínaði síðan laufás. Tíu slagir. Vörnin fór eins af stað í opna salnum. Lauria spilaði út tígli og Versace sendi spaða til baka yfír á kóng vesturs. En nú fann Lauria bestu vörnina þegar hann spilaði tígli og stytti blindan í trompinu. Shenkin trompaði og spilaði hjarta á kónginn. Með laufásinn úti gengur bersýnilega ekki að svína fyrir hjartagosa, svo sagnhafí sýnist neyddur til að leggja niður hjartaásinn í þeirri von að austur hafi byijað með DG-tvíspil. En Shenkin fann aðra og betri leið. Hann spilaði strax spaða og henti laufi. Vestur trompaði og spilaði tígli, en nú hafði Shenkin tempó til að trompsvína fyrir laufkóng og henda síðan síðasta tíglinum niður í laufdrottningu. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á sterku móti í Rostov við Don í vor kom þessi staða upp í viður- eign tvítuga rússneska stórmeist- arans Sergejs Tivjakovs (2.635), sem hafði hvítt og átti leik, og þess gamalreynda Vladímírs Túkmakovs (2.605), Úkraínu. 36. Rxf7! - Kxf7, 37. De6+ - Kf8, 38. Hhl og Túkmakov gafst upp því hann á ekki viðunandi svar við máthótuninni á h8. Tivj- akov sigraði á mótinu og siglir hraðbyri upp stigalistann, er kom- inn í 16. sætið á lista FIDE. Úr- slit í lokaða flokknum í Rostov: 1. Tivjakov, Rússl., 7Vi v. af 11 mögulegum, 2.-3. Epishin, Israel, og Psakhis, ísrael, 7 v. 4.-5. Dolmatov, Rússl., og Smirin, ísra- el, 6'ó v. 6.-8. Vaganjan, Armen- íu, Rasúvajev og Túkmakov, Rússl., 5‘/2 v. o.s.frv. Opinn flokk- ur: 1. Savtsjenko, Úkraínu, 7 v. af 9, 2.-5. Dréjev, Jonov, Kras- enkov og Tsesjkovskí, Rússlandi, 6'A v.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.