Morgunblaðið - 06.07.1993, Page 53

Morgunblaðið - 06.07.1993, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993 53 Er ekki rétt að rukka þá? Frá Birni Þ. Guðmundssyni: VIÐ íslendingar stærum okkur gjaman af því að við séum bók- menntaþjóð. Að vísu segja t.d. Finnar mér að útlán á almennings- bókasöfnum þar séu helmingi fleiri en hér. Það haggar því ekki að við eigum a.m.k. að stefna að því að vera vel læs og ganga á undan í áróðri fyrir gildi bókmennta í bijál- uðum heimi. A tyllidögum skreytum við mál okkar í ræðu og riti með tilvísunum í bókmenntir — nema hvað. Þannig notum við þær m.a. til að tjá það sem við treystum okkur ekki sjálf til að orða svo vel sé. Þann 1. júlí var lagður virðis- aukaskattur á íslenskar bækur. Slíkur skattur er rétt eins og lagt væri raddgjald á ítalska tenóra. Skiptir engu máli í mínum huga þótt hægt sé að benda á aðrar þjóð- ir sem skattleggi bækur. Við eigum einfaldlega að vera til fyrirmyndar á þessu sviði. Meðan milljörðum er skotið und- an skatti ár hvert höfum við ekki siðferðilegan rétt til að láta bókinni blæða fyrir framferði slíkra samfé- lagssvikara. Þess vegna veit ég að ærlegir íslendingar myndu fyrir- gefa Davíð Oddssyni margt ef hann kæmi í kvöldfréttir ótilkvaddur og segði: „Góðir íslendingar. Þrátt fyrir kreppu, sem ég bið þjóðina um stuðning til að vinna bug á, Iýsi ég því yfír sem gamall unnandi bók- mennta og lista að samráðherrar mínir hafa fallist á að fella niður virðisaukaskatt af bókum frá og með deginum í dag að telja. Eða eins og þar stendur: Bókvitið verður ekki í askana látið.“ Og þjóðin myndi hrópa ferfalt húrra og taka ofan 'fyrir Davíð. Ella hugsar hún þeim kannski þegjandi þörfina og kemur fram með kröfur um að höfundar eða rétthafar þeirra rukki ráðamenn fyrir að vitna í ritverk þeirra þegar þeir vilja segja eitthvað viturlegt. Það gæti orðið dágóður skildingur og kannski yrði Davíð látinn vita hvar hann keypti ölið. BJÖRN Þ. GUÐMUNDSSON, prófessor við lagadeild Háskóla Islands. Pennavinir Frá Ghana skrifar 26 ára kona með margvísleg áhugamál: Mary Gimah, P.O. Box 997, Cape Coast, Ghana. Fimmtán ára japönsk stúlka með áhuga á hvers kyns tónlist: Ikuko Ueda, 1-35 Hiranoya 1 chome, Daito-shi, Osaka 574, Japan. LEIÐRÉTTING Tenórinn MISTÖK urðu í tölvuvinnslu við- tals við Ólaf Árna Bjarnason tenór- söngvara sem birt var í sunnudags- blaði Morgunblaðins. Tvær línur lentu öllum að óvörum neðst á blaðsíðu B 11, í miðri setningu um spilamennsku Ólafs á böllum hér áður. Þær áttu hins vegar að vera neðst í öðrum dálki á þessari síðu. Þar átti að standa um söngvarann: Hann vill forðast að festa sig, hvort heldur í Wagner eða einhveijum einum karakter. „Ég varast líka þá freistingu að svara hveiju kalli sem kemur þegar skyndilega vantar söngvara í eitt af óperuhúsunum áttatíu sem Þýskaland geymir. Gestasöngvari getur bjargað heilli sýningu og fær laun í samræmi við það. En þegar menn fara af stað og syngja sæmileg hlutverk út um allt verða þeir útbrunnir fyrr en varir. Ég vil heldur bíða eftir stóru tækifærunum og vinna mig upp að þeim. Mig langar að gleðja fólk með söngnum og stefni hátt. Stund- um veit ég ekkert nema að ég vil allt.“ UPPLÝSINGAR: SIMSVARI91 -681511 lukkul!na991002 HEILRÆÐI ÞEGAR HJÓLAÐ ER MEÐ BARN ER MIKILVÆGT AÐ HAFA HLÍF FYRJR TEINUM SVO BARNIÐ GETI EKKI STUNGIÐ FÓTUM Á MILLI ÞEIRRA. SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS RAUÐI KROSS ÍSLANDS Sjálfsrækt 5 vikna námskeið, sem fjallar um áhrif uppeldis, ást og samskipti, líkamsrækt, mataræði, hugsun, markmiðasetn- ingu, öndun, innsæi, hugleiðslu og lögmál velgengni. ftarleg námsgögn, fyrirlestrar, æfingar og einkatími. Tími: 10. júlí - 11. ágúst, laugardaga frá kl. 9-11 og mið- vikudaga frá kl. 20-22. Leiðbeinandi: Gunnlaugur Guðmundsson, stjömuspekingur. Stjörnuspekistöðin, Kjörgarði, Laugavegi 59, sími 10377. Vandaður veiðifatnaður eykuránægjuna. Full búð af nýjum, glæsilegum vörum. eiðiv< Góð byrjun n veiðitúr! Mörkinni 6, v/Suðurlandsbraut, sími: 687090 Það er engin gengisfelling hjá okkur, og ekki nóg með það, heldur bjóðum við 20% afslátt aföllum jAZZ „ VOLTAGE" fjallahjólum J ÚLÍTILBOÐ JAZZ VOLTAGE: VERÐAÐUR 26.842 VERÐ NÚ: 21.474 Á JAZZ/TREK FJALLAHJÓLUM JAZZ„ VOLTAGE" 26", svört eða rauðgul/dökkfjólublá (tvílit) í fímm stellstærðum. Kromolý/stál-stell með ævilangri ábyrgð. Gírar (18 gíra), átaksbremsur og sveifarsett (krankur) frá Shimano og Weinmann álfelgur með grófum dekkjum. Líka 24" stráka og 26" kvenhjól, eins og að ofan en í tveim stellstærðum. Opið laugardaga frá kl. 10 til 14 SKIIFUNNI11, REIÐHJÓLAVERSWN OG HJÓLABRETTAVERSLUN SÍMI679890, VERKST&DI SÍMI679891 VERSLIÐ I/ID FAGMANNINN - ÞAÐ MARGBORGAR SIG!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.