Morgunblaðið - 06.07.1993, Qupperneq 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993
Til þjónustu reiðubúið
STARFSFÓLKIÐ á Hótel Bifröst í sumar.
Hótel Bifröst hef-
ur sumarstarfsemi
HÓTEL Bifröst í Norðurárdal í Borgarfirði hóf sumarstarfsemi sína
í síðasta mánuði. I Hótelinu eru 26 rúmgóð herbergi og hægt er að
fá svefnpokapláss í skólastofum.
tækifæri, jafnt fyrir einstaklinga
Hótelið verður rekið í sumar líkt
og undanfarin ár og er rekstrarað-
ili eins og áður Samvinnuferð-
ir/Landsýn. Hótelstjóri er Þóra
Brynjúlfsdóttir og matreiðslumeist-
ari er Eggert Birgisson. Þóra segir
að nú verði lögð meiri áhersla en
áður á „lausatraffík" og í tilefni af
því hefur verð á gistingu verið
lækkað.
Boðið er upp á matreiðslu við öll
sem hópa.
Gestir hafa aðgang að gufubaði,
ljósabekk og íþróttasal. Skemmti-
legar gönguleiðir eru í nágrenninu.
Opnuð hefur verið minjagripaverls-
un í hótelinu. Hlaðborð verður alla
sunnudaga frá kl. 18.00. Kveikt
verður upp í arni í setustofu hótels-
ins á hveiju kvöldi. Á fimmtudögum
verður sérstök kráarstemmning.
300 þátttakendur á
norrænu þjóðdansa-
móti í Reykjavík
ÞJÓÐDANSAFÉLAG Reykjavíkur heldur dagana 9.-19. júlí nk.
norrænt þjóðdansa- og þjóðlagamót í Reykjavík, ísleik ’93. Þetta er
í fjórða sinn sem Þjóðdansafélag Reylqavíkur heldur slíkt mót og
eru þátttakendur á þriðja hundrað frá Norðurlöndunum auk 30
manna hóps frá Austurríki, sem einnig er boðin þátttaka. AIls taka
þátt í mótinu um 300 manns.
Á mótinu er fjölbreytt dagskrá
t.d. fræðsluerindi, danskennsla,
skrúðganga, danssýningar, söng-
kvöld, danskvöld, ferðalögo.fl., seg-
ir í fréttatilkyningu frá félaginu.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur er í
norrænu samstarfi „Nordleik" en
það er samstarf á sviði þjóðdansa,
þjóðbúninga og þjóðlagatónlistar.
Hápunktur í þessu samstarfí er
norræn þjóðdansa- og þjóðlagamót
sem haldin eru á þriggja ára fresti
og er skipt á milli Norðurlandanna.
Þessi mót sækja 7.000 til 10.000
manns. Næsta mót Nordleik ’94
verður haldið í Linköping í Svíþjóð
sumarið 1994.
Þar sem ekki er hægt að halda
mót hér á íslandi fyrir þennan fjölda
er boðið upp á norrænt mót, minna
í sniðum, Isleik ’93 eins og áður
er nefnt. Þátttakendur verða með
aðsetur í Breiðholtsskóla og þar fer
mestur hluti mótsins fram. Markús
Örn Antonsson, borgarstjóri, setur
mótið í ráðhúsi Reykjavíkur laugar-
daginn 10. júlí. Skrúðganga verður
frá félagsheimili Þjóðdansafélags-
ins við Álfabakka 14A í Mjódd
sunnudaginn 11. júlí kl. 14 oggeng-
ið að Árbæjarsafni þar sem dans-
sýningar hefjast kl. 15. Sýningar
verða síðan á nokkrum vistheimil-
um fyrir aldraða.
Ferðast um landið
Farið verður í ferðalög með móts-
gesti og fer hluti hópsins á Snæ-
fellsnes og út í Breiðafjarðareyjar
en hinn hópurinn fer á Vatnajökul.
í Stykkishólmi verður boðið upp á
sýningu og dans miðvikudaginn 14.
júlí. Þessum ferðalögum lýkur með
sameiginlegu borðhaldi, sýningu og
dansi í Festi í Grindavík föstudag-
inn 16. júlí. Mótinu verður síðan
slitið í Perlunni sunnudaginn 18.
júlí.
Sr. Þórhallur Heimisson
frainkvæmdastjón ÆSKR
SR. ÞÓRHALLUR Heimisson
tók þann 1. júní sl. til starfa sem
framkvæmdastjóri Æskulýðs-
starfs kirkjunnar i Reykjavíkur-
prófastsdæmi eystra og vestra.
Fráfarandi framkvæmdastjóri,
Steinunn Arnþrúður Björns-
dóttir heldur erlendis.
Sr. Þórhallur vígðist sóknar-
prestur til afleysingar í Langholts-
kirkju vorið 1989 eftir margra ára
starf þar við barna- og æskulýðs-
mál. Eftir framhaldsnám í Dan-
mörku hefur sr. Þórhallur starfað
sem fræðslufulltrúi Þjóðkirkjunn-
ar í Austfirðingafjórðungi og
framkvæmdastjóri Kirkjumið-
stöðvar Austurlands.
Skrifstofa Æskulýðsstarfs
Reykjavíkurprófastsdæmis er í
Laugarneskirkju.
Þrettándi sigurinn
hjá Metró-mönnum
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Annar sigurinn í röð
FORYSTUMENNIRNIR í flokki óbreyttra bíla, Óskar Ólafsson
og Jóhannes Jóhannesson, aka til sigurs á rallmótinu í nágrenni
Akraness.
Akstursíþróttir
Gunnlaugur Rögnvaldsson
ÁSGEIR Sigurðsson og Bragi
Guðmundsson unnu sinn 13. rall-
sigur á Metró 6R4 rallbílnum á
laugardaginn og hafa unnið á
öllum mótum sem þeir hafa tek-
ið þátt I síðasta árið. Nú um
helgina unnu þeir á rallmóti sem
haldið var á vegum Aksturs-
íþróttafélags Vesturlands og
lágu sérleiðir við Akranes og
Uxahryggi. f fiokki óbreyttra
bíla unnu Óskar Ólafsson og
Jóhannes Jóhannesson á Mazda
323, sem er fjórhjóladrifinn.
Þeir unnu í annað skiptið í röð
og leiða meistarakeppnina í sín-
um flokki.
„Okkur gekk vel í byijun, meðan
helstu andstæðingar okkar urðu
fyrir skakkaföllum. Við náðum
strax 20 sekúndna forskoti og
bættum lítillega við það. Á lokakaf-
lanum héldum við fengnum hlut,“
sagði Bragi Guðmundsson í sam-
tali við Morgunblaðið um 13. sigur
hans og Ásgeirs á sérsmíðuðum
Metró rallbílnum. „Við sluppum
vandræðalaust í gegn á meðan hin-
ir bæði sprengdu og lentu í öðrum
ógöngum. Þó við höfum unnið á
öllum mótum á árinu, þá er meist-
arakeppninni engan veginn lok-
ið.Við erum með 60 stig, en það
eru 80 stig enn eftir í pottinum.
Það reynist oft auðveldra að sækja
en veijast, minnstu mistök og ein-
beitingarleysi geta verið dýrkeypt,"
sagði Bragi.
Steingrímur Ingason og Páli
Kári Pálsson náðu öðru sæti í rall-
inu á Nissan, en Birgir Vagnsson
og Halldór Gíslason, einnig á Niss-
an, urðu þriðju þrátt fyrir vand-
ræði með gírkassa á tímabili.
Fjórðu urðu síðan Óskar Ólafsson
og Jóhannes Jóhannesson og
tryggðu sér þar með sigur í flokki
óbreyttra bíla.
Óskar og Jóhannes hafa 55 stig
af 60 mögulegum til meistaratitils
í flokki óbreyttra bíla. Bergur
Bergsson á Sierra 4X4 varð fimmti,
en hann hóf að keppa á þessu ári
í flokknum og þótti standa sig vel
eftir rólega byijun á árinu. „Það
verður enginn óbarinn biskup og
óbreytti flokkurinn er góð leið fyr-
ir menn til að hefja þátttöku í rall-
akstri, en nokkrir nýir bílar eru
með í ár. Okkur hefur gengið vel
og þökkum það ekki síst miklum
undirbúningi. í raun er undirbún-
ingurinn engu síður mikilvægur en
öruggur akstur," sagði Óskar, sem
skildi helstu keppinauta sína vel
eftir, þá Ævar Sigdórsson á Lancia
og Ólaf Siguijónsson á Renault.
Rallbræðurnir meiddir
Morgunblaðið/Gunnlaugur Röngvaldsson
Bræður í vanda
BALDUR Jónsson, bróðir Rúnars, hugar hér að honum, en Rúnar
hefur ekið með sérstakan búnað til að draga úr bakkvölunum.
Kvennasigur á
þremur hjólum
íslandsmeistarinn í flokki rally eross bíla, Kristín Birna Garð-
arsdóttir, á Porsche vann í sinni fyrstu keppni á árinu á sunnudag-
inn, í keppni Bireiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur. Henni hefur geng-
ið erfiðlega við titilvörnina, en náði nú að sýna sitt rétta andlit.
„Eg hélt að þetta væri allt búið
hjá mér eftir aðra umferð af þrem-
ur, þegar ekið var inn í hliðina á
mér og bíllinn skall á steinvegg.
Dekkið og spyrnan öðru megin að
framan hrundu undan en ég náði
að koma bílnum síðasta spölinn á
þremur hjólum, “ sagði Kristín.
„Við höfðum enga varahluti en
Guðni viðgerðarmaður þeysti frá
Hafnarfirði og upp í Grafarvog og
náði í nýja spyrnu. Við náðum að
laga bílinn fimm mínútum fyrir
ræsingu og ég náði þriðja sæti í
þriðju umferð, sem nægði mér til
að komast í úrslit. Ég náði besta
startinu, ók af öryggi og tók enga
áhættu, en bíllinn vann mjög vel
að þessu sinni. Það hjálpaði mér
mikið í keppninni að ég náði besta
tíma í tímatöku fyrir keppnina, sem
gaf mér sjálfstraust. Núna er bara
að verja titilinn af krafti, eftir
slæma byrjun." sagði Kristín sem
varð á undan Guðmundi Pálssyni
á Toyota og Hirti P. Jónssyni á
BMW.
Teppaflokkur
í teppaflokknum börðust að
venju feðgarnir Einar Gíslason
og Óskar Einarsson á
bandarískum bílum, en Brypjar
Kristjánsson komst upp á milli
þeirra í úrslitariðlinum og náði
í silfrið. Ólafur Baldursson ók
Lada bíl til sigurs í fjölmennsta
flokknum, krónuflokknum, og
Magnús G. Helgason á Nissan
kom honum næstur, en
íslandsmeistarinn, Sigmundur
Guðnason, á Lancer varð þriðji.
MARGFALDIR meistarar í
rallakstri, feðgarnir Rúnar
Jónsson og Jón Ragnarsson,
hafa átt erfitt uppdráttar í
rallmótum síðustu tvö ár. Á
þessu ári hafa erfið meiðsli
Rúnars eftir veltu í keppni í
fyrra sett strik í reikninginn.
Með fádæma keppnishörku
hefur hann þó látið sig hafa.
það að berjast á rallbílnum á
erfiðum vegum, þrátt fyrir
slæma tognun í baki og sífelld-
ar kvalir.
„Ég held ég geti þetta ekki
miklu lengur, ég hef ekið skakk-
ur og skældur með mikla verki
sem ég hef deyft með kælingu.
Ég kæmist til dæmis aldrei í
gegnum þriggja daga langa al-
þjóðarallið, sem tekur mikið á
ökumann í góðu líkamlegu
ástandi, nema þá að ég hafi
sjúkraþjálfara í skottinu," sagði
Rúnar í samtali við Morgunblað-
ið. „Ég hlaut þessi meiðsli í veltu
í keppni í fyrra, sem var 'ekkert
svakaleg, en hef fengið óheppi-
legan slynk á bakið. Eg er búinn
að vera í stöðugri meðferð síðan,
er nuddaður og sprautaður í bak
og fyrir, en allt kemur fyrir ekki.
Þrautimar sem fylgja þessu eru
talsverðar og draga úr einbeit-
ingu í keppni, fyrir utan það að
ég hef verið ómögulegur eftir
mótin. Ég verð líklega að hvíla
mig á rallinu og sjá hvort þetta
skánar ekki.
Ég ætla þó að reyna í einni
stuttri keppni enn, en alþjóðarall-
ið er varla í myndinni eins og
staðan er í dag,“ sagði Rúnar.
Bróðir Rúnars, Baldur Jónsson,
sem var kjörin akstursíþrótta-
maður ársins í fyrra, hefur ekki
getað keppt í rallakstri á árinu
vegna brjóskloss í baki, en hann
er einnig mjög liðtækur knatt-
spyrnumaður með ÍR. Það er því
skarð fyrir skildi hjá rall-fjöl-
skyldunni, sem hefur unnið á
fleiri rallmótum en nokkur hér-
lendis.