Morgunblaðið - 06.07.1993, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1993
55
Ný lands-
númer til
Eystrasalts-
ríkjanna
SAMIÐ hefur verið um notkun
nýrra landsnúmera þegar hringt
er til Eystrasaltsríkjanna og
Moldavíu. Nýju númerin eru sem
hér segir: Til Eistlands 372, Lett-
lands 371, Litháen 370 og
Moldavíu 373.
Gamla landsnúmerið, sem var 7,
verður áfram í notkun en símnot-
endur geta vænst betri og öruggari
þjónustu með því að hringja í hin
nýju landsnúmer þessara landa.
----» ♦ 4---
Matargjafir
HareKrishna
aflagðar
HARE Krishna hreyfingin hefur
hætt almennum matargjöfum á
íslandi, að því er fram kemur í
fréttatílkynningu frá hreyfing-
unni. Ástæðan er að hreyfingin
treystir sér ekki til þess að fara
að þeim reglum um matardreif-
ingu, sem heilbrigðisyfirvöld
krefjast hérlendis um pökkun
matvæla og dreifingu innanhúss.
Hare Krishna hreyfingin segir í.
tilkynningu, að hún virði þær regl-
ur, sem yfirvöld setji, en lýsir jafn-
framt yfír hryggð vegna þess fólks,
sem hreyfíngin telur að hafí þörf
fyrir matargjafímar. Jafnframt
segjast talsmenn hennar bjartsýnir
og leita nú að félagasamtökum til
samstarfs í þeirri von að þeir geti
hafið matargjafír að nýju.
Morgunblaðið/Bj arni
Ætli það takist?
ÞESSI piltur ætlaði sér augljóslega sigur í hjólreiðakeppni sem
Eimskip efndi tíl í tílefni hafnardagsins.
Sundahöfn kynnt fyrir almenningi
15-20 þús. gest-
ir á hafnardegi
Sundahöfn iðaði af lífi á hafnardeginum sem haldinn var í
þriðja sinn síðastliðinn laugardag. Hannes Valdimarsson
hafnarstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að dagurinn hafi
heppnast einkar vel og áætlar að gestír hafnarinnar hafi verið
á milli 15 og 20 þúsund. Hann skýrði ennfremur frá því að
annar hafnardagur verði haldinn þann 24. júlí næstkomandi
og þá að verði starfsemi gömlu hafnarinnar kynnt.
„Að öllum líkindum fór í
Sundahöfn fram stærsta útihátíð
síðustu helgar," sagði Hannes.
Hann skýrði frá því að glöggir
menn telji að á milli fimmtán og
tuttugu þúsund gestir hafí lagt
leið sína í Sundahöfn.
Hannes telur að markmiði
dagsins hafí verið náð en gestir
gátu kynnt sér hafnarsvæðið og
athafnasvæði fyrirtækja í
Sundahöfn sem venjulega eru
lokuð almenningi. Sem dæmi um
vinsælar uppákomur nefnir hann
að færri hafí komist en vildu í
ferð með varðskipinu Ægi. Einn-
ig hafí tæplega þúsund manns
farið yfír í Viðey í boði Reykja-
víkurhafnar og allt athafnasvseði
fyrirtækja var að sögn Hannesar
krökkt af fólki. Þá sagði hann
að nýlenduvörumarkaður hafí
verið sérstaklega vinsæll.-
Að sögn Hannesar er kynn-
Á hestum við höfnina
HESTAFERÐIR voru skipu-
lagðar um hafnarsvæðið sem
minntí fólk á hvernig tekið
hafi verið á mótí sæförum á
fyrri öldum.
ingarstarfí Rey kj avfkurhafnar’
hvergi nærri lokið. Næsti hafnar-
dagur og sá fjórði í röðinni verð-
ur haldinn í gömlu höfninni þann
24. júlí næstkomandi. Hann seg-
ir að þá verði meðal annars sett
upp markaðstorg fyrir sjávaraf-
urðir á Miðbakka og að sjávar-
réttaveitingastaðir verði starf-
ræktir á hafnarbakkanum.
Saga flutninga kynnt
Að sögn Kristjáns Jóhanns-
sonar kynningarstjóra hjá Eim-
skipafélaginu lagði félagið á það
áherslu á sýningarsvæði sínu að
fræða gesti um sögu flutninga-
starfsemi á íslandi. Hann segir
að reynt hafí verið að leiða í ljós
hinar umfangsmiklu breytingar
sem orðið hafa á flutningastarf-
semi á þessari öld. Brugðið hafí
verið upp mynd af gamla tíman-
um og stillt upp á móti hinum
nýja. Kristján segir þessa við-
leitni hafa tekist vel og að góð
þátttaka hafi verið í spurninga-
leik byggðum á sögu flutning-
anna. Að mati Kristjáns heim-
sóttu tæplega tíu þúsund manns
athafnasvæði Eimskips.
Viðamikið greinasafn
ARI Gíslason við skjalastabbann sem hann færði Héraðsskjalasafninu.
Gjöf til Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar
27.000 afmælis- og
minnmgargreinar
BorgarnesL
NÝLEGA var Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar færð höfðingleg gjöf.
Um er að ræða mjög stórt safn greina um einstaklinga sem Ari Gísla-
son hefur tekið saman. í þessu safni eru greinar um 27-28 þúsund
einstaklinga, einkum minningar- og afmælisgreinar. Safninu er raðað
í stafrófsröð og fylgir 420 blaðsíðna nafnaskrá.
Sá sem færði safninu þessa gjöf
heitir Ari Gíslason. Hann er Borgfírð-
ingum að góðu kunnur. Hann er
fæddur að Syðstu-Fossum, þar sem
hann ólst upp fyrstu árin. Hann
stundaði kennslustörf lengi vel en
kunnastur er hann þó vafalaust fyrir
fræðistörf sín, en hann hefur unnið
mjög mikið hin síðari ár við ættfræði-
ritun, meðal annars skrifað mikið í
Borgfirskar æviskrár. Einnig hefur
hann sjálfur gefíð út niðjatöl.
Ari hóf að safna þessu efni á
fimmta áratugnum í tengslum við
ættfræðiritun. í fyrstu beindi hann
söfnuninni einkum að Borgfirðingum
en mjög fljótlega fór hann að safna
öllu sem hann náði til af þessu efni.
Ari fyrsti starfsmaður safnsins
Að sögn Guðmundar Guðmarsson-
ar safnvarðar á Héraðsskjalasafn
Borgarfjarðar Ara mikið gott að
þakka. Hann var fyrsti starfsmaður
safnsins og hóf söfnun skjala árið
1961. Þó svo að Ari hafi ekki starfað
fyrir Héraðsskjalasafnið nú í nokkur
ár hefur hann fært því margvísleg
gögn á hverju ári úr ýmsum áttum.
Að sögn Guðmundar Guðmarsson-
ar er þessi gjöf stærsta einstaklings-
safn sem safninu hefur nokkru sinni
borist og á eftir að koma oft að
gagni þeim mörgu sem sinna ætt-
fræðiathugunum. Sagði Guðmundur
að stjóm og starfsfólk safnsins færði
Ara bestu þakkir fyrir höfðingsskap-
inn sem hann sýndi safninu nú eins
og ætíð áður.
- TKÞ.
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUIMNAR í REYKJAVÍK:
Þrátt fyrir tíðindalitla helgi eru
tæplega 500 færslur í dagbók-
inni. Eins og um helgar ber mest
á ölvunartengdum málum og
málum tengdum umferðinni.
Þannig þurfti lögreglan að hafa
afskipti af 73 ölvuðum einstakl-
ingum er ekki kunnu fótum sínum
forráð, auk þeirra ölvuðu ein-
staklinga er komu við sögu í 4
líkamsmeiðingamálum, 7
skemmdarverkum, 4 rúðubrotum,
13 ölvunarakstursmálum, 14 há-
vaða- og ónæðismálum, 5 heimil-
isófriðarmálum, 5 ágreiningsmál-
um, 5 slysum, 1 umferðarslysi,
15 innbrotum og 5 þjófnuðum.
Ekki voru allir þeir, sem komu
við sögu í þessum málum undir
áhrifum áfengis, en í flestum til-
vikum reyndist þó svo. Af því
má sjá að stór hluti af starfi lög-
reglunnar er að fást við ölvað og
í flestum tilvikum fullorðið fólk
sem annaðhvort kann ekki eða á
ekki að umgangast áfengi. Þetta
er fólkið, sem á að vera fyrir-
mynd þeirra yngri og þeim gott
fordæmi. En meðan svo er ekki
munu aðrir sjá illa drukkið og
áfengisdautt ungt fólk á götum
úti og jafnvel á víðavangi eins
og sjá mátti á útivistarstöðum
um helgina. Á einum staðnum
þar sem var um „skipulagða"
útihátíð að ræða er m.a. haft eft-
ir lögreglumönnum sem komu þar
að að ölvaðir unglingar hafi ráfað
þar um, skriðið eða lágu víndauð-
ir vítt og breitt um svæðið. Stjórn
hátíðarinnar var í höndum full-
orðinna. Þetta er kannski eðlilegt
því þetta hefur „alltaf verið
svona“.
Afskipti voru höfð af tveimur
ölvuðum mönnum, hvorum á sín-
um staðnum, þar sem þeir voru
að kasta af sér vatni á gang-
stétt. í báðum tilvikum þurfti að
handtaka mennina vegna ölvun-
ar. Þeir voru færðir fyrir fulltrúa
að morgni og var gert að greiða
5.000 kr. í sekt fyrir athæfið. Þá
þótti ástæða til þess að sekta
ungan ölvaðan mann um 15.000
kr. fyrir að ganga að lögreglu-
manni í miðborginni aðfaranótt
laugardags og slá einkennishúf-
una af honum.
Um miðjan dag á föstudag var
lögregla kölluð til áfengisútsölu
vegna manns sem þar var að
versla út á falsaða ávísun. Var
maðurinn handtekinn og færður
á lögreglustöð ásamt varningi
sem hann hafði meðferðis. Talið
var að maðurinn hefði fengið
varninginn gegn afhendingu ávís-
ana úr stolnu ávísanahefti. Hann
var fluttur til yfirheyrslu hjá
rannsóknarlögreglu.
Á laugardagsmorgun var til-
kynnt um innbrot í hús við Birki-
mel. Þar hafði verið stolið umtals-
verðu magni af matvælum. Við
eftirgrennslan kom í ljós að þar
hafði verið á ferðinni maður er
reyndist hafa heilmikið góss
heima hjá sér. Hann var vistaður
í fangageymslu.
Kæra eða áminna þurfti 71
ökumann fyrir umferðarlagabrot.
Tilkynnt var um 19 árekstra, en
telja má líklegt að u.þ.b. 50 slík-
ir hafi orðið á starfssvæðinu um
helgina og að í þeim hafi 100
ökutæki skemmst meira og
minna. Dagana 14.-21. júlí mun
lögreglan á Suðvesturlandi í sam-
starfí við Landhelgisgæsluna og
tryggingafélögin gangast fyrir
umferðarátaki á svæðinu. Þá mun
athyglinni verða sérstaklega
beint að ökuhraðanum og fra-
múrakstri ökumanna. Mega öku-
menn búast við snörpum við-
brögðum lögreglu á þessu svæði
ef út af reglum verður brugðið.
Gallerí í
Nesjum
NÝVERIÐ var opnað gallerí í
Hraunhól 7 í Nesjum Horna-
firði.
Þar eru fjölmargir listmunir til
sölu af mörgum stærðum og o-prA.
um, unnir af 13 listamönnum víðs
vegar af landinu. Auk þess eru á
boðstólum minjagripir, sem gerðir
eru af fólki úr Austur-Skaftafells-
sýslu.
Galleríið er opið sex daga vik-
unnar en eigendur eru Helga Er-
lendsdóttir listakona og Ásmundur
Gíslason. Á sama stað er einnig
rekið gistiheimili.
26. Idkvika, 3.-4. júU 1993 |
Nr. Leikur: Rðóin:
1. Brage - Degerfora - X -
2. IFK Gðteb. - Helsingborg 1 - -
3. Öster - Örgryte - X -
4. Elfsborg - HSsslehobn - - 2
S. GAIS - UddevaDa - - 2
6. Jonsered - Skðvde 1 - -
7. Kalmar FF - Forward 1 - -
8. Lund - Landákrona - - 2
9. Myresjð - Giuuiilse 1 - -
10. Oddevold - MjlUby 1 - -
11. TreUeborg - Lyngby 1 - -
12. Mabnð - Videoton - X -
13. HScken - Maccabi Tel Avi 1 - -
Heildarvinningsupphæðin:
77 milljón krónur
13 réttir: 1.219.680 |
12 réttir: 20.050
llrtttir: f 1.160
lOrettir: 260 |
kr.
kr.
kr.'1
kr.