Morgunblaðið - 06.07.1993, Page 56
MORCVNBLAÐID. KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100. SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKVREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 6. JULI 1993
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Skipaskoðun Vest-
mannaeyjaflotans
Heimamenn vilja banna samkomur ungmenna í Þjórsárdal
Sparnaður
~oghagræð-
ing hlýst
af útboði
ÚTVEGSMENN í Vest-
mannaeyjum hafa í samein-
ingu boðið út lögboðna skoð-
un á skipum sínum og svo-
kallaða bt-mælingu. Hilmar
Rósmundsson, formaður Út-
vegsbændafélags Vest-
__mannaeyja, segir að skoðun
og mæling um þrjátíu skipa
hafi verið boðin út í hvoru
útboði og hafi þau skilað
útvegsmönnum umtalsverð-
um sparnaði og hagræðingu.
Bt-mæling svokölluð er brúttó-
tonnamæling, sem þarf að gera á
öllum íslenzkum skipum fyrir árslok
til þess að þau uppfylli alþjóðlega
staðla. Hilmar segir að Utvegs-
bændafélagið hafí boðið út bt-mæl-
, jjigu 28 skipa og fengið fímm til-
^obð. Lægsta boðinu, frá Skipahönn-
un í Garðabæ, hafí verið tekið.
Samkvæmt lögum, sem gengu í
gildi í ársbyijun, verða fískiskip
yfír 10 tonn að stærð að gangast
undir skoðun annan hvem mánuð.
Skoðunarstofur, fyrirtæki í eigu
einkaaðila, sem hafa hlotið löggild-
ingu Fiskistofu, annast eftirlit í
skipunum og er sérhverri útgerð
skylt að hafa samning við slíka
stofu. Útvegsbændur í Eyjum buðu
út skoðun á um 35 skipum, að sögn
Hilmars, og átti Skoðunarstöð Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna
lægsta boðið.
Munum hafa augun opin fyrir
m sparnaðarleiðum
Hilmar vildi í samtali við Morg-
unblaðið ekki gefa upp hver upphæð
lægstu boða hefði verið, en sagði
að útboð á svo stórum pakka hefði
skilað umtalsverðum spamaði. „Það
veitir víst ekki af á þessum tímum
að spara og við munum hafa augun
opin fyrir fleiri sparnaðarmöguleik-
um,“ sagði hann. í Útvegsbændafé-
lagi Vestmannaeyja eru eigendur
allra fískiskipa, sem em yfír 12
tonn að stærð, en það em alls um
fímmtíu skip.
Ófc
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Fögur aðkoma í Hallslaut
MÓTSSVÆÐIÐ var einn ruslaflekkur eftir tónleikana og mikið verk að hreinsa svæðið. Sumir mótsgestir höfðu ekki hirt um að taka með
eigur sínar, svo sem fatnað og viðlegubúnað, og dæmi var um að fólk kveikti í tjöldum sínum áður en það lagði af stað heim.
Samkomusvæðið rusla-
flekkur eftír tónleikana
Selfossi.
GESTIR og skipuleggjendur tónleikanna í
Þjórsárdal um helgina fá bága einkunn fyrir
umgengni. Tónleikasvæðið í Hallslaut var
einn ruslaflekkur eftir samkomuna. Gras á
svæðinu var talsvert troðið þar sem mann-
fjöldinn var mestur og víða voru brunablett-
ir. „Ég sé ekki neinn tilgang í þessu sam-
komuhaldi og þykir ótrúlegt ef framhald
verður á þessu,“ sagði Steinþór Ingvarsson
oddviti Gnúpveijahrepps.
„Manni fannst vera meira vit í þessum sam-
komum þegar ungmennafélögin stóðu að þeim
sér til fjáröflunar. Þau stóðu mun betur að allri
framkvæmd. Nú er þetta til hreinnar skammar
og alls ekki sveitinni til framdráttar og slæm
auglýsing fyrir Þjórsárdalinn. Hallslautin er
skemmtilegur staður að dvelja á og ég er hrædd-
ur um að erfitt verði að hreinsa þetta alveg
upp. Ég trúi ekki að svona lagað verði leyft
aftur og tel að sveitarstjórnin muni beita sér
gegn því,“ sagði Steinþór Ingvarsson oddviti.
Mikii ölvun var á samkomusvæðinu um helg-
ina en ekki þó neinar óspektir þannig að til
vandræða horfði. Eitt alvarlegt umferðarslys
varð á svæðinu þegar piltur á átjánda ári varð
undir rútu og liggur hann lífshættulega slasaður
á gjörgæsludeild Borgarspítalans.
Hreinlætismál voru í ólestri
Björgunarsveitarmenn í Gnúpveijahreppi sáu
um hreinsun svæðisins og hófst hún strax á
sunnudag. Þá var helmingur þess hreinsaður en
mikið verk er að hreinsa svæðið. Greinilegt er
að samkomugestir hafa ekki haft snyrtimennsku
né góða umgengni í huga í þessari heimsókn í
Þjórsárdalinn og skipuleggjendur samkomunnar
ekki gert sér fulla grein fyrir mögulegum um-
gengnisháttum gestanna. Hreinlætismálin voru
í algerum ólestri, salerni meira og minna stífluð
og ruslahreinsun áfátt á meðan á samkomunni
stóð. Sumir gestanna skildu viðlegubúnað sinn
eftir en sjá mátti hann samanvöðlaðan á svæð-
inu eða brunninn. sig. Jóns.
Sjá bls. 20: „Alvarlegt slys í Þjórsárdal
Hálendið opnað óvenju seint fyrir umferð í sumar
Stefnir í mikil vandræði
hjá ferðaskrifstofumim
HÁLENDISVEGIR verða að jafnaði opnað-
ir viku til tíu dögum. seinna í sumár en í
venjulegu árferði. Áhrifin eru þau að
ferðaskrifstofur, sem selja ferðir um há-
lendið, geta ekki alltaf staðið við fyrirheit
sín. Ferðaskrifstofurnar telja að mikil
vandræði skapist, dragist opnun vega um
marga daga. „Þetta ruglar allri áætlun og
kemur sér mjög illa,“ sagði Halldór Bjama-
son, hjá Safaríferðum hf.
Halldór sagði að svona sein opnun yrði til
þess að ferðaskrifstofur erlendis ráðlegðu við-
skiptavinum sínum að kaupa ferðir yfir há-
annatímann og ferðamannaiðnaðurinn á ís-
landi mætti varla við því að ferðamannatíma-
bilið þrengdist meir en orðið er. „Maður hefur
auðvitað orðið fyrir skaða því að síðasta helg-
in í júní er farin að vera ansi slöpp út af þessu
og fyrsta helgin í júlí líka,“ sagði Halldór.
Hann sagði líklegt að Safaríferðir hf. töpuðu
um 50 til 100 þúsund krónum á hverri fjalla-
ferð.
„Enn sem komið er erum við ekki búin að
líða mikið fyrir þetta,“ sagði Linda Hængs
hjá Ferðamiðstöð Austurlands um seinkunina.
Linda sagði að ef vegimir opnuðust ekki eftir
viku til tíu daga þá færi málið að vandast.
Reynt að moka
Magnús Hjartarson hjá Vegaeftirlitinu
sagði að búast mætti við því að seinkunin
yrði allt að tíu dagar miðað við venjulegt ár-
ferði. „Það er ekki búið að opna Sprengisand
en það er vonast til að hann opnist núna seinna
í vikunni. Kjalvegur er opinn og opnaðist á
svipuðum tíma og venjulega en annað hefur
dregist," sagði Magnús. Hann sagði að ekki
væri kominn opnunartími á Fjailabaksleiðirnar
en þær yrðu opnaðar viku til tíu dögum seinna
en venjulega.
Stígamót í Þjórsárdal
5 nauðgan-
ir en engin
þeirra kærð
TVÆR konur frá Stígamótum voru
til staðar á útihátíðinni í Þjórsár-
dal og að sögn annarrar þeirra,
Heiðveigar Ragnarsdóttur, höfðu
þær afskipti af fimm málum sem
flokkast sem beinar nauðganir.
Hinsvegar var engin kæra lögð
fram vegna þessara nauðgana.
Stúlkumar voru á aldrinum 14 til
19 ára. Heiðveig segir að engin þeirra
hafí viljað kæra verknaðinn þar sem
góðir vinir eða kunningjar áttu hlut
að máli auk þess sem ölvun spilaði
inn í dæmið. „Við vitum ekki til þess
að nein þeirra hafí kært nauðgun."
Að sögn Heiðveigar hafa Stígamót
sent konur á útihátíðir til eftirlits og
ráðgjafar undanfarin tvö ár.