Morgunblaðið - 28.11.1993, Síða 4

Morgunblaðið - 28.11.1993, Síða 4
4 FRETTIR/YFIRLIT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1993 ERLENT INNLEIMT * Islensku skipin af fiskvernd- arsvæðinu ÚTGERÐIR þriggja íslenskra skipa sem voru að veiðum á fis- kverndarsvæði Norðmanna við Svalbarða tóku þá ákvörðun að láta skipin sigla af svæðinu. Ríkisstjómin hafði þá beint þeim eindregnu tilmælum til útgerða og skipstjóra skipanna að láta af veiðum og ítrekaði þá afstöðu að íslensk stjórnvöld myndu ekki veita skipum vernd við þessar veiðar. Ríkisstjómin hefur falið utanríkisráðuneytinu að leita eftir viðræðum við Norðmenn um Svalbarðamálið áður en end- anleg ákvörðun verður tekin um hvort íslendingar gerist aðilar að Svalbarðasamkomulaginu. Hjálmur hf. hættir fiskvinnslu Stjóm Hjálms hf. tók þá ákvörðun sl. sunnudag að hætta fískvinnslu og segja upp starfs- fólki. Einar Oddur Kristjánsson stjórnarformaður sagði að stjórnendum fyrirtækisins hefði borið að meta stöðuna þannig að hægt væri að greiða öllum lánardrottnum. Fyrirtækið mun segja sig úr SH og losa þannig um umtalsverðar eignir. Athugað með innlausn spariskírteina Fjármálaráðherra hefur ákveðið að athuga með innlausn nokkurra flokka spariskírteina ríkissjóðs, upp á 17 til 18 millj- arða, áður en til lokainnlausnar kemur. Verð á einum flokki þessara spariskírteina lækkaði í vikunni hjá Verðbréfaþingi Is- lands um 15%. Miðað við núver- andi vaxtastig mun ríkissjóður ERLENT Nýfasistar og fyrrum kommúnistar sigra á Ítalíu FLOKKUR fyrrverandi kommúnista og flokkur nýfas- ista sigruðu _ í sveitarstjómar- kosningum á Ítalíu sl. sunnudag. Fylgið hrundi af kristilegum demókrötum. Verðhrun varð á fjármálamörkuðum á Ítalíu vegna úrslitanna og gengi lír- unnar féll vegna óvissunnar í stjómmálum landsins. Sam- kvæmt nýrri skoðanakönnun eru nýfasistar vinsælasti stjórnmála- flokkurinn á Ítalíu og talsmenn hans kröfðust þess að ríkis- stjórnin segði af sér og boðaði til kosninga. Til að afstýra stjórnarkreppu í kjölfar úrslit- anna lýstu hins vegar tveir stærstu flokkar stjórnarandstöð- unnar á ítalska þinginu, Lýðræð- isbandalag vinstrimanna, fyrr- verandi kommúnistar, og Norð- ursambandið, stuðningi við fjár- Iagafrumvarp stjórnar Carlos Azeglios Ciampis forsætisráð- herra. Er það gert til að tryggja að af þingkosningum verði á næsta ári. Fordæma hótanir Rússa RÁÐAMENN í flestum fyrrver- andi sovétlýðveldum utan Rúss- lands eru einhuga um að for- dæma óbeinar hótanir stjórn- spara 500 til 600 milljónir króna á ári með því að innkalla þessi spariskírteini og gefa út nýja flokka með lægri vöxtum. Atvinnuleysisbætur hátt í þrír milljarðar Atvinnuleysisbætur gætu orðið hátt í þrír milljarðar króna á þessu ári. Upphæð bóta er nú þegar orðin þriðjungi hærri en í fyrra. Framlög vegna opin- berra starfsmanna hafa meira en tvöfaldast frá því í fyrra, en tii þessa hefur atvinnuleysi verið lítið í þessum hópi. í desember fá þeir sem hafa verið atvinnu- lausir frá því í september eða lengur, og eiga fullan- bótarétt, láglaunabætur á atvinnuleysis- bætumar. Alþýðubandalagið heldur landsfund Landsfundur Alþýðubanda- lagsins var settur í Reykjavík á fímmtudag. M.a. var þar kynnt tillögugerð flokksins um útflutn- ingsleiðina, sem forystumenn hans telja að feli í sér sókn í atvinnulífí, ábyrga hagstjórn og félagslegar umbætur. Sjómenn boða verkfall hjá Eimskip Sjómannafélag Reykjavíkur hefur boðað verkfall hjá Eimskip 6. desember. Vinnuveitenda- sambandið ætlar að kæra verk- fallsboðunina til félagsdóms á þeirri forsendu að verkfallið, sem boðað er, sé ólöglegt. Komi verkfallið til framkvæmda stöðvast siglingar Eimskipafé- lagsins. Vantar fé til Vestfjarða Byggðastofnun hefur farið fram á við forsætisráðherra að veitt verði 300 milljóna fjárveiting til þess að aðstoða sjávarútvegs- fyrirtæki á Vestfjörðum. Matthías Bjarnason, stjómarformaður Byggðastofnunar, segir að stjóm- völd hafi ámm saman unnið markvisst að því að eyðileggja sjávarútveg fyrir vestan. valda í Moskvu um að beita vopnavaldi ef þrengt verði að hagsmunum rússneskra minni- hlutahópa í löndunum. Andrej Kozyrev utanríkisráðherra Rússlands sagði fyrr í vikunni að Moskvustjórnin myndi „veija Rússa og rússneska hagsmuni af harðfylgi hvar sem þess verð- ur þörf og hver sem á í hlut, jafnvel þótt um vini okkar verði að ræða.“ Olían lækkar OLÍUVERÐ lækkaði á heims- markaði á fímmtudag er aðildar- ríki samtaka olíuríkja, OPEC, náðu ekki samkomulagi um að draga úr framleiðslu. Kostaði olíufatið 14,50 dollara og var búist við frekari lækkun í næstu viku. Vinnuvikan 48 stundir VINNUVIKAN í Evrópubanda- laginu má aldrei verða lengri en 48 stundir að meðtaldri yfír- vinnu, að því er atvinnumálaráð- herrar EB samþykktu sl. þriðju- dag. Breska stjómin áskildi sér rétt til að skjóta málinu til dóm- stóls Evrópubandalagsins. Síldarstríð í nánd? SKÁNSKIR fískimenn hafa beð- ið sænsku strandgæzluna um 'njálp til að stöðva ólöglegar síld- veiðar danskra fiskimanna í Eyr- arsundi. Þeir segjast orðnir lang- þreyttir á að danskir starfsbræð- ur þeirra eyðileggi veiðarfæri með því að nota botnvörpur sem eru ólöglegar á þessum slóðum. A-Evrópubúar sækja inn á þýskan vinnumarkað Ólöglegar atvinnuimðl- anir útvega vinnuafl Berlín. Frá Hrönn Marinósdóttur, frcttaritara Morgunblaðsins. í Þýskalandi hefur þeim fjölgað sem vinna ólöglega þrátt fyrir hertar reglur og aðgerðir lögreglu. Austur-Evrópubúar sem hvorki hafa dval- ar- né atvinnuleyfi sækja í auknum mæli inn á þýska vinnumarkaðinn. Ástandið er sagt líkjast þrælamarkaði þar sem ólöglegar atvinnumiðlan- ir útvega verktökum ódýrt vinnuafl sem þiggur lúsarlaun. Ástandið er einna verst í bygging- ariðnaði í Berlín. Borgin er í mikiili uppbyggingu en alls staðar er verið að gera við og byggja nýtt. Talið er að um 150 ólöglegar atvinnumiðlanir útvegi byggingarverktökunum vinnuaflið. Lögregla á í miklum erfíð- leikum með að fletta ofan af þessum fyrirtækjum sem oft eru lítið annað en pósthólf í eigu útlendinga. Þýsk verkalýðsfélög líkja þessari starfsemi við nútíma þrælahald en þess eru dæmi að verkamenn fái í laun 75 þýska pfenninga á klukku- stund sem samsvara um 30 Islensk- um krónum og því er um algjört undirboð að ræða. Að auki eru þeir flestir tilbúnir til að vinna lengri vinnudag en aðrir. Yfírleitt eru þó launin á bilinu 4-15 þýsk mörk (um 160 til 600 krónur). Pólveijar eru áberandi á þessum vettvangi en lögreglan hefur einnig gómað fyrrum hermenn Sovétríkj- anna sem gegnt hafa herþjónustu í Berlín og flóttamenn sem beðið hafa um pólitískt hæli í Þýskalandi. Marg- ir koma til borgarinnar sem ferða- menn, þeir flakka á milli bygginga- svæða eða koma sér fyrir á tilgreind- um stöðum í borginni og bíða eftir milligöngumönnum sem segja til um hvar vinnu er að fá. Þegar lögregl- unni tekst að hafa hendur í hári lög- bijótanna eru verkamennirnir sendir úr landi, hafí þeir ekki landvistar- leyfí en málaferli hefjast yfír vinnu- veitendunum. Fyrri hluta þessa árs hafa verið rannsökuð um 4000 mál í Berlín vegna ólöglegrar atvinnustarfsemi sem er töluvert meira en á sama tíma í fyrra. Talið er að þetta sé einungis toppurinn á ísjakanum. Vilja ekki pelsana ÞAÐ hefði þveröfug áhrif að ætla að heilla þessar stúlkur með því að færa þeim pels að gjöf því þær eru dýravinir og segjast fremur ganga um naktar en klæðast pels. Myndin var tekin við mótmælaaðgerðir í nepjunni í New York á föstudag. i'joðemisleg’ar njósnasögur feykivinsælar í Rúmeníu FYRRVERANDI leyniþjónustumaður í Rúmeníu, Pavel Corut, hefur auðgast á skáldsögum sem fjalla um stórglæsilega njósnara, gædda ofurmannlegum eiginleikum, sem kljást við hættulega óvini Rúmeníu, einkum gyðinga, Rússa og Ungverja. Corut er óhemju afkastamikill, gaf til að mynda út sex bækur í fyrra, og túlka má skáldsögur hans sem tilraun til að veita öryggislögreglunni Securitate, sem ofsótti Rúmena á valdatima Nicolae Ceausescu einræðisherra, uppreisn æru. Corút var áður yfirmaður gagn- njósnadeildar leyniþjónustu rúm- enska hersins. Eftir að Ceausescu og kona hans Elena voru tekin af lífí í byltingunni í desember 1989 missti Corut vinnuna og tók að skrifa njósnasögur sem einkennast af mik- illi þjóðemishyggju. Söguhetjurnar sameina yfímátt- úrulega hæfíleika Stjömustríðs- skúrksins Darths Vaders og kyn- þokka James Bonds. Þær eru gædd- ar dulrænum hæfileikum sem þeir fá að erfðum frá Zamolxis, róm- verska guðinum, og að hluta frá Geto-Dakíum, fornri þjóð sem lýst er sem afkomendum menningarþjóð- ar úr geimnum sem heldur verndar- hendi yfír Rúmeníu. Söguhetjurnar starfa fyrir Securit- ate-deild sem á að bijóta á bak aftur „búbúla“, hættulega óvini sem hafa hafíð alþjóðlegt samsæri gegn Rúm- eníu. Með því að nefna þá nöfnum eins og Yitsik, ívan og Janos gefur höfundurinn í skyn að gyðingar, Rússar og Ungveijar séu óvinir Rúm- eníu. Corut hellir úr skálum reiði sinnar yfír Ion Iliescu forseta, sem komst til valda eftir byltinguna 1989. Hann gefur í skyn að Iliescu hafí misnotað byltinguna í þágu bandarískra, rúss- neskra, ísraelskra og ungverskra leyniþjónustumanna. Slíkar ásakanir kunna að hljóma fáránlega, en þær fá augljóslega hljómgrunn hjá stór- um hluta Rúmena, sem hafa gert Corut að einum söluhæsta rithöfundi landsins. Ileimild: The Independent. Milljarða samn- ingur við Jackson New York. The Daily Telegraph. FYRIRTÆKI poppsljörnunnar Michaels Jacksons fær um 70 milljónir dala, jafnvirði fimm milljarða króna, fyrir samning til fimm ára við breska fyrirtækið Thorn EMI um útgáfu á lögum, meðal annars flestum lögum Bítlanna, sem Jackson hefur útgáfu- réttinn á. Fyrirtæki Jacksons, ATV Music, keypti útgáfuréttinn á lög- unum fyrir 47,5 milljónir dala, jafnvirði 3,4 milljarða króna, árið 1988. Hann nær til allra laga Bítl- anna nema þeirra sem notuð voru í kvikmyndunum „Help!“ og „A Hard Day’s Night“ og nokkurra af lögum Elvis Presleys, Little Richards, Pointer Sisters og Kenn- ys Rogers. Jackson hefur verið sakaður um að hafa misnotað unga drengi kynferðislega og tveir af fyrrver- andi lífvörðum hans hafa sagt að „litlir vinir“ söngvarans hafí oft sofíð í herbergi hans.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.