Morgunblaðið - 28.11.1993, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 28.11.1993, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1993 11 lyfjum þannig að fyrirtækin hafí tækifæri til að keppa innan þess ramma sem hámarksverðið veitir. Verði sú raunin að samkeppnin verði næg til að halda niðri lyfjaverð- inu opnast möguleikar til að létta opinberum afskiptum af smásöluverði lyfja, hvort sem það væri með því að afnema hámarksverðið eða með því að heimila lyfsölum að ákveða af- greiðslugjald upp á eigin spýtur fyrir hverja lyfjaávísun.“ Það er álit fjár- lagaskrifstofu Ijármálaráðuneytisins að ákvæðið um hámarkssmásöluverð og takmarkanir á lyfjasölu muni geta dregið úr kostnaðarlækkun vegna kerfisbreytinganna. Álagning á svokölluðum lausa- sölulyfjum verður aftur á móti frjáls og heimilt verður að auglýsa þau fyrir almenningi. Vangaveltur eru um að svokölluðum náttúrulækn- ingalyíjum muni stórljölga á mark- aði hérlendis á næstunni enda verði íslendingum ekki lengur stætt á því að hamla gegn innflutningi þeirra eftir að Evrópska efnahagssvæðið tekur gildi. Lyfjabúðum verður heim- ilt að auglýsa og kynna þjónustu sr'na, svosem heimsendingarþjónustu, verð lausasölulyfja og almenn af- sláttarkjör. Lyfjafræðingana fram í skrank! Skiptar skoðanir eru meðal lyija- fræðinga um aukið frelsi í lyfsölu. Sumir segja að aukið framboð muni eingöngu leiða til aukinnar lyfja- neyslu undir skertu faglegu eftirliti. Aðrir líta á þessa breytingu sem kærkomið tækifæri til að stokka upp í greininni. Á Degi lyfjafræðinnar sem haldinn var hátíðlegur í Nes- stofu sl. laugardag var t.d. mikið rætt um aukna þjónustu sem lyfja- fræðingar ættu að veita. Tímabært væri að lyljafræðingar kæmu fram í skrank eins og það er kallað en sætu ekki lengur við tölvu að tjalda- baki. Ættu þeir að kappkosta að veita viðskiptavinum sem bestar upp- lýsingar um lyfjanotkun. Nú ættu lyfjafræðingar í apótekum að fara að nýta sér fimm ára strangt há- skólanám og láta til sín taka. Ofangreindar lagabreytingar Lyfsölum og heildsölum óar við ákvæði um hámarksálagn- ingu í smásölu Til að hamla gegn hringa- myndun verður hvert lyfsöluleyfi takmarkað við rekstur einnar lyflabúðar bjóða heim sviptingum í lyflasmásölu en hún hefur hingað til fremur ein- kennst af rósemi og stöð- ugleika. Til dæmis eru litlar tilfærslur í veltu milli apóteka ár frá ári. Því er spáð að apótekum Ijölgi, kunnugt er að stór- markaðir eins og Hagkaup hafa í hyggju að heija lyfsölu og menri geta ímyndað sér að húsnæði undir apótek verður eftir- sótt í nágrenni við læknastofur eins og Domus Mediea. Til þess að gefa þeim aðlögunartíma sem nú reka apótek er gert ráð fyrir að takmarka veitingu nýrra leyfa fram í mars 1995. Lyfjaverð með hæsta móti Þegar Evrópska efnahagssvæðið tekur gildi um áramótin opnast fyrir svokallaðan samhliða innflutning. Hann þýðir að flytja má inn lyf fram- hjá umboðsmannakerfinu sem verið hefur við lýði. Lyíjaverð er mishátt í Evrópu m.a. vegna þess að fram- leiðendur verðleggja í samræmi við kaupgetu markaðar og heldur heil- brigðisráðuneytið því raunar fram að það sé hvergi jafnhátt og á Is- landi. Samkvæmt athugun heilbrigð- isráðuneytisins er smásöluverð á lyfj- um á íslandi, án virðisaukaskatts, 63% hærra en í Svíþjóð, 26% hærra en í Danmörku og 11% hærra en í Svíþjóð. Samhliða innflutningur ætti því að geta lækkað lyijaverð hér. Á móti kemur að á næstunni taka gildi stórlega hertar samevrópskar reglur um fylgiseðla lytja. Mjög ná- kvæmar leiðbeiningar þurfa að fylgja hveiju lyfi á íslensku. Þessar reglur munu torvelda samhliða innflutning en aðlögunartími að þeim er nokkur því þær munu eingöngu gilda um ný lyf. Eins og bent var á á degi lyija- fræðinnar munu þessar reglur enn- fremur draga úr möguleikum lyfsala til að láta til sín taka í Upplýsingagjöf. Menn telja þó að almennt muni reglur um samhliða innflutning leiða til þess í Evrópu að verðmismunur milli landa minnki. Þannig munu reglurnar a.m.k. óbeint hafa áhrif hériendis til verðlækkunar. DEILAN UM ÉSSIÐ OG ERRIÐ MEINLEYSISLEG breyting á reglugerð um gerð lyfseðla og ávísun lyfja sem tók gildi 1. ágúst 1992 hefur haft mikil áhrif á lyfjamarkaði hérlendis, aukið samkeppni heildsala og umboðsmanna, sparað ríkinu fé og hrundið af stað deilu um lagatúlkun þar sem Tryggingastofnun og umboðsmaður Alþingis koma við sögu. Þann 28. júlí 1992 sendi heilbrigðisráðherra læknum og apótekum bréf þar sem reglugerðarbreytingin var kynnt. Breytingin byggir á þeirri staðreynd að sama lyfið er oft á tíðum á markaði undir mörgum nöfnum frá mismunandi framleiðendum. Enginn hvati hafði verið í kerfinu fyrir lækna að ávísa á ódýrasta iyfið úr þessum hópi. Sem dæmi um möguleikana til sparnaðar nefna ráðuneytismenn að ef alltaf væri selt ódýrasta samheitalyf þá myndi það spara 600 milljónir á ári. Læknum var nú gefinn kostur á að merkja lyfseðla annaðhvort með „R“, sem þýðir að afgreiða verður nákvæm- lega viðkomandi sérlyf, eða „S“, sem þýðir að afgreiða ber ódýrasta sérlyf, sem inniheldur sama virka efnið (þ.e. samheitalyf). í bréfinu frá ráðherra er reglugerðin túlkuð þannig að læknum sé skylt að taka afstöðu með því að merkja annaðhvort „R“ eða „S“ ella sé lyfseðill ógildur. Ekki er hægt að sjá að þetta sé einhlítur skilningur á reglugerðinni sjálfri en að vísu fylgdi henni sýnishorn af nýrri gerð lyfseðla þar sem skýrt er tekið fram að seðlarnir séu ógildir ef bókstafsmerking er ekki innt af hendi. Svo virðist sem ráðuneytið hafi farið að velta betur fyrir sér þeim mögu- leika að læknar yrðu seinir til að tileinka sér „R“ og „S“-merkingarnar því tveimur dögum seinna, 30. júlí, var sent nýtt bréf til apóteka einvörðungu þar sem segir: „Hafi læknir gleymt að rita S (með hring utanum) eða R (með hring utanum) á eftir ávísun, hefur lýijafræðingur heimild til að af- greiða ódýrasta samheitalyf (S), vilji sjúklingur ekki fara aftur til læknis. Einnig má hafa samráð við lækni, ef það er unnt. Sé verðmunur samheitalyfja í sama styrkleika og formi innan við 10%, skal framkvæma breytingu, ef læknir heimilar það (S), og verðmunur segir svo til um.“ Lyfjaframleiðendur og umboðsmenn þeirra eru ósáttir við þessi fyrirmæli og telja þau stríða gegn vörumerkjalögum. Ráðuneytið ætlist nefnilega til þess að apótek afgreiði annað lyf en skráð er á lyfseðil undir öðru vöru- merki þótt ekki hafi verið haft samráð við lækni. Hefur umboðsmaður Alþing- is nú til umijöllunar kvörtun þar að lútándi. En þar með er ekki öli sagan sögð. Samkvæmt könnun frá því í ágúst síðastliðnum eru 25% lyfseðla merkt „R“ og 15% merkt „S“. Þess má geta að verulegur hluti lyfseðla er símsendur og má ætla að við þær aðstæður ræðist læknir og lyfsali við um merkingu lyfseðils. Auk þess er það alls ekki reglan að alltaf séu til samheitalyf skráðra sérlyíja. En þrátt fyrir þetta náðist að sögn ráðuneytismanna 80 milijón króna sparnaður fimm síðustu mánuði ársins 1992 í krafti reglugerðarinnar. Það mun vera ailur gangur á því hvernig apótek meðhöndla seðla þar sem umrædda bókstafí vantar. Tryggingastofnun hefur ítrekað hótað að borga ekki sinn hlut ef seðlar eru ómerktir. Að sögn starfsmanna þar hefur að undanförnu orðið veruleg breyting til batnaðar. FIRÐ Rís úr hafi, ljós, sem stöðug stjarna. Stefnir ofar, hægt upp himininn. Mér finnst ég sjái andlit eigra þarna, óljóst, en þó ber það svipinn þinn. Eg man þú straukst um votan, rjóðan, vangann. Þú vissir ekki að ég færi né heldur hvert. I mér geymdi ég áhrif þín og angan. An þess yrði líf mitt einskisvert. Óuppgert var allt. Einskisverð mín för. Vinur minn, vindurinn, veitti engin svör. Ekki vil ég kveina eða kvarta. Kænska er ekki sterka vopnið mitt. Eg stanslaust var í huga mér og hjarta hrópandi í víddir nafnið þitt. Mér fannst ég vera fangi í þínu neti. Fyrirgefðu glappaskotin mín. Hvíslandi í vindinn, vona'að ég geti, í vor, komið aftur heim til þín. LJÓDSÖGUR f TÓNLIST Um angurværð draumanna, hreinleika og mátt ástarinnar og óumbeðna nálægð dauðans. Um lífið. GULL MEÐ HERÐR TORFA - HLUSTAÐU! Pöntunarsími: 91 - 625200

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.