Morgunblaðið - 28.11.1993, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1'993
15
i
I
>
I
I
I
I
»
I
»
I
I
»
I
Auðvitað gæti bók um menn og
samskipti þeirra orðið skemmtileg
bók, kannski skemmtilegri en þessi,
en slíka bók kæri ég mig ekki um
að skrifa.“
- Finnst þér engin synd að búa
yfir fjölmörgum leyndarmálum frá
þessum tíma, og vilja ekki deila
þeim með þjóðinni?
„Nei. Mér finnst satt að segja
ekki rétt að blanda saman frásögn
um mikilsverða atburði, sem á að
geta verið fullkomlega áreiðanleg
og menn eiga að geta tekið alvar-
lega, við frásagnir af skiptum milli
manna, sem eru of oft meira í ætt
við slúður heldur en raunverulega
frásögn. Ég ætla ekki að taka þátt
í slíkum ritstörfum."
Okkur Hannibal var illa tekið
- Þú varst í klíku Jóns Blöndals
og Finnboga Rúts. Þú varst vinstri
krati, þegar þú fyrst komst inn á
þing 1946, með Hannibal. Þar með
varstu maður sem Sjálfstæðisflokk-
ur og Ólafur Thors höfðu litlar
mætur á. Sátuð þið ekki saman í
13 ár á þingi, án þess nokkurn tíma
að tala saman? Hvað breyttist?
„Það er rétt að við töluðumst
ekki við í 13 ár,
ekki nema með
skömmum úr
ræðustól í þing-
inu, en það er
nokkuð löng
saga að segja frá
því hvað breyttist
á þessum árum,
og líklega of löng
fyrir samtal sem
þetta. í grófum
dráttum get ég
þó sagt að þegar
ég kom á þing
1946, 29 ára
gamall, þá var
það í kjölfar mik-
illa deilna innan
Alþýðuflokksins.
Mjög margir
yngri alþýðu-
flokksmenn höfðu verið mjög
óánægðir með flokksforystu Stef-
áns Jóhanns og skoðanabræðra
hans. Forystumenn þessa óánægju-
hóps voru þeir Jón Blöndal og Finn-
bogi Rútur, sem töldu að þessi hóp-
ur ætti rétt á öðru sætinu í Reykja-
vík. Ég var staddur í Kaupmanna-
höfn á þessum tíma, að skrifa dokt-
orsritgerð mína og tók því ekki
þátt í þessum átökum. Niðurstaða
í deilum þessara fylkinga varð sú
að ég skipaði fyrsta sæti lista
flokksins hér í Reykjavík og þá
unnum við mesta sigur sem flokkur-
inn hafði unnið í Reykjavík og juk-
um fylgi okkar um 38%. Okkur
Hannibal, sem báðir tilheyrðum
óánægðu ungu flokksmönnunum og
vorum nánir vinir og samstarfs-
menn þeirra Jóns Blöndal og Finn-
boga Rúts, var mjög illa tekið í
Alþýðuflokknum. Hannibal tók það
sérstaklega nærri sér, en ég ekki
svo mjög, enda vorum við Haraldur
Guðmundsson miklir vinir.
í flestum málum á þessum árum
tókumst við á við sjálfstæðismenn
á þingi og áttum litla samleið með
þeim, hvort sem varðaði innanríkis-
eða utanríkismál. Tímamót áttu sér
stað 1951, þegar við í Alþýðu-
flokknum ákváðum að styðja þá
stefnu sem mörkuð var í utanríkis-
málum og er fylgt enn í dag. Ég
segi í bókinni frá hlut Bjarna Bene-
diktssonar að því, er þar gerðist.
Allt annar Sjálfstæðisflokkur
Hafa verður í huga að Ihalds-
flokkurinn og svo Sjálfstæðisflokk-
urinn á þriðja og fjórða áratugnum
var allt annar flokkur en seinna
varð. Sá flokkur talaði gegn verka-
mannabústöðum og síðar alþýðu-
tiyggingum. Það var gegn þessum
Sjálfstæðisflokki sem ég og mínir
skoðanabræður snérumst aðallega,
ekki hvað síst í stjórnartíð hans og
Framsóknar á árunum 1950 til
1956.
1949 kynntist Bjarni Benedikts-
son Benjamín Eiríkssyni í Washing-
ton og fékk hann til þess að koma
heim og gera tillögur fyrir ríkis-
stjórnina í efnahagsmálum. Bjarni,
jafngáfaður og hann auðvitað var,
var alveg búinn að gera sér ljóst
að það kerfí hafta sem þjóðarbú-
skapurinn var fjötraður í, gengi
ekki lengur. Benjamín gerði mjög
skynsamlegar tillögur, m.a. um
gengislækkun, sem framkvæmd var
1950. Til þess að vera fullkomlega
sanngjarn, verð ég að segja að þetta
voru erfiðir tímar, afli brást og af-
urðaverð lækkaði, en það sem aðal-
lega brást, var það að ríkisstjórnin
gerði sér ekki grein fyrir því að
gengislækkun ein er aldrei nægileg
aðgerð til þess að laga ástandið.
Aðrar ráðstafanir verða að fylgja
með, en það brást algjörlega, þann-
ig að ríkisstjórnin hafði ekki stjórn
á ríkisfjármálunum eða bankamál-
unum. Verðlagning var gefin frjáls,
sem leiddi til sukks í innflutnings-
versluninni og í kjölfar þess gafst
stjórnin upp og tók aftur upp inn-
flutningshöft og báðir stjórnar-
flokkarnir urðu sammála um nýja
haftastefnu. Þessu snérumst við
náttúrlega gegn, af alefli. Alveg til
ársins 1956 var Sjálfstæðisflokkur-
inn enn í mínum augum og skoðana-
bræðra minna, miklu skyldari
Framsókn og landbúnaðar- og
haftapólitík hennar, heldur en okkar
viðhorfum í viðskipta- og efnahags-
málum, sem
smám saman
urðu ftjáls-
lyndari.
Kynntist
nýjum
manni og
nýjum
flokki
Það var
fyrst eftir að
Émil Jónsson
hafði myndað
minnihluta-
stjórn sína, í
desember
1958, sem ég
kynntist Ólafi
Thors, en þá
fórum við
Emil að tala um efnahagsmálin við
Ólaf og Bjarna Benediktsson. Þá
taldi ég að ég kynntist ekki bara
nýjum manni, þar sem Ólafur var,
heldur nýjum flokki, þar sem Sjálf-
stæðisflokkurinn var, sem hafði allt
önnur viðhorf heldur en mér fannst
ég þekkja frá því ég fyrst bauð mig
fram, þegar ég var 25 ára gamall.
Flokkur sem hafði fullkominn skiln-
ing á því að höftin yrðu að hverfa
og á því að við yrðum að læra af
því sem úrskeiðis fór árið 1950,
þegar höftin áttu að hverfa, en það
brást.“
- Þú hafðir reynslu sem mennta-
málaráðherra úr vinstri stjórn Her-
manns 1956-58. Á fundi fijáls-
lyndra jafnaðarmanna sagðir þú
hlut sem verður að kallast bylting-
arkennd söguskoðun, er þú sagðir
að þið kratar og Framsókn í þeirri
ríkisstjórn, hefðuð getað byijað við-
reisnarprógramm þremur árum
fyrr, en það hafi strandað á Alþýðu-
bandalaginu og Hannibal, þ.e. að
myndun „Hræðslubandalagsins"
mistókst. Þú kvaðst hafa vitað það,
sem á fárra vitorði hefði verið, að
Hermann hefði verið genginn á
hönd hinum nýja sið. Þú sagðir að
ef Hræðslubandalagið hefði unnið
og það hefði það gert, ef Hannibal
hefði ekki eyðilagt það, þá hefði
Viðreisn getað hafist þremur árum
fyrr. Ef þú meinar þetta, ertu þar
með að segja að kratar hafi átt alla
hugmyndafræði viðreisnarinnar, af-
nám haftastefnunnar, fijálsræðis-
stefnu í innflutningi og nútímalega
hagstjórn, en Sjálfstæðisflokkurinn
hafi bara látið til leiðast? Gátuð þið
kratar gert þetta með Hermanni
og Hannibalistum?
„Það er af og frá að ég telji að
Alþýðuflokkurinn eigi allan heiður-
inn af hugmyndafræði Viðreisnar-
stjórnarinnar - af og frá. Það má á
engan veg skilja orð mín á þessum
fundi svona. Skoðun mín er sú, að
á þessum árum, 1953 til 56 hafi
bæði Hermann Jónsson og Eysteinn
Jónsson, þó sérstaklega Hermann,
gert sér ljóst að breyta þyrfti um
stefnu í efnahagsmálum og að höft-
in væru orðin úrelt. Því hefði verið
hægt að koma á ákveðnum umbót-
um í samvinnu við þá, þótt ekki
Ég held, það haffi
verið gotff að við
unnum ekki í
kosningunum og
hugmyndin um
Hrsðslubandalagið
náði ekki f ram að
ganga.
PARADÍS í KARtBAHAFI
N
iH
F
HEIMSKLUBBUR INGOLFS
N U E R TÆKIFÆRIÐ!
DVÖL Á PARADÍSAREYJU í KARÍBAHAFI ER DRAUMUR ALLRA OG
FÆST NÚ Á MINNA EN HÁLFVIRÐI MIÐAÐ VIÐ ÞAÐ SEM ALMENNT
GERIST. VERÐLÆKKUN FRÁ FYRRA ÁRI!
TVEIR STAÐIR í BOÐI AUK SIGLINGAR í 7 - 11 DAGA.
MEÐ HEIMSKLÚBBI
INGÓLFS
SKEMMTISIGUNG ER TÍSKAN í DAG - Sérkjör
HEIMSKLÚBBSINS fyrir hópa og einstaklinga, sé allur pakkinn
keyptur í einu. UMBOÐ HEIMS-
KLÚBBSINS og FERÐASKRIFSTOFUNNAR PRIMA fyrir CARNIVAL
CRUISES tryggir farþegum okkar bestu kjör á skemmtilegustu
siglingaleiðum frá MIAMI/FORT LAUDERDALE eða SAN JUAN á
Puerto Rico með heimsókn á fögrum eyjum Karíbahafs í
sumarskrúði um hávetur. Ótrúlega hagstætt verð með NÝJASTA
GLÆSISKIPI SKEMMTIFERÐAFLOTANS - SENSATION, 80 þús.
tonn, sem er líkast glæsilegri, fljótandi smáborg með öllum
lystisemdum fyrir farþegann, —frá MIAMI, eða
TROPICAL/FESTIVAL frá SAN JUAN vikulega. Siglingar af þessu
tagi eru heillandi heimur þess besta í hvers konar skemmtun, mat og
drykk undir bláum boga himins og hafs, ein mesta tilbreyting sem „Þessi eyja er fegursta
völ er á frá vetrarríki íslands. land, sem augu mín hafa
GLÆSISIGLING- HÓPFERÐ MEÐ ÍSLENSKRI nokkru sinni litið. “
FARARSTJÓRN, 2 vikur 26. febrúar '94. Kristofer Kolombus, 1492.
PANTIÐ NÚNA OG SPARIÐ
MEÐ HAGSTÆÐUM
KJÖRUM
HEIMSKLÚBBSINS!
AUSTURSTRÆTI17,4. hæð 101 REYKJAVIK-SIMl 620400*FAX 626564
PERSÓNULEG
ÞJÓNUSTA VALINNA
SÉRFRÆÐINGA
fyrir einstaklinga og smærri
hópa - brottför vikulega frá
7. janúar.
FERÐIR HEIMSKLÚBBSINS -
5% afsláttur af 25 fyrstu pöntunum
KJARABÓT - OKKAR SÉRSVIÐ
- VANDAÐAR ÓDÝRAR FERÐIR
Á SPENNANDI STAÐI UM
ALLAN HEIM.
ALLIR FARSEÐLAR Á
LANGLEIÐUM MEÐ
SÉRKJÖRUM - IATA UMBOÐ.
SÖLUMENN:
HELGA LÁRA GUÐMUNDSDÓTTIR,
KRISTtN HULDA SVERRISDÓTTIR,
GÍGJA GYLFADÓTTIR
- ALLAR SÉRFRÆÐINGAR í
ÚTGÁFUFARSEÐLA.
ÞJÓNUSTA í SÉRFLOKKIUNDIR STJÓRN
8 INGÓLFS GUÐBRANDSSONAR.
PUERTO PLATA, þar sem allt er innifalið og
þú þarft ekki að taka upp budduna allan
tímann, fullt úrvalsfæði, allir drykkir, áfengir
sem óáfengir, skemmtanir og alls konar sport
(greitt fyrir golf) - staðurinn sem sló í gegn í
fyrravetur - margir sögðust aldrei hafa farið
jafngóða ferð, því síður jafnódýra! Þannig
verður þessi staður ódýrari en .Kanaríeyjar,
þegar öll eyðsla er gerð upp.
PUNTA CANA - NYI STAOURINN Á
DOMINICANA, með hreinni, ósnortinni
náttúruströnd, 4-5* gististaður, MELIA BÁVARO,
hálft fæði - aldingarður allt í kring og pálmum
brydduð ströndin með hvítum sandi rétt hjá. Öll
gisting í svítum í litlum, fallegum 4-6 eininga
húsum. Þessi staður er kyrrlátur og unaðslegur -
algjör uppgötvun og stórsparnaður miðað við aðrar
eyjar Karíbahafs. Algjör verðurparadís, hiti um 25 C.