Morgunblaðið - 28.11.1993, Síða 17

Morgunblaðið - 28.11.1993, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1993 17 þá mikils. Hann kynntist Eðvarð Sigurðssyni einnig náið og leit hann allt öðrum augum, eftir það nána samstarf sem þeir áttu 1964. Með þessum mönnum taldi Bjarni að hægt væri að vinna. Því mun hann hafa hugleitt, að ef við misstum meirihlutann í kosningunum 1971, hvort ekki kæmi til greina að tala við menn eins og þá um samstarf. Ég minnist þess ekki að hann hafi nefnt Lúðvík Jósepsson sérstaklega, en það gæti þó vel verið, því Lúð- vík var í öðrum hópi heldur en hin- ir.“ - Landhelgisstefnumörkun Við- reisnar, í kosningabaráttunni fyrir kosningar 1971 var bæði óskýr og óljós, - eins og þú skýrir rækilega í bók þinni. Af hveiju var hún eins og hún var? Hverjir réðu þessari stefnumörkun? Hefði ekki verið ár- angursríkara fyrir ykkur að ein- falda hana og gera aðgengilegri, eins og Hannibalistar gerðu, með slagorðinu „Útfærsla landhelginnar í 50 mflur!“? „Það voru nokkuð skiptar skoð- anir í þessum efnum. Þeir sem réðu mestu um þetta voru Emil Jónsson sem var utanríkisráðherra og Jó- hann Hafstein sem var forsætisráð- herra. Lífsskoðun þeirra beggja var þannig, að í svona máli yrðu menn að vera mjög ábyrgir. Það ætti ekki að taka neinar einhliða ákvarðanir og það ætti engar ákvarðanir að taka, án þess að ræða við þá sem hlut áttu að máli. Auk þess voru skiptar skoðanir um það hvort stefna bæri að ákveðinni mílnatölu, eða miða við landgrunnið. Þetta var meginskýringin á því að þetta varð allt svona óljóst, þó að við margir í báðum flokkum hefðum viljað hafa stefnumörkunina miklu ákveðnari og skýrari.‘“ Kratar höfnuðu haustkosningum 1970 - Sjálfstæðisflokkurinn lagði til seinni hluta sumars 1970 að gengið yrði til haustkosninga, en þessu hafnaði Alþýðuflokkurinn. Má ekki ætla að stjórnarflokkarnir hefðu fengið umtalsvert betri kosningu þá um haustið, en þeir fengu vorið 1971, eftir að landhelgisumræðan hafði farið illa með þá allan vetur- inn og vorið? Var hér ekki um skyn- samlegan kost að ræða fyrir stjórn- arflokkana, og hveijar voru ástæður þess að Alþýðuflokkurinn hafnaði þessum tillögum samstarfsflokks- ins? „Ég held, að það hafi einmitt verið rétt af Alþýðuflokknum að hafna haustkosningum 1970. Efna- hagsráðunautar okkar, þeir Jónas Haralz og dr. Jóhannes Nordal töldu að hinar hörðu efnahagsráðstafanir Viðreisnar 1967 og 68 væru að bera árangur og hann ætti eftir að koma enn betur á daginn. Við þótt- umst vissir um að skútan væri á leiðinni upp úr öldudalnum og þess vegna væri rétt að láta það koma betur í ljós. Enda kom það betur í ljós. Ef við hefðum kosið fyrr, þá hefði viðskilnaður okkar orðið allt annar og lakari en hann var. Raun- ar töldu andstæðingarnir 1971 að við hefðum skilið illa við ríkisbú- skapinn og margir telja það enn, en ef bók mín er lesin vandlega, þá er ekki hægt að halda slíku leng- ur fram. Satt að segja er ein megin- ástæðan fyrir því að ég skrifaði bókina, og skrifaði hana sem athug- un á sögu og þróun efnahagsmála, en ekki sögu einstaklinga, sú, að ég vildi leiða það ótvírætt í ljós að ráðstafanir Viðreisnarstjórnarinnar báru réttan árangur. Þær gerðu það vissulega, þótt árangurinn væri ekki kominn nógu skýrt í ljós í kosn- ingunum 1971 og því hafði fólk ekki sannfærst nægilega um árang- urinn. Mesta hagvaxtartímabil, til þess tíma, var á árunum 1970-71. Reynslan hefur sýnt það, að stefnar sem mörkuð var, var rétt og árang- ur Viðreisnarstjórnarinnar ótvíræð- ur. Enda hefur enginn viljað taka upp haftabúskap, frá því að Við- reisn afnam höftin." Stóriðja, EFTA og menning Gylfi telur að of lítil áhersla hafi verið lögð á það, þegar árangur Viðreisnarstjórnarinnar er skoðað- ur, að ráðstafanir stjórnarinnar hafí ekki einungis lagt grundvöll að auknum hagvexti og bættum lífskjörum. „Tekjuskipting varð réttlátari og launþegar fengu auk- inn hlut í vexti þjóðarteknanna. En þetta er ekki heldur það eina sem skiptir máli,“ segir Gylfi, „heldur að það varð til allt annað og heil- brigðara þjóðfélag, með allt öðru og betra andrúmslofti. Menn losn- uðu úr hugarfari haftanna, og hug- arfarið skiptir ekki minna máli fyr- ir þjóðlífið, en bættur efnahagur." Gylfi segir að auk þessa hafi Viðreisn markað mikilvæga'stefnu á tveimur öðrum sviðum, sem var grundvöllurinn að virkjunum fall- vatna og stóriðju. „Þetta gerðum við um miðjan sjöunda áratuginn, undir forystu Bjarna, sem var iðn- aðarráðherra, í hreinni andstöðu við Framsókn og Alþýðubandalag. Hitt stórmálið var aðild okkar að EFTA. Við gerðum okkur grein fyrir því að gjörbreyting hafði orðið í Evrópu og við mættum ekki ein- angrast. Alþýðubandalagið var al- gjörlega andvígt aðild okkar að EFTA, en þótt Framsókn væri í hjarta sínu andvíg, þá hafði hún þó vit á því að sitja hjá, þegar til atkvæðagreiðslu kom á þingi um samninginn." Að lokum þetta Gylfi - Þú varst menntamálaráðherra öll Viðreisn- arárin. Hvað rís hæst í þínum huga, af þeim vettvangi? „Mér finnst þjóðfélag ekki vera gott og réttlátt, bara vegna þess að lífskjörin séu góð. Það má aldrei gleyma því, að menntun og menning hefur úrslitaþýðingu fyrir farsæld og hamingju mannsins. Þess vegna var ekki nóg að bæta lífskjör á Viðreisnarárunum, heldur urðum við líka að bæta menntun og menn- ingu og efla listir. í þeim efnum held ég að okkur hafí tekist að ná mjög góðum árangri. Á árunum 1956 til 1971 næstum fjórfölduðust restrarútgjöld til fræðslumála, al- mennra menningarmála og al- mennra rannsókna, sem sýnir nátt- úrulega geysileg framfaraspor á þessu sviði - framfaraspor sem ég held að hafi verið mikils virði.“ ■■■Bnnn ARANGURSRIK SALA Hvemig á að auka sölu fljútt? Áhrifaríkar hugmyndir kynntar til þess að selja vöru eða þjónustu með betri árangri. Nýtt sölumódel: Viðhorf og hvatning sölumanna, sjálfsmat, vörugreining og samkeppnisgreining. Mikilvægustu atriðin frá upphafi til loka sölu. Ætlað sölufólki og sölustjórum sem vilja vinna faglega. Leiðbeinandi er Sigurður Ágúst Jensson, viðskiptafræðingur og markaðsráðgjafi. Námskeiðið er haldið f húsnæði Stjórnunarfélagsins 30. nóvember nk. kl. 13.00-17.00. Skráning er hafin! Nánari upplýsingar f sfma 621066. Stjómunðrfélðg íslðnds Ánanaustum 15 Sími: 621066 Þeir sem stofna heimili ogfjölskyldu bera mikla ábyrgð. Sú ábyrgð felst meðal annars í þvi að búafjölskyldunni önl£gt skjól, sjá henni farborða og vernda hana gegn afleiðingum óhappa j - en til þess er einmitt Fjölskyldutrygging Sjóvá-Almennra vel fallin. Hún sameinar Víðtœka innbústryggingu, Abyrgðarttyggingu, Slysattyggingu ífrítíma og Farangurstryggingu. Tryggt og öruggt með Fjölskyldutryggingu - þannig á það að vera. SJQVAulPALMENNAR - Þú tryggir ekki eftir á!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.