Morgunblaðið - 28.11.1993, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1993
Einangraðir á
glötunarbraut
Efnahagshrun og umhverfismartröð vofir yfir Ukraínu
VERÐBÓLGAN er 70 til 100% á mánuði hverjum. Mánaðarlaunin
duga ekki til að fylla bensíntankinn. Sökum gjaldeyrisskortsins
hefur reynst nauðsynlegt að starfrækja áfram úrelt og stórhættu-
leg kjarnorkuver; reynslan hræðir ekki þegar skorturinn er ann-
ars vegar. Efnahagshrun er yfirvofandi, við völd eru kerfiskarl-
ar, fastir í úreltri hugmyndafræði sem skortir þor til að grípa
til harkalegra aðgerða í nafni umbóta. Ríkið hefur verið fors-
máð, 52 milljónir manna eru á sveimi í tómarúmi allsleysis og
stjórnvöld hafa aðeins eitt ráð til að minna á tilvist lands og þjóð-
ar; í Ukraínu eru staðsett kjarnorkuvopn.
Kosningum fag-nað
TILKYNNINGU um að þingkosningar fari fram í mars á næsta
ári fagnað í Kíev, höfuðborg Úkraínu. Kosningum hefur þegar
verið frestað einu sinni en á þingi því sem nú situr eru afturhalds-
sinnar í miklum meirihluta og minnir það mjög á fulltrúaþingið
sem Borís Jeltsín Rússlandsforseti leysti upp með valdi í Moskvu-
borg.
Ukraína, „Brauðkarfa Evr-
ópu“, hefur.verið vettvang-
ur einhverra hroðalegustu
grimmdarverka sem manns-
andinn hefur náð að knýja fram
á þessari öld og þar varð versta
kjarnorkuslys sögunnar er
sprenging varð í Tsjernobyl-ver-
inu. Hungursneyð lík þeirri sem
hlaust af samyrkjuvæðingu Stal-
íns er raunar ekki yfirvofandi en
það hrun sem við blasir á vett-
vangi efnahagsmála kann að hafa
afleiðingar sem meta má á mæli-
kvarða gjöreyðingar.
Kjarnorkuvopnin skiptimynt
Líkt og aðrar þjóðir í _Mið- og
Austur-Evrópu væntu Úkraínu-
menn þess að vestræn ríki tækju
þeim fagnandi er þeir lýstu yfir
sjálfstæði fyrir tveimur árum, í
desembermánuði 1991, skömmu
áður en Sovét-
ríkin liðu undir
lok með form-
legum hætti. í
stað efnahags-
aðstoðar og
samvinnuverk-
efna kusu Vesturlönd að leggja
megináherslu á kjarnorkuvopn
þau sem staðsett eru í landinu.
Þrýst var á stjórnvöld í Úkraínu
að þau lýstu yfir því að virt yrðu
ákvæði START-sáttmálanna svo-
nefndu um fækkun Iangdrægra
gjöreyðingarvopna sem gerðir
höfðu verið á Sovét-tímanum. Með
hliðsjón af ríkjandi óvissu var
sjálfsagt og eðlilegt að látnar
væru í ljós áhyggjur af framtíð
kjarnorkuherafla Sovétríkjanna.
Úkraínumenn tóku hins vegar að
skynja þennan þrýsting sem svo
að ætlunin væri að tryggja nýtt
valdajafnvægi með tilliti til hags-
muna Atlantshafsbandalagsríkj-
anna og Rússlands með sérstakri
skírskotun til nýfijálsu ríkjanna í
Mið-Evrópu. í menningar- og
efnahagslegu tilliti var lítið sem
ekkert gert til gera ríkið að virk-
um þátttakanda í mótun hinnar
„nýju Evrópu", sem menn sáu þá
fyrir sér. Þessi einangrun ásamt
viðteknum ótta við rússneska út-
þenslustefnu varð þess valdandi
að ráðamenn í Úkraínu tóku að
líta á kjarnorkuvopnin sem skipti-
mynt í viðræðum við Vesturlönd.
í raun hefur engin breyting orðið
á þessari afstöðu stjórnar Leoníds
Kravtsjúks forseta.
Á dögunum var því lýst yfir
að Úkraína hygðist uppfylla
ákvæði START-1 samningsins en
það skilyrðaflóð sem fylgdi þess-
ari ákvörðun gefur til kynna að
langur tími
muni líða þar til
þær 176 kjarn-
orkuflaugar
sem staðsettar
eru á úkraínsku
landsvæði
heyra sögunni til. í Úkraínu nýtur
sú skoðun verulegs fylgis að
kjarnavopnin (þar eru geymdir um
1.400 kjarnaoddar) tryggi í raun
sjálfstæði ríkisins. Þjóðernissinn-
ar benda á örlög Georgíu máli
sínu til stuðnings en þar neyddist
Edúard Shevardnadze forseti ti!
að leita eftir aðstoð Rússa til að
bijóta á bak aftur uppreisn í landi
sínu og fórnaði um leið raunveru-
Iegu sjálfstæði þess. Samkvæmt
kenningum um valdajafnvægi og
stöðugleika má halda því fram að
Úkraína sé á „gráu svæði“ líkt
og t.a.m. Afganistan á sínum
tíma. Ýmsir kunna að halda því
fram að slík skilgreining áhrifa-
svæða eigi ekki við nú eftir lok
kalda stríðsins, aðrir myndu væna
þá hina sömu um bernsku.
Orvænting og orkuskortur
Á Vesturlöndum líta menn svo
á að fráleitt sé að veita Úkraínu
efnahagsaðstoð vegna þess að
umbótum hafi ekki verið hrint í
framkvæmd. í Úkraínu telja
margir hins vegar að forsendur
efnahagsumbóta sé aðstoð úr
vestri. Hvað sem þessari vítarunu
líður blasir við að lífskjörin eru
nú verri en í tíð Sovétríkjanna og
örvænting er tekin að grípa um
sig í röðum ráðamanna, sem flest-
ir hlutu „menntun" sína og upp-
eldi í mótunarstofnunum komm-
únistaflokksins. Örvæntingin get-
ur leitt af sér þörf fyrir að sam-
eina þjóðina gegn tilbúnum óvini,
sem aftur gæti orðið til þess að
skapa verulega spennu í Austur-
Evrópu.
Verstur er trúlega orkuskortur-
inn. Vetrarhörkurnar eru teknar
að minna á sig í Úkraínu og ljóst
er að næstu mánuði mun skorta
olíu, kol og gas auk þess sem
kjarnorkuver þau sem starfrækt
eru munu hvergi duga. Þegar
hefur verið ákveðið að hætta við
lokun Tsjernobyl-versins illræmda
og fréttir hafa borist af ránum
og gripdeildum í kjarnorkuverum,
slöku eftirliti og óhæfu starfs-
fólki. Orkugjafar fást aðeins
keyptir frá Rússlandi gegn
greiðslu í erlendum gjaldeyri. Á
meðan alþýða manna skelfist
myrkur og kulda vetrarins vofir
sú ógn yfir að hryllingurinn end-
urtaki sig og geislaský stigi enn
á ný upp af einhveiju kjarnorku-
veranna í Úkraínu.
Umskiptin sögulegu í Mið- og
Austur-Evrópu hafa enn ekki náð
til Úkraínu. Landinu stjórna menn
sem að sönnu hafa kastað hinum
kommúnísku formerkjum að
nafninu til en þekkja í raun engar
aðrar hagstjórnaraðferðir. Sala
ríkisfyrirtækja sem skilað hefur
miklum árangri í Mið- Evrópuríkj-
unum og er einnig tekin að segja
til sín í Rússlandi er í raun enn
ekki komin á dagskrá í Úkraínu.
Um 95% fyrirtækja eru í eigu rík-
isins og enn er sú hugmyndafræði
ríkjandi að á þingi landsins skuli
sitja fulltrúar „ráða verkalýðsins".
Gjaldmiðill landsins, karbovanets
er gjörsamlega verðlaus og vöru-
skipti eru algengasti verslunar-
mátinn. Mánaðarlaun upp á
400.000 karbovanets, sem eru
yfir meðallagi og jafngilda um
1.100 krónum íslenskum, nægja
ekki til að fylla bensíntankinn.
Raunar er slíkur samanburður
hæpinn en gera má ráð fyrir að
verðlag tvöfaldist að jafnaði á sex
vikna fresti.
Formyrkvun miðstýringar
Leoníd Kravtsjúk forseti hefur
beitt hefðbundnum aðferðum mið-
stýrðar hagstjórnar og virðist að-
eins forherðast í þeirri afstöðu
sinni eftir því _sem efnahagshrunið
færist nær. Ákveðið hefur verið
að hverfa frá fijálsu verðlagi
þannig að ríkið ákvarðar það nú
líkt og á Sovét-tímanum. Gengið
er ákveðið með tilskipunum sem
eru öldungis áhrifalausar nema
hvað varðar fyrirtækin því þau fáu
sem skila gjaldeyrishagnaði (af
einhveijum ástæðum blómstrar
ryksuguframleiðsla í Úkraínu)
þurfa að láta helming hans af
hendi og fá í staðinn hinn verð-
lausa gjaldmiðil úkraínska ríkis-
ins. Tilskipanakerfi mótar alla
framleiðslu atvinnulífsins. „Höld-
um við áfram á sömu braut blasir
innan fárra mánaða við algjört
hrun efnahagslífsins í Úkraínu,"
segir Júiríj Netsjajev, sem raunar
stjórnar Umbótastofnun markað-
arins í Kíev. Kravtsjúk forseti
hefur hins vegar oftlega sagt að
Úkraínumenn þurfi að leita eigin
leiða. „Við getum ekki fylgt í
blindi og hugsunarleysi þeim að-
ferðum sem notaðar hafa verið
annars staðar. Úkraína hefur sér-
stöðu.“
Kravtsjúk má auðveldlega af-
skrifa sem mann sem á heima í
„Júragarði" stjórnmálanna eða
sem mafíuforingja er hagnast á
óreiðunni. Sú skýring kann hins
vegar að fela í sér full mikla ein-
földun. Forsetinn óttast það klár-
lega að missa völdin en hugsunin
um fjöldaatvinnuleysi, uppþot og
óeirðir kann einnig að hræða hann
frá því að grípa til þeirra harka-
legu aðgerða sem nauðsynlegar
eru til að færa Úkraínu inn í 20.
öldina. Upplausnarástand í Úkra-
ínu kynni að kalla fram viðbrögð
af hálfu Rússa og þá yrði sjálf-
stæðið sjálft í hættu. í þessu sam-
hengi er vert að benda á að sam-
kvæmt hinni nýju varnarstefnu
Rússlands telst pólitískur óstöð-
ugleiki í nágrannaríkjum hugsan-
leg ógnun við öryggi Rússa. Hið
sama gildir um hugsanleg um-
hverfisslys.
Menntamenn og aðrir þeir sem
kynnst hafa vestrænum viðhorf-
um binda einkum vonir sínar við
að þingkosningar sem boðað hefur
verið til í mars á næsta ári verði
til þess að hleypa af stað raun-
verulegum efnahagsumbótum.
Öryggistryggingar, bein vestræn
efnahagsaðstoð og nýir ráðamenn
eru forsendur þess að Úkraínu
verði snúið af glötunarbrautinni.
Veturinn á eftir að reynast langur.
BAKSVID
eftir Ásgeir Sverrisson
A BARNIÐ
AFMÆU?
Þú getur látib okkur sjá um
afmælið á veitingastöðum
Pizza Hut eða hringt til okkar
og við komum með Pizzurnar
í afmælisboðið.
Þú velur Pizzurnar - iill börnin
fá frostpinna og blöðrur og
afmælisbarnið fær óvænta gjöf
frá Pizza Hut.
- mest selda pizzan í heiminum
Mjódd Ilótel Esja
682208 680809
C4PEqi65-S
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!