Morgunblaðið - 28.11.1993, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1993
í LIÐINNI viku hóf íslenska útvarpsfélagið (IÚ) endurvarp er-
lendra gervihnattastöðva á höfuðborgarsvæðinu. Efnið er læst
og því er dreift á örbylgjutíðni sem krefst nýrra Ioftneta. Dag-
skrá Ríkissjónvarpsins verður einnig dreift um örbylgjusendana
en hún verður ólæst. Með Fjölvarpinu hefst endurnýjun mynd-
lyklakerfis ÍÚ og er stefnt að
þeir sem einungis vilja Stöð 2,
Með tilkomu Fjöl-
varpsins má til
sanns vegar færa
að nýir þræðir
hafi bæst í þann
margþætta vef
sem fjölmiðlar spinna um þjóðlífið.
Tilkoma Fjölvarpsins telst þó tæp-
lega bylting, helsta breytingin er
að nú hafa innlendir aðilar ráðist í
öfluga markaðssetningu á erlendum
sjónvarpsstöðvum.
Gömlu lyklarnir úreldast
Áskrifendum Stöðvar 2 er í sjálfs-
vald sett hvort þeir gerast áskrif-
endur að Fjölvarpi. Ef þeir kaupa
áskrift að Fjölvarpinu fá þeir strax
nýjan myndlykil og verða að kaupa
nýtt loftnet. Þeir sem ætla að halda
sig einungis við Stöð 2 fá einnig
nýjan myndlykil, þótt síðar verði,
en geta notað sama loftnet áfram.
Stefnt er að því að heíja útskiptingu
núgildandi lykla fyrri hluta næsta
árs.
Páll Magnússon útvarpsstjóri IU
segir þrjár meginástæður liggja að
baki myndlyklaskiptunum. I fyrsta
lagi sé verið að koma í veg fyrir
stuld á læstu dagskrárefni, s_em
ógni framtíðarhagsmunum ÍÚ.
Hann telur að á milli eitt og fjögur
þúsund þjófalyklar séu í notkun nú
og þeim fjölgi sífellt, enda skirrist
menn ekki við að auglýsa mynd-
lyklabreytingar á opinberum vett-
vangi. „Ef við missum 4.000 áskrift-
ir í gegnum þjófalykla, þá eru það
120 milljónir á ári. Við erum til-
neyddir að skipta um lykla.“ Læsing
nýja kerfisins á mjög að torvelda
óviðkomandi aðgang.
Þá nefnir Páll að há bilanatíðni
gömlu myndlyklanna hafi hvekkt
marga áskrifendur og við það verði
ekki lengur unað. Nýleg könnun,
sem Gallup gerði fyrir Stöð 2, leiddi
í ljós að 70% gömlu myndlyklanna
hafa bilað einu sinni eða oftar, með
tilheyrandi viðgerðarkostnaði fyrir
notendur. Stöð 2 mun hins vegar
annast viðhald nýju lyklanna. Lyklar
sömu gerðar og þeir nýju hafa verið
í notkun hjá Canal Plus í Belgíu
undanfarin fjögur ár og lítið bilað,
að sögn Páls.
í þriðja lagi eru gömlu myndlykl-
arnir tæknilega úreltir, enda af 1.
kynslóð slíkra tækja. Hætt er að
framleiða lyklana og hefur undan-
farið þurft að leita uppi umfram-
birgðir sjónvarpsstöðva erlendis til
að fullnægja eftirspurn. í haust
bættust við 18 nýir þéttbýlisstaðir
í dreifikerfi Stöðvar 2 og voru þá
keyptir myndlyklar frá írlandi.
Nýju lyklunum fylgir fjarstýring,
þeir verða með víðóma (stereo)
móttöku, þeir fyrstu eru reyndar
ekki víðóma en þeim verður skipt
út fyrir slíka á næsta ári. Ekki er
nauðsynlegt að hafa víðóma sjón-
varp heldur er hægt að tengja hljóð-
rásirnar við venjuleg hljómtæki. Á
lyklunum verður barnalæsing, svo
foreldrar geti stýrt áhorfi barna
sinna þótt þeir séu fjarverandi. Loks
taka nýju lyklarnir við lykilnúmeri
því að allir áskrifendur, einnig
fái nýja lykla á næsta ári.
Þeir sem kaupa aó-
gang að Fjölvarpi fá
nýjan myndlykil og
verða að kaupa sér
ný loftnet. Askrif-
endur Stöðvar 2 í
gamla kerfinu fá
nýja myndlykla á
næsta ári en þurfa
ekki ný loftnet.
Hvad
erhag-
Irvæm-
ast?
Ef borinn er saman kostnað-
ur við að ná útsendingum
Fjölvarps og gervihnattastöðva
er ljóst að í upphafi þarf að
leggja út meiri fjármuni fyrir
gervihnattaloftneti og móttak-
ara, um 100 þúsund krónur.
Ef menn láta sér nægja opnar
gervihnattastöðvar kemur ekk-
ert afnotagjald til viðbótar,
annars má reikna með 25 til
40 þúsund krónum á ári fyrir
eitt lykilspjald.
F’jölvarpið krefst þess að
menn reiði af hendi 30 þúsund
krónur fyrir örbylgjuloftnet og
2500 krónur í pant. Árgjald
fyrir Fjölvarpið eitt er 31560
krónur, fyrir Fjölvarp og Stöð
2 47880 krónur, en reikna má
með að flestir velji þann kost.
gegnum sjónvarpsmerkið, en ekki
þarf lengur að slá inn númerið.
Áskrifendur keyptu sjálfir eldri
lyklana en fá þá nýju að láni frá
IÚ. Til að byija með er krafist 2.500
króna í pant og áskrifandinn gengst
undir að greiða 15 þúsund krónur
ef myndlykillinn eyðileggst í hans
umsjá. Gefur það ákveðna hugmynd
um verðgildi tækisins. Páll segir
eftir að ákveða hve mikils verður
krafist í pant á næsta ári, þegar
skipta á um megnið af myndlyklun-
um, en á ekki von á að panturinn
hækki. Ekki er búið að ákveða
hvernig á að bæta þeim áskrifend-
um, sem einungis vilja halda Stöð
2, gamla lykilinn, en nú er boðin
ókeypis þriggja mánaða áskrift að
Fjölvarpi, í viðbót við Stöð 2, fyrir
hvern myndlykil, eða 2.769 krónur.
Auknar tekjur með nýjum
lyklum
Mánaðaráskrift að Stöð 2 kostar
nú 3.067 krónur. Ef Fjölvarp er
keypt að auki kostar það 923 krón-
ur, eða samtals 3.990 krónur. Aftur
á móti kostar Fjölvarpið eitt og sér
2.630 krónur. Allar þessar upphæð-
ir eru með 14% virðisaukaskatti.
Fjölvarpið eitt er þannig nærri þre-
falt dýrara en Fjölvarp í pakka með
Stöð 2, munurinn heilar 1.707 krón-
ur á mánuði. Með þessari verðlagn-
ingu er ljóst að neytendum er stýrt
í þann farveg að kaupa Fjölvarpið
sem ábót á Stöð 2 og mun tilkoma
erlendu gervihnattastöðvanna þann-
ig frekar styrkja Stöð 2 á markaðn-
um en hitt.
Þegar Páll Magnússon var spurð-
ur um þennan mikla verðmun sagði
hann að í hverri einstakri áskrift
fælist ákveðinn fastakostnaður, sem
ekki væri tvírukkaður þegar menn
bættu Fjölvarpi við áskrift að Stöð
2, en þeir sem keyptu Fjölvarpið
eitt þyrftu að bera eins og þeir sem
einungis keyptu Stöð 2.
Ef skaðabætur fyrir skemmdan
myndlykil gefa til kynna verðmæti
tækisins munu 50 þúsund myndlykl-
ar ÍÚ kosta 750 milljónir króna. Sú
spurning vaknar hvernig fyrirtækið
ætlar að mæta þessum fjárútlátum.
Páll sagði að áskriftargjöld ættu
ekki að hækka, þrátt fyrir fjárfést-
inguna. Reiknað væri með auknum
tekjum þegar lokað væri fyrir þjófa-
lyklana og að öðru óbreyttu ætti
það að duga. Þá sagði hann að Stöð
2 hefði niðurgreitt myndlykla til
þessa, til dæmis hefðu síðustu
myndlyklarnir sem voru seldir verið
niðurgreiddir um 6.000 krónur
stykkið.
Ný loftnet á 30 þúsund
Útsendingar Fjölvarpsins eru á
örbylgju (MMDS) og kreijast nýrra
loftneta. Auk erlendu gervihnatta-
stöðvanna og Stöðvar 2 er Ríkissjón-
varpið á örbylgjunni, nýi loftnets-
búnaðurinn nægir því þeim sem
sætta sig við að ná ekki útsending-
um Sýnar og Omega.
Rafiðnaðarskólinn hefur haldið
námskeið fyrir fagmenn til að kynna
þeim hina nýju tækni örbylgjudreifi-
kerfisins. Hinn 1. desember fá
fyrstu 30 fagmennirnir hæfnisskír-
teini og reiknar Jón Árni Rúnars-
son, framkvæmdastjóri Rafiðnaðar-
skólans, með að 70 til 100 fagmenn
ljúki námskeiðinu fyrir áramót. ÍÚ
vísar viðskiptavinum sínum á höfuð-
borgarsvæðinu til sex fyrirtækja þar
sem þekking á örbylgjuloftnetum á
að vera til staðar. Hringt var í þessa
aðila og spurst fyrir um verð á loft-
netum og tilheyrandi fylgibúnaði
fyrir einn notanda með eigið loft-
net. Kostnaðurinn getur verið mis-
munandi eftir aðstæðum, en það
ætti ekki að koma á óvart þótt reikn-
ingur fyrir loftnet, aukabúnað og
uppsetningu hljóðaði upp á um 30
þúsund krónur. Við bestu aðstæður
er líklega hægt að sleppa með um
25 þúsund krónur.
Öðru máli gegnir með ljölbýlis-
hús. Algengt er að allar íbúðir í fjöl-
býlishúsi tengist einu sjónvarpsloft-
neti. í mörgum blokkum hafa íbúar
sameinast um afruglara fyrir Stöð
2 og jafnvel komið sér upp móttöku-
diski fyrir gervihnattasendingar. Nú
verður tekið
fyrir það að
margar íbúðir samein-
ist um einn myndlykil, hver
íbúð verður að koma sér upp
lykli.
Aðili sem selur og setur upp sjón-
varpsloftnet sagði nær ómögulegt
að gefa upp algilda kostnaðaráætl-
un um móttökubúnað fyrir Fjölvarp-
ið í fjölbýlishús. Þar sem væru ný-
legir og öflugir magnarar og góðar
lagnir þyrfti kostnaðurinn ekki að
verða meiri en fyrir einbýlishús, eða
um 30 þúsund. Það væri hins vegar
undantekning ef dreifikerfi fjölbýlis-
húsa hefðu verið útbúin af slíkri
framsýni að þau tækju við átta nýj-
um sjónvarpsrásum. Yfirleitt miðuð-
ust þau við sjónvarpsmarkaðinn eins
og hann var til 1986, kerfið dygði
vel fyrir eina rás, í mesta lagi tvær.
Ef miðað er við fjölbýlishús með 36
íbúðum, reiknaði hann með að
dreifikerfi gæti vel kostað með upp-
setningu um 300 þúsund krónur,
eða um 8.300 krónur á íbúð.
Búið er að gera kort yfir móttöku-
skilyrði örbylgjusendinganna í
Reykjavík og nágrenni. Engu að
síður er mælt með því að tækni-
menn séu fengnir til að mæla mót-
tökuskilyrði, kanna búnaðar sem
fyrir er og hvort hann geti tengst
nýju loftnetunum. Yfirleitt kostar
um 2.000 krónur að láta söluaðila
kanna þetta, þeir geta einnig gert
tilboð í efni og uppsetningu. Könn-
unargjaldið fæst endurgreitt að öllu
leyti eða hluta láti fólk verða af
loftnetskaupum hjá þeim sem kann-
ar. i
Eigin gervihnattastöð
Loftnetssalar, sem bæði bjóða
örbylgjuloftnet og gervihnattadiska,
sögðu að umræðan um Fjölvarpið
virtist hafa endurvakið áhuga á
móttökudiskum. „Fólk vill bera sam-
an hvað þetta kostar og hvort borg-
ar sig frekar,“ sagði einn sölumað-
urinn. Diskur, 1,2 m í þvermál, og
móttakari kostar allt frá 60 þúsund
og upp í 120 þúsund krónur, þá er
uppsetning eftir. Meðalverð upp-
setts disks mun vera um 100 þús-
und krónur.
Nýlegir gervihnattamóttakarar
eru flestir með innbyggðum mynd-
lykli fyrir læstar útsendingar. Þær
stöðvar, sem vinsælastar eru hér,
senda út á ensku og beina útsend-
ingum sínum að breskum áhorfend-
um og lendir ísland í útjaðri geisl-
ans. Á þessum lyklum er rauf fyrir
á
ið
greiðslukort. Þegar
keypt er áskrift fæst af-
hent kort sem gildir mánuð,
ár eða jafnvel lengur. Vegna höf-
undarréttarákvæða er óheimilt að
selja aðgangskortin utan Bretlands,
en menn víla ekki fyrir sér að fara
í kringum það. „Hvað heldur þú að
þeir séu að spá í nokkrar hræður úti
í Atlantshafi," sagði einn seljandi
móttökudiska, aðspurður um höf-
undarrétt.
Flestir söluaðilar geta vísað á ein-
staklinga sem útvega aðgangskort
frá Bretlandi og er opinbert leyndar-
mál að lykilspjöld hér ganga kaup-
um og sölum. Milliliðir taka upp í
10 þúsund króna „umboðslaun“ fyr-
ir spjaldið. Nokkuð er um sjóræn-
ingjakort, það er ólögleg kort sem
tölvuföndrarar útbúa. Þessi kort eru
ódýrari en ekta kort, enda aldrei
að vita hvenær þau falla úr gildi.
Talsmenn Fjölvarps hafa látið að
því liggja að æ fleiri gervihnatta-
stöðvar hyggist læsa dagskrám sín-
um og því sé óráðlegt að kaupa
gervihnattaloftnet. Natalie Fischer
í markaðsdeild Sky segir t.d. að lík-
legt sé að Sky News fréttasending-
arnar verði ruglaðar einhvern tíma
1 framtíðinni en engin dagsetning
hafi verið ákveðin í því sambandi.
Hún segir að samningurinn við Stöð
2 feli ekki í sér einkarétt til dreifing-
ar á Islandi þannig að önnur fyrir-
tæki gætu gert sams konar samning
um dreifingu hérlendis ef því væri
að skipta.
Samkvæmt upplýsingum frá
bresku fyrirtæki, sem selur Sky
aðgangskort, kostar dýrasta lykil-
spjaldið 239 pund (25.800 krónur)
og gildir það í eitt ár. Dýrasti lykill-
inn veitir aðgang að þremur kvik-
myndarásum, Sky Movies PIus, Sky
Gold og The Movie Channel, íþrótta-
rásinni Sky Sports og svo fylgir fjöl-
rásapakkinn (Multi Channel). í hon-
um eru 13 rásir, Sky One, Sky
News, Bravo (kvikmyndir), The
Discovery Channel, Country Music
TV, The Children’s Channel, Family
Channel, UK Gold, QVC (verslunar-
sjónvarp), UK Living (kvennadag-
skrá), MTV, Video Hits One og
Nicelodeon. Tekið skal fram að sum-
ar þessara rása eru ólæstar og því
öllum aðgengilegar. Hægt er að fá
ódýrari spjöld sem veita aðgang að
einni aðalrás og ijölrásapakkanum
að auki.