Morgunblaðið - 28.11.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1993
21
Yfír hundraó rásir i BreHandi
London. Frá Ólafi Þ. Stephensen, fréttaritara Morgunbladsins.
í BRETLANDI eru yfir 100 rásir með sjónvarpsefni frá gervihnött-
um í boði. Til þess að ná þeim öllum þarf margvíslegan búnað, þar
sem efnið er ýmist sent beint til móttakenda frá gervihnöttum, sent
út um kapal eða um endurvarpsstöðvar á jörðu niðri. Sumir viðmæl-
endur fréttaritara töldu endurvarp um jarðstöðvar ódýrari og hent-
ugri kost en kapalsjónvarp eða beinar gervihnattasendingar.
Til þess að ná efni beint frá
gervihnöttum þarf 60-80 cm
móttökudisk og móttakara
með afruglara. Algengast er
að menn kaupi mánaðarkort af fýrir-
tækjum sem bjóða gervihnattaefni.
Fastur diskur nær sendingum frá
gervihnöttunum Astra A, B og C (48
rásum) og með aukabúnaði má einn-
ig ná útsendingum frá Eutelsat 1
og 2 (20 rásum í viðbót). Slíkur
búnaður, ásamt móttakara, kostar á
bilinu 19.000 til 47.000 íslenzkar
krónur. Hreyfanlegur diskur, sem
getur náð yfir 100 rásum, þar á
meðal þýzkum, frönskum og ítölsk-
um, kostar hins vegar á bilinu
90.000 til 210.000 krónur.
Áskriftarsjónvarpsstöðvar, til
dæmis Sky, bjóða áskrifendum mis-
munandi samsetningar rása. Kaupi
menn aðgang að öllum 14 rásum
Sky kostar áskriftarkortið um
25.000 kr. á ári, eða rúmlega 2.000
krónur á mánuði. Sumar rásir eru
sendar út óruglaðar, til dæmis um
helmingur rásanna 48 frá Astra-
gervihnöttunum, og nægir móttöku-
búnaðurinn til að sjá þær.
Endurvarp gervihnattasjónvarps
um jarðstöðvar, svokallað MMDS-
kerfi, er takmörkunum háð í Bret-
landi, þar sem MMDS-örbylgju-
stöðvar mega lögum samkvæmt ekki
senda út á svæði þar sem kapalstöð
hefur einkaleyfi. Ýmis fyrirtæki
bjóða þó þjónustu af þessu tagi.
Mismunandi fjöldi rása er í boði, en
hægt að sjá allt að 36 rásir fyrir
1.550 til 2.100 krónur á mánuði, sem
er heldur lægra en greitt er fyrir
kapalsjónvarp, auk þess sem kostn-
aður notandans vegna móttökubún-
aðar er minni.
Til þess að ná endurvarpi af þessu
tagi þarf sérstaka gerð sjónvarps-
loftnets, ásamt tæki, sem á ensku
kallast „down-converter“ og afr-
uglara. Afruglarinn í þessu kerfi er
ólíkur þeim, sem Stöð 2 notar nú.
Sjónvarpsstöðin getur „skrúfað fyr-
ir“ sendingar hvenær sem er, stjórn-
að því hvað hver notandi nær mörg-
um stöðvum og veitt fleiri en einum
notanda aðgang að hveijum afr-
uglara. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins hefur „auðugt ís-
lenzkt einkafyrirtæki“ aflað sér til-
boða í MMDS-búnað í Bretlandi og
er sjónvarpsbúnaðarfyrirtækið
TranSat í samningaviðræðum við
viðkomandi sjónvarpsfyrirtæki.
Samkvæmt heimildum blaðsins
myndi notendabúnaður af þessu tagi
kosta um 2Q.000 krónur, ef marka
má reynsiu annarra landa. Með hon-
um má ná 36 stöðvum.
Stofnkostnaður við jarðstöðvar í
MMDS-kerfi er nokkur, en mun
lægri en við t.d. lagningu kapalkerf-
is. Ætla má að hver jarðstöð geti
sent út til heimahúsa innan 25 kíló-
metra radíuss. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins er tæplega
hagkvæmt að setja slíkar jarðstöðv-
ar upp á dreifbýlum svæðum, en
getur verið mjög hentugt í bæjum
og borgum fáist nógu margir áskrif-
endur.
Vestanhafs ráóa
kapalfyrirtæki
lögum oglofum
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins
KAPLI er haldið að neytendum í Bandaríkjunum lon og don og eru
ýmis tilboð á boðstólum. Þau dæmi, sem notuð eru hér á eftir, eiga
við fyrirtækið Cablevision i Boston, en verð hjá því er sambærilegt
við það, sem gerist annars staðar í landinu.
Sé öllum tilboðum hafnað kost-
ar um 3.500 íkr að setja
kapalinn upp. Annars er
uppsetningin allt frá því að
vera ókeypis til þess að kosta um
700 krónur og þarf þá að gerast
áskrifandi að ákveðnum fjölda
stöðva. Þá er snúra lögð inn á heim-
ilið, hún skrúfuð inn í þar til gerðan
rugludall, sem tekur útsendinguna
og gerir hana sjónvarpstæka.
Að sögn Johns Hauensteins, full-
trúa Cablevision, kostar rúmar
hundrað krónur á mánuði að leigja
afruglara og fjarstýringu og sérstak-
ur, vikulegur kapalsjónvarpsvísir
kostar 210 krónur á mánuði og er
innifalinn í áskrift. Borga áskrifend-
ur 3.500 króna pant fyrir rugludall-
inn og eru þær krónur afturkræfar
við uppsögn áskriftar og afhendingu
dallsins.
Áskriftargjald getur verið með
ýmsu móti, allt frá 530 krónum fyr-
ir 18 stöðvar, sem krefjast ekki afr-
ugiara og flestum er hægt að ná
með loftneti á áskriftarsvæði, upp í
4.410 krónur fyrir 104 stöðvar. Ál-
gengt er að fólk velji sér 52 stöðva
pakka, sem kostar um 1.500 krón-
ur. í honum eru ABC, CBS og NBC
(bandarísku sjónvarpsrisarnir þrír),
þrjár íþróttarásir, fréttastöðin CNN
á tveimur rásum, annarri fyrir
síendurteknar fréttir á hálftíma
fresti, hin er fyrir lengri fréttir, bein-
ar útsendingar, fréttatengdir sam-
talsþættir og fréttaskýringar. Að
auki eru fimm tónlistarrásir, MTV
og VHl, sú fyrri sérhæfð í vinsælda-
poppi, en sú síðari með áherslu á
skallapopp, tvær kántrírásir og ein
með svertingjatónlist. Þá eru um
fimmtán rásir, sem sýna bíómyndir
og þætti, þijár stöðvar, sem kallast
almenningssjónvarp og er það styrkt
með opinberum og fijálsum framlög-
um almennings. C-Span nefnist fyr-
irbæri, sem sendir út frá þingum-
ræðum, fyrirlestrum og fræðandi
uppákomum. Þá eru þijár spænskar
stöðvar, tvær alþjóðlegar rásir, sem
sýna allt frá írönskum sápuóperum
til bæverskra þjóðdansa og einnig
fréttir í beinni útsendingu frá Berlín,
Moskvu, París og Róm, nokkrar rás-
ír þar sem almenningur getur komið
sínum hugðarefnum á framfæri og
síðast og síst auglýsingarásir þar
sem fólk getur selt bílana sína,
hljómflutningstækin, legubekki og
fótanuddtæki.
Ekki er allt talið enn. Kapalsjón-
varp getur einnig verið eins og
myndbandaleiga. Það kostar 140
krónur fyrir félaga og 210 krónur
fyrir óbreytta að horfa á bíómyndir
sem sýndar eru á um tíu rásum
nokkrum sinnum á dag rétt eins og
í kvikmyndahúsi. Einnig er boðið upp
á þessa þjónustu þegar keppt er um
heimsmeistaratitil í hnefaleikum eða
jafnvel þegar landsleikir eru í knatt-
spyrnu. Á laugardag (27. nóvember)
mátti til dæmis sjá írsku hijómsveit-
ina U2 í beinni útsendingu frá Sydn-
ey í Ástralíu fyrir 1.400 krónur. Til
að fá þessa þjónustu þarf að hringja
í kapalfyrirtækið, segja hvað skuli
horft á og þá er opnað fyrir útsend-
inguna inn á viðkomandi heimili.
Upphaf kapalsins
Upphaf kapalsjónvarps má rekja
til ársins 1949 og var tilgangurinn
sá að bæta skilyrði fólks í afskekkt-
um sveitum til sjónvarpsgláps og
breiddist hratt út þar sem fólk átti
í vandræðum með að ná útsending-
um. Á síðasta áratug fjölgaði áskrif-
endum svo milljónum skipti og nú
er svo komið að rúmlega helmingur
allra heimila með sjónvarp eru með
kapal.
Vísir er að því að Bandaríkjamenn
kaupi sér móttökudiska fyrir gervi-
hnattasendingar. Að sögn Harrys
Thibidiaus, stjórnanda iðnaðar- og
tæknimála hjá hagsmunasamtökum
gervihnattaútsendingafyrirtækja,
SBCA, fjölgar þeim jafnt og þétt,
sem kaupa sér móttökudisk.
Sala slíkra diska hófst árið 1980
og seldust þá um 5.000 diskar. Árið
1985 var árleg sala komin upp í 735
þúsund diska, en þá varð skyndilegt
hrun er hafist var handa við að rugla
ákveðnar útsendingar. Næsta ár
seldust aðeins 227 þúsund diskar
og á þessu ári gæti salan náð 400
þúsund.
Að sögn Mikes Kelmels, fulltrúa
fyrirtækisins NWS Satellite Comm-
unications, sem selur móttökudiska,
kostar diskur með uppsetningu allt
frá 105 þúsund krónum til 280 þús-
undir króna.
Þessum diskum er hægt að beina
að 30 gervihnöttum, sem varpa sjón-
varpsefni til dreifistöðva kapalstöðv-
anna um öll Bandaríkin. Eigendur
móttökudiska hafa endurgjaldslaus-
an aðgang að um 80 rásum. Þar við
bætist fjöldi rása, sem eru ruglaðar.
Til þess að geta horft á þær þurfa
diskeigendur að greiða þeim, sem
sendir efnið út. Þetta er reyndar
aðeins ódýrara en af kapli, því að
einum millilið (kapalfyrirtækjunum)
er sleppt. Það þarf hins vegar að
horfa ansi lengi á sjónvarp til að
vega upp á móti byijunarkostnaði.
'undur
¥1! m
AEG Heimilistækin...
... eru mjög sparneytin
auk þess að vera sterk og falleg.
AEG
Þurrkari
Lavatherm 530-w
8 þurrkkerfi.
Tekur 5 kg.
Þéttir gufuna
(engin barki)
2 hitastig
Verð áður:
Kr.92.661,-
Tilboö:____________
Kr.74.970#-S,9r
AEG
Uppþvottavél
Favorit 575 U-w
5 þvottakerfi.
AQUA system
Fyrir 12 manns
Verð áður:
Kr.74.964,-
Tilboð:___________
Kr.61.970#-S,gr
AEG
V'o
'
Vestfiröir:
Rafbúö Jónasar Þór.Patreksfiröi
Edinborg, Bíldudal
Verslun Gunnars Sigurössonar
Þingeyri
Verslun E.Guöfinnsson.Bolungarvík
Straumur.ísafiröi
Noröurland:
Kf. Steingrímsfjaröar.Hólmavík
Kf. V-hún., Hvammstanga
Kf. Húnvetninga, Blönduósi
Skagfiröingabúö, Sauöárkróki
KEA, Akureyri
KEA, Dalvík
Bókabúö, Rannveigar, Laugum
Sel.Mývatnssveit
Hf. Þingeyinga, Húsavík
Urö, Raufarhöfn
Austurland:
Sveinn Guömundsson, Egilsstööum
Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi
Stál, Seyöisfiröi
Verslunin Vík, Neskaupsstaö
Hjalti Sigurösson, Eskifiröi
Rafnet, Reyöarfiröi
Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi
KASK, Höfn
Suöurland:
Kf. Rangæinga, Hvolsvelli
Mosfell, Hellu
Árvirkinn, Selfossi
Rás, Þorlákshöfn
Brimnes, Vestmannaeyjum
Reykjanes:
Stapafell, Keflavfk
Rafborg, Grindavík.
Um land allt!
Kæliskápur
Santo 2500 KG
Haeð: 148 sm.
Breidd: 55 sm.
Kælir: 16 1 Itr.
Frystir 59 Itr.
Verð áður:
Kr.67.719,-
Tilboö:___________
Kr.54.970,-Stgr
VELDU ÞER TÆKI SEM ENDAST
Hjá Bræðrunum Ormsson bjóðast þér
góð heimilistæki á sérstöku tilboðsverði
AEG
Heimilistæki og h andverkfæri
4índesít
Heimilistæki
Heimilistæki
ismet
Heimilistæki
ZWILLING
J.A. HENCKELS
Hnífar
BOSCH
Bílavarahlutir - dieselhlutir
B R Æ Ð U R N
R
DjORMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 38820
Umboðsmenn um land allt