Morgunblaðið - 28.11.1993, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1993
KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN og Háskólabíó taka fljótlega til sýninga kvikmyndina
Addams Family Yalues, glænýja, ærslafengna og spennandi gamanmynd um samhentu og
skrítnu fjölskylduna sem margir íslendingar þekkja úr svarthvítum sjónvarpsþáttum.
Furðufuglar á sveimi
NÝJA kvikmyndin um Addams-fjölskylduna var frum-
sýnd í Bandaríkjunum um síðustu helgi en þar hafði
hennar verið beðið með talsverðri eftirvæntingu, enda
uppi raddir um að hér sé á ferð framhaldsmynd sem
taki forvera sinum fram og var sú þó ein mestsótta
mynd ársins 1991. Þegar myndin hefst hefur fjölgað um
einn i Addams-fjöskyldunni því ættmóðirin, Morticia,
hefur alið eiginmanni sínum, Gomez Addams, son. Sá
fæðist með yfirskegg og fær nafnið Pubert. Eldri systkin-
in, Wedensday, sem er eftirmynd hinnar svartleitu móð-
ur sinnar, og þybbni strákurinn Pugsley, verða afbrýði-
söm út í litla bróður. Undir afbrýðiseminni kyndir nýráð-
in barnfóstra fjölskyldunnar, Debbie, sem kemur því til
leiðar að eldri krakkarnir eru sendir í sumarbúðir. Verri
grikk var ekki hægt að gera Addams-bömunum en að
senda þau upp í sveit þar sem ætlast er til að þau leiki
sér úti og hafi skóg og stöðuvatn fyrir augunum allan
daginn. Eins og þetta illvirki gefur til kynna er barn-
fóstran ekki öll þar sem hún er séð heldur hrein og
bein ógnun við Iíffstíl fjölskyldunnar.
Bleika barnfóstran
Debbie er mikill áhuga-
maður um nýjustu
tísku, verslun og neysluvam-
ing og hugmyndir hennar og
Morticiu um það hvað nauð-
synlegt sé að hafa á einu
kærleiksheimili fara alls ekki
saman. Sú ógn sem þarna
steðjar að lífsstíl fjölskyld-
unnar uppgötvast þó ekki
fyrr en of seint — ekki fyrr
en Ííf og heilsa eins úr fjöl-
skyldunni er í hættu. Þá er
þessi bleikklædda nom í
bamfóstrulíki búin að leggja
snörur sínar fyrir Fester
frænda Addams, stóra og
bamslega einfeldninginn í
fjölskyidunni. Fester fellur
kylliflatur og er áður en var-
ir á leið upp að altarinu með
þessari nom, sem telja má
víst að ætli Fester sömu örlög
og öllum hinum mönnunum
sem hún hefur gifst og kom-
ið jafnharðan fyrir í kirkju-
garðinum eins og hveijum
öðmm einnota umbúðum.
Valinkunnir stórleikarar
leika í myndinni um Addams-
fjölskylduna. Anjelica Hus-
ton leikur Morticiu (sagt hef-
ur verið að hún hafi verið
sjálfkjörin í hlutverkið þótt
ekki væri nema vegna and-
litsfallsins og útlitsins), Raul
Julia ( úr Kiss of a Spider
Woman) leikur Gomez og
Christopher Lloyd, (vísinda-
maðurinn úr Back to the
Future) Ieikur Fester. Öll
léku sömu hiutverk í fyrri
myndinni, eins og Christina
Ricci sem leikur Wedensday
og er margreynd kvikmynda-
leikkona, nýorðin 13 ára
Bræður
BRÆÐURNIR
Pugsley og Pu-
bert Addams.
gömul, og Jimmy Workman
sem leikur Pugsley eins og í
fyrri myndinni. Carel Struyc-
ken er einnig á sínum stað
í hlutverki Lurch, hins risa-
vaxna og umhyggjusama
ráðsmanns og vemdara Add-
ams-fjölskyldunnar og allra
minnsti fjölskyldumeðlimur-
inn, höndin, sem kölluð er
Thing, lætur sig ekki vanta
í framhaldsmyndina. Hins
vegar er búið að skipta um
ömmu en það kemur ekki að
sök því Carol Kane gefur
skrítnu ömmunni úr fyrri
myndinni ekkert eftir enda
þekkt leikkona sem tilnefnd
hefur verið til óskarsverð-
launa, rétt eins og Joan
Cusack sem leikur Debbie.
Einnig kemur m.a. við sögu
fyrsti kærasti Wedensday.
60 ára fjölskyldusaga
Addams-fjölskyldan á sér
langa sögu því hún hefur
verið til í lítt breyttri mynd
allt frá árinu 1932 en þá birti
tímaritið The New Yorker í
fyrsta skipti myndasögu eftir
skapara Morticiu, Gomezar
og allra hinna. Sá hét Char-
les Addams og var þá 21 árs
gamall. Myndasögur hans
vöktu athygli og þóttu
skrítnar og sérviskulegar og
óhætt er að fullyrða að sá
blær hefur haldist á sögu-
hetjunum allt til þessa dags.
Charles Addams vann fyrir
The New Yorker tímaritið í
50 ár, ekki bara sem teikn-
ari Addams fjölskyldunnar.
Árárunum 1935 tii 1964 birt-
ust um 1.300 myndasögur
um Addams-fjölskylduna á
síðum tímaritsins og að auki
prýddu fjölskyldumeðlimir
forsíðu tímaritsins. Svo
tryggur var Charles Addams
The New Yorker alla tíð að
jafnvel þótt hann væri
kvaddur til að gegna her-
skyldu í seinni heimsstyijöld-
inni hélt hann áfram að
teikna og sendi tímaritinu
myndir af Addams-fjölskyld-
unni og ýmsu öðru til birting-
ar.
Þeirri tryggð hélt teiknar-
inn eftir að afkvæmi hans
fluttust að heiman en það
gerðist í september árið 1964
þegar ákveðið var að gera
sjónvarpsþætti um Ævintýri
Áddams-fjölskyldunnar.
Þegar sjónvarpið kom í spilið
hætti tímaritið að birta
myndir af Addams-fjölskyld-
unni og hún birtist þar ekki
aftur fyrr en árið 1988, rétt
fyrir andlát skapara síns. í
millitíðinni hafði Addams-
fjölskyldan þó lifað mörg sín
bestu ár á svarthvítum sjón-
varpsskjáum milljóna manna
í Bandaríkjunum og víðar,
þar á meðal hér á landi, þar
sem hún sást fyrst í Keflavík-
ursjónvarpinu á sínum tíma
og nú síðustu misseri til
skiptis á. báðum íslensku
sjónvarpsrásunum. Grípandi
einkennsisstefi sjónvarps-
þáttanna gengur mörgum
illa að gleyma.
Dálítill broddur
Charles Addams á sér víða
Hvort er illmennið?
FESTER og
hans Debbie.
kærastan
aðdáendur sem telja að í sög-
unum um Addams-fjölskyld-
una á síðum New Yorker
hafi honum oft og einatt tek-
ist frábærlega upp við að
koma til skila háðskri og
beittri gagnrýni á samtíma
sinn. Addams-fjölskyldan í
sjónvarpinu var á hinn bóg-
inn ekki mikið í þjóðfélags-
rýninni og kvikmyndimar
eru alls engar ádeilumyndir
heldur aðeins ætlaðar til
skemmunar. En þó hafa
sumir orðið til þess að halda
því fram að enn sé dálítill
broddur í boðskap Addams-
fjölskyldunnar. Anjelica Hus-
ton, sem leikur Morticiu, lýs-
ir þessu svo: „Ég held að
afdráttarafl þeirra felist í því
að fyrir þeim er það gott og
gilt sem aðrir mundu neita
að samþykkja og í raun og
veru fagna þau því sem aðrir
hafna. Svo skilja þau hvert
Á kærleiksheimilinu
ADDAMS—fjölskyldan eins og hún leggur sig. Frá
vinstri: Ráðsmaðurinn Lurch, sonurinn Pugsley, amm-
an Granny, Wednesday, Fester og Debbie. Að baki
þeim standa hjónin Gomez og Morticia Addams og
heldur frúin á nýfæddum syni þeirra, Pubert, með
aðstoð hjálparhandar fjölskyldunnar, Thing.
annað svo dásamlega vel.
Þeim finnst afskaplega vænt
hveiju um annað og verð-
mætamat þeirra er í fullu
gildi."
Leikstjóri beggja kvik-
myndanna um Addams-fjöl-
skylduna heitir Barry Sonn-
enfeld, sem var myndatöku-
maður hjá Coen bræðrum og
Rob Reiner áður en hann
sneri sé að leikstjóm. Fram-
leiðandi myndarinnar heitir
Scott Rubin, sem framleiddi
fyrri myndina og einnig The
Firm, Serching for Bobby
Fisher og Sister Act auk
margra annarra. Handrit
myndarinnar er eftir Paul
Rudnick, sem skrifaði upp-
haflega handritið að Sister
Act. Hann kom að gerð hand-
rits fyrri myndarinnar á loka-
stigi.
Stjama í þriðja ættlið
ÞÓTT Anjelica Huston hafi haft betri möguleika en flestir
aðrir á að útvega sér hlutverk í gegnum kliku hafa fáir
orðið til að halda því fram að þessi svipsterka og óveiyu-
lega leikkona eigi klíkuskap velgengni sína að þakka. Anj-
elica er fædd árið 1951, dóttir hins heimsfræga leikstjóra
John heitins Hustons og fjórðu eiginkonu hans. Hún ólst
upp á Irlandi og lék fyrst í kvikmynd hjá föður sínum, í
myndinni A Walk with Love and Death árið 1969 en það
ár lék hún alls í þremur kvikmyndum. Ekki fór ferillinn
vel af stað því sjaldan hafði mynd eftir John Huston feng-
ið jafnóvægna dóma og A Walk with Love and Death. Það
varð ekki til að telja kjark í ungu leikkonuna að rétt fyrir
fruinsýninguna missti Anjelica móður sína í bílslysi. Hún
dró sig í hlé frá kvikmyndum en ekki kvikmyndafólki því
hún kynntist Jack Nicholson og tók upp sambúð við hann
árið 1973.
að
lífs
í tang’ó
MORTICIA (Anjelica Huston) og Gomez (Raul Julia) í
tangósveiflu. Frúin er eins og alltaf klædd í skósíðan
svartan kjól en í 60 ára sögu Addams-fjölskyldunnar
hefur aldrei sést í fætur hennar, að sögn fróðustu
manna.
Sjálf fór Anjelica hins veg-
ar ekki að leika í alvöru
(þrátt fyrir smáhlutverk í
tveimur myndum árið 1976)
fyrr árið en 1980 þegar hún
tók ákvörðun um að reyna
fyrir sér í alvöru eftir
hafa naumlega sloppið
úr alvarlegu bílslysi.
Hún fór beint í stórmynd-
irnar og fékk lítil hlutverk í
The Postman Always Rings
Twice (1981; þar sem Jack
og Jessica Lange voru í aðal-
hlutverkum) og Frances
(1982) (með Jessicu Lange)
og lék síðan í Spinal Tap og
Ice Pirates árið 1984. Þá var
komið að því að Anjelica
ynni í einni og sömu mynd-
inni með föður sínum og
sambýlismanni.
Myndin var Prizzi’s Honor,
síðasta stórmynd Hustons,
þar sem Jack Nicholson lék
leigumorðingja en Anjelica
ástkonu hans og örlagavald.
Fyrir þetta hlutverk fékk
Anjelica óskarsverðlaun leik-
konu í aukahlutverki, þau
einu sem hún hefur hlotið til
þessa en síðar hefur hún
hlotið tilnefningar fyrir leik
í The Grifters (1990) og
Enemies, A Love Story
(1989).
Vart þarf að fjölyrða um
það að eftir óskarsverðlaunin
voru Anjelicu færir allir veg-
ir og meðal mynda hennar
síðan eru Gardens of Stone
(1987), The Dead (1987),
Mr. North (1988), John Hus-
ton (1988), The Witches
(1990) og Á Handful of Dust
(1988), auk smáhlutverks í
mynd Altmans The Player
(1992) og leiks í myndum
Woody Allens, Crimes and
Misdemeanors (1989) og The
Manhattan Murder Mistery
(1993), nýjustu mynd Allens.
Anjelica gekk í fyrra að
eiga myndhöggvara að nafni
Robert Graham. Nokkrum
misserum áður hafði hún slit-
ið sambandi sínu við Jack
Nicholson eftir að þau skötu-
hjú höfðu deilt kjörum í
17-18 ár.