Morgunblaðið - 28.11.1993, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1993
23
ÐUNN
Fjórða hæðin
" „Eitthvað var öðruvísi en það átti að vera og ég áttaði
mig ekki á hvað það var..." Bræðurnir áttu bernskuárin
saman í firðinum undir bröttu fjallinu og framtíðin
virtist blasa við - en undiraldan var þung ...
Fjórða hæðin, ný skáldsaga Kristjáns Kristjánssonar,
er meitluð saga um mannleg samskipti og örlög, saga
sem knýr lesandann áfram í leit að því sem undir býr.
Þau hittust fyrir tilviljun í útlöndum og þar byrjaði sagan: Einu
sinnijSyay-egndropi sem læddist undir hálsmál á himinblárri skyrtu.
Ástin fiskanna eftir Steinunni Sigurðardóttur er fáguð
og hárbeitt saga sem vakið hefur mikla athygli;
ásfarsaga þar sem ekkert gerist um leið og það gerist;
saga um ást sem er heitari en heit.
Litlu greyin
--1
Nýjasta bók Guðrúnar
Helgadóttur, Litlu greyin, er
spennandi, skemmtileg og hugþekk saga um þrjú systkini sem
fara til dvalar í sumarbústað með mömmu sinni. Þar gerist margt
sögulegt - amma kemur í heimsókn og týnist - og dularfullur
draugur skýtur upp kollinum ... Frábær saga þar sem kímin og
nærfærin frásagnarlist Guðrúnar nýtur sín afar vel. Gunnar
Karlsson myndskreytti bókina.
namurg
Hafborg eftir Njörð P. Njarðvík er
snjöll lýsing á veruleika íslenskra
! sjómanna á öld síðutogaranna; skáldsaga sem leiðir hvern
landkrabba inn í hrollkaldan heim sjómannsins sem á hið
| kaídranalega haf að ævilöngum veruleika og lýsir á lifandi
I hátt gráglettnum samskiptum skipverjanna og baráttu
’ mannskepnunnar við náttúruöflin.
íslensk skáldverk
Eldhyl
ur Eldhylur er fyrsta
Ijóðabók þjóðskáldsins
Hannesar Péturssonar í áratug, bók sem geymir
myndauðug og margræð ljóð þar sem ógnin býr
undir; þetta er skáldskapur sprottinn úr reynslu og
skynjun skálds sem tengt er náttúru, sögu og
umhverfi nánum böndum; máttug Ijóð þar sem
hvert orð vegur þungt; bók sem verður
ljóðunnendum hugstæð.
tin tiskanna