Morgunblaðið - 28.11.1993, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1993
GÓLFBÚNAÐURGÓLFBÚNAÐURGÓLFBÚNAOURGÓLFBÚNAÐUR
Sýning sunnudag
kl. 13-17
NÝJAR
SENDINGAR
Sýningarafsláttur
15% stgr.
vrsuI
FAXAFENIVIÐ SUÐURLANDSBRAUT • SÍMI 686999
Þessi
geysivinsæla og
fjöihæfa hrærivél er
alveg ómissandi við
allan bakstur.
Hún býðst nú
á sérstöku
jólatilboðsverði!
• Allt í einum armi
• Blandari, grænmetiskvöm og hakkavél fylgja með
»Hrærir, þeytir, hnoðar, blandar, brytjar, rífur, hakkar og sker
• íslenskur leiðarvísir og uppskriftahefti
Hún er elskuð og
dáð aföfíum!
Verð aðeins kr. 17.300,- (afb.verd)
kr. 16.435, - (staðgr.verð)
UMBOÐSMENN OKKAR ERU:
Akranes:
Rafþjónusta Sigurdórs
Borgarnes:
Glítnir
Borgarfjörður:
Rafstofan Hvítárskála
Hellissandur:
Blómsturvellir
Grundarfjörður
Guðni Hallgrímsson
Stykkishólmur
Skipavík
Búðardalun
Ásubúð
ísafjörður;
Póllínn
Blönduós:
Hjðrleifur Júlíusson
Sauðárkrókun
Rafsjá
Siglufförður:
Torgið
Akureyri:
Ljósgjafinn
Húsavík:
öryggi
Þórshöfn:
Norðurraf
Neskaupstaður
Rafalda
Revðarfjörður.
Rafvélaverkst. Árna E.
Egilsstaðir:
Sveinn Guömundsson
Breiödalsvík:
Stefán N. Stefánsson
Höfn í Hornafirði:
Kristall
Vestmannaeyjan
Tréverk
Hvolsvöllun
Kaupfélag Rangæinga
Selfoss:
Árvirkinn
Garður:
Raftækjav. Sig. Ingvarss.
Keflavík:
Ljósboginn
Viljir þú endingu og gæði - velur þú SIEMENS.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SlMI 628300
Hamrahlíðarkórinn
syngnr íslensk þjóðlög
Hljómdiskar
Oddur Björnsson
Islensk þjóðlög. Hamrahlíðarkór-
inn.
Stjórnandi Þorgerður Ingólfsdótt-
ir.
Islensk tónverkamiðstöð í sam-
vinnu við Ríkisútvarpið.
Þessi hljómdiskur er mikil ger-
semi. Hamrahlíðarkórinn hefur alltaf
vakið athygli og aðdáun fyrir hreinan
og fágaðan söng undir agaðri og
músíklega mjög markvissri stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur, en hún hef-
ur stjórnað kórnum frá upphafi (hann
var stofnaður 1967). Meðlimir kórs-
ins eru allir núverandi eða fyrrver-
andi nemendur Menntaskólans við
Hamrahlíð, enda eru raddirnar ungar
og ferskar og ljá hljómnum bjart og
mjög aðlaðandi yfirbragð.
Mörg þjóðlaganna eru perlur, svip-
að má segja um textana. Raddsetn-
ingar yfirleitt mjög við hæfi og
stundum einkar athyglisverðar — ef
ekki uppátektarsamar, sem getur
orkað tvímælis. Skemmtilegar engu
að síður og auka á fjölbreytni. Aðrar
eru fagrar og seyðandi (t.d. Móðir
mín í kví, kví í radds. Wilhelms
Lanzky-Otto og Veröld fláa sýnir sig
í radds. Hjálmars H. Ragnarssonar)
og enn aðrar blíðar eða stríðar, eftir
efni; jafnvel dulúðugar ef ekki dular-
fullar í tóntegund (þ. á m. Liljulag).
Auðvitað ber á fornum kirkjutónteg-
undum og gamalli tvísöngshefð
o.s.frv. En kannski er ég að setja
sjálfan mig í ógöngur með slíkum
hugleiðingum um tóntegundir. Ég
vil aðeins undirstrika að margt er
grípandi fagurt og annað nokkuð
forneskjulegt, svo sem vera ber (enda
jafnvel ekki vitað um aldur sumra
laganna).
Það sem vekur strax athygli við
söng Hamrahlíðarkórsins undir
stjóm Þorgerðar Ingólfsdóttur er
hárnákvæmt og „rétt“ hraðaval og
nákvæmar og „réttar“ áherslur og
síðan einstaklega fallegur söngur í
viðkvæmari lögum, þar sem einfald-
leikinn upphefur hugblæ lags og
texta svo úr verður einhver seyður,
sem erfítt er að lýsa með orðum.
Ef eitthvað er kjörin jólagjöf
handa vinum í útlandinu, þá er það
þessi hljómdiskur. Þorgerður og kór-
inn eiga skilið öll þau verðlaun og
aðra viðurkenningu sem þeim hefur
verið veitt — ekki síst fyrir flutning
á íslenskri kórtónlist.
Hljóðritun, sem fór fram í Lang-
holtskirkju, hefur tekist mjög vel
undir stjórn Bjarna Rúnars Bjarna-
sonar. En hljóðritun annaðist Þórir
Steingrímsson. Og loks ber að lofa
útlit, en forsíðu prýðir mynd af
sveitabæ úr Ferðabók Eggerts Ólafs-
sonar og Bjama Pálssonar.
lfiltu koma með
í síðasta lukkupottinn og fá
íslenska hágæðainnréttingu
eða frönsk Scholtes
heimilistæki ókeypis?
Já, það er rétt, einn kaupandi, sem staðfestir pöntun í
nóvember, fær innréttingu eða heimilistæki ÓKEYPIS,
en allir fá 5% afslátt og eru boðnir á matreiðslunámskeið
hjá meistarakokkinum Sigurði L. Hall. Þannig vinnur þú
með því að skipta við Eldhús og bað og það er öruggt að
engum leiðist á þessum frábæru kvöldum hjá okkur.
Funahöfba 19,
sími 685680.
mmm
Þegar þú veist hvað þú vilt
Kammersveit
Hafnarfjarðar
Tónleikar í
Hafnarborg
KAMMERSVEIT Hafnarfjarðar
var stofnuð 1992. Að því framtaki
stóð hópur tónlistarmanna, sem
margir hverjir eru búsettir í Hafn-
arfirði og/eða starfandi við Tón-
listarskólann. Flestir eiga þeir að
baki langt tónlistarnám bæði hér
heima og erlendis. Tilgangurinn
með stofnun sveitarinnar er að
efla og auðga tónlistarlífið utan
höfuðborgarsvæðisins. A árinu
hélt sveitin tónleika í Hafnarborg
og tók þátt í Listahátíð í Hafnar-
firði í sumar. Annað starfsár sveit-
arinnar er nú að hefjast. Fyrir-
hugaðir eru fernir tónleikar.
Fyrstu tónleikarnir verða nú á
sunnudaginn 28. nóvember í Hafn-
arborg og hefjast kl. 20.30. Á efnis-
skránni eru verkin Appalacian
Spring eftir A. Copland, Capricorn
Concert op. 21 eftir S. Barber og í
lokin Toccata e due canzoni eftir B.
Martinú. Einleikarar á tónleikunum
eru Gunnar Gunnarsson flautuleik-
ari, Peter Tompkins óbóleikari og
Einar Jónsson trompetleikari.
--------------------
Sinfóníuhljóm-
sveit áhugamanna
Bryndís
Halla leikur
einleik
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna,
sem í haust hóf fjórða starfsár
sitt, heldur næsta sunnudag tón-
leika í Háteigskirkju í Reylyavík
og hefjast þeir klukkan 17. A efn-
isskrá eru þrjú verk: Promeþeus
forleikurinn eftir Beethoven, sel-
lókonsert í C-dúr eftir Haydn og
sinfónía í h-moll eftir Schubert,
ófullgerða sinfónían. Einleikari
er Bryndís Halla Gylfadóttir selló-
leikari og stjórnandi Ingvar Jón-
asson.
-Við erum heldur fleiri en áður eða
kringum 30 manns og erum nú kom-
in með nokkuð góða blásarasveit en
það hafa orðið heldur meiri manna-
skipti í strengjasveitinni,“ segir Páll
Einarsson formaður hljómsveitarinn-
ar en hann leikur sjálfur á selló.
-Við byijuðum æfingar í október og
fengum inni hér í Kvennaskólanum
og höfum notið velvildar Aðalsteins
skólastjóra Eiríkssonar en segja má
að Kvennaskólinn hafi fengið okkur
í arf þegar hann tók yfir æfíngahús-
næðið sem við höfðum í fyrra hjá
sem þá var í eigu Háskólans.
En hvernig hefur gengið að manna
hljómsveitina? Því svarar hljómsveit-
arstjórinn, Ingvar Jónasson:
„Það gengur nokkuð vel - það eru
samt lausar nokkrar stöður í
strengjasveitinni og þeir sem áhuga
liafa á að sækja um þær geta sett
sig í sambandi við Pál eða mig. Ég
hefði til dæmis haldið að fleiri fiðlu-
kennarar í tónlistarskólunum og ekki
eru þegar starfandi í hljómsveit
myndu hafa gaman af að vera með
okkur og vildi sérstaklega hvetja þá
til _að slást í hópinn.“
í Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
eru nokkrir hljóðfæraleikarar úr “al-
vöru“ hljómsveitinni en þeir eiga það
sameiginlegt að spila á “vitlaust"
hljóðfæri í áhugahljómsveitinni. Þeir
eru t.d. Bernharður flautuleikari sem
nú sér um pákurnar, Guðmundur
víóluleikari sem leikur hér á fiðlu,
Ágústa fiðluleikari er komin með
selló og þannig mætti halda áfram
og stjórnandinn fæst daglega við
vióluleik en ekki hljómsveitarstjóm.
Páll Einarsson segir að eftir tón-
leikana á sunnudag muni hljómsveit-
in æfa áfram vikulega fram undir jól
og hefja síðan undirbúning af fullum
krafti fyrir vortónleikana sem ráð-
gerðir eru kringum páska. Efnisskrá
er ekki fullmótuð en síðstu árin hef-
ur hljómsveitin haldið tvenna tón-
leika á hveiju starfsári.