Morgunblaðið - 28.11.1993, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1993
27
ANNNAÞÓRA
KARLSDÓTTIR
________Myndlist
Eiríkur Þorláksson
í neðri sölum Nýlistasafnsins
stendur nú yfir sýning Önnu Þóru
Karisdóttur veflistakonu á nokkr-
um flókateppum úr íslenskri ull,
sem hún hefur unnið á undanförn-
um tveimur árum.
Anna Þóra hefur lengi fengist
við veflistina, og lengst af við hefð-
bundinn myndvefnað, þar sem vef-
stóllinn var helsta vinnutækið. Síð-
ar fékk hún mikinn áhuga á að
vinna með íslenska ull, og hefur í
gegnum tíðina kynnt sér ýmsar
vinnuaðferðir í því sambandi, m.a.
gerð flókateppa og þá möguleika
sem þannig fengust til að stjórna
áferð, lit og formgerð við sköpun
listaverka í þessum miðli.
Fyrir rúmum tveimur árum hélt
Anna Þóra athyglisverða sýningu
í Ásmundarsal við Freyjugötu, þar
sem hún sýndi verk sem hún hafði
unnið með þessari tækni. Þar not-
aði hún ullar- og vaxliti til aukinn-
ar íjölbreytni, og skar og lagði síð-
an saman mismunandi form út úr
þeim litflötum, sem þannig feng-
ust. Þetta var einföld formgerð,
þar sem efnið var ríkulegasti þátt-
ur hvers verks; af sýningunni nú
verður ljóst, að listakonan hefur
haldið áfram á þeirri þróun, sem
þarna mátti sjá stað.
Þau sjö verk, sem Anna Þóra
sýnir hér, eru jafnvel enn einfald-
ari en áður, þar sem hún hefur nú
haldið sig alfarið við hinna eigin-
legu ullarliti. Formgerðin byggir á
þeirri lífrænu mýkt, sem segja má
að búi í ullinni; bylgjur og lokkar,
sem listakonan raðar saman í verk-
unum, þannig að sérstakur hrynj-
andi myndast í hveiju verki fyrir
sig. Þetta eru stór verk, sem er
því tæpast hægt að kalla teppi, en
standa ágætlega undir sér sem
sjálfstæð myndverk; listakonan
hefur valið þeim afar íslensk heiti,
sem tengjast m.a. tröllskessum,
þannig að þjóðlegar tilvísanir verk-
anna byggja ekki aðeins á efninu.
í fremri salnum eru tvö verk,
sem byggja á svörtum grunni; í
hinu fyrra er lögð áhersla á hina
láréttu línu og afar fína littóna
ullarinnar, en í hinu síðara skapar
hvítt togið skálínur, sem skeipa
mýkt flatarins. I neðri' salnum eru
fjögur verk byggð á hvítum eða
gulum grunni ullarinnar, og á þau
vinnur listakonan síðan hringa og
mjúkar bylgjur í dökkum litum, en
efst kemur hvít himna, sem eykur
snertigildið og deyfir andstöðu lit-
anna; áferðin verður aðalatriðið í
myndunum.
Ein litríkasta myndin á sýning-
unni er án efa „Mórilla“ (nr. 7), en
í því verki koma nær öll litbrigði
ullarinnar fram í reglulegu mynstr-
inu, þar sem tog í mismunandi lit-
um skiptist á um að marka yfir-
borðið.
Það er rétt að hrósa þessari sýn-
ingu sérstaklega fyrir kynningar-
efni, sem liggur frammi; með sýn-
ingarskrá fylgir greinargerð eftir
Þóri Sigurðsson um gerð flóka-
teppa og starf Önnu Þóru á því
sviði, svo og fróðlegur bæklingpr
um íslenska ull, ræktun hennar,
meðferð og gæði. Myndlist nútím-
ans leitar víða fanga, og oft má
segja að listamenn fara yfir lækinn
til að sækja vatnið, ekki síður en
aðrir landsmenn. Ymsir veflista-
menn hafa glögglega sýnt, að ís-
lenska ullin er afar gjöfult efni í
myndvefnaði, og þessi sýning er
enn ein sönnur. þess að sé listrænt
innsæi fyrir hendi getur hin ein-
faldasta formbygging skilað af sér
markvissum listaverkum í þessum
í efri sölum Nýlistasafnsins
stendur yfir fjölbreytt dagskrá,
þar sem gestir geta orðið vitni að
gjörningum, hlustað á sjálfa sig í
hljóðverki, fylgst með videoverk-
um og skoðað innsetningar, allt
eftir þeim tíma dags, sem þá ber
að garði.
Hér eru á ferðinni tæplega tutt-
ugu nemendur úr fjöltæknideild
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands, sem undir forystu kennara
sinna hafa sett saman dagskrá,
sem þá væntanlega endurspeglar
miðli sem öðrum.
Sýning Önnu Þóru Karlsdóttur
í neðri sölum Nýlistasafnsins við
Vatnsstíg stendur til sunnudagsins
5. desember, og er rétt að hvetja
listunnendur til að líta við.
að nokkru þau verkefni sem nem-
endumir eru að fást við innan
veggja skólans. Hlutfall erlendra
nemenda er hátt í þessum hóp
(tæpur helmingur), og gefur við-
fangsefnunum alþjóðlegan blæ.
Það nafn, sem hópurinn hefur
valið sér sem yfirskrift sýningar-
innar, endurspeglar ef til vill hinn
alþjóðlega anda deildarinnar; hins
vegar verður ekki séð hvað rekur
unga fólkið til að kynna verk sín
undir fána fúkyrða, þó erlend séu,
nema þar komi fram ómeðvitað
mat á stöðu myndlistarinnar í dag
og/eða stöðu eigin verka í list-
heiminum. í öllu falli er rétt að
biðja finnskumælandi fólk forláts
á orðavalinu.
Mesta Qörið í dagskránni er
eðlilega um helgar, þegar vænta
má að gestafjöldinn verði mestur;
þá er hún þéttskipuð videosýning-
um og gjörningum allan opnunar-
tímann, og flestir þátttakendumir
eiga einhvern hlut að máli. Laus-
lega mótuð dagskrá liggur
frammi, þannig að hægt er að
kynna sér hvað er um að vera á
hveijum tíma.
Þar sem hér er um að ræða
sýningu sem er stöðugum breyt-
ingum undirorpin, er lítið hægt
að ijalla um hana á hefðbundinn
hátt. Nokkrar innsetningar era
þó komnar fram nú þegar, og má
þar nefna verk Gunnars Þórs Víg-
lundssonar og Maren Poser, auk
þess sem áhugavert hljóðverk
Bjarkar Sigurðardóttir tekur á
móti gestum þegar þeir ganga upp
stigana, og magna á einfaldan
hátt upp hljóð umhverfisins.
Framlag flestra byggir hins
vegar á gjörningum og videoverk-
um (sem eru stundum heimildir
um gjöminga), sem gestir verða
að njóta á staðnum. Heildin ber
með sér að hér víkur alvaran fyr-
ir léttleika og vinnugleði ungs
fólks, sem er sér meðvitað um að
það er hér að takast á við verk-
efni á sviðum sem hafa verið þaul-
könnuð í fjölda ára, og telur
ánægjuna meira virði en fræðilega
umræðu, sem vill gjama verða
þurr og leiðigjöm til lengdar.
Þetta viðhorf gefur heildarmynd-
inni hressilegan blæ.
Framkvæmdir hópsins „Saat-
ana Perkele“ í efri sölum Nýlista-
safnsins standa til sunnudagsins
5. desember, og gætu öragglega
orðið til að létta ýmsum lund nú
í skammdeginu.
„Saatana-Perkele“
Námskeið í vefnaði, hekli og prjóni
VELJIÐ ÍSLENSKT
Við vinnum úr íslensku ullinni í Álafossbúðinni, Vestur-
götu 2, dagana 3. des. kl. 14 - 18,4. des. kl. 10 - 14,
10. des. kl. 14 - 18 og 11. des. kl. 10 - 14.
Námskeiðin eru í pinnavefnaði. Gólf- og veggteppi.
Heklaðar mottur og prjónuð lopateppi.
Leiðbeinandi: Dóra Sigfúsdóttir.
Námskeiðin kosta kr. 2.500,-.
Skráning og upplýsingar eru í síma 13404.
^ Bókakynning Hörpuútgáfunnar ^
í Þjóðleikhúskjallaranum
á morgun
mánudaginn 29. nóvember 1993, kl. 20.30.
Dagskrá:
Helgi Sæmundsson les úr Ijóðasafni Guðmundar Inga Krist-
jánssonar, „Sóldagar".
Jónas Árnason kynnir bók sína „Á landinu bláa“.
Sveinbjörn Beinteinsson, allsherjargoði, les úr bókunum
„Raddirdalsins" og „Lausavísur 1400-1900“ og kveðurrímur.
Þórir S. Guðbergsson, Áslaug S. Jensdóttir og Kristinn Halls-
son kynna bókina „Lífsgleði".
Lesið verður úr Ijóðabókinni „í andófinu" pólskum nútímaljóð-
um í þýðingu Geirlaugs Magnússonar og Ijóðasafninu „Til
móður minnar".
Tónlistaratriði:
Jónas Þórir leikur á píanó.
Helgi R. Einarsson og Jónas Árnason syngja þjóðlög við texta
Jónasar.
Stjórnandi og kynnir: Jakob Þór Einarsson leikari.
Gestir fá litla bókagjöf að kynningu lokinni. Aðgangur ókeypis.
Wicanders Kork- o *Þlast I
EF ÞÚ BÝRÐ ÚTI Á LANDI ÞÁ SENDUM VIÐ ÞÉR ÓKEYPIS
SÝNISHORN OG BÆKLING.
JKork'O-Plast er með slitsterka vinylhúð' og notað á gólf sem mikið
mæðir á, svo sem flugstöðvum og sjúkrahúsum.
Kprk'O'Plast er auðvelt að þrífa og þægilegt er að ganga á því..
Þ. ÞORGRÍ MSSON & CO
ÁRMÚLA 29 - REYKJAVÍK - SÍMI 38640
aðventuskrevtinzar
Jólastjörnutilboð
um þessa helgi ^ (TY^ 0/r%
1. flokks kr. 790,- Jv /0
Valdar kr. 490,- afsláttur
Einblóma kr. 250,- af jólatréskúlum
Opib frá kl. 9-21 alla daga
Næg bílastæöi (bílastæbahúsib Bergstabir)
Ékkert stöbumælagjald um helgar
Sjón er sögu ríkari
P.s. í tilefni dagsins: Jólaöl og piparkökur
[]» blómaverkstæði
WNNA*
SKOLAVORÐUSTIG 12, BERGSTAÐASTRÆTISMEGIN, SIMI19090