Morgunblaðið - 28.11.1993, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 28.11.1993, Qupperneq 30
30 MORGUNBLÁÐIÐ MINNINGAR SÚNNTJDAGUR 28. NÓVEMBER 1993 t Elskuleg mágkona mín og föðursystir GUÐLAUG ÁRNADÓTTIR, Eskihlíð 5, lést í Hafnarbúðum föstudaginn 26. nóvember. Fyrir hönd bræðrabarna og annara ættingja, Lydia Pálmarsdóttir, Helga Steinnunn Hróbjartsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MAGNEA MAGNÚSDÓTTIR, lést 18. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar og fósturfaðir, ÓLAFUR ÞÓRARINN SIGURJÓNSSON frá Litla-Hólmi, Leiru, lést í Elliheimilinu Garðvangi þriðjudaginn 23. nóvember. Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 30. nóvem ber kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Helgi Sigurjón Ólafsson, Sigríður Björnsdóttir. t Móðir mín, tengdamóðir og amma okkar, MARGRÉT KJARTANSDÓTTIR, Hrafnistu Reykjavik áður Laugateigi 38, lést 8. nóv. síðastliðinn. Úrför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Ingibjörg Sigríksdóttir, Halldór Levi Björnsson, Birna Ósk Björnsdóttir, Björn Halldórsson, Margrét Björnsdóttir, Helgi Björnsson. Minning Emma Finnbjamar- dóttir hjúkrunarkona Fædd 24. ágiíst 1906 Dáin 22. nóvember 1993 A morgun fer fram frá Akur- eyrarkirkju útför Emmu Finnbjarn- ardóttur, hjúkrunarkonu frá Hnífs- dal, sem mér er ljúft og skylt að minnast nokkrum orðum. Emma var dóttir Finnbjarnar Elíassonar, formanns í Hnífsdal og konu hans Halldóru Halldórsdóttur frá Arnardal. Eftir venjulega skóla- göngu í Hnífsdal fór hún í Hvítár- bakkaskólann sem þá þótti góð við- bót við skyldunám og reyndist mörgum dtjúgt veganesti. Nokkr- um árum síðar hélt hún til Dan- merkur að læra hjúkrun og veit ég ekki hvað leiddi til þeirrar ákvörð- unar ungrar stúlku úr vestfirsku sjávarplássi en hún mun hafa þótt nokkuð djörf á þeim tíma. Arið 1931 lauk Emma hjúkrunarnámi frá Maribo Amts- og Nakskov Sygehus. Hún stundaði framhalds- nám í geðhjúkrun og kom þrívegis hingað heim og vann á Kleppspítal- anum undir stjóm dr. Helga Tómas- sonar, sem sóttist eftir að fá hana til starfa og gaf henni frábær með- mæli er hún afréð að setjast að í Danmörku. Vann hún svo samfellt við hjúkrun á dönskum sjúkrahús- um tii ársins 1949, lengst við Kommuneholspitalet í Kaupmanna- höfn, þar sem hún gegndi stjómun- arstörfum um árabil. Árið 1935 giftist Emma dönskum mannmi Max H. Wigo en þau skildu eftir fremur stutta sambúð. Eignuð- ustu þau eina dóttur Sigrid Dag- mar, f. 27. júlí 1936. Arið 1949 verður svo sú mikla breyting á hög- um Emmu að hún flyst aftur til íslands og giftist föður mínum Osk- ari Sæmundssyni kaupmanni frá Akureyri, sem þá var ekkjumaður. Þar sem ég fylgdist ekki með að- draganda að kynnum þessa ágæta fólks, fannst mér þetta bera nokkuð brátt að og var satt að segja ekki við því búin að fá nýja húsmóður með unga telpu inn á heimilið. Var heldur betur hætta á því að erfiður unglingur á erfiðum aldri brygðist ekki vel við svo mikilli og óvæntri breytingu. En skemmst er frá því að segja að umsvifalaust sigraði þessi kona mig gjörsamlega með ástúð og hlýju sem aldrei brást upp frá því og engin leið er að þakka sem skyldi. Hún breytti öllu til góðs fyrir mig, föður minn og systur mína, Guðfinnu, sem hélt heimili í sama húsi um árabil eftir að Emma kom til okkar. Fimm börnum Guð- fínnu reyndist hún hin eina sanna amma og þótt í fjarlægð væri, sýndi hún síðar mínum bömum í Reykja- vík sömu ræktarsemi. Faðir minn ættleiddi Sigrid, dótt- ur Emmu, sem fékk íslenskt ríkis- fang og nafn, Sigríður Dagmar Óskarsdóttir. Hún er nú búsett í Bandaríkjunum, gift Gunnari Þórð- arsyni pipulagningameistara. Á Akureyri hélt Emma heimili með föður mínum og hugðist ekki stunda vinnu utan þess. En fljótlega eftir að Elli- og dvalarheimilið Hlíð tók til starfa var þess farið á leit að hún tæki að sér forstöðukonu- starfið þar í afleysingum. Féllst hún á það og sinnti því starfi um ára- bil. Af ýmsum ástæðum varð þessi afleysingavinna meiri en til stóð í fyrstu og oft gerðist það fyrirvara- laust að hún var kvödd til starfa. Hlýddi hún ævinlega kalli og má geta nærri hvílíkur ávinningur það hefur verið að geta alltaf gengið að svo reyndri og hæfri manneskju vísri. Var henni einkar sýnt um að sinna gamla fólkinu og naut hún vinsælda hjá því og einnig starfs- fólkinu og öðrum stjórnendum. Allt þetta fékk hún ríkulega launað er að því kom að hún þurfti sjálf á vist á Hlíð að halda og mikilli hjúkr- un undir það síðsta. Naut hún þar slíkrar alúðar og nærgætni og umönnunar í hvívetna af hálfu starfsfólksins að engin leið var að gera betur. Öllu því góða fólki sem þar á hlut að máli viljum við að- standendur Emmu færa einlægar þakkir. Áður er getið þeirrar gæfu fyrir okkur öll að Emma giftist föður mínum, en sjálfur hrósaði hann mestu happi og lá ekki á því. Sleppti hann því sjaldan er hann ræddi kosti hennar að geta þess að hún væri af vestfirskum sjósóknurum komin, eins og hann var reyndar sjálfur, en af öllum mönnum held ég að hann hafí metið vestfírska sjómenn, eins og hann þekkti þá, mest. Faðir minn lést árið 1970, 72 ára að aldri og hafði áður átt um hríð við veikindi að stríða. Reyndi þá mjög á Emmu og er skylt nú að leiðarlokum að þakka henni sérstaklega þann kafla, sem veitti föður mínum öryggi þar til yfír lauk. Eftir lát hans bjó Emma ein og þrátt fyrir veikindi sem ágerðust með árunum tókst henni með dyggri aðstoð systur minnar, Guðfínnu, og frænku okkar Huldu Þórarinsdóttur er bjó í sama húsi, að búa heima þar til fyrir örfáum árum að hún fluttist að Hlíð. Metum við sem þekkjum mikils allt það sem þessar tvær konur lögðu á sig fyrir Emmu. Gengin er góð kona og vamm- laus. Blessuð sé minning Emmu Finnbjarnardóttur. Magnús Oskarsson. t Útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, EVU PÁLMADÓTTUR, sem lést á Droplaugarstöðum 19. nóvember, fer fram frá Foss- vogskirkju þriðjudaginn 30. nóvember, kl. 15.00. Erla Elíasdóttir, Ágúst H. Elíasson, Halldóra Elíasdóttir, Sveinn H. Ragnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR KRISTJÁNSSON, áðurtil heimílis í Lönguhlið 13, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju miðvikudaginn 1. desember kl. 13.30. Guðrún Þ. Ólafsdóttir, Jón Kr. Ólafsson, Guðlaug Steingrímsdóttir, Jóna G. Ólafsdóttir, Guðmundur Þ. Björnsson og barnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, RÓSA PETRA JENSDÓTTIR, Bárugötu 37, Réykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunnunni þriðjudaginn 30. nóvember kl. 13.30. Ingibjörg S. Karlsdóttir, Sigfús Guðmundsson, Sigurbjörg K. Karlsdóttir, Valdimar Runólfsson, Svanhildur Karlsdóttir, Þórður Jónsson og barnabörn. Jón Ölafsson fv. deild arsljóri hjá Ríkisend- urskoðun - Minning Traust og hlýlegt handtak voru fyrstu kynni mín af Jóni Ólafssyni fyrir sextán árum síðan. Jón var stúpi mannsins míns heitins Brynj- ólfs Bjarkan. Jón var með eindæm- um hlédrægur maður og opnaði ekki faðm sinn fyrir hveijum sem var. Með auknum amfundum og traustum föskylduböndum þar sem barnabömin komu eitt af öðm, varð mér þó fljótlega ljóst að hjarta hans var fullt af ást og umhyggju til Blómastofa Friöfinm . Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sfmi 31099 Opið öii kvöld tíi kt. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öil tiiefni. Gjafavörur. okkar Binna og barnanna. Jón var einhver besti og vandað- asti maður sem ég hef kynnst og ég er stolt af því að hafa átt hlut- deild í hjarta hans. Jafnframt því að vera góður og greindur maður, var hann einstaklega fágaður á all- an hátt. Hann hafði næmt auga fyrir því sem hefur gildi og hins sem glepur. Hann var listhneigður mjög og hafði eina fallegustu rithönd sem ég hef séð. Málverk hans og teikn- ingar bera best vitni um þessa hæfíleika hans, en Jón gerði lítið úr þessum listhæfíleikum sínum. Enda er það oft svo með menn sem kunna að skilgreina góðar listir að þeir gera meiri kröfur til sjálfs sín en aðrir og vega og meta sjálfa sig eftir því. Sennilega hefur þessi yfir- vegaða hugsun Jóns í eigin garð orðið til þess að listrænir hæfileikar hans voru látnir víkja fyrir því starfi sem hann valdi sér. Jón var fagurkeri á bókmenntir jafnt sem annað og voru ljóð honum hugleikin. Hann talaði mjög fallegt mál og í viðurvist hans reyndum við öll að vanda málfar okkar, því að það var auðfundið að hann greip strax á lofti málvillur. Hann vildi hafa þar allt á hreinu, eins og ann- ars staðar. Jón var auðfús að kenna barnabörnunum rétt mál og góða siði. Ég vona að með þessum góða afa bamanna minna hverfi ekki það fagra og góða sem hann miðlaði þeim. Ég vil trúa því að börnin og ég munum alltaf njóta góðs af kynnum okkar við þennan yndislega mann. Hið fallega og snyrtilega heimili Maríu og Jóns stóð okkur Binna og börnunum alltaf opið og var okkur jafnan tekið fagnandi og með mikilli rausn, aldrei var neitt sparað til að gleðja okkur. Þetta voru hamingjutímar sem manni lærist að meta nú þegar sorgin hefur ríkt um skeið. Ástin og um- hyggjan sem Jón og María hafa gefið börnum og barnabörnum verður seint þökkuð. Með þessum fátæklegu orðum langar mig að þakka allt það góða sem Guð hefur gefíð okkur. Elskulegri tengdamóður minni, Maríu Brynjólfsdóttur, sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Guð- mundur og Tinna, megi almáttugur Guð gefa ykkur styrk. Dóra og börn. Jðfúð ■ ruzrgcetni - fitýfiugur Útfararþjónustan Rúnar Geirmimdsson útfararstjóri símar 67 91 10 og 67 27 54

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.