Morgunblaðið - 28.11.1993, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1993
33
Vestur-Barða-
strandarsýsla
Starfsdag-
ur grunn-
skólanna
Tálknafirði.
SAMEIGINLEGUR starfsdagur
kennara í grunnskólum V-
Barðastrandarsýslu var haldinn
um síðustu helgi í Grunnskóla
Tálknafjarðar. 35 kennarar af
svæðinu hlýddu á fyrirlestra og
fjölluðu sín á milli um kennslu-
gögn og ýmislegt annað varð-
andi kennslu.
Það voru kennarar úr Grunn-
skóla Rauðasandshrepps, Barða-
strandarhrepps, Patreksfjarðar,
Tálknafjarðar og Bíldudals sem
fjölmenntu til Tálknafjarðar á
starfsdaginn. Var þetta fyrsti
starfsdagur sinnar tegundar á
svæðinu, en sameiginlegir fundir
höfðu verið haldnir fyrir nokkrum
árum.
- Helga.
-----♦ ♦ ♦----
■ HAFNARFJARÐARGANGA
Hraunbúa, sú tuttugasta í röð-
inni, verður sunnudaginn 28. nóv-
ember kl. 14. Gengið verður frá
Hraunbyrgi, húsi skátafélagsins
Hraunbúa, undir stjórn Árna Hjör-
leifssonar, bæjarfulltrúa. Farið
verður um göngustígana í Norður-
bænum og endað í slökkvistöðinni
við Flatahraun og hún skoðuð.
■ LJÓSMYNDASÝNING verð-
ur haldin í borðsal þjónustu-
kjarna Sunnuhlíðar, Kópavogs-
braut 1, til 1. desember. Sýningin
er tvíþætt. I fyrsta lagi eru sýndar
myndir tengdar sögu og þróun
byggðar í Kópavogi 1900-1964
og í öðru lagi myndir úr atvinnu-
lífi þjóðarinnar á ofanverðri síðustu
öld og fyrri hluta þessarar aldar,
einkum landbúnaði, fiskvinnslu og
útgerð. Að sýningunni standa:
Sunnuhlíðarsamtökin, Ljósmynda-
safn Reykjavíkurborgar og hús-
stjórnirnar að Kópavogsbraut 1A,
Kópvogsbraut 1B og Fannborg 8.
Sýningin er opin í dag frá 14-18
og virka daga frá kl. 16 til 18.
Morgunblaðið/Helga Jónasdóttir
Frá samstarfsdegi grunnskólanna í V-Barðastrandarsýslu,
Nýdönsk kynn-
ir nýja plötu
HLJÓMSVEITIN Nýdönsk heldur
tónleika í Þjóðleikhúsinu þriðju-
daginn 30. nóvember. Tilefnið er
geislaplatan Hunang sem sveitin
sendi nýlega frá sér og hyggjast
Nýdanskir flytja hana í heild á
tónleikunum.
Nýdönsk munu einnig flytja brot
af sínu besta efni og !ög af fyrri
breiðskífum sem ekki hefur verið
spilað mikið á tónleikum. Hljóm-
sveitin frumflytur nokkur lög úr
söngleiknum Gauragangi sem er eft-
ir Olaf Hauk Símonarson við tónlist
Nýdanskrar.
Tónleikarnir verða hljóð- og
myndritaðir í heimildarskyni því ekki
hefur verið mikið um rokktónleika í
Þjóðleikhúsinu.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.
(90/-/cjc}o
Saga Kvenréttindafélags íslands 1907-1992 skráð af SigríðiTh. Erlendsdóttur,
sagnfræðingi, er vandað heimilda- og uppsláttarrit. Rit sem ekki er
einungis saga eins félags heldur saga kvennabaráttu heillar aldar.
I bókinni eru um 500 myndir valdar af Björgu Einarsdóttur,
rithöfundi, og hafa margar þeirra ekki birst opinberlega áður.
Veröld sem ég vil er bók sem ætti að vera til á hverju heimili.
Bókin fæst hjá bóksölum um land allt.
Útgefandi og dreifingaraöili er
KVENRÉTTINDAFÉLAG ÍSLANDS
Túngötu 14, Reykjavík, sími 18156, bréfasími 625150.