Morgunblaðið - 28.11.1993, Page 48
I*/ Reghibundinn
/• spamaður
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna
ircgiiisilritaifrifr =
FORGANGSPÚSTUR
UPPLÝSINGASÍMI 63 73 00
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHOLF 3040/ AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 28. NOVEMBER 1993
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Sj ónvarpsbúnaður
Islenskt
fyrirtæki
aflar
tilboða
BRESKA sjónvarpsbúnaðarfyr-
irtækið TranSat á nú í samninga-
viðræðum við íslenskt fyrirtæki
sem hefur leitað tilboða í búnað
til sjónvarpssendinga.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er hér um að ræða „auð-
ugt íslenskt einkafyrirtæki" eða
nánar tiltekið fyrirtækjakeðju. Bún-
aðurinn, sem um er að ræða, er
-fyrir örbylgjusendingar á borð við
þær sem Fjölvarp notar til endur-
varps gervihnattasendinga.
Ekki fékkst staðfest um hvaða
fyrirtæki er að ræða. Ftjáls fjölmiðl-
un hf. hefur fengið úthlutað al-
mennu sjónvarpsleyfi. Einnig hafa
Fijáls fjölmiðlun hf. og Háskóli ís-
lands fengið hvert sína örbylgjurás-
ina til tilraunasendinga. Ekki tókst
að ná í forráðamenn Fijálsrar Tjöl-
miðlunar í gær.
Sjá bls. 21: „Yfir hundrað rás-
ir á Bretlandi..."
Afengis-
útsala á
Blönduósi
ÁFENGIS- og tóbaksverzlun
ríkisins hefur auglýst eftir
húsnæði undir vínbúð á
Blönduósi og samstarfsaðila
um rekstur verzlunarinnar.
I sveitarstjórnarkosningunum
sem fram fóru á Blönduósi 26.
maí 1990 voru bæjarbúar jafn-
framt spurðir að því hvort þeir
vildu að vínbúð yrði opnuð í
kaupstaðnum. Reyndust 405
vera því fylgjandi en 164 voru
á móti.
Aðventan gengin í garð
Morgunblaðið/RAX
FYRSTI sunnudagur í aðventu er í dag og í flestum kirkjum landsins verða sérstakar hátíðarguðsþjónustur af því tilefni. í dag hefst líka fyrir
alvöru bið yngstu kynslóðarinnar eftir jólunum og víst er að hún mun sjá til þess að kveikt verður á kertum aðventukransanna alla sunnudaga til jóla.
Endurskoðað frumvarp til lyfjalaga lagft fram á næstu dögum
Búist við deilum um há-
mark á smásöluverði lyfia
NÝTT frumvarp til lyfjalaga hefur nú verið afgreitt í þingflokkum
ríkisstjórnarflokkanna og verður líklega lagt fram á Alþingi í næstu
viku. Er það í meginatriðum sama efnis og frumvarp Sighvats Björg-
vinssonar fyrrverandi heilbrigðisráðherra sem mikill styrr stóð um
síðastliðinn vetur. Þó hefur verið komið til móts við áhyggjur lands-
byggðarmanna af lyfjaverslun í dreifbýli. Heimilt verður að synja
um nýtt lyfsöluleyfi í heilsugæsluumdæmum með færri en 5.000 íbúa
ef sljórn viðkomandi heilsugæslustöðvar leggst gegn því. Gert er
ráð fyrir auknu frelsi til að opna lyfjabúðir og hámark verður á
smásöluverði lyfseðilsskyldra lyfja og búast menn við átökum um
það ákvæði frumvarpsins.
Ferðavakinn fluttur út
til þriggja Norðuiianda
ÍSLENSKI Ferðavakinn hf. hefur sainið við Accson Information AS
í Svíþjóð um leyfi til að smíða, setja upp og nota íslenska tölvuupp-
lýsingakerfið fyrir ferðamenn í Sviþjóð, Noregi og Danmörku. Upp-
lýsingakerfið byggir á myndrænni framsetningu á ferðaupplýsingum
í tölvu með snertiskjá.
Kerfið hefur verið í notkun á tíu
■^töðum hér á landi síðastliðin sumur
undir nafninu Ferðavakinn. í ár voru
gerðar yfir 60 þúsund fyrirspurnir
þar sem notendur leituðu sér upplýs-
inga um gististaði og aðra ferðaþjón-
ustu. Er það 50% aukning milli ára.
Til Þýskalands
Framleiðsluleyfið fyrir Norður-
lönd felur í sér kost á að framselja
leyfið til Þýskalands, sex mánuðum
eftir að kerfið er komið upp.í Sví-
þjóð. Til að byija með er gert ráð
fyrir að 20 upplýsingatölvur verði
settar upp í Svíþjóð á flugstöðvum,
feijum og á öðrum ferðamanna-
stöðvum og ennfremur í sendiráðum.
Með samningnum sem gerður hafur
verið verður mögulegt að veita upp-
lýsingar um íslenskan ferðaiðnað á
ferðavökunum á Norðurlöndum.
Að undanförnu hefur ferðavakinn
eingöngu verið rekinn á sumrin en
framvegis verður þjónustan aukin
með heilsársáskrift. Verður hann
settur upp í innanlandsafgreiðslu
flugvallanna í Reykjavík, á Akur-
eyri, Höfn, Húsavík, Isafirði og í
Vestmannaeyjum og auk þess á
Umferðamiðstöðinni í Reykjavík, í
Staðarskála í Hrútafirði og hjá Upp-
lýsingaskrifstofu varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli.
Fyriitæki í lyfjadreifingu hafa
haft þungar áhyggjur af því hvernig
álagningarmálunum verður skipað í
nýjum lyfjalögum. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins verður ekki
kveðið á um hámarksálagningu á
hveiju stigi fram að smásölu. Apó-
tekum verður samt gert skylt að
versla með öll lyfseðilsskyld lyf sem
selja má hérlendis. Menn spyija hvort
innflytjendur og heildsalar geti ekki
hirt alla álagninguna áður en meðul-
in komast í lyfjabúðirnar. Einar
Magnússon deildarstjóri í heilbrigðis-
ráðuneytinu segir að gert sé ráð fyr-
ir að lyfsalar og heildsalar leysi þetta
með fijálsum samningum sín á milli.
Ef apótek verði ósátt við sinn hlut
geti þau t.d. flutt lyf inn framhjá
innlenda umboðsmannakerfinu. Með
tilkomu Evrópska efnahagssvæðisins
mun einmitt opnast fyrir svokallaðan
samhliða innflutning. Talið er að sú
breyting muni draga úr mun lyfja-
verðs í Evrópu sem ætti að þýða
lækkun hérlendis vegna þess að verð
hefur verið með hæsta móti á íslandi.
Frumvarpið gerir ráð fyrir því
samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins að núverandi handhafar lyfsölu-
leyfa haldi þeim. Ný leyfi verða bund-
in því skilyrði að umsækjandi sé
lyfjafræðingur með verslunarleyfi
eða með samning við handhafa slíks
leyfis. Hver leyfishafi má einungis
reka eina lyfjabúð og ber hann sjálf-
ur faglega ábyrgð á rekstri hennar.
Gert er ráð fyrir að takmarka veit-
ingar nýrra leyfa fram í mars 1995
til að gefa þeim apótekum sem nú
starfa aðlögunartíma.
Reglugerð um merkingar
iyfseðla
Allnokkrar deilur hafa verið í lyfja-
geiranum um reglugerðarákvæði um
merkingar lyfseðla frá 1. ágúst 1992.
Þá var læknum uppálagt að merkja
lyfseðla ýmist með „R“ eða „S“ eftir
því hvort afgreiða bæri nákvæmlega
viðkomandi sérlyf eða hvort selja
mætti ódýrasta samheitalyf. Ráðu-
neytismenn hafa reiknað út að fræði-
lega mætti spara allt að 600 milljón-
ir kr. á ári ef reglugerðin væri nýtt
til hins ýtrasta. Síðustu fimm mán-
uði ársins 1992 spöruðust að þeirra
sögn 80 'milljónir króna.
Heildsalar telja fyrirmæli ráðu-
neytis brot á vörumerkjalögum og
hafa kvartað til umboðsmanns Al-
þingis. Ennfremur hefur Trygginga-
stofnun ríkisins hótað að endurgreiða
ekki lyfseðla ef fyrirmæli stjórnvalda
eru virt að vettugi. í næsta dreifi-
bréfi heilbrigðisráðuneytisins verður
tilkynnt reglugerðarbreyting um
þetta efni sem tók gildi 20. nóvem-
ber þar sem apótekum er heimilað
að víkja frá reglunni um ódýrasta
samheitalyf ef sjúklingur hefur áður
verið á dýrara lyfinu og verkan lyfj-
anna er ekki sambærileg að öllu leyti.
Sjá bls. 10-11: Uppstokkun í
lyfjamálum