Morgunblaðið - 19.12.1993, Page 7

Morgunblaðið - 19.12.1993, Page 7
B 7 MORGUNBLAÐIÐ MANIMLIFSSTRAUMAR SUNNUOAGUR 1'9. DESEMBER 1993 JÓL OG áramót eru án efa sá tími ársins þegar við leyf- um okkur hvað mestan mun- að í mat og drykk. Og þó að mönnum beri auðvitað að gæta meira hófs varðandi hið síðarnefnda hvað magn varðar er ekki síður mikil- vægt að leggja smá metnað í vínið með matnum heldur en sjálfan matinn. Góð vm eru hins vegar því miður undantekningalaust nokkuð dýr og skiptir því miklu á efnahagslegum krepputím- um, þegar við höfum ekkert allt of mikið milli handanna, að vel sé vandað til valsins. Því verður hér á eftir ekki einungis lögð áhersla á gæði heldur einnig hvernig hægt er að fá frekar mikið fyrir tiltölulega lítið. Fyrir þá sem peningar skipta engu máli er bent á Mouton- Rotschild 1986 (til að geyma fram til jólanna 2005 eða svo) og Haut-Brion 1988 sem vel má neyta nú. VÍN/J vín vib meb hangikjöti? Til hátíðarbrígÖa að ber líka að hafa hugfast að íslensk jólamatseld hentar ekki ávallt mjög dýrum og fínum vínum. Saltað og reykt kjöt (s.s. hangikjöt og hamborgarhryggur) yfirgnæfír oft þau stórfenglegu blæbrigði, sem maður er að borga nokkur þúsund krónur aukalega fyrir og fyrirbæri á borð við brúnaðar kartöflur og rauðkál, þó að þau eigi í sjálfu sér allt gott skiliðj eru hálfgerðir vínmorðingjar. I þessum tilvikum er oftast betra að geyma dýru vínin til betra tækifær- is, þar sem þau fá að njóta sín, en velja í staðinn eitthvað ódýrara vín, sem þolir svolítið harkalega með- ferð. Dæmi um slík vín, sem hik- laust má mæla með, eru til dæmis Gran Coronas frá Torres (Cabernet Sauvignon á mjög hagstæðu verði miðað við gæði eða 1.020 krónur) eða þá Kaliforníuvínið Mondavi Woodbridge Cab. Sauv. (1.040). Með önd, kalkún eða góðu lambakjöti, að ekki sé nú minnst á villibráð á borð við ijúpu og gæs, má hins vegar vel fara að huga að nokkuð þyngri og flóknari vín- um. Þau þurfa hins vegar ekki endilega að vera rándýr. Það má vel fá þokkaleg Bordeaux-vín í rík- inu (því miður einungis á sérlista - en þau vín er þó hægt að panta hvert á land sem er) sem kosta í kringum 1.500 krónur. Þar ber kannski fyrst að nefna Special Réserve-vínið frá Jóni Ár- mannssyni í Chateau de Rions. Mér hefur persónulega fundist stand- ardvínið hans nokkuð dýrt miðað við gæði en þetta vín er ágætis kaup. Kostar 1.490 kr. eða einung- is 40 (!) krónum meira en standard- vínið þó að það hafi upp á töluvert meira að bjóða. Ekki er heldur verra að vínið er í nýjum mjög háum flöskum og því hið mesta augnayndi. Vínið sjálft skortir kannski helst meiri bragðfyllingu, á bak við alla eikina, en ef vínið fær að standa í nokkra klukkutíma (gjaman eftir umhellingu) nær það ágætu jafnvægi. í svipuðum verðflokki má einnig nefna Chateau Baret 1989 (1.430) og Chateau Belles-Graves 1988 (1.550 kr.). Hið fyrrnefnda, sem er frá Graves, er enn nokkuð tann- ínskt og þyrfti að opna með tölu- verðum fyrirvara, en hið síðara (sem er ekki frá Graves þrátt fyrir nafnið heldur Pomerol), er í fínu jafnvægi og einkennist meira af Merlot en Cabernet fyrir þá sem eru hrifnir af t.d. St. Emilion. Ekki má svo gleyma hinum frábæra Ástrala Lindeman’s St. George Cab. Sauv. sem er mikið, kryddað og tilvalið villibráðarvín. Ef menn eru svo loks reiðubúnir að fikra sig aðeins upp fyrir tvö þúsund króna markið er alvöru góðgæti í vændum. Persónulega tel ég einna bestu kaupin þessa stund- ina vera í Chateau Talbot 1983 (2.440 kr.). Þetta er gífurlega mik- ið vín, sem náð hefur allt að því fullum þroska og býður upp á ijöl- breytta og unaðslega upplifun varðandi ilm og bragð. Tvö ítölsk þungavigtarvín eru einnig komin inn í myndina í þessum flokki. Antinori Tignanello 1988/1989 (2.120 kr.) sem sýnir þarna og sannar að hin ítalska Sangiovese- þrúga getur vel keppt við betri Bordeauxvín. Árgangurinn 1989 er þar að auki tilbúinn til neyslu. Á aðallista ríkisins hefur loks einn- ig verið að finna Brunello di Mon- talcino (2.660), sem ekki síður heldur nafni ítalskrar víngerðar hátt á lofti. Nokkur mjög góð vín, aðallega Bordeauxvín, er að fínna í dýrari verðflokkum. Þau eiga það hins vegar flest sameiginlegt að þurfa nokkurra ára geymslu til viðbötar. Fyrir hina framsýnu og hagsýnu (eitt er víst - þau verða ekki ódýr- ari) er því núna rétti tíminn til að kaupa hátíðarvín framtíðarinnar. Til dæmis eru góð kaup í Cos d’Est- ornel 1990 (3.350) og Chateau Clerc-Milon 1988 (3.390). Eðli málsins samkvæmt hef ég fram til þessa fyrst og fremst fjall- að um rauðvín (þar sem á íslandi virðist nánast vera samasemmerki milli hátíðarrétta og kjötrétta). Ekki megum við þó trassa valið á hvítvíni með forréttunum. Fyrir þá sem ekki enn hafa uppgötvað hið frábæra Chilevín Santa Carolina Chardonnay (1.040 krónurl!) skal hér með bent á það. Þetta vín er bragðsprengja, án þess að fara yfir strikið, og getur att kappi við mörg mun dýrari vín. Fyrir þá sem vilja aðeins evrópskari elegans skal bent á hið „íslenska“ hvíta Special Réserve frá Chateau de Rions (1.490 kr.) Extra hátíðlegt Á engum öðrum árstíma en ein- mitt nú er neytt meira af virkileg- um eðaldrykkjum á borð við kampavín og koníak. Púrtvín ætti auðvitað einnig að vera í þessari upptalningu en því miður hefur skort hér á markaðinn háklassa árgangs púrtvín, svona 15-20 ára gamalt. Tvenn árgangs púrtvín eru í boði en þó að þau séu í sjálfu sér allt í lagi þá eru þau líka ekki mik- ið meira en það. Gott kampavín er hins vegar hægt að fá, sem betur fer, enda ómissandi á gamlárskvöld (og raunar oftar). Hiklaust ber að velja Brut eða mjög þurrt kampavín. Hinar sætari tegundir, Demi-Sec, eru nefnilega fyrst og fremst des- sertvín (og kannski fyrir Belga og Bandaríkjamenn). Þijár, allar mjög góðar, tegundir eru í boði: Veuve- Cliqout, Moet et Chandon og Mumm, á mjög svipuðu verði eða ca. 2.700-2.800. Blæbrigði eru hins vegar á stíl þessara þriggja kampavínshúsa og er langbest (og skemmtilegast) að prófa sig bara áfram þar til maður fínnur „sinn“ stíl. Hágæða koníak er svo auðvitað punkturinn yfír i-ið, annað hvort Napoléon eða XO. Tvenn Napoléon eru í boði (Camus og Frapin) og þrenn XO (Camus, Rémy-Martin og Hennessy). Líkt og við val á kampavíni ber við val á koníaki að hafa hugfast að í þessum klassa er í öllum tilvikum um hágæða vöru að ræða en stíll hinna mismunandi húsa er mismunandi. Héraðið Cognac skiptist niður í nokkur svæði, sem öll hafa sín sérkenni. Þau þijú þekktustu eru Grande Champagne, Petit Champagne og Borderies, sem umlykja borgina Cognac. Ef um er að ræða blöndu úr Grande og Petit Chamgagne heitir vínið Fine Champagne. í þann flokk fellur Rémy XO. í til dæmis Camus XO er hins vegar einnig töluvert af Borderies. Má almennt segja að Fine Champagne séu mildari og fínlegri en koníakið verður hins vegar meira um sig og öflugra, þegar Borderies kemur við sögu. eftir Steingrím Sigurgeirsson LÆKNISFRÆÐI///venær kemur þúf Hdlbrigði öllum tilhanda FYRR Á árinu var sagt hér frá kosningu hæstráðanda þeirrar stofn- unar sem á að vernda og bæta heilsufar alls mannkyns. Endurkjör japanska læknisins Hiroshi Nakajima til næstu fimm ára mæltist misjafnlega fyrir og ýmsum þótti sem stjórnun hans og starfshættir að undanförnu hefðu ekki átt slika viðurkenningu skilið. Nýverið ræddi Læknablaðið sænska við Lars Olof Kallings prófessor sem á síðustu þrem árum hefur verið aðalráðgjafi Heilsu- stofnunar þjóðanna í eyðnimálum. Hann er nú kom- inn aftur heim til Svíþjóðar og tek- inn við fyrra starfi sínu í stjórnarráð- inu. „Þetta umtal og blaðaskrif hafa snúist allt of mikið um persónu fram- kvæmdastjórans,“ segir Kallings. „Vandamálin sem stofnunin á við að glíma eru svo risavaxin að mér finnst umfjöllun þeirra í fjölmiðlum og manna á milli þurfa að vera málefnaleg en ekki á því kjaftasöguplani sem drepur mikilvægustu atriðum á dreif. Og víðtækar endurbætur á starfseminni eru líka á döfínni ein- mitt núna.“ Kallings tekur fram að Heilsu- stofnunin sé einfaldlega sérhæfður hluti af því bákni sem kallast Sam- einuðu þjóðirnar og hún eigi að vera til leiðbeiningar og stefnu- mörkunar í faraldsfræði- og læknis- fræðilegum efnum. Margir standa hins vegar í þeirri meiningu að hlut- verk hennar sé að leggja fram fé eða aðra beina aðstoð til ríkja sem þarfnist slikrar hjálpar; það gerir hins vegar Þróunarsjóðurinn og Alþjóðabankinn. Sá þáttur sem Heilsustofnunin leggur til er kunn- átta þeirra sem starfa á hennar vegum og kostnaður af slíkum rekstri er mikill, hjá því verður ekki komist. Sérfræðingar hennar eru yfirleitt í hæsta máta hæfir og vel undir starf sitt búnir og þekking þeirra á aðstæðum og þörfum van- þróaðra landa aðdáunarverð. Því er stundum haldið fram í áróðurs- skyni að þessu fólki séu greidd óhæfílega há laun og þar að auki njóti það ýmiss konar hlunninda. Fréttir af þessum toga stafa oftast af misskilningi eða þá af rangtúlkun og eitt er víst: Þessir starfsmenn ættu flestir kost á hærra kaupi og mun þægilegri aðstöðu ef þeir veldu sér annan vettvang til starfs. Um Nakajima segir Kallings að sumt af því sem um hann hafi ver- ið rætt og ritað mætti til sanns vegar færa. Hann komi ekki vel fyrir, sé óaðlaðandi og eigi erfitt með að skýra skoðanir sínar og hugmyndir sem séu þó oft ágætar. Að áliti Kallings ætti það að vera ófrávíkjanleg krafa að stofnunin tefli jafnan fram heilsufarslegum og siðfræðilegum markmiðum gegn þrýstingi stjómmála- og viðskipta- sjónanniða sem endalaust ota sín- um tota. Það á jafnt við um þær þjóðir sem teljast þróaðar og vel- megandi og hinar sem verr eru sett- ar. Skopmynd af Nakajima. Fyrir fimmtán árum lýsti Heilsu- stofnun þjóðanna því hátíðlega yfír að markmiðið væri „heilbrigði öllum til handa árið 2000“. Eftir því sem nær dregur aldamótum verður aug- ljósara hversu bamaleg sú bjartsýni var. En Kallings bendir á að þá hafi engan lifandi mann órað fyrir þeim hrikalegu breytingum í stjórn- málum, efnahags-, félags- og um- hverfismálum sem orðið hafa í ver- öldinni nú á hálfum öðrum áratug. Og ekki hafa þær allar orðið til að flýta fyrir að aldamótadraumurinn glæsilegi rætist í bráð. Rányrkja og mengun leika lausum hala og í fátækum löndum fjölgar mannfólk- inu jafnt og þétt. Það hrúgast sam- an í öreigahverfum borganna. En skortur og vanheilsa ráða þar ríkj- um. eftir Þórarin Guðnason GUCCl HÖNNUN SEM HEILLAR ÞIG GARÐAR ÓIAFSSON ÚRSMIÐUR ■ LÆKJARTORGI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.