Morgunblaðið - 19.12.1993, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.12.1993, Blaðsíða 20
20 B MORGUNBLAÐIÐ MENIUINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 < H30H ÞEIR gera það ekki endasleppt Einar og Hilmar Erair. Þó ekki hafí plata þeirra Second Coming sem gefín var út ytra síðsumars, selst í bílförmum, hefur henni verið vel tekið víða og fyrir skemmstu komst lag af plötunni, endurhljóðblandað, í þriðja sæti „techno“ listans breska. Lagið, Goldfish, heitir endur- hljóðblandað H3ÖH, en það er leiðtogi Haffler-tríósins breska, Andrew McKenzie, sem hljoð- blandaði lagið. Ekki er ljóst hvort þetta kallar á frekara samstarf Einars, Hilmars og Andrews, en gefur breiðskífu númer tvö frá Frostbite, eins og þeir kallast ytra, líkastil byr undir báða vængi, en fregnir herma að þeir“Séu þegar langt komnir með hana. Ernir Hilmar og Einar. Gullinn SAX UM ÞESSAR mundir fagnar Jóhann G. Jóhannsson 30 ára tónlistarmannsafmæli sínu. Þeirra tímamóta er minnst á ýmsan hátt og þar kemur við sögu plata Halldórs Pálssonar saxófónleikara sem heitir Gullinn sax. SONNUN þess að enginn sé spámaður í eigin föðurlandi er jassrokksveitin Mezzoforte. Sú hefur alla tíð átt undir högg að sækja á heimaslóð, en haldið vinsældum í á annan áratug ytra. Fyrir skemmstu kom út með Mezzoforte platan Daybreak sem minnir á gamla tíma og verður vonandi til að auka hróður sveitarinnar hér á landi. Mezzoforte fór í haust í frækna för til Suðaustur- Asfu, þar sem sveitin lék sem aðalnúmer á jasshátíðum. A heimleið brugðu liðsmenn sér í hljóðver í Danmörku og hljóðrit- uðu á mettíma breiðskífuna Daybreak. Friðrik Karlsson segir það hafa verið hárrétta ákvörðun að taka plötuna upp í lok Asíu- ferðarinnar, því þeir félagar vinni jafnan lítið saman hér heima og því kærkomið að spila sig saman í Asíutúmum, auk þess sem andinn í sveitinni hafi verið einkar góður þegar vinna hófst. Friðrik segir að fyrir vik- ið minni platan á gamla tíma hjá Mezzoforte, til að mynda sé hún hrárri, enda unnin á skemmri tíma, „við spilum meira á plötunni og notum lítið sem ekkert tölvur". Hann segir að það hafi verið verulega gam- an að taka plötuna upp, en það að gera Mezzoforteplötur hafi verið orðin hálfgerð martröð; menn hafi lagt of mikla vinnu í smáatriði og tónlistin hafi stundum lent í aukahlutverki. Friðrik segir að platan Day- break sé að mörgu leyti boðberi nýrra tíma fyrir Mezzoforte, starfsemi sveitarinnar hafi verið í lagmarki, þó ekki hafi hún verið hætt, en eftir að þeir félag- ar hafi kastað fyrir róða öllum tilraunum til að sækja inn á poppmarkað og tekið að gera það sem þeir gera best, hafi þeir uppgötvað spilagleðina aft- ur og hyggi á frekari sókn út á við. „Við sáum það úti að jass- markaðurinn er okkar markað- ur og við ætlum að einbeita okkur að honum. Nú er fram- undan að ganga frá útgáfu á plötunni ytra, en síðan erum við með ýmsa túra f sigtinu, Asíutúr og Skandinavíu- og Norður- Evróputúr." BOGOMIL- bandmynd MARGUR sá í Sjónvarpinu heimildarmynd Rogosjíns Pavlovitch um Bogomil Font og dularfulla ævi hans. Hitt vissu færri, þó sjá hefði mátt á grófri klipping- unni, að myndin var rækilega ritskoðuð. Spiia- gleði Mezzo- forte. Halldór hefur búið í Svíþjóð í fjölda ára og unnið þar með fjölda lista- manna. Hann hefur einnig leikið inn á fjölda hljómplatna, en Gullinn sax er fyrsta sólóskífan. Á Gulln- um sax leikur Halldór nokkur helstu lög Jó- hanns í útsetningu Bengts Lándkvists, þar á meðal Eina ósk, Við eigum samleið, Ég er að tala um þig og Ef ekki er til nein ást, aukinheldur sem Nils Landgren, sem komst fyrir skemmstu á risa- samning vestan hafs, syngur tvö lög, Whatch’a Gonna Do og það fræga lag Don’t Try to Fool Me. DÆGURTONLIST Hvab á aógeraf Bamajcl í ROKKFLÓÐI jólamia, sem er meira að vöxtum en oftast áður, fá börnin sitt. Þannig er slegist af kappi um að ná hylli þeirra með barnaplötum, ýmist metnaðarfullum plöt- um þar sem lögð er rækt og alúð við efni og umbúnað, eða barna/jólalögin eru rokkuð upp með hljómborða- graut og miklum glassúr. Sem betur fer hefur heldur hallað á seinni gerðina, en þeirri fyrri vaxið fískur um hrygg, þó fráleitt sé það öruggur gróðavegur að gera út á barnamið fyrir jóiin. Bamaplötuútgáfa og reyndar jólapiötuút- gáfa, sem skarast að nokkru, hefur verið áhættusöm og ekki alltaf hefur tek- ist að ná eyrum (les: aur- um) al- menn- ings. Þó er margt barna- platna um þessi jól og reyndar at- hyglivert að tvær þær helstu reyna að vera meira en bara plötur. eftir Ama Matthiosson Best selda bamaplatan um þessar mundir er Bamabros, sem þau standa að í sameiningu Pétur Hjaltested og María Björk Sverrisdóttir. Þau hafa fengið til liðs við sig grúa tónlistarmanna og söngv- ara, en meðal söngvara má nefna Maríu Björk sjálfa, dóttur hennar Söru Dís, Sigríði Beinteinsdótt- ur, Eddu Heiðrúnu Bach- mann og Egil Ólafsson. Til að auka söluvænleik plöt- unnar fylgir svo veggmynd af umslagi hennar, sem er einskonar myndskreyting við lögin. Önnur veigamikil barna- plata er plata Margrétar Ómólfsdóttur, Hvað á að gera. Öllu færri koma að gerð þeirrar plötu en þeirri fyrrnefndu, því hljóðfæra- íeikur er allur í höndum Margrétar, sem leikur á Morgunblaðið/Kristinn Myrkramaður Bogomil Font. Bogomil Font hefur verið á hvers manns vömm undanfarin misseri, en þó hefur almenningur lítið vitað um þennan söngfugl sem birtist óvænt, lagði lands- menn að fótum sér og hvarf síðan á braut. Meðal þeirra sem velt hafa vöngum yfír dularfullri ævi Bogomils er eistneski sjónvarps- maðurinn Rogosjín Pavlovitch sem brá sér hingað til lands og gerði heimildarmynd til að reyna að varpa ljósi á skuggabaldurinn og hljóm- sveit hans Milljónamæring- ana. Eins og áður segir var gróflega ritskoðuð útgáfa af myndinni sýnd í Sjónvarpinu fyrir nokkru, en nú hefur upp- mnaleg mynd, óklippt, óstytt og ómenguð útgáfa verið gefin út á myndbandi. píanó, harmonikku, víbrafón, marimba og ýmislegt slagverk, Möggu Stínu, sem leikur á fíðlu, og Jóns Ragnars Ömólfs- sonar, sem leikur á selló. Á Hvað á að gera em al- þekktar bamagæiur, þulur eða þjóðvísur og -lög, eða lög og Ijóð sem em orðin sígild. Með disknum fylgir bók í stóm broti, sem i em allir textar og þuiur plöt- unnar og Margrét mynd- skreytti. Af öðrum bamapiötum má nefna plötu þeirra Hemma Gunn og Rúnars Júlíussonar, Hemmi Gunn og Rúnni Júll syngja fyrir börnin. Á disknum eru ýmis þekkt lög, en alla texta samdi Rúnar fyrir plötuna. Þeim Hemma og Rúnna leggja ýmsir lista- menn lið, þá helst Þórir Baldursson, sem sá um úsetningar með Rúnari og leikur á þau hljóðfæri sem Rúnar leikur ekki á sjálfur, aukinheldur sem §öldi bama syngur á plötunni. Frægir þættir um Rób- ert bangsa þótti mikið bar- nagaman þegar þeir vom sýndir í Sjónvarpinu sælla minninga. Róbert var og vinsæl útvarpsstjarna og lög hans iðulega ieikin. Fyrir skemmstu kom svo út diskurinn Róbert í leik- fangalandi. Þar syngja ýmsir, þar á meðal Janis Carol, Egili Ólafsson, Sig- ríður Hagalín, Pálmi Gunn- arsson, Þórhallur Sigurðs- son og Helga Möller. Rokklingarnir vom gríð- arlega vinsæiir fyrir nokkr- um missemm og eimir víst enn af þeim vinsældum, þó ekki hafi komið neitt út frá þeim eðla flokki í nokkurn tíma. Fyrir stuttu gaf Skífan út safn með rokklingunum, Gamalt og nýtt, þar sem á em tvær nýjar lagasyrpur, önnur þar sem Rokkling- arnir bregða fyrir sig suð- rænni sveiflu og feta þá í fótspor Bogomils og millj- ónunga hans. Smiður jólasveinanna er ein af þeim piötum sem sækja inn á jóla- og bama- mið samtímis, því á plöt- unni er, eins og nafnið gef- ur til kynna, sagt frá Völ- undi sem smíðar gjafir fyr- ir jólasveinana. Verkið varð til í smiðju Möguleikhúss- ins, sem setti það upp og samdi í sameiningu, en tón- listin alla á Ingvi Þór Kormáksson. Sögumaður er Ragnheiður Steindórs- dóttir, en leikarar og söngvarar ýmsir, þar á meðal Jóhann Sigurðarson, Felix Bergsson, Alda Am- ardóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Leikgerð Ronju ræn- ingjadóttur eftir Astrid Lindgren hefur notið vem- legrar hylli á ijölunum und- anfarið og þó platan með Ronju sé ekki alveg ný af nálinni, er ástæða til að telja hana með. Á disknum er tónlist sem sá víðfrægi Sebastian samdi en söngv- arar era Sigrún Edda BjÖmsdóttir, Guðmundur Óafsson, sem gefur diskinn reyndar út, Jíihann Sigurð- arson og Olga Guðrún Ámadóttir. Utsetningar voru I höndum Sigurðar Rúnars Jónssonar en text- ana þýddi Böðvar Guð- mundsson. IrwvvvuTiifíTC QX 1 I L vuíTurTiImC 'íO/lVi 6£iVit-j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.