Morgunblaðið - 19.12.1993, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 19.12.1993, Qupperneq 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1'993 Bandaríski rithöfundurinn og blaða- maðurinn Susan Faludi hefur fengið konur til að endurmeta stöðu sína í jafn- réttismálum með bókinni Bakslagi jafnrétti er alltaf verið aðtalaum? eftir írisi Erlingsdóttur Þess spurði Susan Faludi í bók sinni „Backlash“ eða Bakslagi, sem olli straum- hvörfum meðal kvenna um allan heim þegar hún kom út fyrir tæpum tveimur árum. Þar staðhæfði hún að í kjölfar íhaldsbylgju þeirrar sem gekk yfir Bandaríkin og Evrópu í byrjun níunda áratugarins hafi réttarstöðu kvenna hrakað verulega og hin ýmsu þjóðfélagsöfl — auglýsendur, fjölmiðlar og sljórnmálahreyfingar — hafi meðvitað og ómeðvitað skað- að baráttu kvenna fyrir jöfn- un réttindum. Bókin vakti gífurlega athygli og skipaði höfundinum þegar sess með- al þekktustu kvenréttinda- kvenna heims en Susan Faludi er í dag án efa fremsti leiðtogi sinnar kynslóðar fyrir jafnréttisbaráttu kvenna. Susan Faludi er lifandi sönnun þess að maður skyldi aldrei dæma fólk eftir útlitinu einu saman. Lítil, grönn og síðhærð, brosmild með lágan róm og feimnisleg í fasi, minnir hún meira á saklausan menntaskótcinema en 34 ára gaml- an bráðsnjallan rithöfund og fræði- mann, sem átt hefur í kappræðum við helstu fréttahauka Bandaríkj- anna. Hana skortir ekki reynsluna úr fréttaheiminum heldur, en hún var blaðamaður á Wa.ll Street Journal áður en hún byijaði að skrifa Backlash og hlaut Pulitzer verðlaunin fyrir skrif sín fyrir blað- ið. Velgengnin hefur ekki stigið henni til höfuðs. Hún býr í lítilli íbúð í San Fransisco, rétt hjá Stan- ford-háskólanum, þar sem hún hef- ur að undanförnu lagt stund á sagn- fræði ásamt því að leggja drög að annarri bók — um karlmenn og áhrif þjóðfélagsins á þá. Hvað fékk þig til að skrifa „Back- lash“? Ég fékk hugmyndina þegar ég var fréttamaður á Wall Street Journal. Kveikjan var fréttir af rannsókn aðila frá Harvard og Yale háskólunum um giftingariíkur kvenna. Niðurstöðurnar úr henni fannst mér með svo miklum óh'kind- um að ég varð að athuga þær nán- ar. Þessi „rannsókn" leiddi í ljós að líkurnar á því að ógiftar, há- skólamenntaðar konur um þrítugt ættu eftir að ganga í hjónaband væru aðeins um 20%. Um 35 ára aldur, voru líkurnar komnar niður í 5% og aðeins 1,3% kvenna um fertugt gat vænst þess að ganga upp að altarinu. Þessar niðurstöður fengu gífurlega athygli í fjölmiðl- um, þetta var forsíðufrétt alls stað- ar, í öllum dagblöðum og tímaritum. Fréttaskýringaþættir og stóru fréttaþjónusturnar eins og Reuters og AP létu ekki sitt eftir liggja. Newsweek tímaritið sló þessu upp í stóra grein með þeirri fyrirsögn að eftir þrítugt væri líklegra að konur yrðu fyrir árás hryðjuverka- manns en að þær giftu sig! Þegar farið var ofan í saumana á þessari „rannsókn" kom í ljós að hún var í meira lagi ófullkomin og byggð á mjög litlu úrtaki. Síðari kannanir sem gerðar voru eftir þessa leiddu reyndar í ljós að líkurnar á að kona um þrítugt með þennan bakgrunn gengi í hjónaband voru um 60%. Þær niðurstöður þóttu samt ekki eins athyglisverðar og Harvard- könnunin, því þær fengu litla sem enga umfjöllun. Fleiri „rannsóknir" og kannanir á lífi og líðan kvenna vöktu einnig athygli mína, þar á meðal rannsókn sem fékk mjög mikla athygli á síð- asta áratug, frá læknablaðinu New England Journal of Medicine. Þar var greint frá því að eftir þrítugt stórminnkaði fijósemi kvenna, svo mikið að 40% líkur yæru á því að konur á milli 31 og 35 ára aldurs yrðu ófijóar. Blaðið lét ekki nægja að birta þessar niðurstöður, heldur ráðlagði konum einnig í ritstjórnar- grein að fara að „endurskoða verð- mætamat sitt“. Þessi „rannsókn“ komst einnig í hringiðu íjölmiðla, fékk mikla umfjöllun í fréttum og áður en árið var liðið voru kopur komnar með „líffræðilegu klukk- una“ á heilann í bókum, bíómyndum og sjónvarpsþáttum. Þessi könnun var byggð á litlu úrtaki og ijár- mögnuð af sama fyrirtæki og rekur mörg ófijósemisklínik í Evrópu, þannig að setja hefðu mátt fyrir- vara við niðurstöðurnar. Nokkuð síðar komu niðurstöður rannsókna frá bandaríska landlæknisembætt- inu þar sem fram kom að aðeins voru 13,4% líkur á að konur milli 30 og 40 ára aldurs ættu við ófijó- semiserfíðleika að stríða. En það var eins með þessa könnun og seinni hjónabandsrannsóknina — hún vakti enga sérstaka athygli. Auk þessa voru endalausar frétt- ir af hinum og þessum andlegu krankleikum sem áttu að þjá kven- þjóðina — þunglyndi, svefnleysi, alkóhólismi — og þetta virtist allt leggjast þyngst á útivinnandi kon- ur, og af miklum þunga væru þær einhleypar. Greinilega voru skila- boðin þau að konur hefðu ekki gott af þessu framabrölti úti á vinnu- markaðinum. Þú sakar fjölmiðla um að halda á lofti óvönduðum rannsóknum og að þeir láti hjá líðast að birta leið- réttingar eða vandaðri niðurstöður þegar þær liggja fyrir. Hvers vegna ættu fjölmiðlar að vilja halda þess- um skilaboðum að konum? Ertu að segja að það sé einhver skonar skipulagt samsæri í gangi? Alls ekki. Það væri reyndar þægi- legra að mörgu leyti ef við vissum af einhvers konar ráðbruggi í reyk- fylltu herbergi. Þá væri hægt að fara inn og komast að því hveijir stæðu að baki! Það eru hins vegar margir samverkandi þættir sem um er að ræða og enginn vafi á því að fjölmiðlar, sem eru mesti áhrifa- valdurinn í þjóðfélaginu, hafa átt stóran þáttt í að halda á lofti þeim kenningum að jafnréttÞog barátta kvenna fyrir því hafi skaðað þær. Á undanförnum áratug hefur verið ráðist á kvennahreyfinguna sem undirrót allra vandamála kvenna, henni hefur verið lýst sem úreltri og úr takti við tímann, jafnvel þeg- ar engar röksemdir hafa legið til slíkra ályktana aðrar en óljósar hugmyndir ritstjóra og fréttastjóra, byggðar á vafasömum rannsóknum, eins og ég nefndi áðan, um líf og líðan kvenna. Þegar nokkrir fjöl- miðlar byija svo að velta upp álykt- unum, vilja hinir ekki vera eftirbát- ar og .fyrr en varir er skriða fjölm- iðlaumfjöllunar búin að móta skoð- anir og hugmyndir fólks, og jafnvel skapa ótta. Fjölmiðlar á borð við The New York Times, Vanity Fair og Nation hafa hvað eftir annað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.