Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 13

Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 6 13 Fimbulfamb spilað í Kringlunni ÚT ER komið hjá Vöku-Helgafelli nýtt íslenskt spil sem ber nafn- ið Fimbulfamb. Um er að ræða nýstárlegan blekkingaleik sem byggist á útsjónarsemi og ímyndunarafli. Þátttakendur búa til sannfærandi skýringar á orðum sem þeir hafa ekki hugmynd um hvað þýða og læra um leið sjaldgæf íslensk orð, gömul og ný. Sá útsjónarsamasti, það er sá sem tekst best að blekkja mótspil- ara sína, fer með sigur af hólmi. Við söfnun orða í Fimbulfamb var það haft að leiðarljósi og þess vand- lega gætt að spilið yrði skemmtilegt en einnig að með spilum þess yki fólk orðaforða sinn og skilning á íslenskri tungu. í þessu augnamiði var víða leitað fanga og íj'ölmargir aðilar hafa lagt hönd á plóginn með aðstoð sinni við orðasöfnun. Meðal þeirra staða sem orðaleitin fór fram má nefna íslenska málstöð og Orða- bók Háskólans en þar eru á skrám tugþúsundur orða sem ekki eru til í orðabókum. Á báðum stöðum sýndi starfsfólk spilinu og vinnu að því, mikinn áhuga. Bækur hafa og gegnt stóru hlut- verki við gagnasöfnun svo sem Orðabók Menningarsjóðs og Orða- bók Blöndals, Orðsifjabók, allskyns íðorðasöfn og nýtt flugorðasafn, svo örfá dæmis séu nefnd. Skáldsögur og fræðirit hafa líka verið mönnum notadrjúg rit og í Fimbulfambi eru orð gömul og ný, allt frá því að vera ættuð úr íslenskum fornritum til nútímaslagorða í íslenskri tungu en öll sjaldséð. Að baki Fimbulfambi liggur gríð- arleg vinna íjölmargra aðila þau síðastliðin tvö og hálft ár sem liðin eru frá því hugmynd að spilinu kviknaði. Reikna má með að hátt í 40 manns hafi komið nærri gerð þess á einn eða annan hátt og er það athyglisvert að nánast öll sú vinna sem fram hefur farið við gerð Fimbulfambs hefur verið unnin hér á landi. Hugmyndin kviknaði hér, hönnun og útlit er alfarið íslenskt hugvit og sannast sagna er það einungis prentvinnsla sem fram fer í útlöndum, en hún er ekki fram- kvæmanleg hérlendis. Spilið Fimbulfamb var spilað í Kringlunni á föstudag. Chile Frei vinn- ur stórsig- ur í forseta- kosningum Santiago. Reuter. KRISTILEGI demókratinn Eduardo Frei vann stórsigur í fyrstu forsetakosningunum í Chile frá því herinn lét af völdum árið 1990. Frei fékk 58% atkvæða í kpsningunum um síðustu helgi en keppinautur hans, hægri- maðurinn Arturo Alessandri, fékk 24,39%. Dagblöð landsins fögnuðu úrslitunum, sögðu þetta mesta sigur í forsetakosn- ingum í Chile í 62 ár. Frei er 51 árs gamall og tek- ur við embættinu af flokksbróð- ur sínum, Patricio Aylwin, sem varð forseti þegar Augusto Pinochet hershöfðingi lét af völdum árið 1990. Frei verður forseti í mars en Pinochet, sem er nú 78 gamall, verður þó áfram æðsti yfirmaður hersins. Samkvæmt stjórnarskránni frá valdatíma Pinochets getur hann haldið því embætti til árs- ins 1997. Frei sagði í kosningabarátt- unni að hann hygðist beijast fyrir því að forsetinn fengi vald til að víkja yfirmönnum hersins frá. Faðir Frei var forseti en af- salaði sér völdum til marxista- stjómar Salvadors Allende árið 1970. Þremur árum síðar var Allende myrtur og herinn tók við völdunum. Fatahengi öðwviii kwföíf* SiufurLindjbraut 54 Bláa hiunnu v/Faxafcn dúni 682866

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.