Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 15

Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 15
afsláttur af jólatréskúlum Opið frá kl. 9-21 alla daga Næg bílastæði (bílastæðahúsið Bergstaðir) Ekkert stöðumælagjald um helgar Sjón er sögu ríkari P.s. I tilefni dagsins: Jólaiil ogpiparkökur Allar skreytingar unnar affagmönnutn blómaverkstæði NNA SKÓLAVÖRÐUSTÍG 12, BERGSTAÐASTRÆTISMEGIN, SÍMI19090 sig á að þótt kirkjan sé alltaf stað- ur til tilbeiðslu, þá sé hún líka stað- ur til samveru og til að gleðjast á.“ Tvöfalt trúboð Seint í haust kom út plata á veg- um Vegarins, Sálmur í C, sem Guðný og Drengirnir eru skrifuð fyrir. Guðný er Guðný Einarsdóttir, en Drengirnir eru Páll Elfar Pálsson og Óskar Einarsson. Guðný segir plötuna þannig til komna að allar trúhreyfíngar eigi sér söngbækur, sem í eru sálmar sem oft séu með miklum og góðum kveðskap og melódíum sem séu mjög fallegar. „Í seinni tíð eru menn farnir að syngja meira af styttri lögum, sem eru kallaðir kórar, sem eru einskon- ar viðlög. Okkur fannst því tími til kominn að hefja þessa sálma aftur til vegs og virðingar." Lögin á disknum eru öll jasskyns, en Guðný segir að þau hafí alls ekki farið af stað með jasssveiflu í huga, upphaf- lega hafi þau ætlað að gera sálm- ana aðgengilegri, en spila þó það sem þau langaði til. „Þegar við svo byijuðum að útsetja sálmana fund- um við alltaf fleiri og fleiri sálma sem hentuðu svo vel í sveifluna." Guðný segir fólk eðlilega hafa tekið því misjafnlega að heyra jass- aðar útgáfur af sálmunum, allt frá því að það hafi komið til þeirra og þakkað sérStaklega fyrir í það „að pabbi sagði: Þetta er gott, textinn heyrist vel, en hann er lítið fyrir jass“. Hún segir lika að unglingar hafi tekið þessu mjög vel og gripið sálmana strax og líklega miklu fyrr en ef þeir hefðu heyrt þá í hefðbund- inni útgáfu. „Þetta er tvöfalt trú- boð, jasstrúboð og kristilegt." Guðný segist að vitanlega • fari mjög eftir því hve margir kaupi plötuna hvort framhald verði á plötuútgáfu, þó þau séu að spila mikið og muni gera framvegis, en hún leggur áherslu á að í trúar- legri tónlist á íslandi séu til nánast allar gerðir tónlistar og fjölmargir frábærir listamenn. Fylling í sálina Krossgötur hefur rekið áfanga- heimili fyrir unga menn undanfarin sjö ár og á þeim tíma gefið út nokkr- ar plötur til að afla fjár, þó ekki hafi farið eins hátt og popphetjuút- gáfa. Fyrir skemmstu kom út platan Kom heim, sem Björgvin Halldórs- son stýrði upptökum á, en sá diskur er gefinn út til að safna fé fyrir fyrirhugað áfangaheimili fyrir stúikur. Magnús Gunnarssbn hjá Krossgötum segir að fram að þessu hafi sala á plötunum helst byggst á húsasölu, það er að sölumenn hafa gengið í hús og selt diskinn með góðum árangri. Hann segir að MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993 í þetta sinn hafí menn viljað reyna fyrir sér á hefðbundnari markaði, með því að dreifa plötunni almennt í plötubúðir og auglýsa hana eins hveija aðra poppplötu, enda standi hún öllu því sem nú sé gefíð út fyllilega jafnfætis í gæðum. „Við eru ekki með verri vöru en aðrir, reyndar erum við með bestu vör- una,“ segir Magnús og kímir, en segir svo alvarlegri, „við erum með tónlist með boðskap og við höfum fundið fyrir því að fólk er opið fyr- ir því að kaupa þessa plötu, þó það sé oft feimið við að kaupa tónlist með boðskap. Ég veit ekki hversu mikið við komum til með að selja núna, en það hefur gengið vel hing- að til og salan á plötunni á eftir að ganga vel fram eftir næsta ári, því við ætlum líka að ganga í hús til að gefa þeim kost á að kaupa plötuna sem hafa ekki tök á að nálgast hana í verslunum." Magnús segir það vissulega hafa sitt að segja hvað varðar söluvænleik Kom heim að á plötunni séu frábærir söngvarar, Björgvin sjálfur, Egill Ólafsson, Diddú og Guðrún Gunn- arsdóttir, og hann hafí spumir af því að þó það sé kannski það sem laði marga að þá skipti boðskapur- inn fólk miklu máli þegar það fer að hlusta og hann hafí heyrt frá mörgum sem segi það hafa góð áhrif á sig að hlusta á plötuna eft- ir erilsaman vinnudag. Magnús segir að ijölmiðlar hafí almennt tekið útgáfunni vel og það komi sér skemmtilega á óvart hve lög af plötunni séu mikið spiluð í útvarpi, sérstaklega sé mikið beðið um Sendu nú vagninn þinn, sem Björgvin syngur. „Það sem við leggjum áherslu á er að geta boðið þjóðinni aðgengilega vandaða vöm, því við viljum geta komið aftur og að fólk geti treyst því að það sem við séum að gefa út sé gott. Boð- skapurinn skiptir okkur þó mestu máli og við viljum að það fólk sem hlustar á Kom heim fái fyllingu í sálina.“ Töfrar Flest laganna á Kom heim em vel þekkt, negrasálmar og trúarlög sem margir þekkja úr sunnudaga- skóla æskunnar, KFUM, eða þá bara úr útvarpi, en þar á meðal er sálmurinn sem Magnús nefnir hér fyrir ofan, Sendu nú vagninn, sem Björgvin Halldórsson segir að menn hafí verið tvístígandi við að setja á diskinn, því það þekkja það svo margir í rytmískum flutningi Elvis Presleys, sem sé enginn leikur að leika eftir. Björgvin segist löngum hafa haft dálæti á trúarlegri tónlist og þá haldi hann mikið upp á gosp- elplötur Elvis Presleys. „Þegar rokkið kom fram var það undir miklum áhrifum af gospeltónlist svertingja og margir af helstu rokk- urunum voru mjög trúaðir. Stór- stjörnur erlendis hafa líka alltaf verið miklu opnari fyrir því að syngja trúarlega tónlist og þetta hefur verið snar og eðlilegur þáttur í lífi þeirra. Hér á landi er málum aftur á móti svo háttað að ef þú ferð að tala um guðs orð þá eru talinn einhver ofstækismaður eða sérvitringur." Björgvin segir að hann hafi lengi verið með í smíðum gospelplötu, búinn að velja að mestu lög á hana og setja niður fyrir sér hvernig hún ætti að vera og það hafí þvi komið á besta tima þegar menn hjá Kross- götum höfðu samband við hann og báðu um að hann sæi um upptökur og útgáfu. „Ég var þegar kominn með 80% af plötunni og þetta vannst því mjög vel.“ Björgvin seg- ir að það hafí verið afskaplega gam- an að vinna að þessari plötu, „þetta eru svo góð lög og það gekk allt svo vel upp. Ég gæti vel hugsað mér að gera aðra svona plötu ef tækifæri gæfíst til; boðskapurinn er líka svo góður og málefnið er gott.“ Björgvin segist hafa reynt síðustu ár að hafa textana sem hann væri að syngja vel orðaða og góða, en þetta sé einhvern veginn allt öðruvísi, „það eru töfrar í þessu og ég veit að það er mikill fjöldi af fólki sem hefur gaman af þess- ari tónlist og kann að meta boð- skapinn“. ÍbÁmi Skeifunni13 Auöbrekku3 Norðurtanga3 Reykjavík Kópavogi Akureyri Reykjarvikurvegi 72 Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.