Morgunblaðið - 19.12.1993, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1993
B 1Ö
Þýski seðlabankinn
„Þetta er bráðskemmtileg
saga, skrifuð af mikilli fimi
Málið fagurt og tært.“
Þjóðverjar á leið
út úr kreppunni?
„Hún er hverjum unglingi
holl lesning...“
Frankfurt. Reuter.
ÞÝSKI Bundesbankinn segir í mánaðarlegri skýrslu sinni,
sem gefin var út á þriðjudag, að svo virðist sem Þjóðverj-
ar séu á leið út úr efnahagskreppu síðustu ára, sem er sú
mesta frá því eftir stríð.
Bankinn bendir á að verg þjóðar-
framleiðsla hafi vaxið i Þýskalandi
undanfarna tvo ársQórðunga. Verk-
smiðjuframleiðsla jókst einnig um
nær 1% á þriðja ársfjórðungi þessa
árs. Þó að svo virðist sem botninum
hafi verið náð og að hagur þjóðar-
innar sé farinn að vænkast varar
bankinn þó við of mikilli bjartsýni.
Það sé enn of snemmt að segja til
um hvort endanlega sé búið að
vinna bug á kreppueinkennunum.
í skýrslu Bundesbankans kemur
einnig fram að verðbólga hafi
hjaðnað og dregið hafi úr vexti
peningamagns.
Margir hafa spáð því að Bundes-
bankinn muni lækka vexti enn á
ný fyrir áramót en á síðasta bankar-
áðsfundi hans, sem haldinn var 2.
desember, voru mikilvægir milli-
bankavextir festir í 6% þar til i
byijun næsta árs. Bankinn varaði
menn þó við að treysta of mikið á
að vextir yrðu lækkaðir enn frekar.
„Höfundur gerir efninu
meistaraleg skil, svo vel,
að mig munar í að fá
meira að heyra.“
Sigurður Haukur Guðjónsson, Mbl.
Washington-borg
Drykkjar-
vatnið er
hættulegt
na**SÍItií
ÍBÚAR höfuðborgar
Bandaríkjanna, Washing-
ton, voru nýlega varaðir við
að drekka kranavatnið
vegna þess að óhreinindi
fundust í vatninu, að sögn
danska blaðsins Berlingske
Tidende. Fólki var fyrst um
sinn ráðlagt að sjóða vatnið
í tíu mínútur fyrir neyslu.
Viðvörunin var birt í út-
varpi og sjónvarpi og olli því
að stórmarkaðir urðu fýrst í
stað að skammta flöskuvatn
vegna hamsturs.
Skömmu áður höfðu yfir-
völd reyndar sagt að fólk ætti
ekki að drekka vatn beint úr
krananum vegna þess að sums
staðar væri of mikið blý í því.
íbúunum var bent á að fá sér
vatnssíur eða láta sjálfir
kanna hvort vatnið væri í lagi.
Til að bæta gráu ofan á svart
hafa borgaryfirvöld skýrt frá
því að radíum streymi víða
upp úr jarðveginum upp í
íbúðarhús og geti valdið
krabbameini.
Washington-borg er nú á
barmi gjaldþrots vegna lélegr-
ar stjórnar, spillingar og fé-
lagslegra vandamála, segir
Berlingske Tidende.
® búnaðarbankinn
-Traustur banki
Ný þjónustafyrir nýja kynslóð
K L ETTAUTG A FA N