Morgunblaðið - 27.01.1994, Síða 38

Morgunblaðið - 27.01.1994, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANUAR 1994 VIÐURKENNINGAR Fréttapýramídar veittir í Ejgum Sigmund Jóhannsson, Lárus Jak- obsson og Lúðrasveit Vestr mannaeyja hlutu að þessu sinni við- urkenninguna fréttapýramídann, sem er veittur einstaklingum eða félagasamtökum fyrir vel unnin störf að ýmsum málum í Eyjum. Er þetta í þriðja sinn sem vikublaðið Fréttir veitir viðurkenninguna. Gripirnir eru smíðaðir og hannaðir af Grími Mar- inó Steindórssyni. Sigmund Jóhannsson, teiknari og uppfinningamaður, hlaut viðurkenn- inguna fyrir framlag sitt til atvinnu- og öryggismála sjómanna. Sigmund hefur hannað ýmis tæki sem notuð hafa verið í fiskvinnslu og Vélsmiðjan Þór í Eyjum hefur séð um að smíða. Þá kom Sigmund fyrst- ur fram með sjálfvirkan sleppibúnað fyrir björgunarbáta, Sigmundsgálg- ann, og- á síðasta ári var kynnt upp- finning hans sem kemur í stað björg- unarstóls og flýtir til muna björgun manna með fluglínutækjum. Einnig kom fram að nú vinnur Sigmund að hönnun neyðarbauju í báta sem sjálf- virkt mun senda frá sér neyðarblys ef bátur sekkur. Lárus Jakobsson hlaut viðurkenn- ingu fyrir framlag sitt til íþrótta- mála. Lárus er upphafsmaðurinn að Shellmótinu, knattspymumóti ungra knattspyrnumanna alls staðar af landinu, sem er árlega haldið í Eyj- um. Hefur Lárus séð um fram- kvæmd mótsins frá upphafí. Lárus Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Þeir tóku við fréttapýra- mídunum að þessu sinni. Frá vinstri: Sigmund Jó- hannsson, Stefán Sigpxr- jónsson og Lárus Jakobs- son. Notkun nýjasta björg- unartækis Sigmunds var sýnd. hefur einnig starfað mikið að málum meistaraflokks ÍBV í knattspyrnu í áraraðir. Lúðrasveit Vestmannaeyja hlaut viðurkenningu fyrir framlag til menningarmála í Eyjum en Lúðra- sveitin verður 55 ára á þessu ári. Stefán Sigurjónsson, stjórnandi sveitarinnar, tók við viðurkenning- unni. Hlaðborðið var hið glæsilegasta. Morgunblaðið/Jón Svavarsson SKEMMTUN Þorrablót í Valhöll Sjálfstæðismenn í Reykjavík héldu tóku vel til matar síns og sungu þorrablót í Vaihöll síðastliðið mikið. Eins og sést á annarri mynd- laugardagskvöld, þar sem menn inni var hlaðborðið afar glæsilegt. Óskar Friðriksson situr lengst til vinstri, en Katrín Gunnarsdóttir hallar sér fram á milli þeirra Guðmundar Hallvarðssonar og eigin- konu hans Hólmfríðar Öladóttur. ELSKUM ALI.A - ÞJONUM OLLUM HARD ROCK - SÍMl 689888 Reuter Hin rússneska Julia Kourotekkina, Ungfrú heimur 1993, opnar hér kampavínsflösku við opnunina. Roger Moore fylgist með og hefur gaman af. Fjölskylda Rogers Moore var öll saman komin í Sviss og dvaldist í viku í bænum Gstaad við skíða- iðkun áður en loftbelgjakeppnin hófst. Á myndinni eru börnin Deborah, Jeffrey og Christian, eigin- konan Luisa og sjálfur James Bond. LEIKARAR Roger Moore í loftbelgja- keppni Fyrrverandi James Bond-leikar- inn Roger Moore hefur átt við krabbamein að stríða og gekkst undir skurðaðgerð fyrir jól. Hann er þó kominn á fætur aftur og sl. sunnudag var hann viðstaddur 15. alþjóðlegu loftbelgjavikuna í Sviss ásamt allri fjöiskyldunni. Fólk frá 24 löndiim tekur þátt í hinum ýmsu keppnisgreinum, en keppninni lýkur á sunnudaginn. Þrátt fyrir að Rog- er væri hrókur alls fagnaðar voru menn sammála um að hann hefði látið á sjá eftir veikindin. Hann er kominn hátt á sjötugsaldur, nánar tiltekið 66 ára. COSPER Adam. Þig vantar C-vítamín.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.