Morgunblaðið - 06.02.1994, Síða 1
80 SIÐUR B/C
30-tbl. 82. árg. SUNNUDAGUR6. FEBRÚAR1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Morgunblaðið/RAX
________________SÓLARMEGIN SKARÐSHEIÐAR___________
Mannskæðasta grimmdarverkið til þessa í stríðinu í Bosníu
Tugir manna falla
í árás á útimarkað
Sar^jevo. Reuter.
Hmurinn heldur
átinu í skefjum
NÝLEG könnun í Bandaríkjunum gef-
ur til kynna að fólk sem hneigist til
ofáts geti haldið matarlystinni í skefj-
um með því að anda að sér lykt af
eplum, piparmyntum eða banönum.
3.193 manns, sem voru að minnsta
kosti fimm kílóum yfir kjörþyngd,
tóku þátt í könnuninni og önduðu að
sér slíkum ilmi þrisvar í hvora nös
þegar þeir fundu til hungurs. Rúmur
helmingur þátttakendanna - þeir sem
voru verst á sig komnir vegna ofáts -
léttist um 2-3 kíló á mánuði þann tíma
sem könnunin stóð, í hálft ár. Fólkið
borðaði einnig megrunarfæði og
stundaði æfingar á þessum tíma. Þessi
aðferð hafði aukaverkanir í einstaka
tilvikum, því nokkrir fengu asmaköst
og aðrir mígrenköst. „Versta auka-
verkunin sem kom upp var að sumir
léttust of ört,“ sagði dr. Alan Hirsch,
sem sljórnaði könnuninni.
Tóbakslaus eyja
fyrir reykfíklana
ÍBÚAR smáeyjunnar Lundy við
vesturströnd Englands hyggjast bjóða
upp á ferðaþjónustu sem byggist á því
að reykingamenn geti komið þangað
í sumarleyfinu án þess að hafa mögu-
leika á að kaupa tóbak. Gert er ráð
fyrir að fólkið geti komið með tóbak
með sér og minnki reykingamar smám
saman. Eina verslun og krá eyjunnar
selur ekki tóbak þannig að þeir sem
verða uppiskroppa með það geta ekki
keypt nýtt - nema þeir séu svo langt
leiddir að þeir syndi til næsta bæjar,
rúma 20 kílómetra.
Lagsi minn, þú
sem ert á himnum
ÞÓTT því hafi verið haldið fram að
pólitísk rétthugsun sé liðin undir lok
er enn til fólk sem berst gegn mál-
fari, sem er hefðbundið en samræmist
ekki alveg skoðunum fijálslyndra
menntamanna og fleiri. Rebecca Al-
pert, rabbíni í Fíladelfíu, er ein af
þeim sem heldur uppi baráttunni gegn
málfari og hugmyndum sem hún telur
einkennast af karlrembu. Hún vill að
þegar fólk talar um guð geti það not-
að orð eins og „hún“, „móðir“ og
„himnadrottning". Þá mælist hún til
þess að menn noti ekki orð sem „fela
í sér ójöfnuð milli hins háleita guð-
dóms og hins breyska manns“; í stað
þess að Iofa „drottin" og „herrann"
vejji fólk orð eins og „elskhugi, vinur,
lagsmaður og félagi".
TUGIR manna biðu bana þegar sprengju
var varpað á útimarkað í miðborg
Sarajevo í gær. Þetta er mannskæðasta
grimmdarverkið í stríðinu í Bosníu, sem
hefur staðið í 22 mánuði.
Talið er að Serbar hafi verið að verki, þar
sem serbneskar stórskotasveitir hafa setið
um borgina undanfarin misseri. Samkvæmt
fyrstu fréttum lágu að minnsta kosti 36
manns í valnum og talsmaður sjúkrahúss í
borginni sagði, að enn væri verið að flytja
þangað lík og dánartalan ætti því eftir að
hækka. Tugir manna til viðbótar særðust,
Sært fólk lá veinandi af sársauka í löngum
röðum á göngum sjúkrahússins og beið eftir
aðhlynningu lækna og hjúkrunarfólks, sem
gátu engan veginn annað þessum fjölda.
„Sprengjan lenti á borði á miðjum mark-
aðnum. Sumt fólkið tættist bókstaflega í
sundur,“ sagði einn sjónarvottanna. „Höfuð
og limir rifnuðu af líkömunum."
Sjónvarpið í Sarajevo sýndi myndir af
markaðnum eftir að sprengjan lenti þar um
klukkan 11.30 í gærmorgun. Lík lágu eins
og hráviði um markaðinn.
ENGINN mælanlegnr munur er á fylgi
Marttis Ahtisaaris, forsetaefnis jafnaðar-
manna, og Elisabeth Rehn, frambjóðanda
Sænska þjóðarflokksins, samkvæmt síðustu
skoðanakönnunum fyrir síðari umferð for-
setakosninganna í dag, sunnudag.
í fyrstu skoðanakönnununum eftir fyrri
umferðina var Rehn með mikið forskot á
Ahtisaari en þegar nær dró kjördegi vann
Ahtisaari á. Talið er að það geti bókstaflega
munað um hvert atkvæði í kosningunum.
Daginn áður höfðu Serbar drepið níu
múslima sem biðu eftir matargjöfum frá
hjálparstofnun í Dobrinje, úthverfi í Sarajevo
sem Serbar hafa setið um.
Kosningabaráttan hefur einkennst af því
að erfitt þykir að greina verulegan mun á
skoðunum Rehn og Ahtisaaris. Bæði eru þau
fylgjandi aðild Finna að Evrópubandalaginu
og í flestum mikilvægustu málefnunum eru
þau nánast sammála. Ahtisaari gerðist þó tals-
maður stjórnarandstöðunnar en Rehn hefur
stutt stefnu stjórnarinnar og gagnrýnt tillögur
Ahtisaaris um að skapa ný atvinnutækifæri
með því að taka erlend lán.
Sjá grein um kosningarnar á bls. 12.
Hnífjafnar kosningar
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.