Morgunblaðið - 06.02.1994, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1994
eftir Agnesi Bragadóttur
PÓLITÍSK átök eru hafin, innan bankaráðs Seðlabankans sem utan, um með
hvaða hætti skipa beri í þær tvær stöður seðlabankastjóra sem auglýstar hafa
verið lausar til umsóknar. Sighvatur Björgvinsson viðskiptaráðherra er reiðubú-
inn til þess að skipa Steingrím Hermannsson seðlabankastjóra, svo fremi sem
hann hljóti stuðning sjálfstæðismanna í bankaráðinu, sæki Steingrímur á annað
borð um stöðuna. Þannig telur ráðherrann að stjórnarflokkarnir í sameiningu
tækju ákvörðun um skipun Steingríms, jafnvel þótt fulltrúi Alþýðuflokksins í
bankaráði Seðlabankans, Ágúst Einarsson, formaður ráðsins, sé staðráðinn í að
segja af sér í bankaráðinu, verði Steingrímur skipaður. Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra hefur samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins sagt Steingrími að Sjálf-
stæðisflokkurinn vilji styðja hann í seðlabankastjórastöðu, en tvísýnna mun vera
um, hvort fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bankaráðinu vilji styðja Steingrím.
Allt eins má búast við því að þeir, a.m.k. annar þeirra, myndu víkja sæti úr
ráðinu og varamenn þeirra tækju afstöðu til umsóknar Steingríms. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins mun Steingrímur Hermannsson ekki sækja um
stöðu seðlabankastjóra, nema staðfest sé að hann hljóti atkvæði sjálfstæðismanna
í bankaráði. Málið er á viðkvæmu stigi og raunar eru svo miklar sviptingar um
skipan í stöðurnar, að segja má að pólitísk sprengihætta liggi í lofti.
Umsóknarfrestur um stöðumar tvær
er til fjórða mars næstkomandi.
Að því loknu mun bankaráðið fjalla
um umsóknirnar og veita síðan Sighvati
Björgvinssyni, viðskiptaráðherra, umsögn
sína. Það er Sighvatur sem lögum sam-
kvæmt skipar í stöðurnar og er óbundinn
af umsögn bankaráðs, og yrði niðurstaðan
sú að Steingrímur Hermannsson hlyti ein-
ungis eitt atkvæði í bankaráði Seðlabank-
ans, þá reyndist Sighvati afar erfitt að
skipa Steingrím, ekki síst í ljósi allrar
þeirrar umræðu sem fram hefur farið und-
anfarin misseri um pólitískar embætti-
sveitingar krata á þann veg, að þeir skipi
í stöður eftir því hvort viðkomandi eigi í
fórum sínum flokksskírteini í Alþýðu-
flokknum. Þótt ekki yrði um skipun á
flokksbróður að ræða, ef Sighvatur skip-
aði Steingrím, þá óttast kratar að skipun
hans yrði gagnrýnd, fyrir þær sakir einar
að hann er stjórnmálamaður. Þeir telja að
sú staðreynd að hann hefur verið forsætis-
ráðherra og efnahagsmálaráðherra í 7 ár,
muni hverfa í skugga einhverrar „krata-
spillingarumræðu" ef Steingrímur verður
skipaður án þess að hafa stuðning meiri-
hluta bankaráðsins.
Raunar er afar ólíklegt að viðskiptaráð-
herrann standi frammi fyrir slíkum kosti,
því Steingrímur sækir ekki um stöðuna,
samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins,
nema hann hafi fullvissu um vísan stuðn-
ing sjálfstæðismanna í bankaráðinu.
1
1
Sjálfstæóisflokkurinn styóur
Steingrim
Samkvæmt mínum upplýsingum líta
sjálfstæðismenn þannig á að náðst hafi
um það pólitískt samkomulag að Stein-
grímur verði skipaður seðlabankastjóri.
Þeir telja að Sighvatur hafi handsalað slíkt
samkomulag við Steingrím Hermannsson.
Þetta er ekki viðhorf viðskiptaráðherra,
sem mun hafa lýst því yfir við Steingrím
Hermannsson að hann telji að maður sem
búinn er að gegna embætti forsætisráð-
herra á fslandi, eins og Steingrímur hefur
gert, hljóti að teljast hæfur til að gegna
embætti seðlabankastjóra, burtséð frá því
hvort viðkomandi hefur aðrar stjómmála-
skoðanir en viðskiptaráðherra. Ráðherrann
telji samt sem áður, að ef það komi til
þess að hann veiti Steingrími starfið, þá
verði að liggja fyrir pólitískt samkomulag