Morgunblaðið - 06.02.1994, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1994
17
>
)
)
I
I
I
I
I
I
»
i
»
■
Steingrímur
Hermannsson
Ágúst
Einarsson
Guðmundur
Magnússon
Ólafur B.
Thors
stjómarflokkanna og Steingríms um þá
ákvörðun. Honum verði ekki fært að skipa
hann, nema sjálfstæðismenn greiði honum
atkvæði sitt í bankaráði, og samstarfs-
flokkur Alþýðuflokks í ríkisstjóm axli
þannig ábyrgð með Alþýðuflokki á þeirri
skipun.
Davíð Oddsson hefur lýst því yfir við
Steingrím Hermannsson að Sjálfstæðis-
flokkurinn muni styðja hann og sagt hon-
um að þessu fyrirkomulagi sé forysta Sjálf-
stæðisflokksins fylgjandi. Því blasir nú við
forsætisráðherranum, Davíð Oddssyni, það
verkefni, að sannfæra bankaráðsmenn
Sjálfstæðisflokksins um ágæti vilja flokks-
forystunnar. Samkvæmt mínum upplýs-
ingum verður það ekki létt verk. Raunar
útilokað, að minnsta kosti að því er Guð-
mund Magnússon varðar. Ef Ólafur B.
Thors þarf að velja um það hvort hann
greiði Steingrími Hermannssyni atkvæði
sitt, eða að víkja sæti, þá mun hann velja
síðari kostinn.
Ágúst Einarsson hefur gjaman verið
orðaður við seðalbankastjórastöðu, en
hann er staðráðinn í því að halda áfram
störfum sínum sem prófessor við Háskóla
íslands og hefur samkvæmt mínum upp-
lýsingum engan áhuga á að blanda sér í
slaginn um seðlabankastjórastól. Ágúst,
formaður bankaráðsins, fulltrúi Alþýðu-
flokksins í ráðinu, er staðráðinn í því að
segja af sér bankáráðsformennskunni,
verði niðurstaðan sú að Steingrímur Her-
mannsson verði skipaður seðlabankastjóri
og samkvæmt þeim upplýsingum sem ég
hef aflað mér, þá kemur það ekki til með
að skipta neinu máli í huga Ágústar, hvort
Steingrímur fær eitt atkvæði, tvö eða þrjú.
Hans sjónarmið munu vera svipuð og Ólafs
B. Thors - þeir áttu jú báðir mikinn þátt í
að semja nýja seðlabankafrumvarpið, sem
enn er óafgreitt í þinginu. Þeir munu telja
það löngu tímabært að unnt verði að vinna
sig upp innan bankans, alveg upp á topp-
inn. Þeir hafa talið að efla bæri sjálfstæði
Seðlabankans og að bankinn geti ekki
gegnt því hlutverki sem honum beri, nema
undir sterkri faglegri forystu.
Liklegt ad Guðmundur
Magnússon sæki um
Miklar líkur eru á því að Guðmundur
Magnússon sæki um stöðu seðlabanka-
stjóra og með því yæri hann að sjálfsögðu
vanhæfur til þess að íjalla um umsækjend-
ur í bankaráði. Með umsókn sinni, myndi
Guðmundur verða sér úti um fullkomna
afsökun og þyrfti ekki að gera ágreining
við formann sinn, vegna þess að hann
Steingrimur Hermannsson
mun ekki sækja um stöóu
seólabankastjóra, nema
anfama mánuði, og af þeim sökum taki
Alþýðubandalagið ekki þátt í því að við-
halda óbreyttu kerfí.
Brýning til viðskiptaráðherra
Innan úr Seðlabanka barst ákveðin
brýning til viðskiptaráðherra hér í Morgun-
blaðinu síðastliðinn fimmtudag, í greinar-
formi frá Bjarna Braga Jónssyni, aðstoðar-
seðlabankastjóra. Hann mælir eindregið
með að fagleg sjónarmið, ekki pólitísk,
verði látin ráða vali seðlabankastjóra. Úr
Seðlabanka er talið nokkuð víst að fjór-
menningarnir sem sóttu um síðast, þegar
staða dr. Jóhannesar Nordals var auglýst
laus til umsóknar, og Jón Sigurðsson var
skipaður, sæki um á nýjan leik. Þeir eru:
Eiríkur Guðnason, aðstoðarseðlabanka-
stjóri, Ingimundur Friðriksson, hagfræð-
ingur og aðstoðarmaður bankastjórnar,
Yngvi Örn Kristinsson, forstöðumaður töl-
fræðideildar, og Már Guðmundsson, for-
stöðumaður í hagfræðideild Seðlabankans.
Sæki Guðmundur Magnússon, annar
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bankaráði
Seðlabankans, um seðlabankastjórastöðu
eru margir þeirrar skoðunar, að erfítt reyn-
ist að hafna honum og er honum lýst sem
yfirburðaumsækjanda. Hann hafl faglega
yfirburði, einnig yfir þá menn sem nefndir
hafa verið til sögunnar innan bankans,
hann sé hámenntaður hagfræðingur, al-
þjóðlega þekktur, auk þess sem hann með
bankaráðsstörfum sínum þekki stofnunina
út og inn.
Formenn stjórnarflokkanna, þeir Davíð
Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson,
hafa enn ekki rætt þetta mál sín á milli,
enda mun vera afar lítið um að þeir ræði
saman þessar vikumar. Þá hafa engar
viðræður farið fram á milli forsætisráð-
herra og fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í
bankaráði Seðlabankans um málið og það
hvort þeir væru reiðubúnir til þess að
styðja Steingrím.
Kratar ■ klipu
Raunar má segja að kratar séu í mestu
klípunni í þessu átakamáli. Þeir líta þann-
ig á að kominn sé á samningur á milli
framsóknarmanna og sjálfstæðismanna,
sem Sighvatur, einn krata, eigi a.m.k.
hálfvolga aðild að, í blóra við vilja annarra
krata. Kratar sjá þennan samning á milli
sjálfstæðismanna og framsóknarmanna
sem mögulega brúarsmíði yfír í næstu rík-
isstjórn, eins og minnst var á í fréttaskýr-
ingu hér í blaðinu þann 16. janúar sl.
undir fyrirsögninnni „Haustkosningar?"
Það yrði þá ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks, þar sem kratar
stæðu utan stjórnar, en slíkt er ekki eftir-
sóknarvert í augum alþýðuflokksmanna.
Þannig telja alþýðuflokksmenn að með því
að taka þátt í þessari fyrirhuguðu brúar-
smíði á milli Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks, þá séu þeir um leið að grafa
sína eigin pólitísku gröf.
Fengnir til fylgis?
staöfest sé aö hann hljjóti
atkvæöi siálf stæöismanna
i bankaráöi Seölabankans
Davíð
Oddsson
Sighvatur
Björgvinsson
neitaði að styðja Steingrím. Ef Guðmundur
sækir um, tekur sæti í bankaráðinu vara-
maður hans, Davíð Scheving Thorsteins-
son, og þannig má segja að Steingrímur
væri þó að minnsta kosti búinn að tryggja
sér tvö atkvæði í bankaráðinu, vinar síns
Davíðs Scheving, sem jafnframt myndi að
líkindum vilja fara að vilja nafna síns í
forsætisráðuneytinu og Davíðs Aðalsteins-
sonar frá Arnbjargarlæk, fulltrúa Fram-
sóknarflokksins í bankaráðinu. Taki Ólafur
B. Thors þá ákvörðun að víkja sæti, þegar
og ef um Umsókn Steingríms Hermanns-
sonar verður fjallað í bankaráðinu, þá tek-
ur sæti hans Halldór Ibsen, formaður Út-
vegsmannafélags Keflavíkur, sem einnig
er talið líklegt að tæki fyrirmælum Davíðs
Oddssonar og þannig gæti Steingrímur
fengið 3 atkvæði.
Olíklegt er að fulltrúi Alþýðubandalags-
ins í bankaráði Seðlabankans myndi blanda
sér í atkvæðagreislu ráðsins um umsókn
Steingríms. Sá er Gunnar R. Magnússon,
endurskoðandi, sem tók sæti Geirs Gunn-
arssonar. Mun hann að líkindum sitja hjá
við slíka umfjöllun á þeirri forsendu að
það er yfírlýst stefna Alþýðubandalagsins
að fækka beri bankastjórum Seðlabankans
í einn, eins og formaður flokksins, Ólafur
Ragnar Grímsson hefur margítrekað und-
Eins og staðan er í dag, virðist því vera
um tvær leiðir að velja: Annars vegar að
láta málið ganga í gegn, og að flokksfor-
ysta Sjálfstæðisflokksins reyni að telja
fulltrúa sína í bankaráðinu á sitt band, eða
láta þá vera fjarverandi afgreiðslu banka-
ráðsins og kveðja til varamenn, sem af-
greiði málið eins óg flokkurinn vill. Ef
Stejngrímur fær þrjú atkvæði í bankaráð-
inu með þeim hætti, skipar Sighvatur hann
í stöðu seðlabankastjóra. Ágúst Einarsson
segir þá af sér bankaráðsformennsku, og
líklegt má telja að a.m.k. annar fulltrjji
Sjálfstæðisflokksins gerði slíkt hið sama.
Hinn kosturinn snýr fyrst og fremst að
viðskiptaráðherranum, sem þyrfti þá að
gera Steingrími Hermannssyni grein fyrir
því, að það þýddi ekkert fyrir hann að
sækja um, því ekki væri hægt að tryggja
honum meira en eitt atkvæði.
Raunar hef ég upplýsingar um að Sig-
hvatur átti samtali við Steingrím Her-
mannsson um þetta mál síðastliðinn
fimmtudag, og niðurstaða þess samtals
var í þá veru að Steingrímur ætli ekki að
sækja um nema hann eigi meiri stuðning
í bankaráðinu vísan en atkvæði Davíðs á
Ambjargarlæk. Það mun hafa komið
Steingrími nokkuð í opna skjöldu, að af-
staða fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í bank-
aráðinu væri þessi, því hann leit á þetta
sem svo gott sem frágengið mál, eftir
samtal sitt við forsætisráðherra. Fái Stein-
grímur enga staðfestingu á vísum stuðn-
ingi sjálfstæðismanna í bankaráði Seðla-
bankans, eru því engar líkur á því að hann
sæki um stöðuna.
Bakverkir?
Nýtt námskeið að hefjast. Námskeiðið er ætlað einstakl-
ingum með iangvinna bakverki.
Námskeiðið hefst þann 14. febrúar og fer fram tvisvar í
viku í þrjár vikur (alls 26 kennslustundir).
Markmið: Bæta líðan, úthald og starfsgetu.
Minnka streitu og auk skilning á eðli bak-
verkja og áhrifa þeirra á einstaklinginn.
ítarleg bók um bakverki og önnur kennslugögn fylgja.
Leiðbeinendur: Dr. Eiríkur Líndal, sálfræðingurog Anna K.
Kristjánsdóttir, sjúkraþjálfari.
Fræðsluerindiflytja: SigurðurThorlacius, sérf ræðingur í
taugalækningum og Guðmundur Björnsson, yfirmaður Heilsu-
hælisN.L.F.Í.
Skráning fer fram á kvöldin í simum 643412 og 75033 og
því lýkur föstudaginn 11. febrúar. Greiðslukortaþjónusta.
LAUGAVEGI 49
HELDUR ÁFRAIM
i Renton
Tvöfaldur galli með bómullarfóðri.
Blár, nr. XS-XXL.
Verð 2.390,- (áður 6.950,0
Úlpur 100% vatns- og vindhel
Dökkblátt, grænt. Nr. S-XXL.
Verð 3.990,- (áður 5.990,0
ANNAÐ T.D.:
Töskur, stuttbuxur, barnaskór, bolir, bómullarfatnaður o.fl. o.fl.
ATH! 10% afsláttur af öllum
öArum vörum verslunarlnnar
Við rúllum boltanum til þín.
Nú er tækifærið til þess að gera góð kaup.
Póstsendum
Laugavegl 49 • 101 Reyklavík • siml 12024
SPORTVÖRUVERSLUNIN1
SPRRTR
Smash alhliöa innanhússkór.
Nr. 31-46.
Verð 2.290,-
Nike lcanis hlaupaskór, Með
loftpúðum, dömu og herra. Nr. 36-48.
Verð 3.990,- (áður 5.900,0
Margar aðrar tegundir.
Puma uppháir skór
Nr. 40-47.
Verð 1.990,- (áður 3.490,0
Brooks, körfuboltaskór með
mjúkpúða í hæl.
Verð 5.990,- (áður 7.490,0