Morgunblaðið - 06.02.1994, Side 32

Morgunblaðið - 06.02.1994, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1994 Islenska bókasafnió vió Cornell-hóskóla i Iþöku Thomas Hickerson, (t.v.) forstöðumaður safns sjaldgæfra bóka og handrita við Cornell-háskóla í Iþöku í New York-ríki, ásamt Mark Dimunation, umsjónarmanni fágætra bóka. STJÓRN bókasafns Cornell-háskóla í New York-ríki hefur ákveðið að verja heilli stöðu til umsjár hins íslenska hluta þess í stað hálfr- ar áður og nýr umsjónarmaður, Patrick Stevens, tekur við íslenska safninu 1. mars. „Ég er þeirrar hyggju að nú þeg- ar bókavarðarstaðan er í höfn muni safnið halda megineinkennum sín- um og sögulegum heildarsvip," sagði Stevens í samtalið við Morg- unblaðið. „Stjóm bókasafnsins hef- ur lagt hart að sér til að efla safnið." Síðan í haust hefur staðið styrr um safnið, sem íslandsvinurinn, bókasafnarinn og auðkýfíngurinn Willard Fiske stofnaði og ánafnaði fé til í erfðaskrá sinni. Hefur verið látið að því liggja að Fiske-safnið væri að leysast upp og hverfa inn í háskólabókasafnið í Comell. Mótbárur Mitchells íslenska safnið, sem er næst stærsta safn íslenskra rita erlendis, var nýlega flutt í nýja bókasafns- byggingu Comell-háskóla, sem er í bænum Iþöku í ofanverðu New York-ríki. Þessir flutningarem rótin að þeim deilum, sem upp hafa kom- ið milli Patricks Mitchells, sem fyrir nokkra sagði af sér stöðu umsjónar- manns safnsins, og forstöðumanns safns sjaldgæfra bóka og handrita við bókasafn Comell-háskóla, Thomasar Hickersons. Mitchell vildi að íslensku bækum- ar yrðu allar geymdar á einum stað eins og verið hafði, en Hickerson taldi að betur færi á því að skilja að útlánsbækur og þær, sem ekki væra fallnar til útláns vegna verð- mætis eða fágætis. Þá rann Mitch- ell til rifja að rúmt ár leið frá því að stjóm Cornell-safnsins varð kunnugt um að hann hygðist láta af störfum án þess að eftirmaður hans hefði verið ráðinn og birtust þessar áhyggjur hans í Morgunblað- inu um miðjan desember undir fyrir- sögninni „Enginn gætir íslensku bókanna". Hickerson átti stóran þátt í því að umsjónarmaður Fiske-safnsins myndi gegna fullu starfí á ný. Að hans sögn kostaði það nokkrar til- færingar og breytingar á verksviði ýmissa starfsmanna safnsins, en hann kvaðst telja að flestir ættu að geta verið ánægðir með hið nýja fyrirkomulag. Hinn nýi umsjónarmaður Fiske- safnsins er því ekki ókunnugur. Hann réðst til starfa við Comell- safnið árið 1979. Með tilkomu styrks frá sjóði Bandaríkjastjómar til hugvísinda (National Endowment for the Humanities) vann hann við það 1970-80 að endurskrá íslensku bækumar eftir kerfí því, sem kennt er við bókasafn Bandaríkjaþings. Hann vann að nýju við að skrásetja bækur í Fiske-safninu frá árinu 1984 til ársins 1988. Stevens lærði fom-íslensku við Comell-háskóla hjá Guðrúnu Þór- hallsdóttur og íslensku við Háskóla íslands undir handleiðslu Margrétar Jónsdóttur. Hann hefur hins vegar lítið unnið við íslensku frá árinu 1988. Það ár réðst hann til starfa við Northwestem-háskóla og er reyndar nýkominn aftur til starfa við Comell. Hickerson tók fram að Stevens talaði íslensku ekki eins og innfædd- ur. Hins vegar hefðu sér verið skorð- ur settar þegar ákveðið var hver skyldi taka við umsjón Fiske-safns- ins af Mitchell vegna þess að hann vildí búa til eina stöðu í stað hluta- stöðu. Ekki hefði verið um lausa stöðu að ræða heldur tilfærslu á starfsskyldum og því ekki verið hægt að ráða utanaðkomandi um- sjónarmann. „Þegar Mitchell tilkynnti að hann ætíaði að setjast í helgan stein benti hann á íslending, sem var búsettur í Kanada og var að fara á eftirlaun í stöðu sinni þar,“ sagði Hickerson. Sá maður, sem Hickerson vildi ekki nafngreina, hefði verið í svip- aðri stöðu og Mitchell þegar hann tók við safninu fyrir sjö áram. Mitchell sagði í viðtali við Morgun- blaðið í desember að eftirlaun sín frá Ulinois-háskóla hefðu gert sér kleift að sjá um Fiske-safnið í hluta- starfi og sömu sögu hefði verið að segja um arftaka hans. „Það hefði ekkert verið auðveld- ara en að velja hann,“ sagði Hicker- son. „En það hefði einnig takmark- að starfssvið umsjónarmanns safns- ins fyrir fullt og allt. Umsjón þess á ekki að vera heiður heldur verk- efni, umboð til athafna." í ágúst á síðasta ári hófst um- ræða um það í stjóm bókasafnsins að gera umsjón Fiske-safnsins að fullu starfí. „Áður hafði ýmislegt staðið í vegi fyrir því, en nú vora aðstæður breyttar," sagði Hickerson. „Það var hins vegar ekki hægt að auglýsa þetta sem eina stöðu. Eina leiðin var að notast við það starfsfólk, sem var fyrir hendi." Verkaskiptinguna, sem komst á við Fiske-safnið, má rekja til þess þegar Vilhjálmur Bjamars sá um í varðveislu íjárhaidsmanns" og vextir af þeim notaðir „í þeim til- gangi að greiða kaup íslensks rit- ara, sem skal verja tíma sínum til að annast téð íslenskt safn, og skal vera borinn á íslandi, menntaður, eða menntaður að mestu á íslandi og hafa meðmæli til starfans frá rektor Latínuskólans í Reykjavík“. Fiske skildi einnig eftir sig Petr- arka- og Dante-safn, sem hvor tveggja era til húsa í safni sjald- gæfra bóka og handrita. Öndvert við hið íslenska safn fylgdu hvoragu þessara safna ákvæði um þjóðemi bókavarðar í erfðaskrá Fiskes. íslendingur hefur ekki séð um Fiske-safnið um nokkurt skeið og ekki er vitað til þess að rektor Menntaskólans í Reykjavík hafi haft hönd í bagga með ráðningu umsjón- armanna þess undanfarið. Arðurinn af þeim 30 þúsundum dollara, sem Fiske ætlaðist til að rynnu í vasa bókavarðar (Fiske not- ar orðið amanuensis í erfðaskránni og merkir það skrifari eða ritari), nemur nú um sex þúsund dolluram á ári að sögn Hickersons. Hann kveður þetta fé ekki hafa verið not- að til að greiða kaup bókavarðar um nokkurt skeið. Þess í stað hafí því verið varið til þess að greiða fararkostnað og uppihald eins ís- lensks fræðimanns í íþöku á ári. Sagði-hann að þeim væri upp á lagt að flytja eitt erindi, en styrkurinn væri að mestu ætlaður til að gera þeim kleift að sinna eigin rannsókn- um. Peningarnir til að greiða umsjón- armanni íslenska safnsins hafa ver- ið teknir af þeim hluta erfðafjár Fiskes, sem umsjónarmönnum bókasafnsins var leyft að ráðstafa að vild; og svo verður einnig um kaup Stevens. Þess má geta að það fé, sem Fiske kvað um að skyldi bera rentur til bókakaupa hefur ekki dugað heldur og hefur bóka- safnið notað hluta hins óráðstafaða Qár í erfðaskránni til að auka bóka- kost þess auk framlags íslenska rík- isins. Alls nemur óráðstafaði hlutinn 400 þúsund Bandaríkjadolluram og skal þriðjungur arðsins af þeim renna til bókakaupa, en tveir þriðju til starfsmannahalds. Hickerson kvaðst skilja afstöðu þeirra, sem vitnuðu til erfðaskrár- innar og vildu hafa umsjón safnsins í höndum íslendings. „Það stenst hins vegar ekki bandarísk lög og mundi flokkast undir misrétti að auglýsa eftir ákveðnu þjóðemi í stöðu," sagði Hickerson. „í framtíðinni verður hins vegar hægt að auglýsa þetta sem samkeppnishæfa og ábatavæn- lega stöðu, sem gæti freistað íslend- ings til að flytja yfír Atlantshafíð. Þótt ekki sé hægt að auglýsa eftir íslendingi má alltaf kreíjast þess að umsækjandi tali reiprennandi ís- lensku." (Það má taka fram að hvorki Stevens né Mitphell ræddu við blaðamann á íslensku. Stutt samtal við Mitchell hófst á íslensku, en /leiddist fljótt út í ensku.) Neðanjarðarsafn og alsjáandi myndavélar Árið 1990 var hafíst handa við að reisa nýtt bókasafn við Cornell og rúmum tveimur áram síðar var það opnað. Safnið er kennt við Carl A. Kroch, bóksala frá Chicago, sem gaf fé til byggingarinnar. Ákveðið var að húsið yrði niðurgrafíð, frekar en að færa það í útjaðar háskóla- svæðisins og tengist það aðalsafni skólans, Olin-bókasafninu. í Kroch-safninu er stór salur, sem líkja má við peningahólf í banka. Þar era geymdar þær bækur, sem Bókavöröur ráóinn i ffulla sfföóu það. Hann átti heilsu sinnar vegna erfítt með að sjá um allt safnið og þegar hann lést í upphafí síðasta áratugar var að sögn Hickersons ákveðið að koma á hlutverkaskipt- ingu milli umsjónarmanna safnsins. Þannig varð úr að einn maður sá um að skrásetja íslenskar og ger- manskar bækur og annar hafði umsjón með því í hlutastarfi. Næstur sá Louis Pitschmann um safnið og þegar hann hætti var ekki hægt að sameina hlutverkin tvö. Mitchell tók við af Pitsehmann. „Mitchell naut handleiðslu Hall- dórs Hermannssonar í námi,“ sagði Hickerson, en Halldór var fyrsti umsjónarmaður íslenska safnsins. „Mitchell sá um bókasafnið eins og hann hélt að Halldór myndi hafa gert það. Honum fórast bókakaup vel úr hendi, en aðgangur að safn- inu var vandamál." Þegar Morgunblaðið ræddi við Mitchell um ráðningu nýs bókavarð- ar greip hann til erfðaskrár Fiskes. Þar segir að „þrjátíu þúsund dollar- ar (30.000) skuli geymdir og varð- veittir, hin sama upphæð að eilífu, Morgunblaðið/Stefanía Þorgeirsdóttir Mark Dimunation í íslenska bókasafninu en á innfelldu mynd- inni sést búrið hið nýja. íslensku bækurnar, sem ekki er talið ráð- legt að lána út, eru geymdar ásamt munum frá flokksþingi repúblikana árið 1964. borgið Boston. Frá Karli Blondal, fréttaritara Morgunblaðsins. safninu Fiske

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.