Morgunblaðið - 06.02.1994, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1994
KORFUKNATTLEIKUR
Þeir bestu í NBA
HANN lét ekki tattóvera merki Supermans á brjóstkassann,
heldur á vinstri handlegginn; S-ið er merki Shaquilles O’Neal,
miðherja Orlando Magic, og tákn um mátt hans á vellinum og
markaðsmálum öllum. Hann hefur sett mark sitt á körfuknattleik-
inn í NBA-deildinni — um það efast enginn, en er hann besti
leikmaður deildarinnar? Einhverjir eru sjálfsagt þeirrar skoðunar
að „Shaq“ hafi tekið við af meistaranum sjálfum, Michael Jord-
an, en f nýjasta hefti bandaríska íþróttablaðsins Inside Sports
eru tólf valinkunnir þjálfarar og stjórnendur liða í NBA-deildinni
beðnir um að tiinefna þrjá bestu leikmenn í hverja stöðu. Þá
kemur í Ijós að Shaq er talinn þriðji besti miðherjinn. Hverjir eru
þá bestu leikmenn NBA? Nefndin hallast að Charles Barkley hjá
Phoenix Suns. Besti miðherjinn? Hakeem Olajuwon er allt í öllu
hjá Houston Rockets og Patrick Ewing stefnir að því að gera
New York Knicks að meisturum.
Eftir að nefndarmennimir tólf
höfðu útnefnt sína menn voru
atkvæðin talin þannig að sá er var
í fyrsta sæti fékk 5 stig, annar
besti leikmaðurinn í viðkomandi
stöðu fékk 3 stig og sá þriðji eitt
stig. Ef allir tólf voru sammála um
þann besta fengust 60 stig. Nú
skulum við skoða hverjir eru bestir
í NBA — að mati þessara sérfræð-
inga blaðsins.
MIÐHERJAR
1.-2. Hakeem Olajuwon
(35,5 stig) Hann átti frábært
leiktímabil 1992/93 og það kemur
Olajuwon í efsta sæti ásamt Patrick
Ewing. „Af miðheijunum í deildinni
er hann mesti íþróttamaðurinn og
hann er lagnastur við að koma
mótheijum sínum í vandræði, sama
hvort sem er í vörn eða sókn,“ sagði
einn nefndarmanna um Olajuwon.
„fif hann fengi eðlilega aðstoð fé-
laga sinna gæti hann vel orðið
meistari," bætti hann við.
Þannig fullyrðingar um Olajuwon
voru ekki daglegt brauð fyrir nokkr-
um árum þegar hann átti í eijum
við félag sitt vegna samninga auk
þess sem hann var oft meiddur. Það
hefur breyst, nú er hann óumdeilan-
lega í hópi þeirra bestu. Skilningur
hans á leiknum er allur annar en
áður og hann verður ekki lengur
sakaður um að hugsa of mikið um
eigin „statistik“ á kostnað samheija
sinna.
„Olajuwon hefur mikinn sprengi-
kraft, hann er sterkur og snöggur.
Hann ver mikið af skotum og tekur
mörg fráköst, og á því sviði hefur
honum farið mikið fram á síðustu
árum,“ sagði annar nefndarmaður
um hann.
1.-2. Patrick Ewing
(35,5 stig) Miðheiji Knicks er
dáður um allan heim fyrir styrkleika
sinn. „Mér fínnst Ewing alhliða
miðheiji. Hann leikur mjög vel und-
ir körfunni en getur einnig farið
utar og skotið af lengra færi. Hann
er frábær varnarmaður og hefur
bætt sendingarnar mjög mikið að
undanförnu. Enginn ætti heldur að
efast um hæfíleika hans sem leið-
toga,“ segir í umsögn eins nefndar-
manna.
Það efuðust reyndar margir um.
teiðtogahæfíleika Ewing, eða allt
þar til Pat Riley tók við sem þjálf-
ari Knicks og sagði að liðið kæmist
aldrei lengra en Ewing, og skoraði
þannig á kappann að taka við for-
ystuhlutverkinu innan liðsins. Ew-
ing gerði það og hefur síðan marg-
oft sýnt -að hann er traustsins verð-
ur. „Hann er ekki að grobba sig
af því að vera leiðtogi liðsins, held-
ur einbeitir sér að því sem þarf að
gera. Hann hefur sigurviljann og
þijóskuna sem þarf í þetta,“ sagði
annar.
3. Shaquille O’Neal
(17,5 stig) Ef mælikvarðinn sem
notaður er í þessari könnun væri
kraftur, þá væri Shaq í efsta sæti.
Hann er kraftmesti miðheijinn sem
komið hefur í deildina síðan Wilt
Chamberlain var og hét — og verð-
ur stöðugt kraftmeiri.
„Málið er ofureinfalt. O’Neal er
enn að læra hvemig leika á körfu-
knattleik," segir nefndarmaðurinn
frá Orlando. „Ég þekki hann vel
Tveir frábærir
HAKEEM Olajuwon hjá Houston, sem hér ver skot Shawns Kemp frá Seattle, er lagnastur miðheija við að koma
mótheijum í vandræði, hvort sem er í vörn eða sókn, segir í blaðinu. Charles Barkley, t.h., er líklega besti leikmaður
deildinnar í dag.
undanfarin tvö tímabil og lækkar
því á listanum. „Hann er sá fljót-
asti og ef varnarmenn koma of
nálægt honum þá er hann horfinn,"
sagði nefndarmaður.
Um Mouming sagði einn nefnd-
armanna að hann væri betri alhliða-
leikmaður en O’Neal. „Ég held að
hann eigi eftir að verða eins og
Bill Russel,“ sagði annar. „Hann
er mikill íþróttamaður og gerir
hvaða lið sem er betra en það er.
Hann er griðarlegur keppnismaður
og tekur hvem leik sem úrslitaleik.
Hann er nokkurs konar yngri út-
gáfa af Ewing, nema meiri íþrótta-
maður.“
„STÓRIR“ FRAM-
HERJAR
1. Charles Barkley
(56 stig) Astæða þess að Barkley
er settur í fyrsta sæti er að hann
var efstur á lista fimm í valinu um
stóran framheija (power forward)
og á fímm seðlum var hann valinn
besti skot-framherjinn (small forw-
ard). Barkley telst tvímælalaust til
stóru framheijanna því hann hefur
lengstum leikið í þeirri stöðu, en
það er auðvelt að misskilja þetta
því í vetur hefur hann leikið meira
í stöðu skot-framheija en áður
vegna þess að A.C. Green er kom-
ínn til liðs við Suns.
„Barkley hefur verið einn af
fímm bestu leikmönnum deildarinn-
ar undanfarin ár. Sem stór fram-
heiji er hann bestur eða næstbestur
og sem skot-framheiji er hann best-
ur,“ sagði nefndarmaður. Annar
sagði að það skipti ekki máli hvaða
stöðu Barkley léki, hann væri alltaf
stórhættulegur. „Hann er góður á
öllum sviðum leiksins og hann sýn-
ir það oftar en ekki. Undir körf-
unni, fyrir utan, kraftmikill, stór-
hættulegur þegar hann snýr að
körfunni og stoðsendingar ræður
hann vel við auk þess sem hann
og get því sagt ykkur að hann er
alltaf á tánum, tilbúinn eins og leik-
stjórnandi. Miðað við stærð þá full-
yrði ég að enginn hefur verið eins
lipur, eins snöggur og eins fljótur
og þessi ungi maður, sem er vel
að merkja aðeins 21 árs,“ bætir
hann við.
Það kom nokkuð á óvart að O’Ne-
al var ekki á sex af 12 atkvæðaseðl-
um nefndarmanna. Að hluta til
kemur það til af samkeppninni um
að vera bestur en einnig að margir
telja að hann kunni hreinlega lítið
í körfuknattleik, heldur hafí hann
einungis komist svona langt á
stærðinni og kraftinum.
„Það er ekki hægt að setja hann
í hóp með þremur til fjórum bestu.
Hann hefur ekki sýnt nægilega
mikið til þess. Hann verður að
sanna að hann sé tilbúinn að læra
eitthvað en ryðjist ekki bara áfram
á kraftinum einum saman. Það er
margt sem hann gerir illa í leiknum.
Hann skilur ekki leikinn nægilega
vel, hann getur ekki stokkið og
skotið sveifluskoti á sama tíma,
hann er hræðilega slakur á vítalín-
unni og hann gerir mikið af mistök-
um,“ sagði einn úr nefndinni.
Aðrir miðheijar sem fengu stig
voru David Robinson (12) og Al-
onzo Mouming (7,5). Þegar sams-
konar könnun var gerð í fyrra var
Robinson talinn besti miðheijinn en
hann hefur átt við meiðsli að stríða
Leidtogi og námsmaður
PATRICK Ewing, miðheiji New York, t.h., er mikill leiðtogi. Shaquille O’Ne-
al, t.v., hinn ungi miðherji Orlando, er hins vegar sagður eiga margt ólært.
skorar mikið og tekur mikið af frá-
köstum."
„Hann getur gert allt sem hann
langar til þegar inná völlinn er kom-
ið. Ég held að það sé enginn í deild-
inni sem nær í rauninni miklu betri
árangri en hann ætti að gera miðað
við stærð.“
2. Karl Malone
(41 stig) „Bréfberinn" er alltaf
að, daginn út og daginn inn. Það
má segja að hann sé dæmigerður
stór framheiji; stefnan er alltaf tek-
inn að körfunni og hann lætur ekk-
ert stöðva sig, stundum endar
ferðalagið því á vítalínunni. Hann
er einnig góður í fráköstum og hef-
ur bætt skot sín utan teigs verulega
á síðustu árum sem og sendingarn-
ar.
„Karl leggur sig allan fram í
hveijum leik. Hann er alltaf á fullri
ferð og hægir aldrei á sér. Leikur
alltaf á fullu,“ sagði einn úr nefnd-
inni. Stundum verður kappið meira
en forsjáin. „Þegar Karl leikur ekki
vel, lætur hann það fara í taugamar
á sér, og það sést greinilega. Malone
verður að hafa boltann, hann leikur
ekki vel án bolta," sagði annar.
3. Derrick Coleman
(16,5 stig) Metnaður Colemans
gengur stundum of langt, en enginn
efast um hæfíleika hans. Hann fékk
tvö atkvæði sem besti stóri fram-
heijinn á meðan Larry Johnson,
sem kom næstur á eftir honum
komst hvergi ofar en í annað sætið.
„Derrick ræður yfir mikilli tækni
og hann getur alltaf leikið á menn.
Miðað við hvað hann er flinkur með
boltann gæti hann vel verið leik-
stjórnandi, en hann leikur líka vel
undir körfunni, tekur mikið af frá-
köstum og er lunkinn við að veija
skot. Það eina sem hindrar hann
sem körfuknattleiksmann er skap-
gerðin, hún er ekki nógu góð.“
Aðrir sem fengu stig voru Larry
Johnson (10,5), Shawn Kemp (7),
Charles Oakley (3) og A.C. Green
(1). Jóhnson fékk atkvæði á sjö list-
um af tólf og meðal annars eitt
atkvæði sem skot-framheiji. „Hann
hefur marga af kostum Barkleys,
en hann hefur bara ekki verið eins
lengi að. Hann er góður maður
gegn manni og tekur einnig mikið
af fráköstum en hann á í dálitlum
erfíðleikum með að gæta stærstu
framheijanna. Á móti kemur að það
er erfítt fyrir alla að gæta hans.“
SKOT-FRAMHERJAR
1. Scottie Pippen
(28,5 stig) Pippen hefur mikla
hæfileika og getur með útsjónar-
semi sinni breytt gangi leiksins með
stórgóðum vamarleik og góðum til-
þrifum í sókninni. „Hann er fjaður-
magnaður og allt sem hann gerir
lítur út fyrir að vera svo auðvelt.
Hann getur skotið, og hefur bætt
langskot sín verulega. Hann getur
rakið boltann og komið með hann
upp völlinn auk þess sem hann er
góður vamarmaður. Það verður
fróðlegt að fylgjast með honum í
vetur sem leiðtoga Bulls,“ sagði
nefndarmaður.
Já, það verður gaman að sjá
hvort frábær frammistaða Michaels
Jordan hefur haldið aftur af Pip-
pen. Ef svo er þá ætti hann að
blómstra í vetur. „Það kemur í ljós
í vetur hvernig áhrif Jordan hafði
á Pippen. Nú hefur hann tækifæri
til að sýna hvers hann er megnug-
ur.“
2. Dominique Wilkins
(15 stig) Gagnrýnendur segja að
hann sé sjálfselskur og hugsi meira
um eigin hag og árangur en liðs
síns. Slíkar raddir hafa hins vegar
lækkað undanfarin ár. „Hann á trú-
lega heima í flokki með Olajuwon,
Barkley og Ewing. Það eru í raun-
inni engir veikleikar í leik hans,
nema hvað sendingar hans eru ekki
nógu góðar. Ég veit að menn hafa
sagt að hann sé sjálfselskur, en
hvers vegna á hann ekki að skjóta?
Hver er betri til þess?“ spyr einn
nefndarmanna.
Wilkins varð síðasti leikmaðurinn
til að vera stigahæsti maður NBA-
deildarinnar, áður en Michael Jord-
an tók við því „embætti" síðustu