Morgunblaðið - 06.02.1994, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
SUNNUDAGUR 6. FEBRUAR 1994
43
sjö árin. Hann er nýorðinn 34 ára
gamall en það virðist ekki hafa
áhrif á leik hans. „Þó hann sé að
eldast sem körfuknattleiksmaður
sést það ekki á honum. Hann er
ennþá snöggur og ætli hann verði
ekki stigahæsti leikmaðurinn í vet-
ur, ég gæti best trúað því,“ sagði
nefndarmaður.
3. Chris Mullin
(13,5 stig) Mullin og Detlef
Schrempf eru trúlega einu leikmenn
NBA sem hægt er að líkja við Larry
Bird. Mullin er frábær skytta —
trúlega sú besta í deildinni — og
hann er snöggur að skjóta. Fóta-
vinnan hjá honum er ekki góð en
hann bætir hana upp með frábærum
staðsetningum.
„Hann er talsvert líkur Bird, en
ekíri eins hár og hefur ekki eins
góðar sendingar. Þá var Bird sterk-
ari í fráköstunum. Mullin hefur
gott innsæi í leikinn og þeir eru
ekki margir sem skáka honum á
því sviði,“ sagði nefndarmaður.
Aðrir skot-framherjar sem fengu
stig voru Danny Manning (10),
Detlef Schrempf (9) og Dennis
Rodman (8). Rodman er athyglis-
verður leikmaður, á fleiri en einn
hátt. Það er sama hvort hann tekur
25 fráköst í leik eða litar hárið ljóst;
menn taka alltaf eftir honum.
„Hann er einstakur leikmaður, sér-
staklega í vörninni. Hann getur
leikið í mínu liði hvenær sem hann
vill, mér er sama þó hann geri ekki
eitt einasta stig,“ sagði stjórnar-
maður hjá Phoenix.
SKOT-BAKVERÐIR
1. Clyde Drexler
(29,5 stig) Fyrir tveimur árum
var Drexler talinn koma næstur
Michael Jordan, en eftir að hann
missti af 33 leikjum á síðasta tíma-
bili vegna meiðsla fóru að heyrast
efasemdarraddir. „Ef hann er heill
er hann trúlega sá besti,“ sagði
einn nefndarmanna. „Hann hefur
alla hæfileika sem til þarf. Hann
er leikmaður sem getur náð þre-
faldri tvennu."
Drexler er á vissan hátt óvenju-
legur leikmaður. Hann er líklegri
til að vinna leik með því að stela
boltanum, verja skot, taka frákast
eða gefa góða stoðsendingu, frekar
en með stökkskoti. Hann er frábær
varnarmaður og hættulegur í
hraðaupphlaupum. „Hann hefur
tapað nokkrum krafti og snerpu
vegna meiðslanna en þegar hann
er heill getur hann gert allt sem
þarf að gera í körfuknattleik," sagði
nefndarmaður.
2. Joe Dumars
(26 stig) Stöðugleiki hefur verið
vörumerki Dumars í gegnum tíðina.
„Það má alltaf treysta á hann.
Hann er besti varnarmaðurinn af
öllum skot-bakvörðum deildarinnar
og þegar þarf einhvern til að gera
út um leik á síðustu sekúndunum
þá er Dumars rétti maðurinn. Frá-
bær skytta, sérstaklega undir miklu
álagi. Fæddur sigurvegari," sagði
nefndarmaður.
Dumars er í uppáhaldi hjá öllum
sem koma nálægt NBA vegna þess
hversu fagmannlega hann tekur á
öllum hlutum. Hann hefur aldrei
verið ofarlega á lista þeirra sem
taka flest fráköst og hann er hættur
að keyra upp að körfunni eins og
hann gerði þegar hann var yngri,
en hann er enn góður, mjög góður.
„Öll skot hans líta vel út. Hann
getur gert út um leik uppá sitt eins-
dæmi og það lítur út fyrir að hann
eigi mikið eftir til að halda yngri
leikmönnum Pistons á varamanna-
bekknum," sagði einn nefndar-
manna.
3. Mitch Richmond
(20 stig) Leikur Richmond er eitt
af því fáa sem fylgismenn Sacra-
mento geta glaðst yfir. „Hann er
dæmigerður skot-bakvörður. Bæði
skorar hann mikið og hann er góð
skytta auk þess sem hann er fyrir
ofan meðaltal í fráköstum. Svo má
ekki gleyma því að Mitch hræðist
ekkert. Það vill enginn leika gegn
honum, nema þá að viðkomandi sé
heimskur. Það er engin tilviljun að
hann er kallaður „Klettur“, það á
ulfiuöia “iil'jsdrn9„ iv(j 6iv xcri nc
Fyrirmynd
JOHN Stockton, leikstjómandi Utah Jazz, er sagður fyrir-
mynd annarra leikmanna i þessari stöðu.
Óvenjulegur
CLYDE Drexler hjá Portland er talinn besti skot-bakvörður-
inn. Hann er um margt talinn óvenjulegur leikmaður.
Útsjónarsamur
SCOTTIE Piþpen hjá Chicago er sagður bestur skot-framheija. „Hann hefur
mikla hæfileika og getur með útsjónarsemi sinni breytt gangi leiksins með
stórgóðum varnarleik og góðum tilþrifum í sókninni," segir í greininni.
vel við hann,“ sagði nefndarmaður.
„Það eru ekki margir sem heyra
um hann en engu að síður er hann
góður leikmaður. Hann getur skotið
fyrir utan, það er mikill kraftur í
honum; góður vamarmaður og keyr-
ir óhræddur upp að körfunni. Mikill
baráttuhundur," sagði annar.
Aðrir sem fengu stig í vali skot
bakvarða vom Reggie Miller (11),
Dan Majerle (10) og John Starks
(8,5). „Það er kraftur í Majerle og
það þarf aldrei að tala við hann fyr-
ir leiki til að ná upp baráttu, hún
er til staðar. Hann er ómetanlegur,“
sagði nefndarmaður.
„Starks er ófyrirleitinn og bestur
þegar mest liggur við. Hann getur
orðið dálítið æstur en það hefur oft-
ar en ekki góð áhrif á liðið. Hann
er góður vamarmaður og það er
gott að leita til hans í fjórða leik-
hluta og láta hann skjóta," sagði
annar.
LEIKSTJÓRNENDUR
1. John Stockton
(43 stig) Svo virðist sem Stock-
ton sé að förlast því á síðasta tíma-
bili tókst honum ekki að senda
1.000 stoðsendingar, en því marki
hafði hann náð sex ár þar á undan.
Hitt ber að hafa í huga að Stockton
er eini leikmaður NBA-sögunnar
sem hefur gefíð 1.000 stoðsending-
ar tvö eða fleiri tímabil í röð. „Hann
er eiínþá fyrirmynd leikstjórnenda,
skapandi leikmaður sem er ef til
vill byijaður að dala aðeins, en
bætir það upp með mikilli reynslu
og víðsýni," sagði nefndarmaður. ^
2. Tim Hardaway
(28 stig) Hardawey hefði orðið í
fyrsta sæti væri hann ekki meidd-
ur. Sex nefndarmenn veittu honum
ekki atkvæði vegna meiðslanna en
sögðu að hann hefði verið á lista
þeirra undir venjulegum kringum-
stæðum. Það að ná öðru sætinu
þrátt fyrir að leika ekkert sýnir
hversu hátt skrifaður hann er.
„Tim er hinn fullkomni leik-
stjórnandi vegna þess hve líkamlega
sterkur hann e_r,“ segir einn sér-
fræðinganna. „Ég þekki engan eins
líkamlega sterkan í þessari stöðu."
Viðkomandi segir hann mjög
kraftmikinn leikmann, góða skyttu,
snjallan í gegnumbrotum og góðan
vamarleikmann. Blaðið segir það,
hvemig Hardaway rekur knöttinn
eldsnöggt með hægri og vinstri
hendi á víxl, þá hreyfíngu sem leik-
menn í deildinni óttist mest síðan
Kareem-Abdul Jabbar beitti sínum
frægu sveifluskotum. „Það eina
neikvæða við Hardaway er að hittn-
inni hefur hrakað jafnt og þétt síð-
ustu þijú keppnistímabil, vegna
þess að hann er farinn að skjóta
úr verri færum en áður. En samt,
segir einn nefndarmanna, „er erfið-
ara að veijast honum en nokkruríf
öðrum leikstjórnanda. Hann skelfír
andstæðingana með nærvem sinni,
vegna hraðans og styrkleikans sem
hann býr yfír.“
3. Mark Price
(12 stig) „Hann er líklega besta
skyttan í hópi leikstjórnenda," segir
einn sérfræðinganna. „Ég er mjög
hrifínn af skotum hans og hann er
alltaf á hreyfingu. Það er hægt að
treysta á hann í varnarleiknum, en
hann hefur lagt mikið á sig til a&■
ná jafn langt og raun ber vitni."
Blaðið segir Price tilbúinn að
axla ábyrgð og taka við stjóminni
á úrslitastundu. Hann sé frábær
þriggja stiga skytta og mikill bar-
áttujaxl. Árangur Cleveland Cavali-
ers síðustu þijú keppnistímabil var
undir 50%, þegar Price var illa fjarri
góðu gamni vegna meiðsla. Það sé
staðreynd að hann gjörbreyti liðinu
þegar hann leiki með.
Aðrir sem fengu atkvæði sem
leikstjómendur vom Kevin Johnson
(10), Steve Smith (7), Isiah Thomas
(5) og Kenny Anderson (3). Meiðsli
hafa plagað Johnson meira og minna
allan hans feril og koma í veg fyrir
að hann sé hærra skrifaður en raum-'
in er. „Hann er ekki jafn kraftmik-
ill og hann var, en engu að síður
enn frábær gegnumbrotsmaður,"
segir einn nefndarmaðurinn.
HiTACHl
HÁGÆOA SJÓNVARPSTÆKI
Hitachi er gamalreynt gæðamerki
Þessi nýju tæki eru uppfull af
tækninýjungum - ‘
28 tommu BlackMask Permachrome
flatskjár með CTI skerpufilter
Víöómur 2x30W ásamt djúpbassa-
hátalara (SubWoofer)
íslenskt textavarp meö topptexta
Aögeröir birtast upp á skjá
3 scart-tengi og S-VHS tengi
Hljómburöur og myndgæöi eru helstu
aðalsmerki Hitachi
Þú veröur aö koma til aö sjá og heyra'
SÉRSTAKT TILBOÐ
119.000=
GERÐ CL-2864 - RÉTT VERÐ KR. 144.000-
MUNALÁN, VISA OG EURO RAÐGREIÐSLUR
ihl ith II .1 iiii il.’.liiá.i«i1.,ÍÉ^i Lié»i..ii É,l ' ' ' ‘ '' 1 ' 'I
".iuobíT! | I9v naBfí i/í>Í9(| .obnBliO bt!
RÖNNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 68 58 68
■Íhmméhbh
nnerlniiiaaoifJuiroívlivTÍnGtiiTubS nö epofifrunl-JoáE uböle TT