Morgunblaðið - 20.02.1994, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1994
ERLENT
IIMIMLEIMT
Björk verð-
launuð
BJÖRK Guðmundsdóttir hlaut
tvenn verðlaun á Brit-hátíðinni í
Bretlandi í vikunni. Hún fékk verð-
launin sem besti alþjóðlegi nýlið-
inn og sem besta alþjóðlega söng-
konan. Voru það tvenn helstu
verðlaun hátíðarinnar sem haldin
er af hljómplötuútgefendum í
Bretlandi ár hvert.
Hafna að auka kvóta
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra hafnar hugmyndum
um aukna aflaheimild sem fram
kom í fyrirspum frá þingmanni
Kvennalista. Sagði hann að stjórn-
málamenn ættu ekki að láta undan
tímabundnum þrýstingi. Ekkert
hafi komið fram sem breytti þeim
forsendum sem lagðar voru til
grundvallar ráðgjöf Hafrann-
sóknastofnunnar á síðasta ári og
ákvörðunum stjómvalda.
Við fyrstu umræðu á Alþingi
um stjórnarfmmvarp um stjóm
fiskveiða hvöttu nokkrir stjómarl-
iðar til þess að skoðaðir yrðu
möguleikar á að auka þorskkvóta
á yfirstandandi ári. Sjávarútvegs-
ráðherra sagði fmmvarpið endur-
spegla niðurstöðu nefndar um
mótun sjávarútvegsstefnu, að rétt
væri að byggja áfram í grundvall-
aratriðum á því fiskveiðlstjómun-
arkerfi sem mótast hefði á undan-
fömum áratug.
Deilt um landbúnað
HARÐAR deilur hafa verið milli
stjómarflokkanna um breytingar
sem unnið hefur verið að í land-
ERLEIMT
Frumkvæði
Rússa
í Bosníu
BOSNÍU-Serbar hófu síðdegis á
fimmtudag stórfellda flutninga á
þungavopnum frá fjöllunum um-
hverfis Sarajevo og vöknuðu þá
vonir um ekki reyndist nauðsyn-
legt að hefja loftárásir á stöðvar
Serba i nágren'ni borgarinnar í
samræmi við hótanir aðildarríkja
Atlantshafsbandalagsins (NATO).
Frestur Serba til að flytja stór-
skotalið sitt á brott frá stöðvum
sínum í fjalllendinu umhverfis
borgina átti að renna út á mið-
nætti í dag, sunnudag, en tals-
mepn NATO lögðu áherslu á að
hótunin hefði ekki verið afturköll-
uð. Liðsflutningana hófu Serbar
eftir að Rússar höfðu lýst yfír því
að þeir væru tilbúnir til að senda
allt að 800 manna lið til Sarajevo
til að halda þar uppi friðargæslu.
Fréttaskýrendur bentu á að þetta
frumkvæði rússneskra stjómvalda
mætti heita sögulegt þar sem
þetta væri í fyrsta skipti frá því
að Sovétríkin liðu undir lok sem
hið nýja Rússland Iéti til sín taka
á alþjóðavettvangi. Milligöngu
Rússa var fagnað á Vesturlöndum
en talsmenn Bosníu-múslima létu
í ljós efasemdir um ágæti þess að
rússneskir hermenn héldu uppi
friðargæslu í borginni; þeir gætu
tæpast talist hlutlausir í Bosníu-
deilunni.
Landskjálfti á Súmötru
TALIÐ er að tæplega 150 manns
hafi farist og um eitt þúsund hafi
slasast er jarðskjálfti reið yfir eyna
Súmötru í Indónesíu á þriðjudags-
kvöld að staðartíma. Bandarískir
vísindamenn sögðu að styrkur
skjálfans hefði mælst 7,2 stig á
Richter-kvarða.
Viðskiptadeila magnast
BANDARÍSKIR embættismenn
skýrðu á þriðjudag frá því að til-
kynnt yrði um refsiaðgerðir gagn-
vart Japönum innan 30 daga þar
búnaðarnefnd Alþingis á búvöm-
lagafrumvarpi landbúnaðarráð-
herra. Segja sjálfstæðismenn að
breytingamar séu í samræmi við
samkomulag ríkisstjórnarflokk-
anna í desember síðastliðnum um
meðferð landbúnaðarmála en al-
þýðuflokksmenn telja breyting-
amar brjóta í veigamiklum atrið-
um í bága við samkomulagið.
Botnsdalsgöng
SÍÐASTA haft í Botnsdals-
göngum milli Ísafjarðar og Súg-
andafjarðar hefur verið sprent.
Heildarlengd ganganna frá munna
í Tungudal ísafjarðarmegin að
gangamunna í Botnsdal Súganda-
fjarðannegin er 4.715 metrar.
Samtals hafa verið sprengdir
5.530 metrar frá upphafi en eftir
eru 3.150 metrar af göngunum til
Breiðadals. Heildarlengd gang-
anna verður um 8.700 metrar.
Ekkert hefur verið sprengt í
Breiðadalsgöngunum síðan í júlí
vegna vatnsæðar sem þar opnað-
ist.
Fiskur til Frakklands
FRANSKIR tollverðir hleyptu bíl-
um með íslenskan fisk til fisk-
vinnslufyrirtækisins Nord Morue
í Frakklandi yfir landamæri
Frakk(ands og Belgíu. Framvísað
var belgísku heilbrigðisvottorði
um farm bílanna og tóku tollverð-
ir þau góð og gild. Daginn eftir
komst bíll í gegn á vegum Iceland-
ic France, dótturfyritækis Sölum-
iðstöðvar hraðfrystihúsanna í Par-
ís. Virðist því sem pólitískur þrýst-
ingur sem beitt var í Brussel hafi
haft einhver áhrif að mati Lúðvíks
Jónssonar, framkvæmdastjóra
fyrirtækisins.
eð þeir síðamefndu hefðu ekki
staðið við fyrirheit um að heimila
innflutning á farsímum. Deila ríkj-
anna magnaðist í vikunni en hún
er tilkomin sökum óhagstæðs við-
skiptajöfnuðar Bandaríkjamanna
gagnvart Japönum vegna meintr-
ar vemdarstefnu japanskra stjóm-
valda. Japanir kváðust ætla að
vísa deilunni til GATT-stofnunar-
innar og vísuðu á bug ásökunum
um óréttmæta viðskiptahætti.
Ópi Munchs stolið
NORSKIR
andstæðingar
fóstureyðinga
gáfu í skyn á
fímmtudag að
þeir hefðu
stolið einu
þekktasta
listaverki
heims, Ópinu,
eftir Edward Munch, úr Ríkis-
listasafninu í Ósló á laugardag.
Talsmaður þeirra lét að þvl liggja
að verkinu yrði skilað ef sýnd yrði
í norska ríkissjónvarpinu umdeild
mynd um fóstureyðingar. Stuldur-
inn þykir með ólíkindum en það
tók tvo þjófa aðeins um 50 sekúnd-
ur að fjarlægja verkið úr safninu
og hafa öryggisráðstafanir þar
verið harðlega gagnrýndar.
Bretadrottning til Rússlands
TILKYNNT
var á miðviku-
dag ,að Elísa-
bet II Breta-
drottning
myndi síðar á
þessu ári halda
í opinbera
heimsókn til
Rússlands.
Verður það í
fyrsta skipti sem breskur þjóð-
höfðingi sækir Rússa heim frá því
bolsjevikkar rændu völdum þar
eystra árið 1917 og innleiddu
kommúnisma. í valdaráninu var
Nikulás II keisari og fjölskylda
hans tekinn af lífi og mun því
heimsókn drottningar marka
sögulegar sættir með ráðamönn-
um í hinu nýja Rússlandi og kon-
ungsfjölskyldum í Evrópu.
Yilja ekki
ræða hval-
veiðamar
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara
Morgunblaðsins.
HVALVEIÐARNAR eru eina
óleysta umhverfisverndarmálið í
viðræðum Noregs um aðild að
Evrópusambandinu. Þó samninga-
menn þess séu tilbúnir til málam-
iðlunar þá eru Norðmenn það
ekki. Þeir vilja fá að veiða hrefnu
svo lengi sem ekki er gengið of
nærri stofninum.
Laurens Jan Brinkhorst, yfirmað-
ur umhverfismálaskrifstofu Evrópu-
sambandsins, segir, að lögð hafi ver-
ið fram málamiðlunartillaga fyrir
Norðmenn en þeir ekki einu sinni
haft fyrir því að svara henni. Brink-
horst telur heldur ölíklegt, að hvala-
málin muni standa í vegi fyrir aðild
Noregs að Evrópusambandinu.
Evrópusambandið leggur til, að
Norðmenn fái að veiða hrefnu í tvö
ár eftir aðild en þá verði samið um
framhaldið. Jan Henry T. Olsen, sjáv-
arútvegsráðherra Noregs, segir aftur
á móti, að engin málamiðlun verði
rædd, Norðmenn ætli að veiða hrefnu
meðan stofninn er í jafnvægi.
Reuter
IRA kveikir í verslunum íLondon
ÞANNIG var umhorfs í bókabúð við Oxford-stræti í gærmorgun eftir
eldsvoða þar í fyrrinótt. Aðrar verslanir sem liðsmenn írska lýðveldis-
hersins IRA vörpuðu íkveikjusprengjum að í fyrrinótt í miðborg Lond-
on urðu ekki eins itla úti. Talið er að IRA hafi látið til skarar skríða
vegna fundar bresku og írsku forsætisráðherranna, Johns Majors og
Alberts Reynolds, um framtíð Norður írlands í gær. Reynolds sagði
að áframhaldandi ofbeldisaðgerðir myndu ekki draga úr ásetningi þeirra
Majors að friðaráætlun þeirra næði fram að ganga.
Ættingjar Ceausescus
seldu hernadarleyndarmál
Washington. The Daily Telegraph.
BANDARÍSKA varnarmálaráðuneytið greiddi á síðasta áratug ætt-
ingjum Nicolae Ceausescu, fyrrum leiðtoga kommúnista í Rúmeníu,
um fjörutíu milljónir dollara (tæpa þijá milljarða króna á núvirði)
gegn því að fá afhent leynileg sovésk hergögn. Greiðslurnar áttu
sér stað á tíu ára tímabili, fram að árinu 1989, er Ceausecu var
tekinn af lífi eftir uppreisn, og var féð að hluta greitt inn á banka-
reikning í Sviss.
Þetta er ekki eina dæmið um
greiðslur af þessu tagi, en það er
fyrst nú, nokkrum árum eftir að
Kalda stríðinu lauk, að bandarískir
embættismenn eru reiðubúnir að
ræða opinberlega um mál af þessu
tagi. Í viðtali við dagblaðið Washing-
ton Post greinir Edward Meyer hers-
höfðingi, skrifstofustjóri Banda-
ríkjahers á árunum 1979-1983, frá
því að varnarmálaráðuneytið hafi
haft yfir sérstökum sjóði að ráða,
sem hægt var að nota til kaupa á
sovéskum hergögnum undir borðið.
Um fimmtungur sjóðsins fór í vasa
Ceausescu-ættarinnar en það voru
tveir bræður einræðisherrans sem
voru í samskiptum við Bandaríkja-
menn. Var annar þeirra varnarmála-
ráðherra Rúmeníu. Segir Meyer
þennan sjóð hafa verið arðbærustu
fjárfestingu Bandaríkjahers og skil-
að sér margfalt aftur.
í ljós hefur nú komið að ráðamenn
í leppríkjum Sovétríkjanna fyrrver-
andi voru margir hveijir mjög fúsir
til að selja Bandaríkjamönnum leyni-
legar upplýsingar. Pólveijar voru
duglegastir við að útvega Banda-
ríkjamönnum sovésk vígtól og tæki
og voru um 150 milljónir dollara
greiddar einstaklingum í Póllandi
fyrir m.a. loftvarnarkerfi, ratsjár-
kerfi, skriðdreka og tundurskeyti.
Þá útveguðu Pólveijar þann búnað
sem sovéskir hermenn í Afganistan
fengu til að veijast hugsanlegri efna-
vopnaárás. Ut frá þessum búnaði
tókst bandarískum sérfræðingum að
meta hversu fullkomin sovésk efna-
vopn væru.
Hótað dauða fyr-
ir að nota selskinn
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunbiaðsins.
UNGUR, danskur hönnuður, Michael Lund, hefur fengið að finna
fyrir þvi að selskinnsnýting er ekki látin afskiptalaus af dýraverndun-
arsamtökum í Englandi. Eftir að hafa hannað selskinnsföt til að
sýna á árlegri tískusýningu í London 26. febrúar hefur hann fengið
fjölmargar morðhótanir og fer nú huldu höfði.
Michael Lund, sem hefur stundað
nám við hönnunarskóla í London,
fékk boð um að taka þátt í Fashion
Circus-sýningunni, sem er árlegur
viðburður í breskum tískuheimi og
athygli fjölmiðla beinist mjög að.
Hann ákvað að hanna flíkur úr sel-
skinnum og til þess fékk hann styrk
frá Konunglegu Grænlandsverslun-
inni, sem lagði honum til efni. Þegar
viðfangsefni Lunds spurðist út varð
hann fyrir aðkasti frá skólafélögum,
auk þess sem honum tóku að berast
bréf og símhringingar með sprengju-
og morðhótunum. Að ráði skólans,
þar sem hann stundar nám, fer Mich-
ael Lund nú huldu höfði þar til kem-
ur að sýningunni.
I viðtali við grænlensku frétta-
stofuna í danska útvarpinu sagði
Lund að það væri hrikalegt að sjá
viðbrögðin við nýtingu selskinnanna,
þar sem þau væru eðlilega nýtt.
Skinnin væru af fullorðnum dýrum
og ættu ekkert skylt við kópadrápin,
sem vöktu sem mesta reiði dýra-
verndunarsamtaka fyrir nokkrum
árum. Staðreyndin væri sú að allir
sem kæmu nálægt framleiðslu og
nýtingu selskinna yrðu fyrir aðkasti.
Undanfarið hefur mikið verið rætt
á Grænlandi að gera markaðsátak
í sölu selskinna og flíka úr þeim og
deilt hefur verið á Grænlandsversl-
unina fyrir linkind í þeim málum.
Mál Lunds sýnir að það verður á
brattann að sækja að vinna þeim
markað. Jafnvel í Svíþjóð hefur bor-
ið á andúð dýraverndunarsamtaka á
flíkum úr selskinni og byggist hún
á þekkingarleysi á nýtingu sela, þar
sem bæði kjötið og skinnin eru notuð
og ekki er um ofveiðar að ræða.
"We'd rather go naked than wear fur."
^ Reuter
A Evuklæðum
BANDARÍSK samtök sem berjast gegn því að loðskinn séu notuð
til fataframleiðslu hafa hrundið af stað herferð og á auglýsinga-
spjöldum er birt mynd af fimm af frægustu fyrirsætum heims kvik-
nöktum undir yfirskriftinni: „Kjósum heldur Evuklæðin en loðfatnað“
H