Morgunblaðið - 20.02.1994, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1994
32
ATVINNUA UGL YSINGAR
Hafnarfirði
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast í hlutastörf á
hjúkrunardeild.
Um er að ræða kvöld- og helgarvaktir.
Hvernig væri að líta við og kynna sér þá
margþættu starfsemi sem hér fer fram. Sjón
er sögu ríkari.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
653000.
MERKING HF. UMFERÐARMERKI.
SKILTI 0G AUGLÝSINGAR
Skiltagerð,
teiknivinna
Teiknari óskast til starfa við teikningu og
hönnun skilta og merkinga.
Nauðsynleg er reynsla af hönnun merkinga
í tölvu, baéði PC og Machintosh.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist í pósthólf 5334, 125 Reykjavík, fyrir
fimmtudagskvöld.
Fóstrur, fóstrur
Ertu með fóstrumenntun eða öðlastu starfs-
réttindi í vor?
Ertu í atvinnuleit?
Vestmannaeyjabær leitar eftir fóstrum til
starfa á leikskólum bæjarins. Hafir þú áhuga
á að starfa á nýjum stað, með traustu og
áhugasömu starfsfólki, hafðu þá samband
við félagsmálastjóra í síma 98-12816 til að
fá nánari upplýsingar.
Við Eyjaskeggjar, sem erum liðlega 4.900, hlökkum til að njóta
starfskrafta þinna og bendum á margháttaöa þjónustu í bænum,
sem annálaður hefur veriö fyrir náttúrufegurð.
Félagsmálastjóri.
Málmiðnaðarmaður
ÍSAGA hf. auglýsir eftir málmiðnaðarmanni
til afgreiðslustarfa.
Starfið felst í afgreiðslu og þjónustu við við-
skiptavini.
Við leitum að fagmanni með góða þekkingu
á rafsuðu og logsuðuvörum, sem hefur
áhuga á að veita fyrsta flokks þjónustu.
Viðkomandi þarf helst að hafa enskukunn-
áttu ásamt Norðurlandamáli.
Æskilegur aldur 30-45 ára.
Reyklaus vinnustaður.
Nánari upplýsingar veita Torfi Magnússon
eða Auður Bjarnadóttir hjá Ráðgarði frá kl.
9-12 í síma 686688.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs hf., Nóatúni 17, 105 Reykjavík,
merktar: „ÍSAGA“, fyrir 2. mars nk.
AGA er eitt af stærstu gasfyrirtækjum í heiminum með dótturfyrir-
tæki í 31 landi. Starfsemin beinist að málmiðnaði, framleiðsluiðn-
aði, matvælaiðnaði og notkun lofttegunda á heilbrigðissviði.
ISAGA hf. var stofnað árið 1919 í samvinnu við AGA. Starfsfólk
(SAGA vinnur að settum markmiöum og hver og einn ber ábyrgð á
sinu verksviði.
ÁGÁ
UMBOÐSMENN ÓSKAST
Leitum að umboðsmönnum um allt land til að
selja þurrfóður fyrir hunda og ketti.
Einungis verður einn söluaðili á hveijum stað,
þannig að möguleikamir eru miklir.
Jazz
Þurrfóður fyrir hunda og ketti.
Austurvegur
Sími 91-627399. Fox 91-620230
Einkaleikskóli
Ertu barngóð, hugmyndarík, sjálfstæð og
reyklaus? Þá er laust starf fyrir þig frá
1. mars á litlum, einkareknum leikskóla.
Svar sendist til auglýsingadeildar Mbl.,
merkt: „E - 177“, fyrir 1. mars.
Sölumaður
Óskum eftir sölumanni, 25-40 ára, til sölu á
matvöru og sælgæti. Æskilegt að viðkom-
andi hafi reynslu.
Áhugasamir sendi inn umsóknir til auglýs-
ingadeildar Mbl. merktar: „Framtíðarstarf -
10254“, fyrir 25. janúar nk.
IÐSTOÐ
FÓLKS í ATVINNULEIT
Breiðholtskirkju, Mjódd, sími 870 880
Opið hús í Breiðholtskirkju, Mjódd, mónudaga kl. 12-15
og safnaðarheimili Dómkirkjunnar fimmtudaga kl. 12-15.
ÁDAGSKRÁ
vikuna 21. - 25. febrúar
Opið íþróttahús
Nú hafa Miðstöðin og íþrótta- og tómstundar-
áð Reykjavíkur ákveðið samstarf um opið
íþróttahúsfjórum sinnum íviku, þ.e.
mánud.-fimmtud. Nú gefst fólki í atvinnuleit
einstakt tækifæri til þess að stunda hvers
kyns íþróttir og líkamsrækt undir stjórn hæfra
leiðbeinenda. tímum verður skipt í m.a.: Bad-
minton með leiðbeinanda, frjálsa tíma, æfing-
ar með leiðbeinanda, frjálsa tíma með leið-
beinanda, boltaíþróttirs.s. handbolta, knatt-
spyrnu, blak o.fl. Auk leiðbeininga verða
mælingar á þol, blóðfitu og blóðþrýstingi fyr-
irþá sem þess óska.
Nú köllum við eftir áhugafólki um þetta til
fundríMiðstöðina, Breiðholtskirkju, Mjódd,
jarðhæð á morgun, mánudag 21. febrúar kl.
13.00. Einnig má hringja og tilkynna áhuga-
svið og þátttöku í síma 870880, svo unnt sé
að raða saman tímatölfu.
Að sækja um starf
Miðstöðin hefur í samvinnu við VR haldið
stutt námskeið í gerð atvinnuumsókna og
framkomu íviðtölum. Lífleg og lærdómsrík
ráð í að koma ser á framfæri í atvinnuleit
undir leiðsögn Árna Leóssonar, fulltrúa VR.
Næsta námskeið er á miðvikudaginn 23. febr-
úar kl. 13.00-16.00. Innritun er hafin í síma
870880.
íslenskar fornbókmenntir
Sl. fimmtudag kom saman áhugahópur um
íslenskar fornbókmenntir með Jóni Torfasyni,
íslenskufræðingi. Þar kom mönnum saman
um að taka til lestrar og umfjöllunar Gunn-
laugssögu. Hópurinn hittist aftur nk. fimmtu-
dag kl. 17.00 í Miðstöðinni og býðurfleiri
velkomna. Sími 870880.
II
l;::l;;;l:;:lli!l:iiliiilHÍÍIÍ!ÍlliiiliiiliillHilii:liiSl
Ul fflffl ■fflffl. fflffl fn iffifflffl
riii'iB' lli UJ til B! Ul lll IIMH ui m ui
MENNTASKOLINN A AKUREYRI
Skólaritari
Skólaritara í hlutastarf vantar að Mennta-
skólanum á Akureyri.
Ritari annast skráningu í nemendabókhald,
símavörslu og almenna afgreiðslu í skrifstofu
skólans.
Umsóknarfrestur er til 25. febrúar 1994.
Upplýsingar veitir undirritaður.
Tryggvi Gíslason,
skólameistari MA.
Sölufólk
Viljum ráða sölufólk. Góð vinnuaðstaða. Góð
verkefni. Símasala. Dagvinna. Heimakynn-
ingar. Reynsla af sölumennsku ekki skilyrði.
Upplýsingar veittar í síma 28787 á milli 14 og
17 í dag, sunnudag, og fyrir hádegi næstu daga.
ÍÐUNN
VANDAÐAR BÆKUR í 45 ÁR
LA PRIMAVERA
RISTORANTE
Óskum eftir framreiðsiunemum.
Upplýsingar á staðnum mánudaginn
21. febrúar.
La Primavera Ristorante,
Húsi verslunarinnar.
Ritstjóri
Tímaritið Lopi og band
óskar að ráða ritstjóra til starfa sem fyrst.
Viðkomandi þarf að kunna vel til verka og
hafa áhuga og hugmyndir í efnisvali.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar til 27. febrúar nk.
Gudni IÓNSSON
RÁÐCJÖF & RÁÐN I N CARÞJÓN U STA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Síðumúla 39, 108 Reykjavík, s. 678500
Forstöðumaður
vistheimilasviðs
Laus er staða forstöðumanns vistheimila-
sviðs í fjölskyldudeild. Krafist er félagsráð-
gjafamenntunar og a.m.k. 3ja ára starfs-
reynslu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Anni G.
Haugen, yfirmaður fjölskyldudeildar,
í síma 678500.
Umsóknarfrestur er til 7. mars nk.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnun-
ar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á um-
sóknareyðublöðum sem þar fást.