Morgunblaðið - 20.02.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.02.1994, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1994 Minning Ásdís Ema Vigfús- dóttir, Vopnafirði Fædd 13. maí 1937 Dáin 13. febrúar 1994 Það syrti vissulega að í sálar- ranni er sorgarfregnin barst okkur hjónum um að okkar kæra vinkona, Asdís Erna, hefði iokið lífsgöngu sinni svo alltof fljótt. Það er erfitt að sætta sig við það að hún Edda, eins og hún jafnan var kölluð, skuli ekki lengur okkar á meðal, að næst þegar knúið yerði dyra í Múla verð- ur engin Edda til að bjóða mann velkominn með yljandi brosi og gefandi gestrisni sinni. Með sárum söknuði er hún kvödd hinztu kveðju af einlægri þökk fyrir svo kær kynni og margar mætar minningar ár- anna sem hópast nú að í hugar- fylgsnum. Mannanna örlög eru vissulega óræð og undarlega flókin og hversu illa erum við alltaf viðbúin því að kveðja góða vini, hversu sem heilsu er háttað og allra sízt þegar ára- fjöldi lífshlaupsins er ekki lengri. Gott er nú að hugsa til síðustu sam- funda við hana Eddu hér heima í stofunni þar sem svo margt var spjallað á undurnotalegri'en alltof stuttri stund, þar sem Edda var sem jafnan áður veitandi glettni og gleði, þar sem hjartahlýjan átti æðstan sess. Minningar merla í munans leyn- um og megna að gefa lífinu þann lit og þann ljóma sem aldrei fölskv- ast fyrr en á ^ndadægri. Þegar ég höf á sínum tíma öll mín löngu og oft erfiðu ferðalög um kjördæmið eystra vegna starfa míns var það stór hluti lífsláns míns að eignast svo víða góða og gjöfula vini sem brugðu birtu vfir gráma hversdagsins með sínu vermandi viðmóti og veitulli hlýju. Á Vopna- firði varð mér eðlilega fyrst fyrir að leita til fyrrum sveitunga, hins vaska félaga og góða vinar Gísla Jónssonar og þar var mér af þeim hjónum báðum tekið tveim höndum og þar átti ég síðan ævinlega þann góða griðastað sem var gulli dýrri í daganna önn. Edda varð traustur vinur, ráð- hollur samheiji og fylgd hennar fölskvalaus og sönn í hveiju því máli er hún gat lagt liðsinni sitt. Alltaf voru móttökur jafnhlýjar og hjartanlegar, gestrisni og rausn húsmóðurinnar svo eðlislægir kostir að þar fannst manni einfaldlega að maður væri eins og heima hjá sér og slíkt var mikils virði á öllum þessum ferðaflækingi. Það var gaman að ræða við Eddu um menn og málefni, hún gaf sér til þess tíma, þó heimilisannir væru ærnar, var vel heima í ijölmörgu, hún lét sér annt um velferð og fram- tíð byggðar sinnar og hafði þar á einarðar skoðanir sem og öðru. En þó var hún Edda fyrst og fremst hin mikla móðir og húsmóð- ir þrátt fyrir margvíslega önn aðra, hinn góði heimilisandi bar kærleik- anum merki, þeim gefandi kærleika sem hún var svo auðug af. Edda var prýðilega glögg og greind kona og öll verk hennar báru miklum myndarskap gott vitni. Hún átti létta lund og þýða, lét vel að koma orðum að hugsunum sín- um, einbeitt kona og ákveðin, ef því var að skipta, en fyrst og síð- ast kunni ég mætavel að meta ein- lægni hennar og alúð. Hún var sannur höfðingi heim að sækja, þar var aldrei um erfiði né annríki spurt, heldur það eitt hversu öðrum mætti gott gjöra. Hún Edda var fædd 13. maí 1937 á Vopnafirði og þar ólst hún upp í stórum systkinahópi, miklu mynd- ar- og ágætisfólki. Foreldrar henn- ar voru hjónin Björg Davíðsdóttir og Vigfús Siguijónsson verkamaður á Vopnafirði. Hinn 12. júlí 1958 giftist hún Gísla Jónssyni frá Hólmum í Reyð- arfirði og var hjónaband þeirra far- sælt og gott. Gísli hefur ekki verið einhamur um dagana, fengist við ijölmörg störf og verið mjög fram- arlega í félagsmálum, m.a. í sveita- stjórn, og í öllu þessu stóð Edda sem klettur honum við hlið. Vopnafjörður var heimkynni hennar alla tið og heimili þeirra hjóna í Múla rómað fyrir gestrisni og góðan hug húsráðenda. Þau hjón eignuðust fimm syni, en einn þeirra, Trausti, lézt fyrir nokkrum árum. Hinir eru: Jón Kristinn, vél- og rennismiður í Reykjavík, kona hans er Ingunn Lára Hannesdóttir, hárgreiðslu- meistari og eiga þau eina dóttur, Heimir Þór, húsasmiður á Kjalar- nesi, kona hans er Kirsten Nielsen Toft, verzlunarstjóri og eiga þau þijú börn, Gísli Arnar, fiskeldis- Minning Agúst Snorrason Fæddur 16. júní 1920 Dáinn 10. febrúar 1994 Með þessum fátæklegum orðum vil ég kveðja vin minn og æskufé- laga Ágúst Snorrason, sem lést hinn 10. febrúar á BorgarSpítala eftir langvinn veikindi sem háðu honum um þrettán ára skeið en hann bar af karlmennsku og æðru- leysi til síðustu stundar. Kynni okkar hófust þegar á barnsaldri í leik og starfi. Við vorum íjórir pilt- arnir sem héldum hópinn, áttum mörg áhugamál saman í blíðu og stríðu. Foreldrar Ágústs voru Sigríður Steingrímsdóttir og Snorri Weld- ing. Varð þeim ellefu barna auðið. i Ágúst var tvíburabróðir við Frið- rik, sem lifir bróður sinn, ásamt Snorra. Ágúst giftist Jóhönnu Þórólfs- dóttur, sem ættuð er frá Reyðar- firði, hinni ágætustu konu, sem hlúði að manni sínum af hreinni ástúð og kærleika öll þeirra erfiðu ár í veikindum hans, þrátt fyrir sjúkleika sem háir henni. Þau eign- uðust sex börn, barnabörnin orðin . tíu, og eitt barnabarnabarn, öll hin efnilegustu börn. Ágúst vann sín skyldustörf af trúmennsku og heiðarleika sem verkamaður, og bifreiðastjóri hjá Reykjavíkurborg um áraraðir, en síðustu ár hjá Lyfjaverslun ríkis- ins, meðan kraftar leyfðu. Ágúst var spaugsamur og glettinn og leið manni vel í návist hans. Mér er í minni frá liðnu sumri, þegar við hjónin gátum farið með þeim hjón- um Ágústi og Jóhönnu úr ys og þys borgarinnar í bíltúr út í sumar- græna náttúruna. Þá lifnaði yfir vini okkar, hann var svo mikið náttúrubarn; að fá að líta blessaða sveitina með sín grænu tún og finna blómaangan leggja áð vitum sér, blessaðar skepnurnar og fugl- akvak allsstaðar í kringum sig. Þá varð honum að orði: „Hvað getum við kosið okkur betra í þessu lífi en að fá að njóta þessara stunda í kyrrð og ró?“ Rétt fyrir andlát hans, áttum við góða stund með þeim hjónum. Bjóst hann við að kveðja þennan heim fijótlega, enda orðinn þreyttur á líkama og sál. En ég sagði, að við ættum eftir að keyra enn í sveitina á sumri komanda. „Heldurður það?“ sagði fræðingur á Eskifirði, kona hans er Árný Vatnsdal afgreiðslumaður, og Vigfús Vopni, nemi í húsasmíði, unnusta hans er Særún Sævalds- dóttir fiskverkakona. Af lífsins sviði er horfin kona er átti sér farsæla og fallega lífssögu. Edda yljaði og lýsti upp umhverfi sitt af auðlegð hjartans í allri sinni hógværð og hlédrægni. Hana var gott að eiga að vini og fyrir það erum við hjónin afar þakklát og minnumst með virðingu og mikilli hlýju allra góðra stunda í nærveru hennar. Við sendum okkar góða vini, Gísla, sonum þeirra og öðrum að- standendum Eddu okkar einlæg- ustu samúðarkveðjur og vitum að munakærar minningar um ástríka eiginkonu og móður muni létta og líkna í þeirra miklu sorg. Traust kona'og trú i hveiju einu hefur kvatt hinztu kveðju en marg- ir eiga eins og við vermandi minn- ingar sem verðmætar eru á ævinn- ar göngu. Blessuð sé heiðbjört minning mætrar mannkostakonu. Helgi Seljan. Elsku mamma. Það er sagt að hvert okkar eigi sinn vitjunartíma og nú þegar þú ert farin, þá átta ég mig á því að flestallar mínar bestu minningar eru tengdar þér. Þú átt alltaf stórt pláss í hjarta mínu eins og sjálfsagt allra sem fengu að njóta samvista við þig. Ein fyrsta minning mín um þig er frá því að ég fór með pabba á stórum jeppa að sækja þig inn á spítala (Garð) þegar Fúsi fæddist og ég var fímm til sex ára. Þú varst alltaf að vinna úti í garði á sumrin, ■enda voru blóm í miklu uppáhaldi hjá þér og alltaf þótti þér jafn gam- an þegar stoppuðu bílar og fólk fór að mynda garðinn þinn. Þegar þú fórst að versna til heilsunnar urðu stundirnar j garðinum færri. Svona falla menn, einn og einn áður en nokkum varir. En lund þin trygg og hugur hreinn hverfur ei þótt þú farir. Þó verðúr ekki nafn þitt nefnt, neitt við stórvirki unnið, þú hefur mörgum meira efnt, þótt minna skeið hafi mnnið. Hljóð var þín gleði, hljóð þín raun. Hljóð era bestu kynnin. Hljóð var þín för og hljóð þín laun. Hljóð era vina minnin. (Björn Haraldsson.) Drottinn gefur og drottinn tekur, en samt er það nú svo að dauðinn kemur alltaf jafn mikið á óvart. hann og hýrnaði yfir mínum manni við þá tilhugsun. Enn finnst mér að við eigum eftir að eiga samvistir saman, en hvað um það, ég samgleðst vini mínum að vera laus úr kvöl sinni og hef þá bjargföstu trú að honum líði vel. Við þökkum Ágústi sam- verustundirnar og biðjum Guð að geyma hann og varðveita. Vottum eiginkonu, fjölskyldu og öðrum ættingjum og vinum samúð okkar. Guðmundur Sigutjónsson. Þegar mér bárust þær fréttir á sunnudaginn að þú værir dáin, elsku mamma, var sem ég væri lamaður. Ég hafði talað við þig kvöldið áður á afmælisdaginn hans pabba. Þú kenndir einskis þá en varst svo öll sólarhring síðar. Minningarriar eru svo margar, alltaf gat ég treyst á þig. Nú síð- ustu árin eftir að við Árný giftum okkur og fluttum á Eskifjörð þá kom það ekki ósjaldan fyrir að þið pabbi bönkuðuð á eldhúsgluggann, sögðust hafa skroppið í smá „sunnudagsbíltúr" á Lödunni. Um jólin í hitteðfyrra voruð þið hjá okk- ur í mánuð og svo í fyrravor þegar ég fór á grásleppu með Fribba bjó ég auðvitað heima í Múla. Við.leyst- um krossgátur og þú lagðir kapla. Þeim stundum mun ég aldrei gleyma, elsku mamma mín. Árný bað fyrir kveðju til þín og vildi hún þakka þér fyrir þær alltof fáu stundir sem þið áttuð saman. Elsku mamma, það er erfitt að kveðja, þú kvaddir mig alltaf eins, þ.e.: „Bless, Gilli minn.“ Því segi ég að lokum bless, mamma mín, og takk fyrir allt. Guð geymi þig. Þinn Gísli Arnar. Elsku mamma. Nú ert þú horfin okkur og kemur ekki aftur. Það er svo sársaukafullt að kveðja þig eftir þennan alltof stutta tíma sem við höfum átt með þér. Við vorum svó ánægð og full bjartsýni þegar þið pabbi komuð hingað til þess að fara í endurhæf- ingu á Reykjalund. Þú varst svo hress og kát fyrir örfáum dögum og því er svo erfitt að trúa því að þú hafir kvatt þenn- an heim svo snögglega. Við vitum að þú hefðir svo gjarn- an viljað fá að njóta lífsins lengur og fá að fylgjast með Hildi Dís vaxa úr grasi. Hún á eftir að spyija okkur mikið um þig í framtíðinni og munum við þá segja henni frá þeim minningum sem við geymum í hjörtum okkar. Við reynum oft að spyija „af hveiju?“, en það eru engin svör til. En sterkasta huggun okkar er sú, að nú ertu komin til hans Trausta og hefur þú þá einn son þinn hjá þér. Þið eruð saman á ný. Við biðjum guð að gefa pabba styrk á þessari erfiðu stundu. Við kveðjum þig, elsku mamma, með miklum söknuði. Það er stórt skarð höggvið í fjölskylddu okkar sem ekki verður fyllt á ný. Guð geymi þig. Jón, Ingunn og Hildur Dís. Elsku amma okkar er dáin. Okk- ur langar að þakka henni samveru- stundirnar á liðnum árum. Sandra Erna, Eliths Freyr, Hildur Dís, Trausti Adrian. Þorsteinn Sævar Jensson íþrótta- kennari - Minning Hve sárt er að sjá þig hníga er sólin gyllir höf, og lífi sviptan síga um sumarmál í gröf, svo fjörlegan og fríðan, svo frækilegan svein, þvi skerpan bæði og blíðan í bijósti þínu skein. (M. Joch.) Það var sumarið 1986 sem við réðum Þorstein til okkar sem íþróttaþjálfara. Aíltaf þegar slík ráðning fer fram er það happdrætti hvernig til tekst. í þessu tilviki urðum við ekki fyrir vonbrigðum því Þorsteinn reyndist frábær starfskraftur. Hann var bæði traustur og sam- viskusamur og hafði allt til að bera sem prýðir góðan íþróttamann enda árangurinn eftir því. Hann náði frá- bærum árangri með íþróttafólkinu okkar, sem að sjálfsögðu gerist ekki bara á einu sumri. Hann kom hér af stað svonefnd- um íþrótta- og leikjanámskeiðum sem haldin hafa verið á hveiju ári síðan. Þorsteinn hefur því haft hér mjög góð áhrif sem við munum allt- af minnast. Síðasta sumarið sem hann starfaði með okkur urðum við vitni að hetjulegri baráttu hans við sjúkdóm, sem erfitt var að átta sig á og augljóst var að Þorsteiim gekk ekki heill til skógar. Þorsteinn sýndi okkur ávallt fyllstu tryggð og sýndi það best með heimsókn sinni síðastliðið sum- ar er hann gladdist með okkur, því draumur okkar allra var að rætast. Hafin var bygging íþróttamiðstöðv- ar á Þingeyri. Guð blessi minningu Þorsteins Sævars Jenssonar. Hafðu þökk fyr- ir allt og allt. Við vottum fjölskyldu og öllum aðstandendum hans dýpstu samúð. Ykkar styrkur er minning um góðan dreng. F.h. íþróttafélagsins Höfrungs á Þingeyri, Sigmundur F. Þórðarson. Þegar æviröðull rennur rökkvar fyrir sjónum þér hræðstu eigi, Hel er fortjald hinum megin birtan er. Höndin, sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber Drottinn elskar, - Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sig. Kr. Pétursson) Það var sumarið 1986 að við kynntumst Þorsteini. Hann hafði þá ráðið sig til Þingeyrar sem íþróttakennara. Við mættum á völl- inn galvösk eftir hádegið áhugasöm og forvitin að fá að sjá þennan nýja þjálfara. Þorsteinn var hjá okkur fimm sumur og eru þau okkur eftirminni- leg. Þorsteinn hafði bæði góð og skapandi áhrif á hópinn, bæði unga sem aldna og var eins við alla. Þorsteinn veiktist síðasta sumar- ið sem hann var hjá okkur en þrauk- aði þrátt fyrir miklar erfiðisstundir. Nú sjáum við á eftir góðum manni, en huggum okkur við það að þeir deyi ungir sem guðirnir elska og Þorsteini hafi verið ætlað eitthvað stærra og meira annars staðar. Við viljum þakka fyrir að fá að kynnast honum og þær stundir sem við áttum með honum og biðjum guð að styrkja ættingja hans í sorg sinni. Blessuð sé minning Þorsteins Sævars Jenssonar. Fyrir hönd íþróttahópsins á Þing- eyri, Sæborg Reynisdóttir, Guðrún S. Sigþórsdóttir, Gunnhildur Þ. Sigþórsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.