Morgunblaðið - 20.02.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1994
7
Verkamannafélagið Dagsbrún um atvinnuástandið r
Lýsir yfir neyðarástandi
í atvinnumálum verkafólks
„VERKAMANNAFÉLAGIÐ Dagsbrún lýsir yfir neyðarástandi á fé-
lagssvæði sínu vegna stigvaxandi atvinnuleysis ófaglærðs verka-
fólks. Dagsbrún krefst þess að nú þegar verði sett í gang neyðaráætl-
un sem keyri hjól atvinnulífsins af stað með góðu og illu,“ segir í
ályktun sem samþykkt. var á fundi stjórnar Dagsbrúnar nýlega.
í ályktuninni segir ennfremur að
Dagsbrún sé tilbúin til samstarfs
við hvern þann aðila sem hefur vilja,
getu og vald til að koma í veg fyr-
ir píslagöngu fátæktar og örbirgðar
þúsunda manna, kvenna og barna.
Það sé fæðingaréttur hvers íslend-
ings að fá að vinna fyrir sér og
sínum með afli hugar og handa.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, segir að at-
vinnuleysi meðal Dagsbrúnar-
manna sé nú hlutfallslega meira en
nokkru sinni fyrr. Um 670 eru nú
án vinnu af rúmlega fjórum þúsund-
um félagsmanna sem virkir eru á
vinnumarkaði, eða yfir 16%.
Dagsbrúnarmenn átelja stjónvöld
harðlega fyrir að hafa látið atvinnu
Netaveiðar
leyfðar utan
bannsvæðis
í REGLUGERÐ sjávarútvegs-
ráðuneytisins um friðun hrygn-
ingarþorsks á vetrarvertíð 1994
eru allar fiskveiðar bannaðar á
stóru svæði fyrir Suður- og Vest-
urlandi frá 11. til 26. apríl, að
viðbættu þriggja sjómílna svæði
frá fjörumarki fyrir Norður- og
Austurlandi.
Bannsvæðið er hið sama og sett
var á um síðustu páska en að þessu
sinni verða netaveiðar leyfðar utan
bannsvæðisins. Allar veiðar, að
hrognkelsa-, hörpudisk- og ígul-
keraveiðum undanskildum, verða
bannaðar á svæðinu.
í fyrra voru veiðar innan þriggja
sjómílna frá fjörumarki bannaðar
á einstaka svæðum en nú gildir
bannið fyrir öllu Norður- og
Austurlandi, að tillögu Hafrann-
sóknastofnunar.
Reglugerðin var sett að tiilögu
Hafrannsóknastofnunar að höfðu
samráði við hagsmunasamtök í
sjávarútvegi.
fnðfinns
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
BLÓMVÖNDURINN
HLBÚINN FYRIR
KONUDAGINN.
drabbast niður á flestum sviðum.
Hvers konar verklegar hugmyndir
eru nú í algeru lágmarki og sam-
dráttur í flestum greinum. Þannig
hefur útgerðinni leyfst það um langt
skeið að flytja frystingu sjávarafla
í sívaxandi mæli út á sjó og fisk-
vinnsluna úr landi þannig að fisk-
vinnslan verður í sívaxandi mæli
að treysta á landanir rússneskra
fiskiskipa. Þá sé íslenskur skipa-
smíðaiðnaður í rúst en bæði nýsmíð-
ar og viðgerðir fyrir íslensk útgerð-
arfélög fari nú fram að stærstum
hluta erlendis og fiskveiðisjóði leyf-
ist að sýna fyrirlitningu og hunsa
tilmæli iðnaðarráðherra um að sjóð-
urinn láni aðeins fé til nýsmíða og
viðgerða sem framkvæmdar eru hér
á landi.
i
J&
Aloa Vera - Blómafrjókorn
Drottingahunang - Propolis
Pantanir og upplýsingar í síma 74987 til kl. 22
00
Thailand,
litríkt
ævintýri!
Thailand er ekki lengur eins fjarlægt og þú
heldur. Ferð í 13 daga til Thailands með dvöl á
Royal Cliff Bay Resort lúxushótelinu býðst nú á mjög hagstæðu verði.
Á hótelsvæðinu er að finna úrvals strendur, sundlaugar, dýrindis veitingastaði
auk góðra verslana og íþróttasvæða. Margir möguleikar eru á ferðum um
Thailand en einnig gefast möguleikar á stuttum ferðum
frá Bangkok til nágrannalandanna Laos, Kampútseu __|f 4
og Víetnam.
Verð frá 86.610 kr.*
Nýr og glæsilegur ferðabæklingur um Asíu.
Komið og fáið eintak.
Hagstæðar ferðir bjóðast einnig til Penang í Malasíu og dvöl
á lúxushóteli í 13 daga. Verð frá 108.310 kr.*
Hafðu samband við söluskrifstofu SAS eða Flugleiða eða
ferðaskrifstofuna þína.
SAS, sími 622211. Flugleiðir, sími 690300.
*lnnifalið í verði: Flug, gisting fyrir einn í 2ja manna herbergi í 10 nætur og flugvailarskattur.
M/SAS FLUGLEIÐIR