Morgunblaðið - 18.05.1994, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 18.05.1994, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1994 ERLEIMT MORGUNBLAÐIÐ Slóvakar stefna að aðild að Evrópusambandinu og NATO Viljum njóta góðs af reynslu Islendinga Hagvöxtur og efnahagslegur stöðugleiki eru forsendur þess að umskiptin_ takist í Slóvakíu að sögn Michals Kovacs, forseta landsins VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti íslands, heldur síðar í þessari viku í opinbera heimsókn til Slóvakíu. Af þessu tilefni féllst forseti Slóv- akíu, Michal Kovac, á að svara bréflega nokkrum spurningum Morgunblaðsins um samskipti ríkj- anna, umskiptin í Slóvakíu og stefnu ríkisins á vettvangi utanrík- is- og öryggismála. Spurningar Morgunblaðsins og svör forseta Slóvakíu fara hér á eftir: * ------------------- nokkrum ríkjum Mið- ogAust- ur-Evrópu hafa umskiptin í átt til markaðshagkerfis getið af sér atvinnuleysi og í nokkr- um tilfellum upplausn og þjóðfé- lagsspennu. Hvernig mynduð þér lýsa ástandinu hvað þetta varðar í heimalandi yðar? „Staðan nú um stundir er óneit- anlega erfið. í rauntölum hafa laun lækkað um næstum þriðjung frá 1989, atvinnuleysið (miðað við lok mars 1994) er 14,54%_og í nokkr- um héruðum 20-26%. Ástandið fer versnandi einkum hjá fjölskyldum með lítil börn og hjá ellilífeyrisþeg- um. Þrátt fyrir þetta hefur enn tekist að tryggja friðinn í samfé- laginu. Helstu ástæðurnar eru þær að í fyrsta lagi hefur verið komið á virku kerfi til að leggja drög að kjarasamningum. í öðru lagi hafa allir þeir sem að málinu hafa kom- ið, hagsmunahópar og ríkisvaldið gætt þess að raska ekki stöðug- leika. Flest öfl í þjóðfélaginu gera sér ljóst að átök verða ekki til þess að leysa efnahagsvandann. Svo virðist sem almenningur hafi einkum verið að bregðast við ós- amræmi af ýmsum toga og skorti á hugmyndafræðilegum útskýring- um á þeim umskiptum sem átt hafa sér stað frá því síðasta haust fremur en að um aukna spennu hafi verið um að ræða. Þá er þess að geta að okkur hefur enn ekki tekist að umbreyta sjálfu þjóðfélagskerfinu og því er það svo að stór hluti almennings er enn ríkisstarfsmenn. Þetta er á hinn bóginn óæskilegt ástand ekki síst þar sem launagreiðslur þessar eru baggi á ríkissjóði. Hvað ástandið á vettvangi fé- lagsmála varðar er það breytilegt eftir landshlutum. Svæðisbundinna þróunaráætlana er þörf í auknum mæli til að takast á við vandann á hveijum stað. Við gerum ráð fyrir að færa okkur aðstoð erlend- is frá í auknum mæli í nyt á þessu sviði og stefnan er sú að finna þá atvinnustarfsemi sem hentar í hin- um ýmsu hlutum landsins. Þetta mun ennfremur kalla á aukna þátt- töku sveitarstjóma. Grundvalla- rumskipti til hins betra á sviði fé- lagsmála verða aðeins tryggð með efnahagsbata." Hvaða aðgerðir teljið þér að séu nauðsynlegar til að tryggja efna- hagslegan stöðugleika um leið og þróunin í átt til markaðshagkerfís er hafin? Það má deila um hvað hugtakið „efnahagslegur stöðugleiki" þýðir. I fyrra miðuðust efnahagsáætlanir okkar einkum við að tryggja stöð- ugleika í þjóðhagslegu tilliti, (landsframleiðsla dróst saman um 4,1% samanborið við 7% 1992; verðbólga var 25,1% eftir að gripið hafði verið til ákveðinna aðgerða og lögð var áhersla á að tryggja stöðu galdmiðilsins). Nú blasir því við spumingin hvernig tryggja ber efnahagsvöxt án þess að raskað verði efnahagslegum stöðugleika. Lykilatriðið í þessu efni er að end- urskoða fjármagnsflæðið í landinu. Þetta er skilyrði fyrir því að unnt sé að fylgja stefnu hagvaxtar. Stefnan sem slík dugar hins vegar skammt. Henni þurfa að fylgja skýr markmið til að styrkja gjald- eyrisstöðu þjóðarinnar, einkum með erlendu fjármagni og fjárfest- ingum. Móta þarf umhverfi sam- keppni, stuðla að snöggri einka- vseðingu ríkisfyrirtækja og hvetja einkaframtakið sem tekið er að láta á sér kræla. Þetta eru mark- mið ríkisstjórnar Slóvakíu." Hvernig mynduð þér lýsa sam- skiptum íslands og Slóvakíu frá því land yðar varð sjálfstætt ríki? „í upphafí vil ég geta þess að við metum það mjög að íslending- ar skyldu vera í hópi þeirra þjóða sem viðurkenndu sjálfstæði SIóv- akíu strax og voru þanr.ig tilbúnir til að veita Slóvökum aðgang að samfélagi þjóðanna. Slóvakar telja ísland til vinaþjóða sinna og vilja þróa fram víðtæka samvinnu. Það gleður mig að hin pólitísku sam- skipti skuli nú hafa náð á hið æðsta stig. Þetta gefur okkur tæki- færi til að skiptast á skoðunum um allt það sem varðar öryggi Evrópu og þróun mála í áifunni.“ Hvaða möguleika sjáið þér í framtíðinni hvað varðar aukin samskipti ríkjanna? „Ég bind einkum vonir við að okkur takist að efla samvinnu á efnahagssviðinu. Að auki búa ís- iendingar að mikilli reynslu á sviði öryggismála og samvinnu Evrópu og Bandaríkjanna að þessu leyti. Við myndum vilja færa okkur reynslu íslendinga í nyt. Loks má ekki gleymast að samstarfsmögu- leikar á sviði lista og vísinda eru óendanlegir." Gætuð þér gert lesendum okkar grein fyrir helstu grundvallarþátt- um í stefnu Slóvakíu á sviði utan- ríkis- og örygismála? „Utanríkisstefna okkar stendur á tveimur stoðum. Þar sem við erum lítið ríki í miðri Evrópu ósk- um við þess að koma á traustum og góðum samskiptum við ná- granna okkar og ég verð að segja að ég tel að það hafi okkur tekist. Þau smáu mál sem við eigum óút- gerð við nágranna okkar mun okk- ur í sameiningu takast að leysa báðum aðilum til hagsbóta. Hin stoðin er ótvíræður vilji stjórnvalda til að taka þátt í stofn- unum þeim sem starfa í Evrópu á sviði stjórn-, efnahags- og örygg- ismála og ætlað er að tryggja sam- vinnu Evrópu og Bandaríkjanna." Er fullgild aðild að Atlantshafs- bandalaginu (NATO) helsta mark- mið ríkisstjórnar yðar og ef svo er gætuð þér þá sagt til um hve- nær þér væntið þess að þessu tak- marki verði náð? „Slóvakía hefur áhuga á að verða verða fullgilt aðildarríki NATO með þeim réttindum sem slíkri aðild fylgja og við eiga. Við göngum að því sem vísu að stjórn- málaleg og efnahagsleg aðlögun dugi skammt; samruni við Vestur- Evrópu mun einnig kalla á nána hemaðarlega samvinnu. Við lítum á svo á að aðild að Friðarsamvinnu NATO (Partners- hip for Peace) sé fyrsta skrefið á hernaðarsviðinu í átt að aðild að bandalaginu. Slóvakía mun brátt leggja fram staðfestingarskjal sem leggja mun grun að frekari sam- vinnu við NATO á grundvelli frið- arsamstarfsins. Það er ekki tímabært að ræða hvenær þetta markmið getur orðið að veruleika. Margir þættir munu þar hafa áhrif. Þar má fyrstan nefna hraða þeirra umskipta sem nú eiga sér stað í landinu og í öðru lagi getu okkar til að standa undir þeim skilyrðum og skuld- bindingum sem aðild að NATO fylgja.“ Teljið þér að Slóvakía verði eitt af aðildarríkjum Evrópusambands- ins og þá hvenær? „Þann 4. október 1993 var und- irritaður samstarfssamningur Evr- ópusambandsins og Slóvakíu, sem myndar ramma utan um samvinnu á sviði efnahags- og stjómmála. Við væntum þess að þessi samn- ingur um aukaaðild verði staðfest- ur í öllum aðildarríkum sambands- ins fyrir lok þessa árs. Hvenær verður Slóvakía fullgilt aðildarríki? Það fer eftir tvennu;að takast muni að gera þær grund- vallarbreytingar á samfélaginu sem að er stefnt og vilja Evrópu- sambandsins til að stækka til aust- urs. Þess ber að vænta að þetta tvennt muni ekki taka óhóflega langan tíma. Hafa menn í landi yðar engar áhyggur af því að smærri ríki munu hafa lítil eða engin áhrif innan Evrópusambandsins (ESB) og að því muni aðild að ESB fela í sér fullveldisafsal af hálfu Slóv- aka? „Þótt við óskum þess að verða í áföngum eitt af aðildarríkum ESB er ekki þar með sagt að við gerum okkur einhveijar grillur um að það að vera félagar í „klúbbnum“ sé einvörðungu hin þægilegasta vist í ágætum félagsskap. Við vitum að þau skilyrði sem sett eru um samvinnu innan sambandsins eru ekki auðveld í framkvæmd og kosta málamiðlanir. Mikilvægast er þó að reglumar liggi fyrir og að þær séu skýrar. Við viljum laga okkur að þeim líkt og önnur ríki. Hvað áhrifin innan sambandsins varðar þá eru þar nú þegar fyrir ríki á stærð við Slóvakíu og full- veldi þeirra er ekki stefnt í hættu. Við lítum svo á að samrunaferlið sem Maastricht-sáttmálinn kveður á um sé öldungis einstakt og það þjóni hagsmunum Slóvakíu að taka þátt í því. Við höfum nýlega öðlast fullveldi en því höfum við ekki náð fram til að einangrast frá samr- unaþróuninni í Evrópu. Við viljum taka þátt í þessu ferli sem einstakt samfélag í þjóðemislegu og póli- tísku tilliti." Smith grafinn á eynni Ionu JOHN Smith, hinn látni leiðtogi breska Verkamannaflokksins, verður lagður til hinstu hvílu á eynni Ionu. Sextíu skoskir kon- ungar em grafnir á eynni og fékk fjölskyldan leyfi til að greftra Smith þar um helgina en minningarathöfn um Smith verður á föstudag í Edinborg. Hann var fæddur á vestur- strönd Skotlands og dvaldi oft á Ionu. Olíuverð lækkar VERÐ á olíufatinu fór í gær niður fyrir 16 dali. Það hafði verið að hækka síðustu vikur eftir að hafa farið niður í 13 dali fatið fyrir sjö vikum. Páfihyggst ekki láta af störfum JÓHANNES Páll páfi sagði í gær að kaþólska kirkjan rúm- aði ekki páfa á eftirlaunum og virtist með þeirri yfirlýs- ingu vera að bregðast við vangaveltum fjölmiðla um að hann hyggðist setjast í helg- an stein af Jóhannes Páll heilsufarsá- Páf' stæðum. Þá hafa talsmenn Vatíkansins neitað sögusögn- um um að páfí sé með Parkin- sons-sjúkdóminn. Páfi hefur verið á sjúkrahúsi að undan- förnu eftir að hann rann til á baðherbergisgólfi sínu. Ferðamenn myrtir í Kali- forníu ÞÝSK kona lét lífið og eigin- maður hennar er alvarlega særður eftir skotárás sem gerð var á þau í Suður-Kaliforníu. Hjónin, rúmlega sextug, voru í gönguferð nærri San Jacinto- fjöllum er á þau var skotið. Konan lést samstundis en mað- urinn, með skotsár í andliti og öxl, komst að bíl hjónanna og ók eftir hjálp. Talið að er að hjónin hafi verið rænd, þar sem engir fjármunir eða skilríki fundust á þeim. ísraelar skotnir á Vesturbakka MÚSLIMSKIR öfgamenn skutu í gær tvo ísraelska landnema á Vesturbakkanum. Þá særði ísraeli, sem gætti bensínflutn- ingabíl, Palestínumann alvar- lega er hann skaut á hóp Palest- ínumanna sem grýttu bílinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.